Morgunblaðið - 13.09.1994, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1994 53
ÍÞRÓTTIR UIMGLINGA
Ámi skoraði
sigurmark KR á
lokamínútunum
í úrslitaleik KR og Fram í 3. flokki
KR varð íslandsmeistari í 3. flokki karla eftir fjörugan úrslita-
leik gegn Fram á Valbjarnarvelli þann 4. þessa mánaðar.
Lokatölur urðu 3:2.
Liðin léku bæði í A-riðli á Is-
landsmótinu. Fram sigraði í
riðlinum og vann sér þar sæti í
úrslitaleiknum en KR með því að
sigra í sex liða úrslitakeppni.
KR-ingar voru mun sprækari
til að byija með. Edilon Hreinsson
skoraði fyrsta mark leiksins eftir
29. mínútur og þannig stóð í leik-
hléi. Edilon bætti öðru marki við
um miðjan síðari hálfleikinn og
héldu þá flestir að bjöminn væri
unnin fyrir KR. En Framarar kom-
ust inn í leikinn með tveimur mörk-
um með mínútu millibili um mið-
bik síðari hálfleiksins. Haukur
Snær Hauksson skoraði fyrra
markið og Davíð Stefánsson það
síðara. Það leit allt út fyrir fram-
lengingu þegar Ámi Fjetursson
skoraði síðasta mark KR eftir að
Framvörnin hafði opnast illa.
íjálfari KR, Einar Sveinn Árna-
son kvaðst vera mjög ánægður
með árangurinn. Æfingasókn var
jöfn og góð jafnt í vetur sem og
í sumar. Liðið skoraði 80 mörk
og fékk á sig 26 í íslandsmótinu
en náði aðeins þriðja sæti A-riðils-
ins á eftir Fram og FH.
„Við vorum búnir að tapa tvisv-
ar fyrir þeim á íslandsmótinu og
það var kominn tími á sigur gegn
þeim,“ sagði fyrirliði KR, Egill
Skúli Þórólfsson. „Mér fannst
við eiga mörg færi í fyrri hálfleikn-
um og hefðum átt að geta gert
út um leikinn þá. Það tókst ekki
en það var ljúft að skora sigur-
markið,“ sagði Egill.
„Þetta er jöfn lið en við fórum
ekki í gang fyrr en við vorum
komnir tveimur mörkum undir.
Leikkafiinn í upphafi síðari hálf-
leiksins var góður en við gáfum
eftir í lokin,“ sagði Freyr Karls-
son, leikmaður Fram.
KR: Albert Jóhannesson - Emil
Jóhannesson, Kristján G. Þor-
steinsson, Egill Skúli Þórólfsson -
Amar Jón Sigurgeirsson, Edilon
Hreinsson, Björgvin Vilhjálmsson,
Bjöm Jakobsson, Búi Bendtsen
(Kristófer Róbertsson) - Ámi Pjet-
ursson, Atli Kristjánsson. Vara-
menn: Karl Sólnes Jónsson, Hinrik
Þór Svavarsson, Tómas Sveinsson,
Ólafur Magnús Finnsson.
FRAM: Gunnar Magnússon -
Eggert Stefánsson, Freyr Karls-
son, Sigurður Kristjánsson, Hösk-
uldur Borgþórsson, - Sigurður Elí
Haraldsson, Kolbeinn Guðmunds-
son, Haukur Hauksson, Finnur
Bjamason - Davíð Heiðarsson,
Erlendur Sigurðsson (Bjarki
Sverrisson).
Morgunblaðið/Frosti
Barátta um knöttlnn í leik KR og ÍA í A-deild 2. flokks. Reykjavíkurfélagið sigraði 2:1 og varð þar með íslands-
meistari þessa aldursflokks.
KR innbyrti sigur gegn ÍA
í lokaleik annars flokks
KR hrósaði sigri á Islandsmótinu f 2. flokki karla en í lokaumferð-
inni sl. fimmtudagskvöld mættust tvö efstu lið A-deildarinnar KR
og ÍA íVesturbænum og dugði þeim röndóttu jafntefli i leiknum.
KR sigraði i teiknum 2:1 eftir að hafa verið 0:1 undir í leikhléi og
Vesturbæjarfélagið innbyrti því sinn þriðja íslandsmeistarabikar í
sumar, en KR sigraði tvöfalt í þriðja flokki, bæði karla- og kvenna-
flokk.
Reykjavíkurliðið hafði 31 stig í
A-deildinni fyrir leikinn, tveim-
ur fleiri en ÍA og nægði því jafn-
tefli. ÍA skoraði fyrsta mark leiksins
á 18. mínútu og var Ragnar Már
Valsson þar að verki með föstu skoti
úr vítateignum eftir þunga sókn ÍA.
Hlynur Hjartarson jafnaði metin fyr-
ir KR á 49. mínútu og Ásmundur
Haraldsson skoraði sigurmark KR á
76. mínútu. KR-ingar náðu hættu-
legum skyndisóknum í síðari hálf-
leiknum. Lið ÍA var meira með knött-
inn en skorti herslumuninn í sóknar-
leiknum.
Góður árangur í Danaveldi
KR-liðið náði í sumar þeim árangri
að verða í öðru sæti á geysisterku
móti norrænna unglingaliða sem
haldið var í Lyngby í Danmörku.
Mörg af stærstu liðum Norðurland-
anna stilltu þar fram liðum sínum
en KR-ingar fóru alla leið í úrslita-
leikinn sem þeir töpuðu fyrir danska
liðinu Bröndby 2:1 eftir að hafa haft
forystuna um tíma. Ásmundur Har-
aldsson, skoraði sjö af níu mörkum
KR í keppninni valrti athygli erlendra
félaga.
Valur átti möguleika á að ná 2.
sætinu með sigri á Keflavík í loka-
umferðinni en tap liðsins í þeim leik
gerði það að verkum að ÍA hlaut silfr-
ið og Breiðablik bronsverðlaunin í
þessum flokki. KA og ÍBV féllu niður
í B-deild en sæti þeirra taka Reylqa-
víkurfélögin Leiknir og Víkingur.
Morgunblaðið/Frosti
íslandsmeistarar KR í 2. flokki
Aftari röð frá vinstri: Haraldur
Haraldsson, þjálfari, Jón Már Óla-
son, liðsstjóri, Gunnar Þjóðólfsson,
liðsstjóri, Sverrir Þór Viðarsson,
Andrés Þór Björnsson, Brynjar
Gunnarsson, Valgeir Þorvaldsson,
Daði Ingólfsson, Öskar Sigurgeirs-
son, Georg Lúðvíksson, Bjami Þor-
steinsson, Andri Sveinsson, Tómas
Sveinsson (gestkomandi á mynd-
inni; bróðir Andra, leikmaður 4.
flokks) Gísli Jón Magnússon, for-
maður unglinganefndar, Lúðvík S.
Georgsson, formaður knattspymu-
deildar KR. Fremri röð frá vinstri:
Þorsteinn Bogason, Þorsteinn Jó-
hannesson, Jón Óskar Sæmunds-
son, Vilhjálmur Vilhjálmsson, Ámi
Þór Eyþórsson, Atli Knútsson, Ás-
mundur Haraldsson, fyrírliði, Guð-
mundur Gauti Guðmundsson, Hlyn-
ur Geir Hjartarson og Óli Björgvin
Jónsson. Gestur Pálsson var með í
leiknum en farinn af vettvangi þeg-
ar myndin var tekin.
íslandsmeistarar KR í 3. flokki.
Neðri röð frá vinstri: Amar Jón
Sigurgeirsson, Búi Bentssen, Albert
Jóhannesson, Egill Skúli Þórólfsson
fyrirliði, Bjöm Jakobsson, Ámi
Pjetursson, Kristófer Róbertsson,
Tómas Sveinsson. Aftari röð frá
vinstri: Bjarni Halldórsson liðs-
stjóri, Lúðvík Georgsson, Ólafur
Magnús Finnsson, Hinrik Þór Svav-
arsson, Karl Sólnes Jónsson, Atli
Kristjánsson, Emil Jóhannesson,
Edilon Hreinsson, Björgvin Vil-
hjálmsson, Kristján G. Þorsteins-
son, Einar Sveinn Árnason þjálfari
og Gísli Jón Magnússon, fonnaður
unglingaráðs.