Morgunblaðið - 06.09.1994, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1994 41
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
STARF sem tengist fræðslu og forvörnum á vímuefnum er ákaflega
viðkvæmt og vandmeðfarið.
Pokar og
forvarnir?
Frá Elísu Wíum:
AÐ GEFNU tilefni vilja foreldra-
samtökin Vímulaus æska taka fram
að fjársöfnun, sem nú stendur yfir
á vegum fyrirtækisins Krossgatna,
tengist samtökunum á engan hátt.
Krossgötur, sem starfa í tengslum
við trúfélagið Krossinn, hafa um
nokkurra ára skeið rekið áfanga-
heimili fyrir unga menn sem hafa
ánetjast áfengi og öðrum fíkniefn-
um.
Mjög mikilvægt er að vanda vel
til forvarnastarfs í áfengis- og fíkni-
efnamálum, ekki síst því sem snýr
að börnum og unglingum. Forvarn-
ir verða ekki unnar með tímabundn-
um upphlaupum heldur með stöðug-
leika og vönduðum vinnubrögðum.
Kennarar eru best fallnir til þess
að sjá um forvarnir innan skólanna.
Þeir geta vissulega sótt sér aðstoð
til annarra eftir þörfum en mikil-
vægast er að forvarnastarfið sé á
ábyrgð skólanna og í höndum
ábyrgra fagmanna í kennslu og
uppeldi.
Vímulaus æska starfrækir sk.
foreldrasíma, en í hann geta for-
eldrar og aðrir aðstandendur ungs
fólks í vímuefnavanda hringt allan
sólarhringinn. Samtökin bjóða einn-
ig upp á ráðgjöf vegna vímuefna-
neyslu barna og unglinga. Þeim sem
þurfa er vísað á önnur úrræði, t.d.
meðferðarheimilið Tinda.
Forvarnastarfið umfangsmest
Umfangsmesti þáttur starfs
Vímulausrar æsku er hins vegar
forvarnastarf. Má þar nefna nám-
skeiðahald fyrir foreldra, fyrirlestra
um áfengis- og fíkniefnamál fyrir
foreldra, kennara og nemendur á
borga fyrir þessa skemmtun eða
að þeir snúa sér annað.
Nýlega bentu ungir sjálfstæðis-
menn á það hvernig Sinfóníu-
hljómsveit íslands hefur ítrekað
farið fram úr heimildum fjárlaga.
Sú umræða getur ekki annað en
vakið spurningar um það hvort
hið opinbera eigi að standa í
rekstri sem þessum.
Slíkur stuðningur skapar gervi-
eftirspurn, þar sem þjónustan (sin-
fóníutónleikar) er stórlega nið-
urgreidd. Á grundvelli þeirrar
eftirspumar er verið að réttlæta
áframhaldandi fjárveitingar — og
ekki síður þegar farið er fram úr
heimildum.
Um leið og ríkið dregur sig út
úr skipulögðu skemmtanahaldi á
það að lækka skattheimtu sem því
nemur. Borgararnir hafa þá meira
fé milli handanna til að sækja þá
afþreyingu sem hugur þeirra girn-
ist.
ÓLAFUR HAUKSSON,
blaðamaður.
öllum skólastigum og útgáfu
fræðsluefnis.
Meðal verkefna má nefna útgáfu
á fræðslubók fyrir foreldra sem
fylgir námsefninu, Að ná tökum á
tilverunni, sem kennt er í u.þ.b.
þriðjungi allra grunnskóla í landinu.
Nú hafa rúmlega 800 íslenskir
kennarar sótt sérstakt námskeið til
þess að kenna námsefnið.
Áhersla er lögð á góðan undir-
búning og kunnáttu kennara sem
kenna námsefnið, Að ná tökum á
tilverunni. Þeim er gert að sækja
þriggja daga námskeið áður en þeir
fara að kenna. Þau eru haldin á
vegum menntamálaráðuneytisins
og Lions-hreyfingarinnar á Islandi.
Foreldrar þátttakendur
Námsefnið, Að á tökum á tilver-
unni, er mjög vandað og yfirgrips-
mikið. Grundvallarmarkmið þess er
að hjálpa ungu fólki til þess að
þroska með sér eiginleika eins og
sjálfsaga, ábyrgðartilfinningu, góða
dómgreind og hæfni til samskipta
við aðra. Einnig er lögð áhersla á
að hjálpa ungu fólki til að efla
tengsl við fjölskyldu, skóla, jafn-
aldra og samfélagið og tileinka sér
auk þess heilbrigðan og vímuefna-
lausan lífsmáta. í námsefninu er
gert ráð fyrir verulegri þátttöku
foreldra í námi barnanna. Það er
gert í tengslum við verkefni nem-
enda og heimavinnu, með lestri for-
eldrabókar og með því að sækja
fjóra foreldrafundi sem eru hluti
námsefnisins. Það er mjög mikil-
vægt að foreldrar geri kröfur um
forvarnir á vegum skóla og standi
vörð um að vandað sé til þeirra.
ELÍSA WÍUM,
framkv.stjóri Vímulausrar æsku.
Gagnasafn
Morgnnblaðsins
Allt efni sem birtist í Morg-
unblaðinu og Lesbók verður
framvegis varðveitt í upplýs-
ingasafni þess. Morgunblaðið
áskilur sér rétt til að ráðstafa
efninu þaðan, hvort sem er
með endurbirtingu eða á ann-
an hátt. Þeir sem afhenda
blaðinu efni til birtingar teljast
samþykkja þetta, ef ekki fylg-
ir fyrirvari hér að lútandi.
Alriliinai"-
stöðvar
með luiolnniaili
frá kr. 25.000,-
ÁBGÐEIND
Austurströnd 12. Sími612061.Fax612081
V________________________7
Skjótvirkur stíflueyðir
Eyðir stíflum
fljótt
• Tuskur
• Feiti
• Lífræn efni
• Hár
• Dömubindi
• Sótthreinsar
einnig lagnir
One Shot fer
fljótt að stíflunni
af því að það er
tvisvar sinnum
þyngra en vatn.
Útsölustaðir:
Bensínstöðvar
og helstu
byggingavöruverslanir.
Dreifing: Hringás hf.,
sími 677878 - fax 677022
í sambandi vib neytendur
frá morgni til kvölds!
- kjarni málsins!
Ofrifía/fcm'SÓfiuJvHJjyifm
íí^Innanlinsskór
Frábærír skór á fínu verði. Dömu og herrastærðir.
5% staðgreiðsluafsláttur,
einnig af póstkröfum greiddum innan 7 daga.
mmuTiuFPmm
GLÆSIBÆ. S/MI812922
Leikgerð og leikstjórn:
Páll Baldvin Baldvinsson
Leikmynd: Stígur Steinþórsson
Hljóðmynd: Hilmar Örn Hilmarsson
Búningar: Páll Baldvin Baldvinsson
Lýsing: Lárus Björnsson
Þjálfun: Árni Pétur Guðjónsson
Leikarar: Árni Pétur Guðjónsson,
Benedikt Erlingsson, Ellert A.
Ingimundarson, Margrét
Vilhjálmsdóttir, Sigrún Edda
Björnsdóttir, Theodór Júlíusson.
Galdra Loftur
eftir Jóhann Sigurjónsson
sunnudag 11. sepjt.
þriðjudag 13. sepí
miðvikudag 14. sept.
fimmtudag 15. sent föstudag 16. sept;
laugardag 17. sept,
Leikfélag Reykjavíkur Borgarleikhús Sími: 680 680