Morgunblaðið - 22.09.1994, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Forstjóri Þjóðhagsstofnunar segir batamerki í öllu efnahagslífinu
Framtíðin er óljós vegna
óvissu um Smuguveiðar
ÞÓRÐUR Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofn-
unar, segir að bati í efnahagslífinu sé bæði
vegna aukins afla af fjarlægum miðum og vegna
vaxtar í útflutningsiðnaði, ferðaþjónustu og
samkeppnisgreinum. Flest bendi til að vöxtur
verði einnig á næsta ári, en hins vegar sé óviss-
an um framtíðina meiri en oft áður vegna þess
að ekki sé á vísan að róa hvað varðar veiðar í
Smugunni eða aðrar úthafsveiðar.
„Batinn er af tveimur ástæðum. Afli af fjar-
miðum hefur aukist verulega, en einnig má sjá
batamerki víðar. Útflutningsiðnaður hefur verið
að ná sér á strik, ferðaþjónusta er í örum vexti
og eins eru vísbendingar um að ýmsar sam-
keppnisgreinar á heimamarkaði hafi styrkst.
Ástæðan fyrir þessu eru ekki síst tiltölulega
hagstæð skilyrði, þ.e. stöðugleiki í efnahagslíf-
inu og hagstætt raungengi. Það er því ekki
rétt að setja dæmið þannig upp að allur viðsnún-
ingurinn í efnahagslífinu stafí af afla af fjarmið-
um.“
Óvissa um framtíðina
Þórður segir sterkar vísbendingar um að bati
verði einnig á næsta ári. „Til lengri tíma litið
er kannski meiri óvissa en oft áður vegna þess
að við byggjum afkomuna núna að miklu stærri
hluta en áður á fiskafla af fjarlægum miðum.
Þar er ekki á vísan að róa. Það veldur einnig
óvissu að þorskstofninn við landið er í mikilli
lægð. Þetta tvennt gerir að verkum að það er
ekki hægt að draga framtíðarmyndina eins skýr-
um dráttum og oft áður.“
Fjárfestingar að aukast
Þórður segir vísbendingar um að fjárfesting
sé að aukast, en fjárfestingar hafa verið mjög
litlar hér á landi í 2-3 ár. Ekki væri hægt að
tala um neinn kipp í því sambandi heldur hæg-
an vöxt. Almennt mætti segja að sá bati sem
væri að verða í efnahagslífinu væri hægur og
hægari en í öðrum löndum. Spáð væri 2,6%
hagvexti að meðaltali í OECD-löndunum í ár
og 2,7% á næsta ári. Tölurnar fyrir ísland væru
lægri.
Lögreglan leitar enn eins piltsins sem rændi verslun Nóatúns
LÖGREGLUMENN leiða piltinn, sem handtekinn var í gærkvöldi, að lögreglubíl. Félagi hans hvarf
lögreglunni á hlaupum út í nóttina og fannst ekki þrátt fyrir mikla leit.
Margrét
Skúladóttir Sigurz
Tyrkland
• •
Oryggis-
verðir
fylgja feg-
urðardís
MARGRÉT Skúladóttir Sig-
urz, ungfrú ísland, tekur nú
þátt í fegurðarsamkeppninni
Ungfrú Evrópu í Istanbul í
Tvrklandi. Hún hefur dvalist
þar síðan 14. september en
úrslitakvöldið verður 30. sept-
ember.
„Þetta gengur ágætlega en
dagskráin er afar ströng og
við eigum varla fijálsa stund.
Við vöknum alltaf kl. sjö á
morgnana og borðum morg-
unmat. Við skoðum ýmsa
merka staði og það er mikið
tekið af myndum svo maður
þarf auðvitað alltaf að líta sem
best út og vera sem best
klæddur. A kvöldin eru svo
kokkteilboð eða matarboð. Við
fáum ekkert að fara einar og
öryggisverðir fylgja okkur
hvert fótmál. Við höfum feng-
ið einu sinni að fara í verslun-
armiðstöð við hótelið en að
öðru leyti höfum við ekki feng-
ið neinn frítíma. Það hefur
ekki einu sinni gefíst neinn
tími til að leggjast í sólina,"
sagði Margrét.
„Mínir möguleikar Iitlir“
Margréti þótti gaman að sjá
ýmsar sögulegar byggingar í
borginni og sagði hana fallega.
Þar væru þó einnig hverfí þar
sem hús væru að hruni komin
og hún gæti ekki hugsað sér
að búa þar.
Margrét taldi stúlkumar frá
Ítalíu, Tyrklandi og Hollandi
líklegastar til sigurs í keppn-
inni. „Ég held að mínir mögu-
leikar séu litlir, en þó veit
maður aldrei. Það er ómögu-
legt að segja til um úrslit í
svona keppni," sagði Margrét.
Þriðji
ræning'-
inn náð-
ist í gær
EINN af piltunum fjórum sem
rændu verslunina Nóatún við
Kleifarsel í fyrrakvöld hafði ekki
náðst seint í gærkvöldi. Lögreglan
handtók félaga hans við fjölbýlis-
hús við Vesturberg um kl. 20 í
gærkvöldi, en tveir piltanna, sem
lögreglan hafði áður náð, voru
yfirheyrðir hjá Rannsóknarlög-
reglu ríkisins í gær þar sem málið
er í rannsókn.
Fimmtán ára
piltur játaði
Piltarnir voru fjórir saman er
þeir réðust inn í verslunina, allir
grímuklæddir. Einn þeirra ógnaði
afgreiðslufólki með hnífi meðan
hinir hrifsuðu seðla úr tveimur
afgreiðslukössum verslunarinnar.
Einn þeirra, 15 ára piltur, sem
áður hefur komið við sögu í af-
brotamálum, náðist strax í fyrra-
kvöld. Hann játaði aðild að verkn-
aðinum og benti á þijá 17 ára
félaga sína. Einn þeirra var yfir-
heyrður hjá RLR í gær ásamt 15
ára piltinum.
Hvarf út í buskann
Leit að hinum piltunum stóð í
allan gærdag og um kl. 20 í gær-
kvöldi var komið að þeim í bíl
ásamt þrem öðrum á bílastæði við
Vesturberg í Breiðholti. Báðir pilt-
anna tóku til fótanna þegar þeir
urðu lögreglunnar varir, en annar
þeirra náðist fljótlega, þar sem
hann húkti í dyraskoti fjölbýlis-
húss. Hinn hvarf hins vegar út í
buskann og þrátt fyrir ítarlega
leit hafði hann ekki fundist seint
í gærkvöldi. Fólkið, sem með pilt-
unum var í bílnum, var tekið til
yfirheyrslu en sleppt að henni lok-
inni. Að sögn lögreglunnar er það
ekki talið tengjast ráninu á neinn
hátt.
Framið fleiri brot
Sá piltanna, sem enn var ófund-
inn í gærkvöldi, er talinn hafa átt
aðild að tilraun til að ræna pening-
um í söluturni við Seljabraut sl.
föstudagskvöld og innbroti og lík-
amsárás í og við söluturninn
Straumnes í Breiðholti í mars sl.
Ekki hefur verið ákært fyrir það
brot.
Að auki á hann óafplánaðan 8
mánaða fangelsisdóm fyrir að hafa
ráðist að bakara í verslanam-
iðstöðinni við Kleifarsel í fyrra og
ógnað honum með hnífi.
Samkeppnisráð æskir aðskilnaðar söludeildar P&S frá annarri starfsemi
Leggnr til stofnun
sjálfstæðs fyrir-
tækis um söludeild
SAMKEPPNISRÁÐ hefur úrskurðað í kæru-
máli Radíómiðunar hf. á hendur Póst- og síma-
málastofnun vegna meintrar misnotkunar P&S
á einkaleyfísstöðu sinni, og fer fram á aðskiln-
að söludeildar P&S frá þeirri starfsemi stofnun-
arinnar sem nýtur einkaleyfisvemdar „til að
taka af allan vafa um að Póst- og símamála-
stofnun greiði ekki niður viðskipti með not-
endabúnað með einkaleyfisvemdaðri starfsemi
stofnunarinnar". Ráðið telur jafnframt æski-
legt að í framtíðinni verði stefnt að stofnun
sérstaks fyrirtækis um þann hluta rekstrar
P&S sem „er í samkeppnisumhverfí og félagið
verði sjálfstæður lögaðili sem greiði skatta og
skyldur eins og samkeppnisaðilar".
„Þetta er fyrsta skrefið og það er stórt, í
þá átt að rétta þann aðstöðumun sem er á
milli sjálfstæðra söluaðila og söludeildar P&S,“
segir Kristján Gíslason, framkvæmdastjóri
Radíómiðunar hf. „Ég er mjög ánægður með
þessa niðurstöðu en tel aðeins hálfan sigur
unninn, því framkvæmdahliðin er eftir.“
Radíómiðun hf. lagði fram kæru í april og
nefndi sem dæmi um meinta misnotkun P&S á
aðstöðu sinni, þá ákvörðun að bjóða notendum
handvirka farsímakerfisins að flytja sig yfír í
sjálfvirka kerfíð, án þess að greiða stofngjald.
Hlutleysis hafí ekki verið gætt í kynningu ákvörð-
unarinnar þar sem söludeilda P&S var getið í
flestu því efni sem sent var út um málið í nafni
stofnunarinnar. Önnur atriði voru ennfremur til-
tekin, svo sem tengsl sömu starfsmanna hjá P&S
við ólíkar hagsmunadeildir stofnunarinnar.
í greinargerð Samkeppnisráðs segir m.a.:
„Samkvæmt skipuriti [P&S] virðist ljóst að
þeir sem taka þátt í ýmsum ákvörðunum vegna
einkaleyfísstarfsemi P&S stjórna jafnframt
ýmsum þáttum þeirrar starfsemi sem er í sam-
keppni við einkafyrirtæki, m.a. markaðs- og
sölustarfí vegna notendabúnaðar.“
Jafnræði ekki tryggt
Ennfremur að á „meðan ekki er
bókhaldslegur aðskilnaður á milli
einkaleyfisstarfsemi P&S annars vegar og sölu
notendabúnaðar hins vegar og ekki er greiddur
tekju- og eignaskattur af starfsemi
stofnunarinnar, telur Samkeppnisráð sam-
keppnislegt jafnræði með fyrirtækjum á mark-
aði fyrir notendabúnað ekki tryggt“. Ráðið
telur ennfremur ljóst að ýmsar ákvarðanir sem
teknar eru varðandi einkaleyfisþátt P&S hafí
veruleg áhrif á þann markað sem notendabún-
aður nær til. Stjómunarleg tengsl þeirrar starf-
semi sem lýtur að einkaleyfísrekstri P&S ann-
ars vegar og samkeppnisrekstri hins vegar
„getá því vakið tortryggni og raskað sam-
keppnisstöðu einkarekinna fyrirtækja sem selja
notendabúnað. Sem dæmi um stjómarleg
tengsl má nefna notkun markaðsdeildar og
söludeilda á tölvulista yfir eigendur handvirkra
farsíma sem eru í eigu annarra déilda P&S.
Núverandi stjórnarfyrirkomulag getur einnig
leitt til þess að söludeildir P&S fái vitneskju
um og bregðist við ákvörðunum varðandi
einkaleyfisþátt P&S, s.s. um gjaldtöku vegna
farsímanotkunar, áður en slíkar ákvarðanir eru
gerðar opinberar. Einkafyrirtæki á markaði
fyrir notendabúnað búa að þessu leyti ekki við
jöfn samkeppnisskilyrði."