Morgunblaðið - 22.09.1994, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
TILBOÐ
VIKIIMVAR
Federici
Lpaghetti langt^
500 g
IMEYTEIMDUR
Frystikistan fyllt af ýmsum matvælum fyrir veturinn
Óráðlegt
að setja
illa pökkuð
matvæli
í frysti
MARGAR frystikistur eru hálf-
tómar síðsumars en þegar fer að
hausta rætist úr. Þá eru keyptir
skrokkar, tekið slátur, sultað, berin
fryst, grænmeti soðið niður og svo
framvegis.
Sumar frystikistur eru hólfaðar
niður og þá er oft sérstakt hólf til
að frysta í matvælin í byrjun. Eft-
ir að matvælin hafa legið í hólfinu
í nokkra daga má stafla þeim hjá
hinum frosnu vörunum.
Best er að frysta ekki mjög
mikið magn af vörum í einu til að
hitasveiflur verði ekki of miklar.
Það er mismunandi eftir skápum
eða kistum hvemig stillá á frysti
þegar frysta á matvæli og leiðbein-
ingar fylgja oftast hveijum frysti
sem nauðsynlegt er að fara eftir.
Umbúðirnar skipta máli
Matvæli sem á að frysta þurfa
að vera í þéttum og þykkum um-
búðum. Aldrei má setja óinnpakk-
aða matvöm í frysti því þá verður
hrímmyndun meiri en ella og mat-
vælin geymast verr með þeim
hætti.
Séu umbúðir lélegar þornar
maturinn, þránar jafnvel og verður
vondur eftir skamman tíma. Plast-
pokar sem ætlaðir eru til frysting-
ar eru ágætir en þunn plastfilma
er ekki ákjósanleg. Frystipokum
er síðan lokað með frystilímbandi
eða klemmum. Plastdósir með loki
eru ágætar í frystinn og vaxbornar
pappaöskjur fínar. Séu notaðar
glerkrukkur með þéttu loki geta
þær sprungið en eru annars ágæt-
ar.
ódýrast er líklega að nota plast-
form eða bikara undan jógúrti,
skyri eða ís. Mjólkurfernur eru fín-
ar fyrir ber og tilbúna rétti.
Merking frystivara
Það er nauðsynlegt að merkja
innihald og skrá þyngd og dagsetn-
ingu á pakkana. Skrifið upplýs-
ingarnar á límmiða eða lok.
Það er líka hagkvæmt að halda
lista yfir það sem er í frysti með
því að hengja upp á vegg hjá frysti-
kistunni blað og skrá þar allt sem
fryst er og strika síðan út jafn
óðum. og matvælin eru tekin úr
frysti.
Oft vill nefnilega gleymast hitt
og þetta á botni kistunnar og lenda
síðan í öskutunnunni þegar hún
er hreinsuð að vori.
Sláturmark-
aður hjá
Hagkaupi
HAFINN er sláturmarkaður hjá
Hagkaupi í Skeifunni og í Kringl-
unni. Nýtt slátur kemur inn alla
daga nema sunnudaga og mánu-
daga. Lækkun hefur orðið á slátri
og innmat frá í fyrra. í fyrra kost-
uðu fimm ófrosin slátur 2.548
krónur en kosta nú 2.445 krónur.
Þá var kílóið af lifur á 226 krónur
í fyrrá en kostar nú 207 og kílóið
af hjörtum á 364 krónur núna en
kostaði 512 krónur í fyrra.
Dýrara að
hringja í
farsíma
en venju-
legan síma
ÞAÐ kostar meira að hringja
í farsíma en venjulegan síma.
Það kostar hinsvegar ekkert
að taka á móti símtali úr far-
síma.
Þegar hringt er í NMT far-
síma sem eru algengir hér á
landi þá kostar símtalið 16,60
krónur á mínútu allan sólar-
hringinn. Sama verð gildir
þegar hringt er í svokallaða
frístundafarsíma. Það er hins-
vegar dýrara að hringja í
GSM farsíma þegar dagtaxt-
inn gildir milli klukkan 8 og
22 frá mánudögum til föstu-
daga og frá 8-18 um helgar.
Þá kostar mínútan 24,90
krónur á mínútu en utan að-
alálagstímans kostar mínútan
16,60 krónur, einnig í GSM
síma.
Menn geta þekkt farsíma-
númer á því að þau byija á
985 í NMT kerfinu en á 989
í GSM kerfinu. Ef farsíminn
sem hringt er í er staðsettur
í útlöndum þarf sá sem hring-
ir í hann aðeins að greiða
venjulegt farsímagjald en sá
sem á farsímann greiðir fyrir
útlandasímtalið.
Frí stundaf arsí mi
í sumar var byijað að gefa
fólki kost á að fá aðgang að
farsímakerfi með því að fá sér
svokallaðan frístundafarsíma.
Þjónustan er fyrir þá sem
nota farsímann sinn í tóm-
stundum. Stofngjald og árs-
ijórðungsgjald er lægra en af
öðrum farsímum í NMT kerf-
inu en þrisvar sinnum dýrara
er að hringja úr frístundafar-
símanum yfir daginn þótt
venjulegt verð gildi á kvöldin
og um helgar. Enn önnur
gjaldskrá er fyrir nýju GSM
farsímana.
HAGKAUP
0uelle-TlLBQÐ
I NÝRRI OG GLÆSILEGRI VERSLUN
Kostir þess að fá þér .. Gerðu það goti' möppu
fyrir uppskriftirnar þínar eru fleiri en einn:
• Þú hefur alla bæklinga Tilraunaeldhúss MS
á einum stað
• Mappan er falleg, handhæg og af hentugri stærð
fyrir alla bæklingana
• í möppunni eru grunnupplýsingar um mál,
vog og ýmis góð ráð
• Hún kostar aðeins 490 kr
Já takk!
□ Ég vil fá senda safnmöppu MS í póstkröfu
□ Ég óska eftir því að uppskrijiarbeeklingar MS
númer---------—-—.------- fylgi möppunni.
Utanáskriftin er: Tilraunaeldhús MS, Pósthólf10340, 130 Reykjavík.
KENN1TAI.A
HEIMILISFANG
PÖSTNÚMER STAÐUR
Kaffi- og matarstell,
44 hlutir
Hr. 3.990
Pottasett, 8 hlutir,
gæðastál
Hr. 3.490
3 álpönnur með
teflonhúð
Hr. 1.990
5 töskur í setti
Hr. 2.490
Sasett 3ja hluta
sporttaska
Hr. 2.490
3 ilmkerti í
fallegum skálum
Hr. 990
rnm® "tmm wwm #
í verslun okkar er alltaf hægt að gera góð kaup
fyrir heimilið í fatnaði, skoða úrval sérlista og fá
upplýsingar og aðstoð. Líttu við, það borgar sig.
Nýr haust- og vetrarlisti frá Quelle með
íslenskum þýðingarlista fylgir frítt til
viðskiptavina í verslun okkar þessa viku.
LISTAKAUP hf., Dalvegi 2, Kópavogi, sími 64-2000.