Morgunblaðið - 06.09.1994, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 06.09.1994, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER1994 35 JOHANN PETUR JONSSON + Jóhann Pétur Jónsson fædd- ist 7. janúar 1944 á Njálsgötu 4 í Reykjavík. Hann lést af slysförum 28. ágúst síðastlið- inn. Foreldar hans voru Friðbjörg Sig- urðardóttir, hús- móðir, f. 8. desem- ber 1907, d. 2. ág- úst 1985, og Jón Jónsson, skipherra hjá Landhelgis- gæslunni, f. 26. febrúar 1909, d. 1. júní 1970. Systkini hans eru: Ása Jóna, f. 12. september 1930, maki Jóhann Gunnlaugs- son sölumaður og eiga þau þijú börn; Birgir Þór, f. 23. júlí 1947, maki Louisa Gunn- arsdóttir og eiga þau þrjú börn. Jóhann Pétur kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Guðrúnu Filipusdóttur, 13. júní í Ástralíu og eignuðust ÞETTA augnablik þegar öll veröld- in staðnar og frýs saman við váleg- ustu tíðindi. Það er svo sárt, svo lamandi og vonlaust. Þannig er veröldin full af því óvænta þar sem ekkert óendanlegt er til nema eilífð almættisins og kærleikurinn í brjósti þess sem elskar. En hversu sárt sem augnablikið er, þá er okkur ætlað að gera gott úr því. Sá var einn af eiginleikunum hans Jóa, að gera gott úr hlutun- um, jafnvel þótt það rækist á hans fastmótaða viðhorf. Jói var sterkur persónuleiki. Hann var fyrst og fremst hjálpsamur og nærgætinn við alla sem á hallaði, en undir niðri hafði hann mjög ákveðnar og markvissar skoðanir á lífsins „me- lódí“. Öryggismál og hjálparstarf áttu hug hans allan í starfi og það kom enginn að tómum kofunum í þekkingu hans á því sviði. Metnað- ur hans lá í því að gera hlutina vel, hafa röð og reglu þar sem allt væri á hreinu og þetta sjónarmið átti við bæði um starf hans og heimili. Hann kunni svo vel að leggja gott til, vekja til umhugsun- ar og velta upp fleiri flötum en mönnum datt ef til vill fyrst í hug. Hann fór hávaðalaust fram en með fullri einurð og staðfestu og var þess vegna ákaflega traustvekj- andi. Og það var einmitt traustið °g trygglyndið hjá þessum dagf- arsprúða og glaðlega manni sem iaðaði fólk að honum. Jói hikaði ekki við að segja sínar skoðanir og þá gat hvesst um stund en lít- ils væri lognið metið ef menn þekktu ekki storminn og kraftinn hans. Umhyggja Jóa lýsti sér vel í ein- stakri nærgætni og hjálpsemi við aldraða tengdaforeldra hans, Fillippus heitinn Tómasson og eftirlifandi konu hans, Lilju Jóns- dóttur. Hann bar þau á höndum sér betur en hægt var að hugsa sér af nokkrum ástvini. Til hans liggur ríkulega af þakklæti frá Lilju tengdamóður minni. Aðal starfsvettvangur Jóhanns Péturs Jónssonar var sem bruna- vörður í Reykjavík og hjá Rauða krossinum, en segja má að um tíu ára skeið hafi hann verið brautryðj- andi í uppbyggingu betri sjúkrabíla á íslandi, því hann sá að mestu um þau mál fyrir Rauða krossinn. Með starfi sinu skilaði hann bylt- mgu í þágu betri þjonustu og ör- yggis í þeirri neyðarþjónustu þar sem sekúndurnar og rétt aðstaða berg í Þýskalandi. í þessum góða og samhenta hópi var Jói P. Marg- ar góðar minningar frá ýmsum uppákomum úr ferðinni bijótast þau tvær dætur, Gyðu Björgu, f. 11. október 1978, og Lindu Dögg, f. 6. jan- úar 1982. Jóhann Pétur fór snemma út á vinnumarkaðinn og sem mikill bíla- áhugamaður fann hann sér vinnu sem tengdist bílum, m.a. hjá G.G. og Guð- mundi Jónassyni. Árið 1967 hóf hann störf hjá Slökkvilið- inu í Reykjavík og var þar allt til dauða- dags að undanteknum árunum 1969-1972, en þá bjuggu þau hjón í Ástralíu. Jóhann Pétur var einn af stofnendum Bif- reiðaíþróttaklúbbs Reykjavík- ur. Þá vann hann einnig í fjölda ára fyrir Rauða korss íslands í tengslum við sjúkrabilarekst- ur hans víðs vegar um landið. Útför Jóhanns Péturs fer fram frá Hallgrímskirkj u í dag. vert á annað hundrað einstaklingar í Bandaríkjunum hafa sent hingað heim samúðarkveðjur vegna frá- falls hans og hópur manna kemur gagngert til þess að vera við útför hans. Þetta sýnir hins vegar hve Jói hugsaði stórt í því sem hann var að fást við. Hann naut þess að fylgja eftir til árangurs alvöru starfsins og hann naut einnig æv- intýranna sem lífsgleðin býður gestum og gangandi ef þeir hafa þrek og þor. Það er undarleg að- ferð örlaganna að Jói ásamt ást- kærum vini sínum, Magnúsi Helga- syni, skyldi í sakleysislegri síðdeg- isflugferð lenda á augnabliki sem réð mótum þessa heims og annars og lúta í lægra haldi. Þessir tveir varkáru menn öryggisins. Ekkert svar er til fyrir þá sem eftir lifa, en minningin um kær- leiksríkan fóður, eiginmann, bróður og vin verður nýr óður til lífsins. Megi góður Guð gefa Gunnu og dætrunum Gyðu og Lindu og öðrum vinum og vandamönnum styrk og von, því hugsunin um góðan mann, góðar minningar, gefur augnablik- inu nýja von. Þess óskum við af alhug við Dóra og Breki. Árni Johnsen. Þegar þessar fáu línur eru skrif- aðar til samstarfsfélaga og vinar er hugur manns svo gagntekinn af hugsunum um hverfulleika þessa heims að vart kemst annað að. Fyrstu kynni mín af Jóa P. eins og við vinnufélagarnir kölluðum hann hófust fljótlega eftir að ég hóf störf hjá Slökkviliði Reykjavík- ur vorið 1976. Það sem vakti strax athygli mína var hið mikla glaðlyndi er geislaði af Jóa og allur sá lífskraft- ur sem virtist fylgja honum. Kröft- ugur hlátur hans var eins og til að undirstrika lundarfarið en óm- urinn af hlátrasköllunum mun seint gleymast okkur sem umgeng- ust hann að jafnaði. Allt frá þess- um tíma hafa kynni okkar Jóa P. verið að styrkjast þannig að góð vinátta myndaðist á milli okkar þó hún færi ekki hátt. Árið 1982 fórum við hópur slökkviliðsmanna ásamt eiginkon- um okkar í vinaheimsókn til þý- skra starfsbræðra okkar í Seelem- geta ráðið úrslitum. Þó fannst mér oft undarlegt að þekking hans og reynsla á þessu sviði skyldi ekki nýtt meira hér heima, en á ferðum hans í Bandaríkjunum m.a. vegna nýrra sjúkrabíla, kepptust menn við að fá hann til að kenna ýmis- legt varðandi öryggismál og sem vott um starf hans í þessum „inn- kaupaferðum" má nefna að tals- fram þegar hugsað er til baka. Mér er sérstaklega minnisstætt þegar við „slökkviliðsmenn frá Reykjavík og litla íslandi" náðum þeim árangri að sigra þýsku risana og bjórbelgina í meistarakeppni tuga þýskra slökkviliða í reiptogi, og verða þannig meistarar á þýskri grund í þessari þjóðaríþrótt slökkviliðsmanna. Ég væri ekki að nefna þetta hér nema vegna þess að í þessum mikla slag lék Jói P. aðalhlutverkið sem liðsstjóri og nýttust fjölbreyttir hæfíleikar hans okkur afar vel. Fyrst þurfti að njósna um „taktik" andstæðinganna, þá að skipu- leggja hvaða aðferð væri líklegust til árangurs, og siðan þegar út í slaginn var komið varð hvatningin að vera afgerandi og takturinn markviss. Allt þetta leysti Jói svo fádæma vel af hendi að það réð úrslitum og það ótrúlega gerðist að við sigr- uðum. Þetta varð að sjálfsögðu mikið reiðarslag fyrir þýsku sér- fræðingana í íþróttinni og dró það ekki úr gleði Jóa því hann átti það líka til að vera dálítið glettinn og stríðinn. Þá lágu leiðir okkar Jóa aftur saman á erlendri grund í júní sem leið þegar farin var hópferð Lands- sambands slökkviliðsmanna til Hannover. Var hann þar eins og áður hrókur alls fagnaðar og var okkur sem að ferðinni stóðum mik- il stoð og stytta. Nú síðustu þqu árin hafa slökkvi- liðsmenn gengið í gegnum mikla óvissu- og umrótatíma vegna þeirra félagslegu umbreytinga sem fólust í stofnun stéttarfélags okkar. í starfí mínu sem formaður þessa félags, þ.e. Landssambands slökkviliðsmanna, hefur skipt mestu máli að stoðimar væm sem flestar og sterkastar þannig að byggja mætti upp samhug og virkni félagsmanna, en það var grundvallaratriði árangurs. Jói P. var ein þessara stoða þó ekki færi það hátt, stéttvísi var eitt af helstu einkennum hans og var hann óspar á að hvetja menn til dáða í þessum efnum. Þá man ég varla þann félagsfund frá því að ég hóf störf þar sem hann var ekki mættur, hreinskiptinn með sterka réttlætiskennd, málefnaleg- ur í allri umræðu og lét skoðanir sínar óspart í ljós ekki síst ef umræðan barst að fagmálunum því fagmennskan var honum í blóð borin. Hann var sérstakur áhugamað- ur um þann hluta starfa slökkvil- iðsmanna er lýtur að sjúkra- og neyðarflutningum og var einn af hvatamönnum breytts fyrirkomu- lags á neyðarflutningum í Reykja- vík 1982. Þannig duldist okkur félögunum ekki sem störfuðum þá með Jóa í upphafi rekstrar núver- andi neyðarbíls að þar fór maður fagmennsku, alúðar og nærgætni í garð sjúkra og slasaðra enda starfínu sinnt af alkunnri kost- gæfni og ósérhlífni. Brautryðjandi var hann í bætt- um búnaði sjúkrabifreiða á lands- byggðinni, en hann starfaði um árabil hjá RKÍ að þessum málum. Þá fylgdist hann afar vel með helstu faglegum nýjungum erlend- is og gat verið gott að leita til Jóa um upplýsingar um faglegan fróð- leik enda óspar á þær. Já, þær eru margar góðar minn- ingarnar um þig Jói minn og þær eiga eftir að ylja um ókomna tíð. Ég veit að ég tala fyrir hönd slökkviliðsmanna sem voru sam- ferðamenn þínir og vinir þegar ég segi að við munum sakna þín. Ég vil þakka þér góð og gefandi kynni Jói minn og megi guð vera með þér vinur. Fjölskyldunni vil ég votta mína innilegustu samúð. Það hefur verið höggvið stórt skarð í litla fjöl- skyldu, megið þið finna styrkinn í minningunni. Guðmundur Vignir Óskarsson. Hve sæl, ó hve sæl er hver leikandi lund - en lofaðu’ engan dag fyrir sólarlagsstund. Svo örstutt er bil milli blíðu og éls og brugðist getur lánið frá morpi til kvelds. (Matthías Jochumsson) Jóhann Pétur Jónsson er horfínn sjónum okkar, í bili að minnsta kosti, svo ótrúlegt sem það er. Hann, sem var svo fullur af lífs- orku, sterkur og þjálfaður og í blóma iífsins eins og sagt er. En slysin gera ekki boð á undan sér, þau koma ekki bara fyrir hina heldur einnig fyrir fjölskyldu og kunningja okkar, vini og starfsfé- laga. Jóhann Pétur var ráðinn í hluta- starf hjá Rauða krossi íslands um mitt ár 1986 og starfaði þar til ársins 1993 jafnframt starfí sínu á Slökkvistöð Reykjavíkur. Hann sá um sjúkraflutningamál RKÍ, neyðarvamir og síðar hafði hann umsjón með fasteignum RKÍ. Hann þekkti sjúkraflutninga af eigin raun eftir að hafa starfað lengi við þá á Slökkvistöðinni og var það mikill fengur fyrir RKÍ að fá til starfa mann með slíka starfs- reynslu enda var stigið stórt skref til framfara í skipulagi þeirra mála undir hans stjóm. Neyðarvamimar vom honum líka hugleiknar, hann náði mjög góðu sambandi við deild- ir RKI við uppbyggingu þeirra. Síðar, þegar Jóhann Pétur tók við umsjón fasteigna RKI, komu margir bestu hæfíleikar hans skýrt í ljós eins og t.d. hversu gott var að leita til hans. Hann tók öllum beiðnum ljúflega, vann strax að málinu sjálfur, skipulagði vinnuna, útvegaði fólk til verksins, var úr- ræðagóður og áreiðanlegur. Við minnumst Jóhanns Péturs sem góðs félaga. Hann var lífsglað- ur, þróttmikill og bar með sér blæ ævintýra enda hafði hann búið í fjarlægri heimsálfu og ferðast víða, bæði innan lands og utan. Við sendum Guðrúnu eiginkonu hans, dætram þeirra, íjölskyldu hans, vinum og samstarfsmönnum inni- legar samúðarkveðjur. Stjórn og starfsfólk Rauða kross Islands. Kunningsskapur okkar Jóa hófst þegar hann hóf störf hjá Rauða krossi Islands fyrir um tíu áram. Átti hann meðal annars að aðstoða deildimar við kaup og búnað sjúkrabifreiða. Margir tjáðu sig og nokkrar nefndir hafa starfað um hvemig sjúkrabifreiðar skulu vera, en af öllum ólöstuðum á Jói heiður- inn af því að í dag era þær eins og best gerist erlendis. Vildi hann að sjúkraflutningsmenn, hvar sem þeir væra á landinu, hefðu jafna möguleika á að veita .bestu aðstoð sem völ væri á. Hann var mjög fær sjúkraflutningsmaður og aflaði sér víða þekkingar, sem hann var óspar á að veita öðrum, enda örlát- ur og hjálpsamur. Jói vann mjög gott starf fyrir sjúkraflutninga af eldmóð en þó þeirri hæversku sem alltaf skein í gegn. Á síðasta ári hittumst við á einni stærstu sýningu og ráðstefnu sjúkraflutningsmanna í Ameríku. Jafnframt því að sitja fyrirlestra og læra nýjustu tækni við björgun úr bílflökum, aðstoðaði hann við kennsluna og miðlaði af sinni reynslu. Var hann hrókur alls fagnaðar enda þekkti hann nánast annan hvern mann á þessari stóra ráðstefnu. Þar var einnig, sem oft áður, ný íslensk sjúkrabifreið, not- uð sem sýningarbifreið, og vakti hún mikla athygli fyrir glæsileika og góðan búnað. Minningamar hrannast. upp og munu geymast um góðan kunn- ingja sem nú er farinn á vit nýrra ævintýra og að kanna önnur til- verasvið. Okkar innilegustu sam- úðaróskir til Guðrúnar og dætra. Ólafur Magnússon, Katrín Valentínusdóttir. Vinarkveðja til fjölskyldu Kæra Guðrún; ég er djúpt snort- in af þeirri sorg sem þú nú þarft að takast á við eftir fráfall Jó- hanns, eiginmanns þíns. Ég vona að Guð styrki þig og börnin ykkar í þessari raun. Ég lifí stöðugt við þann ótta að eitthvað svona hörmulegt hendi Steve manninn minn í ferðum hans. Því er mér mjög bragðið er svona fer fyrir manneskju er ég þekki vel. Ég hef ekki ráð til að hindra mann minn í að starfa að málefninu er hann hefur helgað krafta sína og er viss um að eins var með þig; ekkert fékk haldið aftur af þeim brennandi áhuga er Jóhann hafði á starfanum. Ollum þeim sem ég veit til að kynntust manni þínum féll vel við hann. Jóhann var mannblendinn og vin- gjamlegur maður. og áhugi hans á málefnum neyðarþjónustu og branavarna var alkunnur. Þú og börn ykkar getið verið stolt af hvern mann hann hafði að geyma og hann var verðugur fulltrúi fólks síns og þjóðar. Ég veit að ekkert fírrir þig sorg- inni nú og enginn getur komið í Jóhanns stað, og er ekki til þess ætlast. Ég vona að þér sé stuðning- ur í að vita af vinum í stað Jaótt • fjarri séu staddir sem við. Otal- margir vinir Jóhanns hér um slóðir sem þú sjálf hefur ekki hitt báðu mig fyrir samúðar- og blessunar- kveðjur til ykkar mæðgnanna. Ég minnist með ánægju kvölds- ins góða er við og fjölskylda þín vörðum saman kvöldstund meðan t á stórkostlegri íslandsdvöl okkar stóð. Við metum mikils allar mynd- imar frá ykkar fagra landi og drengurinn okkar þreytist aldrei á að heyrá sögumar af ævintýrum okkar þar. Einatt, þegar við hittum Jóhann eða spjölluðum við hann í síma, rifjuðum við upp þessar minningar. Þessara samveru- stunda verður sárt saknað. Við sendum ykkur innilegar samúðar- og vinarkveðjur og bjóð- um hjálp okkar ef einhver mætti verða. Guð blessi ykkur. Steve, Erica, Joshua og Emily Taylor. Veröldin býður mönnunum svo ótal marga góða kosti en því miður hefur mannkyn sjálft spillt svo mörgum þeirra. Fyrir um fjóram áram veittist mér sú ánægja að kynnast Jóhanni og urðum við umsvifalaust góðir vinir. Síðan höfum við aðeins hist á alþjóðaráðstefnum þar sem fjallað er um málefni Neyðarþjónustu sjúkra, (EMS), ásamt öðram góð- ^ um félögum frá Bandaríkjunum. Við vörðum saman tómstundum, sáum saman um kennslu og áttum saman skemmtilegar stundir. Að þessum ráðstefnum loknum kvöddumst við ávallt með trega en fóram jafnframt að hlakka til næsta árs móts og endurfunda. Nú í vor talaðist okkur til um að Jóhann kæmi til heimaborgar minnar; Monterrey í Mexíkó, í þeim tilgangi að hjálpa til við uppbygg- ingu Neyðarþjónustu sjúkraflutn- inga borgarinnar. Það er okkar ólán að sú áætlun tefst eftir hið sviplega fráfall Jóhanns sem félagi okkar, Steven Taylor, tilkynnti mér. Það vora dapurleg boð. Við höfum misst mikilhæfan mann, góðan vin, mann sem stóð sig með afburðum jafnt í starfí og allri viðkynningu. Þótt missir íjöl- skyldu hans sé mikill er þó huggun harmi gegn að nú er lokið barátt- unni gegn misvitram yfirvöldum og mönnum sem ekki höfðu framsýni til að meta það gagn sem hann gerði fólki víðs vegar um heim. Hvíl þú í friði, Jóhann minn „káti“. Hugheilar kveðjur sendi ég fjölskyldu þinni. Með virðingu, Dr. Luis Lojero Wheatley. Cruz Verde Monterrey, Mexíkó. Fleirí minningargreinar um Jóhann Pétur Jónsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.