Morgunblaðið - 06.09.1994, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 06.09.1994, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Norrænir músíkdagar Atta íslensk tónverk flutt HUÓMSVEITARTÓNLEIKAR með þekktum einleikunim og stjórnendum setja svip sinn á tón- listarhátíðina Norrænir músíkdag- ar sem haldnir verða í Kaupmanna- höfn 5.-10. september. Einnig verða haldnir sex tónleikar sem hveijir um sig eru helgaðir kam- merverkum frá einu af hinum fimm Norðurlöndunum og Færeyjum. Verk eftir íslendinga skipa veg- legan sess á hátíðinni, en þar verða flutt verk eftir Lárus H. Grímsson, Þorstein Hauksson, Atla Heimi Sveinsson, Snorra Sigfús Birgis- son, Leif Þórarinsson, Hilmar Þórðarson, Hauk Tómasson og Áskel Másson. Verkin eru ijöl- breytileg - elektrónísk verk, kam- merverk og stærsta verkið sem flutt er eftir íslending að þessu sinni er „Nóttin á herðum okkar“ eftir Atla Heimi Sveinsson fyrir hljómsveit, kvennakór og tvo ein- söngvara, Danska útvarpshljóm- sveitin leikur verkið undir stjóm Leif Segerstam og á sömu tónleik- um frumflytur Manuela Wiesler flautukonsert eftir norska tón- skáldið Yngve Slettholm. Efnisskrá hátíðarinnar er vönd- uð og er þar fjallað um öll verk sem flutt verða á þessum músíkdögum og tónskáld þeirra. Einnig eru nokkrar greinar um tónlistarmál á Norðurlöndum, þar á meðal grein eftir sænska tónlistarfræðinginn Göran Bergendal sem hann nefnir „Fragments of an Icelandic Portr- ait“ eða „Brot úr íslenskri andlits- mynd“ þar sem hann fjallar um ísland sem tónlistarland. Hann rek- ur tónlistarsögu þess stuttlega og ræðir svo um þá fjölbreyttu eriendu strauma sem berast inn í landið með tónskáldum sem mennta sig nær undantekningarlaust erlendis. Að hans mati er þetta eitt af sérein- kennum íslenskrar tónmenningar. Norrænir músíkdagar eru haldnir annað hvert ár og skiptast tón- skáldafélögin á Norðurlöndum á um að halda þá. Sérstök áhersla er lögð á flutning nýrra verka á þessum hátíðum og er eingöngu flutt tónlist eftir norræn tónskáld. Norrænir músíkdagar verða næst haldnir í Reykjavík 1996. ^að er eitthvað bogið við nýiu /sskápalínuna frá Whirlpool HLUTFÓU HURD HJED BHEJDODYPT TEGUND Sl.GH. Bogadregin lmaii i liurdunum á nýju ískápalúiuiini frá Whirpool gefur milímaiegt yfirbragd. Um leið er |>að afturhvarf til fortíðar og því má segja að gamli og nýi tíminn mætist í nýju Soft Look iínunni frá Whirlpool. 190/122 & 180 80 60 242m\% 180 ;80'60 2021% h 179 56 60 204160 m 159 'M 60 KOMDU Oö Heimilistæki hf SÆTUNI 8 SlMI 69 15 OO Umboðsmenn um land allt Morgunblaðið/Jón Svavarsson Niels-Henning IX. opnar RúRek 1994 TONLIST Hðtcl Saga TRÍÓ NIELS-HENNINGS 0RSTED PEDERSEN Á RÚREK-HÁTÍÐINNI Flytjendur: Niels-Henning Orsted Pedersen kontrabassi, Ole Koch Han- sen pianó og Alex Riel tronnnur. Sunnudagur 4. september 1994. NIELS-Henning 0rsted Pedersen opnaði RúRek-djasshátíðina sl. sunnudagskvöld með tónleikum í Súlnasal Hótel Sögu ásamt löndum sínum, píanistanum Ole Koch Hansen og Alex Riel trommuleikara. Það var við hæfi að Niels-Henning hæfi leik- inn því hann er heiðursgestur hátíðar- innar og hefur auk þess oftar en aðr- ir listamenn í þessum styrkleikaflokki komið til íslands, eða alls níu sinnum, og í hvert sinn vekur þessi óviðjafnan- legi listamaður aðdáun. Efnisskráin á tónleikunum var tví- skipt. Fyrri hlutinn var helgaður tón- smíðum flestum eftir Niels-Henning og þar brá fyrir ýmsum stílgerðum, svingi, bíboppi, latín og ballöðum og aðalsólóistinn jafnan Niels-Henning sem leikur ólíkt öllum öðrum mönn- um á bassann. í höndunum á honum er kontrabassinn miklu meira en kjöl- festan í rytma og hljómum því Niels- Henning nálgast bassann ekki síst sem einleikshljóðfæri. Og áheyrend- ur finna að maðurinn og hljóðfæri eru eitt. Niels-Henning er kontra- bassi. Tónlistargáfa af þessu tagi er sjaldgæf en annar listamaður sem kemur upp í hugann sem hefur hljóð- færi sem hluta af sínu sjálfi er sam- starfsmaður Niels-Hennings til margra ára, Oscar Peterson. Oscar er flygill. Þegar þessu ástandi er náð er ekkert til að hamla listrænni túlk- un nema andagiftin. Og hún var í góðu meðallagi í Súlnasal. Tónleikamir hófust á hröðu lagi í bíboppanda eftir Niels-Henning og strax komu fram þeir eiginleikar sem hafa gert Danann geðþekka að konungi kontrabassans, hljómurinn, nær fullkomin tæknin og lagræn hugsun. Á eftir fylgdu nýlegar tón- smíðar eftir Niels-Henning sem ekki voru kynntar frekar. Seinni hlutinn var helgaður þjóð- legum stefum víðs vegar að en Niels- Henning og Ole Koch Hansen hafa verið ódeigir við að spinna út frá þessum einföldu melódíum og gæða þær lífí. Tríó Niels-Hennings flutti fagnaðarboðskap djassins af fag- mennsku og bræðralagi þriggja frá- bærra tónlistarmanna sem þekkja hvem annan út í æsar. Sérstaklega voru skemmtilegir „breikkaflar" Ni- els-Hennings og Alex Riel og spila- gleðin smitaðist út í salinn. Þeir fé- lagar voru klappaðir út tvisvar og enduðu kvöldið á St. Thomas. Guðjón Guðmundsson Leikárið hafið í Þjóðleikhúsinu FYRSTA september fór fram setning þessa leikárs í Þjóðleik- húsinu. Framundan er fjölbreytt verkefnaval á þremur leiksviðum alls verða 10 verk frumsýnd á leikárinu; ópera, barnaleikrit, söngleikur, íslensk leikrit og er- lend, nútímaverk og sígild. Sala áskriftarskírteina stendur yfir og eru kortin nú með nýju sniði, korthafar hafa m.a. fleiri valmöguleika en áður. Fyrsta frumsýning leikársins er 17. sept- ember, á óperunni Vald örlag- anna. DANSSKÓLIHERMANNS RAGNARS Faxafeni 14, Nútíð, 108 Reykjavík, Símar 687480 og 687580 Kennslustaðir: Faxafen 14 - Frostaskjól - íþróttahús Digraness Við erum mætt til leiks. Skóli hinna vandlátu Þar sem þú ert Innritun daglega frá kl. 13-19 ROCK - STEP Sérfögin okkar eru STEP og ROCK. Eldhressir tímar með heillandi tónlist. Áralöng reynsla af danskennslu. Ný sveifla á gömlum grunni. - Stendur enn á gömlum merg - Nýjustu dansarnir: DOOP og KAHLÚA GROOF, HIP HOP, MAMBO OG SALSA. Nýjustu danslögin á geisladiskum. tryggir rétta tilsögn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.