Morgunblaðið - 06.09.1994, Side 19

Morgunblaðið - 06.09.1994, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1994 19 Góður samleikur TONUST KAMMERTÓNLIST EFTIR KARÓLÍNU EIRÍKSDÓTT- UR, SMETANA OG BEET- HOVEN Flyljendur: Guðný Guðmundsdóttir, Gunnar Kvaran og Halldór Haralds- son. Sunnudagur 4. september 1994. TÓNLEIKARNIR hófust á tríói eftir Karolínu Eiríksdóttur, sem hún samdi 1987 og bæði má vera, að verkið hafi verið betur leikið nú en þá það var frumflutt eða, að tónmál verksins búi yfir þeim eigindum að þola vel geymslu og endurflutning, sem er þá vegna þess að í því er að finna frjó góðrar tónlistar. Form verksins er einfalt raðform, byggt upp sem einskonar tilbrigði og allt tónmálið mjög skýrt og var auk þess mjög vel flutt, sem jók ánægjulega endurupplifun verksins. Tríó í g-moll, op. 15, eftir Smet- ana, er meðal fyrstu verka hans sem enn eru leikin og þrátt fyrir að Smet- ana hafi mjög sótt sér fyrirmyndir í þá vinnutækni, er Liszt var frægur fyrir (enda var Smetana mjög góður píanóleikari), átti hann til þau sér- kenni í tónmáli er gera mörg verka hans heillandi. Flutningurinn hjá Tríói Reykjavíkur var í heild góður, þó stundum væri hljómstyrkurinn við hærri mörkin og ynni þá gegn verk- inu og var til óþægðar flytjendunum, t.d. varðandi tóngæði. Fyrsti kaflinn og „alternativo" þættimir voru mjög vel fluttir. Tónleikunum lauk með Erkiher- togatríóinu, eftir Beethoven, sem er mikið og margslungið kammerskáld- verk og töluverð hólmganga fyrir píanista að takast á við snjallar leik- HALLDÓR Haraldsson, Gunnar Kvaran og Guðný Guðmundsdóttir. fléttur meistarans, sem margar hverja léku í höndum Halldórs. Tríó- ið var mjög vel flutt einkum fyrsti og þriðji þátturinn, þó einnig glamp- aði víða á í glettunni (Scherzo: Alle- gro). Samleikur félaganna var góður og samspil viðkvæmra tónhendinga, svo og einleiksstrófur hjá Guðnýju og Gunnari voru oft mjög fallega útfærðar. Tríó Reykjavíkur var stofnað 1988 og hefur á þeim tíma staðið fyrir reglulegu tónleikahaldi í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnar- fjarðar og heldur nú fram sjötta veg- aráfangann, á vonandi langri vegferð sinni. Það sem sérkennir Tríó Reykja- víkur, er að félagarnir eru mjög ólík- ir listamenn, góðir en sterkir per- sónuleikar, „hertir í eldsmiðju" ein- leikarans og þessi sterku persónuein- kenni voru í raun töluvert vandamál í upphafi, sem nú er að taka á sig samstæða mynd. Kammertónlist er sú tegund tónskáldskapar, sem er mjög krefjandi um alla tækni en einn- ig varðandi túlkandi samvinnu, sem er í raun meira en samtaka spila- mennska, því t.d. tríó er ein tónhugs- un en ekki raddir fyrir þijá einleik- ara. Það ber að fagna samstarfi þess- ara ágætu listamanna, sem tónleika- gestir binda mikla vonir við, varð- andi góðan flutning kammertónlist- ar. Tónlistarmönnum hér á landi hefur hingað til ekki tekist að halda fram samfelldu starfi við flutning kammertónlistar og því er Tríó Reykjavíkur okkar stóra vonin í dag, sérstaklega vegna ágæti listamann- anna og að þeim hefur tekist að halda sínu merki hátt á lofti. Jón Ásgeirsson More tölvnr 4Mb minni, 210 Mb diskur, VESA Local Bus, 14" SVGA skjár, lyklaborð og mús Tilboð írá ki: 104.900,- ^BQÐEIND- Austurströnd 12. Sími 612061. Fax 612081 Stórkostlegt ævintýri til Egyptalands, vöggu heimsmenningarinnar, þar sem þú kynnist umhverfi og menningarverðmætum Faróanna sem er engu öðru líkt í mannkynssögunni. Töfrar Kaíró i góðum aðbúnaði á 4ra stjörnu hóteli og ævintýrasiglingu á ánni Níi með íslenskum fararstjóra Heimsferða allan timann. Kr. 90.600 28. september — 3 vikur 11 dagar í Egyptalandi og 10 dagar á Spáni. HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600 í Dansráð Islands tryggir rétta tilsögn ^ansskóli Jóns Péturs og Köru Bolholti 6, 36645 o0) ansskóli Heibars Ástvaldssonar Brautarholti 4, 20345 r azzballettskóli Báru StfgahlíS 45, sími 813730 ansskóli Hermanns Ragnars Faxafeni 14, 687580 ^ansskóli Sigurbar Hókonarsonar Aubbrekku 17, 641111 c^> ansskóli Auðar Haralds Grensásvegi 12, sími 39600 cdansskólinn Reykjavíkurvegi 72, 652285 c^) anslína Huldu Þarabakka 3, 71200 agný Björk, danskennari Smiðjuvegi 1, sími 642535 anssmiðjan Engjateigi 1, 689797 | Innritun í ofangreindum símum alla daga vikunnar á milli 13.00 og 19.00 g

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.