Morgunblaðið - 06.09.1994, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fyrstu
réttir
haustsins
um helgina
Hvammstanga. Morgunblaðið.
FYRSTU réttir haustsins
voru um helgina í Hrútafirði
og Mývatnssveit í ágætis
veðri.
Að sögn gangnastjóra Hrút-
firðinga, Þorsteins Sigur-
jónssonar á Reykjum, gekk
vel að smala heiðina. Sumir
gangnamenn gista um nótt
í heiðarskála en aðrir koma
upp að morgni og smala
þeir saman niður. Féð virð-
ist með fæsta móti, bæði
fækkar í hjörðum manna og
eins flytja sumir bændur
aðeins hluta fjárins á heið-
ina.
Sungið í gömlu
Gunnlaugsbúð
Réttarstemmning er ávallt
góð við Síká og í vistlegu
kaffihúsi taka menn lagið.
Veitingaskálinn var áður
verslun, Gunnlaugsbúð við
Grafarvog í Reykjavík.
EYJÓLFUR á Bálkastöðum, Guðmundur á Mýrum og Theodór
á Sveðjustöðum bera saman bækur sínar við réttarvegginn.
Morgunblaðiö/Karl A. Sigurgeirsson.
ÁGÆTIS veður var þegar Hrútfirðingar réttuðu við Síká
á laugardag.
Listahátíð í Hafnarfirði skuldar 6 inillj.
Seldu höggmynd
sem listamaður
gaf hátíðinni
BÆJARSJÓÐUR Hafnarfjarðar
keypti höggmynd sem mexíkóski
listamaðurinn, Alberto Guitarrez,
gaf Listahátíð í Hafnarfirði hf. sum-
arið 1993 á þrjár milljónir kr. Lista-
maðurinn fékk enga greiðslu enda
hafði hann gefið verkið og rann
greiðslan beint til Listahátíðar í
Hafnarfirði hf. Skuld Listahátíðar-
innar við Hafnarfjarðarbæ er rúmar
6 milljónir kr.
Listahátíð Hafnarfjarðar hf. seldi
Hafnarfjarðarbæ höggmyndina 1.
júlí 1993, en þá hafði Listahátíð
Hafnarfjarðar hf. átt myndina í
nokkrar vikur. Kaupin fóru fram
um svipað leyti og Ingvar Viktors-
son tók við sem bæjarstjóri í Hafn-
arfirði af Guðmundi Áma Stefáns-
syni. Ingvar Viktorsson kvaðst ekki
þekkja þetta mál. Gunnar Rafn Sig-
urbjörnsson, bæjarritari Hafnar-
fjarðar, segir alls óvíst hvort um-
ræddur reikningur hafi komið fyrir
sjónir bæjarstjóra.
Sex milljónir í skuld
Gunnar Rafn segir að Alberto
Guitarrez hafi gefið Listahátíð
Hafnarfjarðar hf. höggmyndina og
bæjarsjóður Hafnarfjarðar hafí síð-
an keypt listaverkið af listahátíðinni
á þrjár milljónir kr. Listaverkið stóð
mestan hluta sumars 1993 við
Hafnarborg og var ætlunin að flytja
það í höggmyndagarð Hafnarfjarð-
ar á Víðistaðatúni, en hann var
stofnaður sumarið 1991 með gjöf
nokkurra erlendra listamanna á
listaverkum eftir sig. „Það dróst og
var verkið því flutt á geymslusvæð-
ið í Kapelluhrauni sem er girt svæði
þar sem er sólarhringsvakt. Það er
gert ráð fyrir því að það verði fiutt
þaðan í höggmyndagarðinn,“ segir
Gunnar Rafn.
Listahátíð Hafnarfjarðar hf. er
hlutafélag sem stofnað var til að
halda listahátíð í Hafnarfirði. Það
er í eigu nokkurra einstaklinga, er,
Hafnaríjarðarbær á ekkert í féíag-
inu. í stjóm þess sitja Sverrir Ólafs-
son, myndlistarmaður, Gunnar
Gunnarsson, tónlistamaður, og Örn
Óskarsson, tónlistamaður.
Gunnar Rafn segir að Listahátíð
Hafnarfjarðar hf. skuldi bæjarsjóði
í dag rúmar sex milljónir króna.
Hann segir að stjórnendur Hafnar-
fjarðarbæjar hafi enn ekki tekið
ákvörðun um hvernig tekið verði á
þessari skuld.
Samþykkt verkamannafélagsins Dagsbrúnar um gerð kjarasamninga
• /
Sjalft með for-
ræði samninga
STJÓRN verkamannafélagsins
Dagsbrúnar samþykkti á stjómar-
fundi um helgina að félagið fari
sjálft með forræðið í næstu kjara-
samningum, sem em lausir um
áramót, og að leitað verði sam-
starfs við önnur verkalýðsfélög á
sama vettvangi um samvinnu við
samningagerðina. Samkvæmt
heimildum blaðsins er þar um að
ræða önnur verkalýðsfélög á höf-
uðborgarsvæðinu og á Suðumesj-
um.
Stefnt er að því að Ijúka undir-
búningi samninga í þessum mán-
uði og óska eftir viðræðum við
viðsemjendur sem fyrst í október-
mánuði, en meginkrafa félagsins
er lagfæring lægstu launa og að
lægstu launin hækki mest.
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Dagsbrúnar, sagði að á
stjórnarfundinum hefði verið sam-
þykkt að vera ekki í samfloti í
þeim kjarasamningum sem fram-
undan væm sem væri eins upp-
byggt og samflotið í síðustu tvenn-
um samningum, en þar hefði
áhrifa félagsins ekki gætt eins og
skyldi. Síðustu samningar hefðu
endað í algjörri uppgjöf að hans
mati án þess að samið væri um
nokkrar kauphækkanir. Þó samn-
ingamir hefðu falið í sér nokkrar
úrbætur í atvinnumálum hefðu
þær verið hverfandi litlár. Kaup-
mátturinn hefði rýrnað á samning-
astímanum og það væri gífurlegur
þungi í félagsmönnum yfír þeim
lágu töxtum sem í gildi væru og
eins yfir því hvað yfirvinna hefði
'minnkað mikið, en algengt hefði
verið að yfirvinna væri 35-40%
af heildarlaunum verkamanna.
Það horfði þunglega í atvinnumál-
um verkamanna í vetur og hann
kviði vetrinum. Á sama tíma birt-
ust í sífellu fregnir í fjölmiðlum
af fyrirtækjum sem væru að skila
stórgróða.
Tiltekin mál sameiginleg
Guðmundur sagði að stjómin
hefði samþykkt einróma að fara
ekki inn í þessu stóru samflot
undir forystu Alþýðusambands ís-
lands. Hins vegar kæmi til álita
að tiltekin mál sem snertu hags-
muni allra launþega yrðu á sam-
eiginlegu borði eins og til dæmis
krafan um lágmarkslaun og afnám
lánskjaravísitölu. Hann sagði að
félagið myndi efna til vinnustaða-
funda á næstunni til að undirbúa
samningagerðina og trúnaðar-
menn yrðu kallaðir saman. Stefnt
væri að því að ljúka undirbúningi
kröfugerðar í þessum mánuði, og
óska eftir viðræðum við viðsemj-
endur strax í byijun október.
Fimm með
fíkniefni
á 2 vikum
Keflavík - Þijátíu og sex ára
gamall Reykvíkingur var tek-
inn með nokkur grömm af
kannabis þegar hann var að
koma til landsins frá Amster-
dam á sunnudaginn.
Undanfama daga hefur
ftkniefnadeild lögreglunnar á
Keflavíkurflugvelli tekið
fímm íslendinga sem hafa
ýmist verið með fíkniefni eða
tæki til neyslu þeirra. Ekki
hefur verið um mikið magn
að ræða, nokkur grömm í
hvert sinn og voru viðkom-
andi á leið til landsins frá
Evrópu og Bandaríkjunum.
Mæðraskoðun fari
í Fæðingarheimili
Fjárfrekar breytingar á húsinu ef
glasafrj ó vgunardeildin flyttist
Lestrarnámskeið fyrir kennara
LÍKLEGRA þykir nú að mæðra-
skoðun fremur en glasafijóvgun-
ardeild flytjist af Landspítala í
Fæðingarheimilið við Eiríksgötu.
Ásamt starfseminni verður rekin
fæðirigardeild, með fæðingarað-
stöðu og sængurkvennagangi, í
húsinu.
Hagstæðari flutningar
Pétur Jónsson, framkvæmda-
stjóri stjórnunarsviðs Landspítala,
sagði að húsið væri gamalt og til
að fullnægja öllum skilyrðum
vegna viðkvæmrar starfsemi
glasafijóvgunardeildarinnar þyrfti
að gera á því fjárfrekar breyting-
ar. Breytingar vegna mæðraskoð-
unar yrðu ekki jafn umfangsmikl-
ar og því þætti hagstæðara að
flytja þá starfsemi í húsið. Við
flutning mæðraskoðunarinnar á
fyrstu og hálfa aðra hæð heimilis-
ins fengi glasafijóvungardeild
húsnæði hennar í spítalanum.
Hönnun vegna starfsemi fæðing-
ardeildar með rúmum fyrir 16 til
18 sængurkonur á þriðju og hálfri
annarri hæð Fæðingarheimilisins
stendur yfir.
Starfsemi fyrir jól
Endanleg ákvörðun vegna ann-
arrar starfsemi en fæðingardeildar
verður tekin á næstunni. Gert er
ráð fyrir að framkvæmdir hefjist
fljótlega og starfsemi hefjist fyrir
jól.
NÁMSKEIÐ í lestrartækni fyrir
kennara er nú haldið á vegum
Iðnskólans í Reykjavík. Gyða
Stefánsdóttir er að kynna tækni
sem kennd er við Helen Irlen
og hún lærði í Bandaríkjunum.
Tæknin byggir á því að nota
litaðar glærur og lituð gleraugu
til að hjálpa nemendum, sem
eiga við sérstaka námserfið-
leika að stríða, við lestur.
Gyða segir að Helen Irlen hafi
uppgötvað þessa tækni fyrir til-
viljun árið 1981. Hún hafi síðan
þróað hana á þann hátt að börn
viiji lesa í gegnum glærurnar.
Þessari tækni fylgja líka lituð
gleraugu sem auðvelda börnum
enn frekar lestur. Að sögn Gyðu
er markmiðið með þjálfuninni
að nemendur geti lesið án
hjálpartækja að henni lokinni
eða a.m.k. gert sér mun auð-
veldara fyrir.
Iðnskólinn ákvað fyrir tveimur
árum að taka upp þessa tækni
og hefur hún verið notuð með
góðum árangri. Námskeiðið nú
er lokaáfangi í námi Gyðu og
veitir henni réttindi til að kenna
kennurum. Ann Wright frá
Bretlandi kennir með Gyðu á
námskeiðinu og veitir henni
réttindin að námskeiðinu loknu.
Á námskeiðinu læra kennararn-
ir að greina nemendur með sér-
staka námserfiðleika og einnig
að nota glærur og gleraugu til
lestrarkennslu.
I
>
f
i
í
S