Morgunblaðið - 06.09.1994, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 06.09.1994, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1994 23 stjórnvöldum landanna lið, ef minnsti vafi þykir leika á því, að allur sovéskur eða nú rússenskur her hverfi þaðan á brott. Einnig ber að vinna að því, að Rússar hverfi með herafla sinn frá Kaliningrad eða Königsberg, sem er í krika Eystrasaltsins milli Lithá- ens og Póllands. Hin mikla herbæki- stöð þar raskar öllu eðlilegu jafn- vægi á þessum slóðum og ekki er með nokkrum rökum unnt að halda því fram, að hún sé nauðsynleg til að tryggja öryggi Rússlands. Engin nágrannaþjóðanna á þessum slóð- um hefur mátt til að ógna þessu öryggi. Mikilvægi Kóla-skaga Þeir, sem búa í nágrenni Rúss- lands, hafa áhyggjur af óvissu, sem þar ríkir. Einnig óttast margir þau sjónai-mið rússneskra þjóðernis- sinna, að rússneski herinn hafi sér- stökum skyldum að gegna fyrir þá að minnsta kosti 25 milljón Rússa, sem búa í næstu nágrannalöndum Rússlands. Sú hætta er talin raun- veruleg, að Rússar líti þannig á, að þeir hafí einhvers konar rétt til hernaðarlegrar íhlutunar í næsta nágrenni sínu vegna þessa fólks. Um leið og Norðurlandaþjóðir fagna brottflutningi léifanna af sov- éska heraflanum frá Þýskalandi og Eystrasaltsríkjunum, er þess minnst, að á gamla Leníngrad-her- stjórnarsvæðinu fyrir austan Finn- land hefur lítið dregið úr hernaðar- mætti. Fyrir norðan Finnland og Svíþjóð og austan Noreg er síðan Kóla-skaginn. Kóla-skagi er enn aðsetur helstu herstöðva Rússlands og mikilvægi þeirra minnkar alls ekki. Þvert á móti bendir flest til þess að Kóla- skagi og hafnirnar umhverfis Múr- mansk verði helsta kjarnorkuvopna- búr Rússa og risakafbátarnir, sem þeir halda áfram að smíða, verði á sveimi í Norðurhöfum og á Norður- Atlantshafi. Ekkert ríki annað en Bandaríkin megnar að veita hæfi- legt mótvægi við þessum rússneska vígbúnaði. Það er að mínu mati jafnbrýnt og áður, að Bandaríkin hlutist til um gæslu öryggismála á norðurslóðum. Ber íslendingum að leggja sitt af mörkum með sam- starfi sínu við Bandaríkjamenn á þann veg, að það komi öllum Norð- urlöndum til góða. ísland er í annarri stöðu en hin Norðurlöndin vegna varnarsamn- ingsins við Bandaríkin. Þau telja öryggishagsmunum sínum best borgið með aðild að stærri heiid, Evrópusambandinu, sem myndi mótvægi gegn öflugu ríki í austri, Rússlandi. Aðildin að Atlantshafs- bandalaginu og sérstaklega varnar- samningurinn við Bandaríkin tengja okkur slíkri heild. Þegar nær dregur þjóðaratkvæðagreiðslum um aðild Finnlands, Svíþjóðar og Nor- egs að Evrópusambandinu, verður meiri áhersla lögð á nauðsyn aðild- ar vegna öryggishagsmunanna. Það blasir við lýðræðisþjóðunum í Vestur-Evrópu, að nauðsynlegt er að Eystrastaltsríkin, Pólland og önnur ríki í Mið- og Austur-Evrópu geti búið við sömu aðstæður og þær í öryggismálum. Eftir að síðustu léifar sovéska hernámsliðsins eru á brott frá þessum löndum, ætti að vera auðveldara að leysa úr þessum vanda. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjnvik. Off nú er hann tvöfaldiir! Verður haxin 100 milljóiiir? | Grilljónauppskrift Emils: 1. Skundaðu á næsta sölustað íslenskrar getspár. 2. Veldu réttu milljónatölurnar eða láttu sjálivalið um getspekina. 3. Snaraðu út 20 krónum fyrirhverja röð sem þú velur. 4. Sestu í þægilegasta stólinn í stofunni á miðvikudagskvöldið og horfðu á happatölurnar þínarkrauma í Víkingalottó pottinum í sjónvarpinu. 5. Hugsaðu um allt það sem hægt er að gera fyrir 100 milljónir. Verði ykkur að góðu! Skeifunni 17 - Sími 681665 * dpi = punkta upplausn á tommu. RET = HP upplausnaraukning. ...við allra hæfi! HP DeskJet 1200C ertoppurinn á meðal lítaprentara. Hraðvirkur. Hágæða prentun. Fjórskipt bleksprautun. 300x600 dpi + RET'. 2 MB minni (stækkanlegt). 85.500,- Tæknival HP DeskJet 560C er nýr litaprentari sem vekur athygli. 300x600 dpi + RET*. Hraðvirkur prentari. Vönduð litaprentun. BRYNJAR HÖNNUN / RÁÐGJÖF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.