Morgunblaðið - 19.08.1994, Page 28

Morgunblaðið - 19.08.1994, Page 28
28 FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1994 MORGUNBLAÐIÐ MINNIIMGAR ÞÓRA SNÆDAL + Þóra Guðný Jónsdóttir Snæ- dal fæddist að Brautarholti, Vopnafirði, 5. októ- ber 1910. Hún lést 12. ágúst síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Jón Halldórsson Snæd- al, Fagradal, Vopnafirði, og kona hans, Ragnhildur Rannveig Einars- dóttir Snædal, ætt- uð úr Suðursveit. Systkini hennar voru Halldór Vilhelm Júlíus, hálfbróðir af fyrra hjónabandi föður hennar, og alsystkin Einar Benedikt, Ósk- ar Sigurjón og Helga María. Frá Vopna- firði fluttist Þóra með foreldrum sínum þriggja ára gömul til Eskifjarðar. Þar bjó fjölskyldan á ýmsum stöðum, m.a. í Skuld og í Bröttuhlíð. 29. nóvember 1929 giftist Þóra eiginmanninum, Jóni Kristni Guðjóns- syni frá Kolmúla. Hjónin eignuðust 12 börn og eru 9 þeirra á lífí: Ranghildur, Guð- jón Einar, Jón Snædal, Gísli,- Guðni Þór, Kristín Selma, Auð- bergur, Þorvaldur og Helga Ósk. Einn dreng, Illuga Kristin, misstu þau sjö ára gamlan og tvær stúlkur misstu þau við fæðingu. Afkomendur Þóru og Jóns eru nú komnir á annað hundrað. ÞEGAR samferðafólk lýkur lífs- göngu sinni, sem áður hefur veitt vermandi geislum á veg manns, fer ekki hjá því að gullnar minninga- myndir glitri, skærar og skírar en ella. í daganna rás hafa þær veitt okkur auðlegð, öllu dýrri, auðlegð með ívafí ástúðar sem oft er um of í fylgsnum hugans falin, en öðlast á ný líf og ljóma, þegar leitað er eftir og litið til baka. Snar þáttur í lífsgæfu okkar er fólginn í því að eiga farsæla fylgd með samferðafólkinu, mega njóta gjöfulla brosa, hlýrra handtaka, vænna verka og vera helzt veitandi sem þiggjandi í senn. Eftir því sem árum fjölgar finnur maður betur dýrmæti þess að hafa átt góða og sanna samferðamenn, sem aldrei brugðust kalli á ævivegi. Hún Þóra Snædal er horfin okk- ur, heilsteypt kona höfðinglundar, hjartahlý, einlæg og sönn heiðurs- kona. Alþýðukona erfiðisins um ævidaga, atorkukonan sem ævin- lega setti í öndvegi uppeldisstarfið og hag heimilisins, um leið og hún var hugsjónakona, sem átti sína drauma um betri og bjartari heim, um jöfnuð, réttlæti og bættan hag þeirra sem halloka fóru á einhvern veg. Hún vildi að verkalaun færu Þrír vandaðir farsímar fyrir nýja GSM farsímakerfið Ericsson Pocket GH 337 Léttur og handhægur GSM farsími, hentugur í vasa og veski. Ericsson Pocket vegur aðeins um 197 gr og sendistyrkurinn er 2 wött. Minni fyrir númer og nöfn. Hleðsluspennir fyrir rafhlöðu. A Motorola 7200 Lítill og léttur GSM farsími flH frá Motorola á góðu verði. Sendistyrkurinn er 2 wött. Símanum fylgir innbyggt, óbrjótanlegt ioftnet sem draga má út. Flipi er á símanum sem lokartakkaborðinu. 100 númera skammvalsminni er (símanum. Aukarafhiaða og fullkomið borðhleðslutæki fylgir. Hagenuk MT 2000 Hagenuk síminn er.ódýr og sterkur GSM farsími með innbyggðum s(m- svara fyrir nöfn og talnaboð. Síminn er einfaldur í notkun. Síminn hefur 99 númera skammvalsminni, bæði fyrir númer og nöfn. Hleðsluspennir fyrir rafhlöðu. ■ Fjöldi fylgihluta er fáanlegur. Traust viðgerðar- og varahlutaþjónusta PÓSTUR OG SÍMI Söludeild Ármúla 27, sími 91-63 66 80 Söludeild Kringlunni, sími 91-63 66 90 Söludeild Kirkjustræti, 91-63 66 70 og á póst- og símstöðvum um land allt. VISA og Eurocard raðgreiðslur. 6 h<1íionuk eftir eðli starfs og mikilvægi, erfiði þess og raunverulegri ábyrgð, en ekki lögð á mælistiku kaldrar auð- hyggju. Hennar sjónarmiðum var hollt að kynnast, engin hálfvelgja, engin undanbrögð, lífsreynslan sjálf og glögg eigin athugun sam- einuð í einni mótaðri lífsskoðun. Það fór heldur ekki milli mála hver gæfukona Þóra var í öllu einkalífi sínu en ekkert fær meir mótað okkur en hversu þar tekst til. Hún fékk þar höndlað gæfunnar gullna hnoða. Eiginmaður Þóru, Jón Kr. Guð- jónsson, er látinn fyrir nokkrum árum en þau hjón voru einstaklega samhent og samhuga. Þegar ég kom heim að Hólmum til þeirra hjóna, ungur maður og óreyndur, til að leita liðsinnis þeirra, var þar hvergi að tómum kofa komið hvað þjóðfélagsleg við- horf varðaði. Þau voru hert í eldi harðrar baráttu á Eskifirði í skugga heimskreppunnar og sam- félagssýn þeirra öll meitluð og markviss í senn, og að loknum þeim samfundum fann ég ljóslega, hversu trygga liðsmenn hugsjón sósíalismans átti í þeim báðum, hversu vel grunduð hin glögga sannfæring þeirra var, byggð jöfn- um höndum á lífsins reynslu og ljósum kenningum. Þóra átti sannarlega annríkt um dagana, barnahópurinn var stór og bóndakonan ekki bundin önn inni við einni, en þá mun hafa komið sér vel hversu myndvirk hún var og samfara dugnaðinum átti hún glaðværa lund og létta, sem brá sínum ljóma á eril daganna og auð- veldaði lífsstritið. Þóra var fædd og uppalin á Eski- firði og þar bjuggu þau hjón fyrstu búskaparár sín, en fluttu svo að Hólmum í Reyðarfirði og bjuggu þar í rúman aldarfjórðung, en þá lá leiðin á Eskifjörð á ný og þar undu þau til endadægurs. Þessum tveim austfirzku fjörð- um var því ævi hennar bundin og Þóra var Austfirðingur eins og þeir gerast beztir. Hún var hrein og bein, kom til dyra eins og hún var klædd, einörð og hreinskiptin, en umfram allt alúðleg Og stutt í bjart bros ævinlega, vinur vina sinna og þess fékk ég svo sannar- lega að njóta. Ekki síður naut Magnús sonur minn þess er hann var hjá þeim hjónum um tíma við einstaklega gott atlæti, honum þótti sem hann væri heima hjá sér, svo var vakað yfir velferð hans. Langri og farsælli lífsgöngu er lokið og eftir lifir ágæt minning þar sem margir hafa svo mikið að þakka. í bijósti mér ymur strengur ' eftirsjár og trega, þegar þessi mæta vinkona mín er kvödd hinztu kveðju. Við Hanna færum börnum hennar og aðstandendum öðrum einlægar samúðarkveðjur. Fylgdin er þökkuð heilum hug, hollráð og blessunarorð geymd í þökk og þögulli virðingu fyrir mannkostakonu. Blessuð sé björt minning Þóru Snædal. Helgi Seljan. Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minn- ingargreinum fylgi á sér- blaði upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka, og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi að- eins frarti í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.