Morgunblaðið - 06.09.1994, Page 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLKí FRÉTTUM
Hugh Grant
ræður
öllu sjálfur
► HUGH Grant hefur undirrit-
að tveggja ára samning við
framleiðslufyrirtækið Castle
Rock Entertainment. Samning-
urinn veitir honum rétt til að
þróa hvaða hugmynd
sem er, framleiða hvaða
kvikmynd sem hugur
hans girnist og leika hvaða
hlutverk sem hann langar til
að leika.
Hugh Grant getur þó ekki
farið að huga að þessum samn-
ingi fyrr en hann er búinn að
leika í gamanmyndinni „The
Englishman Who Went up a
Hill but Came Down a Mounta-
in“, þar sem hann leikur á móti
Töru Fitzgerald, en þau þekkj-
ast vel síðan þau léku saman í
myndinni „The Sirens“.
Að því loknu ætlar Hugh
Grant að leika í mynd Chis
Colombus, „Nine Months“. Sú
er endurgerð frönsku mynd-
arinnar „Neuf Moins“ og fjallar
um barnageðlækni sem þolir
ekki börn og er hræddur við
alvarleg sambönd en sér fram á
erfitt líf þegar kærastan hans
verður ólétt.
Nýjasta mynd Olivers Stone
slær aðsóknarmet
NÝJASTA kvikmynd Oiivers Ston-
es, Natural Bom Killers, eða Morð-
ingjar að eðlisfari, sló öll aðsóknar-
met þegar hún var frumsýnd í
Bandaríkjunum nýlega. Frumsýn-
ingarhelgina var myndin sýnd í
1.510 kvikmyndahúsum og skilaði
hún tæplega 11,2 milljónum dollara
í aðgangseyri, eða um 780 milljón-
um króna. Aðalhlutverkin í mynd-
inni leika þau Woody Harrelson
sem hvað þekktastur er úr Staupa-
steini og Juliette Lewis, en þau
leika ungt par sem fer um myrð-
andi á flótta undan réttvísinni.
Robert Downey Jr. leikur sjón-
varpsfréttamann sem eltir þau á
röndum í þeim tilgangi að auka
vinsældir sínar með því að
gera parið að fjölmiðlahetj-
um, og stórstjarnan Tommy
Lee Jones fer með hlut-
verk fangavarðar.
Myndin er byggð á
sögu eftir Quentin
Tarantino sem sló
gegn með Reservoir
Dogs og nú síðast
Pulp Fiction
sem hlaut Gull pálmann á kvik-
myndahátíðinni í Cannes í vor.
Ýmsar tæknibrellur eru notaðar í
myndinni ásamt beinskeyttri tónlist
í því skyni að draga dár að ofbeldis-
dýrkun í Bandaríkjunum og því
hvernig fjölmiðlar þar
í landi ýta undir
ofbeldi. Natural
Born Killers
verður sýnd í
Sambíóunum
nú í haust.
JULIETTE Lewis og
Woody Harrelson fara
með aðalhlutverkin í
Natural Born Killers
sem Oliver Stone leik-
stýrir.
Frummynd
Flintstones
í BRIGHTON á Englandi býr
maður sem er ekki beinlínis í hópi
mestu aðdáenda Steinaldarmann-
anna, Freds Flintstones og fé-
laga. Samt vilja sumir meina að
hann sé skyldur þeim og sjálfur
heldur hann því fram að hann
hafí á vissan hátt átt hug-
myndina að teiknimyndun-
um frægu. Maðurinn heitir
Alan Flintstone, er skráður
í símaskrána og hefur ekki
að svara í símann hjá
sér og skella á fólk, sem
spyr hvort Fred sé heima.
„Mér fundust þetta nú ekki
merkilegir þættir, satt að segja
þá hef ég aldrei enst til að horfa
á svo mikið sem einn þátt frá
upphafi til enda,“ segir Alan
„Fred“ Flintstone.
Alan var í hernum í seinna
stríðinu og var þá kallaður Rock
Flintstone. Það var 15-20 árum
áður en Steinaldarmennimir
komu fyrst fram í sjónvarpi. Eitt
sinn hittu hann og félagar hans
bandaríska hermenn á eyju í Adr-
íahafinu.
„Einn félagi minn sagði að ég
væri Rocky Flintstone frá Derby-
shire, þar sem menn gengu enn
um í lendarskýlum og með kylfur.
Könunum fannst þetta ferlega
fyndið. Seinna komst ég að því
að einn þeirra var teiknari en ég
hugsaði svo ekki meira um þetta
fyrr en bróðursonur minn kom
grátandi heim úr skóla af því að
allir vom að kalla hann Fred,“
segir hr. Flintstone.
Sjábu hlutina
í víbara samhengi!
- kjami málsins!
HASKOLABI
SfMI 22140
Háskólabíó
IBiHMWBaMBHwH
david9myd
í gær var uppselt!
Síðari tónleikar DAVIDS BYRNE
eru í kvöld. Tryqqðu þér miða.
Brace
Willis enn
í sömu
rallunni
ÞAÐ VÆRU ýkjur
að halda því fram að
Bruce WiIIis væri
ánægður með hlutskipti
sitt í heiminum. Það er
kannski engin furða því
hann virðist hafa gróið
fastur við sama hlut-
verkið I hverri kvik-
myndinni á fætur ann-
arri. Meðfylgjandi
mynd er frá tökum á
þriðju Die Hard-kvik-
myndinni, en þar var
hann látinn bera auglýs-
ingaskilti með áletrun-
inni „Eg hata allt fólk“.
Kannski Bruce Willis
þurfi einna helst á góðu
faðmlagi að halda þessa
stundina.