Morgunblaðið - 06.09.1994, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 06.09.1994, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1994 25 AÐSEIMDAR GREINAR Lengi getur vont versnað ÞRÓUNARSJÓÐUR sjávarút- vegsins er nú tekinn til starfa og hefur stjórn sjóðsins haldið tvo fundi þar sem samþykktir voru hvorki meira né minna en 800 millj- óna króna úreldingarstyrkir segir Morgunblaðið í dag (28 ágúst). Hvað nægir það fyrir mikilli flotastækkun? Vísindamönnum sem sótt hafa án minnsta árangurs í áratug um bara brot af einni milljón til rann- sókna á fiskveiðunum, sókninni eða fiskistofnunum og hruni þeirra hlýt- ur að finnast mikið til um örlætið, og vænt- anlega verða nú haldn- ir fleiri fundir. Og hvað geta svo útgerðar- mennirnir fengið fyrir 800 milljónir. Jú, eftir því sem maður heyrir geta þeir víst keypt og greitt út í hönd eina 80 gamla kanadíska tombólutogarara og stækkað þar með flot- ann um segjum 30 þús rúmlestir. Og þótt þeir gerðu meiri kröfur til skipanna gætu þeir sjáífsagt keypt öll hentifánaskip íslendinga eða ný til að tvöfalda hentifánaflotann. Þeir gætu líka keypt fleiri togara eins og Sigli, stærsta skip íslenska flot- ans. Reksturinn er Iíka á kostnað almennings Jafnvel nýju Guðbjörgina, flagg- skip flotans, gætu þeir sjálfsagt keypt ef hún færi á nauðungarupp- boð sem hún gerir nú vonandi því þetta nýja skip hvorki stækkar kvótann né styrkir þorskstofninn. Hún veiðir því auðvitað alls ekki neitt nema það sem hún tekur frá öðrum og aflar þjóðarbúinu minna en alls engra tekna en veldur því gífurlegum tilkostnaði. Er verið að úrelda nýtanlegan búnað? 800 milljónir fá útgerðarmenn- irnir fyrir að henda í þróunarsjóðinn 2.500 rúmlestum af ónýtum skips- hræum sem enginn mundi vilja gera út eða kaupa fyrir nokkurn pening. Af þeim eru útgerðarmenn- irnir búnir að hirða allt fémætt þar með talinn allan kvótann. Þróunar- sjóðurinn vill ekkert hafa með kvóta skipanna og varla fer hann að óska eftir veiðarfærunum eða fiskleitar- tækjunum. Það mundi bara minnka sóknina, og ekki mundi þróunar- sjóðurinn vilja stuðla að því. Enn má ýta vandanum yfir til næstu stjórnar Mér þykir einsýnt að þeir sem stjórna fiskveiðum íslendinga gera það sem í þeirra valdi stendur til að koma íslendingum í stöðu Fær- eyinga. Sjávarútvegsráðherra hefur lýst því yfir að hann sé engin fjár- festingarfóstra fyrir útgerðarmenn og öllum hömlum og takmörkunum á fiskiskipakaupum hefur nú verið aflétt með nýju lögunum. Þeir mega því víst kaupa öll þau skip sem þeim sýnist og útbúa þau eins stór- um veiðarfærum og dýrum fiskleit- artækjum og þeir geta. Fiskveiði- sjóður mun meira að segja lána þeim fýrir þeim og nú hefur sem- sagt þróunarsjóður veitt útgerðar- mönnum 800 milljón króna styrki til að endurnýja sín fiskiskip. Aldrei hefur flotinn stækkað jafnört og nú eða um a.m.k. 10 þús rúmlestir á ári. Aldrei hefur hann heldur far- ið svo mikið fram úr tillögum fiski- fræðinga. Á síðasta ári fór flotinn 70% fram úr þorskveiðitillögum fiskifræðinga og fer a.m.k 30-40% fram úr tillögum þeirra í ár. Þá er ekki meðtalið allt sem flotinn hefur hent vegna kvótaleysis eða vegna þess að fiskurinn er of lítill eða of stór í flökunarvélarnar. Eða þá bara drepið og misst þegar togað hefur verið svo lengi að risaflottrollin, þau langstærstu í heimi, rifna undan þunganum. Er ekki í lagi þótt þorskinum sé hent? Grásleppukarl segir frá því í blöð- unum að hann hafi orðið að henda öllum þorskafla sínum því hann eigi engan þorskskvóta. Annar trillukarl svarar honum í sama blaði að það sé ekki von þó að hann eigi engan þorskkvóta því hann hafi selt hann allan í byijun ársins. Og hveijum er ekki sama hvort þorsknum er hent eða ekki. Því skyldi það ekki vera mál útgerðamanna einna hversu stór flott- roll þeir noti eða hversu oft þau springa? Hvenær á að fara að stjórna fiskveiðunum? Er nú ekki kominn tími til að menn hætti þessum þykjustuleik og byiji að stjórna fiskveiðunum i stað þess að úthluta útgerðarmönnunum milljarða styrki af almannafé til að endurnýja og stækka sinn flota. íslendingar hafa alls engin efni á tugmilljarðasóun núverandi „fisk- Aldrei hefur flotinn stækkað jafnt ört og nú, segir Einar Júlíusson, og aldrei hefur hann farið svo mikið fram úr tillögum fískifræðinga. veiðistjórnar“ en þeir hefðu alveg efni á því að sjá af eins og einni milljón í rannsóknir á hruni íslensku fiskstofnanna. Hvernig á að stjórna fiskveiðunum? Með því að skattleggja útgerðina og ekki styrkja. Ef útgerðinni eru gefnir peningar eða kvótar þá eykst sóknin en aflinn minnkar. Þróunar- sjóðinn, þessa vitleysishugmynd tví- höfðanefndar, á að leggja niður tafarlaust og ekki nota almannafé til að styrkja útrýmingu þorsksins. Það er engin stjórnviska að skatt- pína almenning til að borga eyði- leggingu fiskimiðanna. Að vísu á útgerðin víst einhverntíma í fram- tíðinni að leggja til þróunarsjóðsins eina krónu af hveiju úthlutuðu kvótakílói en það er dropi í hafið og innan við 100 milljónir sem hún borgar þá fyrir þorskkvótann. Höfundur er eðlisfræðingur. Einar Júlíusson Ef þu ert gjörsamlega frábitinn því að fá sjónvarp, vídeó, húsbúnaðar- eða ferðavinning; eða kannski bíl og bensin á hann í heilt ár eða bara tildæmis jeppa fyrir 300 kall, skaltu endilega ekki ná þér i BINGOLOTTO-seöil fyrir 17. september. Því laugardagskvöldið 17. september kl. 20:30 hefst bráðskemmtilegur, hættulega spennandi og ótrúlega fjár-magnaður fjölskylduþáttur í opinni dagskrá á Stöð 2 fyrir þá sem vilja vinna. Ekki missa af honum. þar sem vinningarnir fast a laugardagskvoldum i opinni dagskrá PS. Miðasala er að hefjast. Athugið að upplag miða í fyrsta þætti er takmarkað f

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.