Morgunblaðið - 06.09.1994, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 06.09.1994, Qupperneq 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Lífsorkan í lit JÓHANNA Bogadóttir: Höfuðskepnur. 1993-94. MYNPOST Ilafnarborg MÁLVERK JÓHANNA BOGADÓTTIR Opið alla daga nema þriðjudaga kl. 12-18 til 19. september. Aðgangur ókeypis. HVAÐ sem almannarómur segir, vita þeir sem til þekkja að góðir lista- menn eru stöðugt að; mörg verk á ýmsum framkvæmdastigum fylla vinnustofumar, skipulag sýninga langt fram í tímann er í sífelldri endurskoðun, og dag hvern kvikna nýjar hugmyndir af minnsta tilefni um stórfengleg verkefni, sem bíða eftir að brjótast fram. Það kann því að vera eitt erfið- asta viðfangsefni virkra listamanna í okkar litla landi að einbeita sér að ákveðnum áföngum — og þar með að sýna ekki of oft, til þess að list- unnendur fái ekki of stóran skammt í einu, ef svo má að orði komast. Jóhanna Bogadóttir er ein okkar dugmiklu listamanna, sem alltaf er að verki. Þetta er þriðja einkasýning hennar á höfuðborgarsvæðinu á inn- an við tveimur árum (í Listhúsinu í Laugardal í desember 1992, Lista- safni ASÍ í maí 1993), en auk þess setti hún í vor upp einkasýningu í Vestmannaeyjum, tók þátt í samsýn- ingu í Norðurlandahúsinu í Færeyj- um og hélt sýningu í New York á vegum American Scandinavian Fo- undation, sem eru samtök norrænna vinafélaga í vesturheimi. Því mætti ætla að nóg væri kom- ið af verkum Jóhönnu I bili, en svo er alls ekki; listunnendur eru löngu búnir að átta sig á, að í myndum hennar er að ávallt hægt að taka eftir nýjum atriðum, nýjum litatón- um, annarri myndbyggingu en áður. Hér sýnir hún einnig nokkurn flokk vatnslitamynda, sem hún hefur ekki gert áður, og er fróðlegt að sjá hvemig sá miðlill nýtist við þau vinnubrögð, sem einkenna verk hennar. í verkum sínum er Jóhanna að fást við svipuð viðfangsefni og áður — tilbrigði náttúrunnar í'öllu hennar veldi, og þá orku, sem geislar af lita- flæði Iífsins í stóru og smáu. Titlar verkanna endurspegla þessa breidd myndvakanna, allt frá „Tilveru" (nr. 2) til „Gróanda" (nr. 18) og „Grænn- ar veraldar" (nr. 45). Verkin mark-^ ast síðan af dansi litanna um flet- ina, og fremur en áður tekur sýning- argesturinn hér eftir á hvem hátt hver mynd er að endingu unnin út frá ákveðnum litum — grænum, blá- um, gulum eða rauðum. Það verður einnig fljótt ljóst hvers vegna lista- konan á erfitt með að slíta sig frá hveiju verki, þar sem sífellt hefur verið bætt við, málað yfír, breytt um litatóna — allt þar til fletimir glóa sem sjálfstæðar einingar. Á sýningunni verður jafnframt ljóst, að stærðir skipta máli í verkum Jóhönnu, að því leyti að stærri mynd- fletir henta betur því vinnsluferli sem markar verkin. Minnstu mál- verkin, t.d. „Blái kofi“ (nr. 13) og „Blátt flug“ (nr. 14) virka aðkreppt og þröng á meðan stærsta verk sýn- ingarinnar, „Undir sóiu" (nr. 6) er ríkulegt og margslungið í rúmum fletinum. I flestum verkanna er þó að finna gott jafnvægi lita, forma og rýmis, og nægir að benda á jafnó- líkar myndir og „Rauðan glóandi" (nr. 20) og „Höfuðskepnur" (nr.l) því til stuðnings. Nokkrar olíukrítarmyndir nægja til að staðfesta að sá miðill hentar vel fyrir flögrandi línuspil þeirra ímynda, sem Jóhanna festir niður. Vatnslitamyndimar em öllu misjafn- ari; þar bregður á stundum fyrir ofhlæði, en listakonan nýtir miðilinn best þar sem uppbyggingin er ein- fold og tær, líkt og í myndröðinni „í sólskini I-III“ (nr. 26). Smæð vatnslitaflatarins er einnig oft ókost- ur fýrir þann myndheim, sem birtist svo ríkulega í málverkunum. Jóhanna Bogadóttir er án efa í hópi okkar besta myndlistarfólks, og verk hennar endurspegla ekki síst þá lífsorku, sem felst í forvitni um tilvemna í kringum okkur. Áhorfendur eiga ætíð auðvelt með að tengjast þessum spumingum í myndverkum hennar, og er rétt að hvetja fólk til að leggja leið sína í Hafnarborg næstu vikumar. Eiríkur Þorláksson MYNDLISTARNÁMSKEIÐ EINARS HÁKONARSONAR, LISTMÁLARA VERÐA HALDIN 1VOGASELI1 (VINNUSTOFU) INNRITUN ALLA DAGA í SÍMA 71575 Byrjendaflokkur 26. sept. - 27. okt. Teiknun og málun. Mánud. - fímmtud. kl. 17.30-19.30. Framhaldsflokkur 26. sept - 27. okt. Módelteiknun og málun. Mánud. - fímmtud. kl. 20.00-22.00. Aldurslágmark 16 ára. Hversdagsmyndir í óvæntu ljósi BOKMENNTIR Ljóö VINDAR HEFJA SIG TIL FLUGS eftir Wemer Aspenström. Njörður P. Njarðvík þýddi. Urta 1994 - 72 síður. WERNER Aspenström (f. 1918) er meðal helstu sænskra skálda sem hafa verið kennd við fimmta áratuginn (fyrtiotal- isterna). Eftir hann hafa komið út fjöl- margar bækur, sú fyrsta 1943. Skáld- skapur Aspenströms þykir torræður þótt málfar og setninga- skipan séu ekki endi- lega hátimbruð. Efni- viður ljóðanna er oft sérkennilegur, hug- myndauppsrettan er gjaman framandi og einkaleg. Vindar hefja sig til flugs er úrval úr 17 ljóðabókum skáldsins, safn 63 ljóða. Hér er um að ræða íjórðu ljóðabók eftir norræna höf- unda í þýðingu Njarðar P. Njarð- vík sem Urta gefur út. Áður hafa komið út bækur eftir Carpelan, Tranströmer og Södergran. Sameiginlegt einkenni á ljóðum Aspenströms er einlægnin, það er líkast því að lesandinn heyri rödd trúnaðarvinar í hverri línu. Yfir- bragðið er hæglætislegt, stfllinn er auðskilinn en hugmyndimar sem fram eru settar ekki endilega aðgengilegar. Aspenström er býsna lagið að hafa endaskipti á viðmiðum þannig að hversdagsleg- ir hlutir baðast í annarlegu ljósi. Sannleikurinn er sjaldnast einfald- ur. Eitthvað fer fram hjá hefst svo: Það er ekki þú sem ferð áfram. Það er myrkur sem fer á móti þér og framhjá þér. Það eru þeir sem hittast sem eru á ferð, ekki þú, ekki hér. Bátur þinn fer ekki áfram. Það eru öldumar sem fara á mótiþér og framhjá þér. Myndin, sem hér er dregin upp, byggir á almennri reynslu. Ein og sér segir hún svefn- göngum vanans ekki nokkum skapaðan hlut, í besta faili rifjar hún upp geðþekka bemskureynslu. En hér, eins og í svo mörgum ljóð- um, notar Asperström einfalda reynslu til þess að undirbyggja víðfeðma ályktun. Undir lok ljóðs- ins opnast sjónhomið og myndin skírskotar iangt út fyrir sjálfa sig: Hversu létt fer dauðinn og þunglega lífið! Lífið rær báti sínum í örvæntingu með bamslegum áram. Lífið vindur upp segl sitt og seglið kallar á vindinn, en vindurinn er þreyttur þessa stundina. Svo virðist sem fátt sé of smátt í ljóðum Asperströms til að geta haft sérstaka þýðingu. Alkunna er hvemig þyrluhljóð er notað sem váboði í kvikmyndum. í Óði til þyrlunnar er hið gagnstæða uppi á teningnum: „Loftfroskur, þú syngur / ljúfar en næturgaii!" Sviðsmynd ljóðsins Nýtt fólk vex úr grasi er sjúkrahús. Hjúkmnar- maðurinn vinnur afrek í hversdag- legum atburði sem farið hefði fram hjá flestum. í augum skáldsins er atburðurinn tákn um stórsigur í því smáa og sjálfsagða. Þýðing Njarðar P. Njarðvík á ljóðum Aspenströms er á geð- þekkri íslensku, orðin raðast yfir- lætislaust niður í vel skiljanlegar setningar sem þó em ljóðrænar. Enginn dómur skal lagður á hversu trúr Njörður er frumtextanum, hér skortir blekbera nægilega þekk- ingu á sænskri tungu. Greinilegt er samt að textinn hefur verið lengi tálgaður. Leitt var að hnjóta um áberandi stafabrengl sem höfðu ratað í stöku ljóð. Ingi Bogi Bogason Werner Aspenström

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.