Morgunblaðið - 22.09.1994, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 22.09.1994, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1994 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Leikfélag Kópavogs Tvö stór verkefni í vetur TVÖ stór verkefni eru fyrirhuguð í vetur hjá Leikfélagi Kópavogs. Ungl- ingadeild félagsins mun ríða á vaðið með uppsetningu á Silfurtungli Hall- dórs Laxness. Leikstjóri verður Stef- án Sturla Siguijónsson. Æfingar eru hafnar og frumsýning áætluð 29. október. Hitt stóra verkefni ársins verður uppsetning á leikriti Joes Ortons „What the Butler Saw“. Verið er að þýða verkið og hefur það ekki enn fengið íslenskt heiti. Kári Halldór mun leikstýra verkinu, en æfingar hefjast strax eftir áramót og er frum- sýning áætluð 18. febrúar. Ýmis smærri verkefni eru einnig á döfínni og má þar meðal annars nefna námskeið sem Vigdís Jakobs- dóttir heldur 7.-9. október í ákveð- inni tegund spuna. í nóvember hefst síðan vinna við svokaliaðan leikhring, en þar verður á ferðinni hópur sem mun undirbúa uppsetningu á „What the Butler Saw“ jafnframt því að skoða og fræðast um farsann sem leikform. Haustmisseri lýkur síðan formlega með jóladagskrá sem bæj- arbúum og öðrum er boðið upp á að kvöldi 9. desember. cgln bréfabindi 274kr Þiö hringið - við sendum Múlalundur Vinnustofa SÍBS • Hátún 10c Símar: 688476 og 688459 • Fax: 28819 Inmleg þögn MYNPLIST Gallcrí cinn cinn HÖGGMYNDIR Þorbjörg Pálsdóttir. Opið alla daga kl. 14-18 til 29. september. Aðgangur ókeypis. ÞORBJÖRG Pálsdóttir hefur í nær þrjá áratugi verið í hópi okk- ar öflugustu myndhöggvara; hin sérstæða myndgerð hennar er í senn auðþekkjanleg og eftirminni- leg. Og hafi einhver haldið að lista- konan, sem nú er hálf-áttræð, sé farin að hægja á ferðinni ætti sýn- ingin hér að sannfæra viðkomandi um að hún er enn fersk í listinni, ávallt tilbúin til að takast á við ný viðfangsefni. Á sýningunni getur að líta fjög- ur ný verk, öll unnin á þessu ári, en að auki sýnir listakonan á sér aðrar hliðar með eldri verkum, en þar er um að ræða teikningar og postulínsskreytingar. Sé fyrst litið til nýju verkanna, fylgja þau sömu meginlínum og þessi myndgerð listakonunnar hef- ur gert um langt skeið; innantóm- ir líkamar, mótaðir úr hænsnavír með lítið eitt ýktum hlutföllum, staðsettir með hversdagslegum hætti í rýminu, með því t.d. að sitja flötum beinum á gólfinu eða Plirir0iswMtóíilí - kjarni málsins! halla sér kæruleysislega upp að vegg. Að þessu sinni eru verkin skjannahvít, en ekki lituð eins og oft hefur borið við, og vegna þessa hlutleysis litarins falla verkin óvenju hljóðlega inn í umhverfi sýningarinnar hér, þar sem veg- girnir eru einnig hvítir. í gegnum tíðina hafa þessar höggmyndir Þorbjargar endur- speglað litróf mannlegrar tilveru, frá íþróttamönnum til stríðs- manna, kornabörnum til gamal- menna, en flestar hafa þær þó með einum eða öðrum hætti snúið að börnum og fjölskyldunni; börn að leik, sitjandi út af fyrir sig, mæður með börn, pör í innilegri þögn samverunnar. Slíkur einfald- leiki myndefnisins er langt frá því að vera auðveldari viðfangs en dramatískari efni, eins og Hannes Lárusson benti á í inngangi sýn- ingarskrár, sem gefin var út í til- efni sýningar Þorbjargar á sama stað fyrir rúmum fjórum árum: „Flest viðfangsefni sem Þor- björg tekur fyrir eru svo yfirþyrm- andi sjálfsögð og útfærsla þeirra svo „spontant“ að við fyrstu kynni gætu þau sýnst vera ómarkvisst fikt. Við nánari skoðun verður fljótlega ljóst að sú samþætting innra og ytra ástands sem blasir við er sjaldgæfur árangur í list- sköpun. Um sannleiksgildi þessar- ar staðhæfingar kunna menn að efast, þar til þeir sjálfir hafa reynt að hneppa jafn ísmeygileg mynd- efni í trúverðugt form.“ Þessi tengsl listakonunnar við blíðari hliðar tilverunnar hafa alla tíð verið sterk, ef marka má þau eldri verk, sem einnig getur að líta á sýningunni. Þar koma teikn- ingarnar einkum til; myndirnar af börnum sýna í raun börn allra tíma, þar sem mismunandi svipir vísa til hins sífellda náms á tilver- una, sem allir ganga í gegn um. L I I » ÞORBJÖRG Pálsdóttir: Móðir með barn. 1994. ímyndirnar frá geðsjúkrahúsinu í Stokkhólmi eru enn sterkari; með fáeinum dráttum er angist og ör- vinglun hinna geðveiku’ dregin upp, þó aðeins sé um að ræða ein- falda teikningu. Andlitsmyndir af nokkrum konum sýna loks glæstar manneskjur, en fjarrænan svip, allt að því sorgmæddan eða niður- brotinn, fremur en dreyminn eða upplitsdjarfan. Það felst mikil könnun í teikningum listakonunn- ar, og af þessum verkum er ljóst, að Þorbjörg er ekki síðri verk- manneskja í þessum miðli en i höggmyndagerðinni. Hvorki teikningarnar né postul- ínsskreytingarnar, sem er skemmtilega komið fyrir í innra herbergi gallerísins, munu hafa verið sýndar áður. Sú staðreynd segir meira um tíðarandann en gildi verkanna; hér er afar vönduð vinna á ferðinni, en fyrir aldar- fjórðungi hefðu jafn „smáborgara- leg“ verk verið litin hornauga og ekki talin neinum listamanni til framdráttar. Nú eru listunnendur vonandi ögn víðsýnni, og geta litið til hand- verksins og metið það að verðleik- um, því þessi verk sýna vissulega að hæfileikar listakonunnar lágu víða, og kominn tími til að slíkt komi fram með skýrum hætti. Því er rétt að benda listunnendum á að líta inn á sýningu Þorbjargar Pálsdóttur við fyrsta tækifæri. Eiríkur Þorláksson Kæliskápar Frysfíkistur FAGOR US1300 Kælir: 265 I - Frystir: 25 I HxBxD: 140x60x57cm innbyggt frystihólf Stgr.kr. 39.900 FAGOR FFD290 Kælir: 212 I - Frystir: 781 HxBxD: 147x60x57cm Frystir aö ofan Stgr.kr. 46.900 FAGOR C34R Kælir: 290 I - Frystir: 110 I HxBxD: 185x60x57cm Frystir aö neöan - 2 pressur Stgr.kr. 76.900 FAGOR S23N Kælir: 212 I - Frystir: 16 I HxBxD: 122x55x57cm Innbyggt frystihólf Stgr.kr. 34.900 FAGOR D24R Kælir: 185 I - Frystir: 65 I HxBxD: 147x55x57cm Frystir aö ofan Stgr.kr. 44.900 FAGOR D32R Kælir: 285 I - Frystir: 78 I HxBxD: 171x60x57cm Frystir aö ofan Stgr.kr. 52.900 Vestfrost Frystikista HV271 HxBxD: 85x92x65cm Frystir: 265 I Stgr.kr.43.900 Frystiskápur FS345 HxBxD: 185x60x60cm Frystir: 345 I Btgr.kr. 78.900 Frystikista HF201 HxBxD: 85x72x65cm Frystir: 194 I 39.900 Frystiskápur FS275 HxBxD: 155x60x60cm Frystir: 2781 66.700 RÖNNING BORGARTÚNI 24 SÍMI 68 58 68. Ertu sannur? og Matarsýki KVIKMYNDIK Nordisk Panorama í Iláskólabíói ERTU SANNUR?, ÖGLE- MANNEN, MATARSÝKI OG MEN I HIMMELEN FAR JEG VINGER TVÆR íslenskar stuttmyndir eru í þessum myndapakka á Nordisk Pa- norama, sem merktur er númer 12, Ertu sannur?, sem er frumsýnd á hátíðinni, og Matarsýki, sigurvegari Stuttmyndadaga í Reykjavík fyrr á þessu ári. Ertu sannur? er svona Blóðrautt sólarlag í höndum nýaldarsinna; heil- unarfyrirbæri sem gerist á dularfullu eyðibýli á Snæfellsnesi. Furðulegir atburðir eiga sér stað þegar kærustp- ar (Hinrik Ólafsson og Halla Margrét Jóhannesdóttir) á þar næturvist en þeir verða aldrei ógnvænlegir því hús- ráðandi, kynduglega leikinn af Kristni Þorbergssyni, reynist ekki bijálaður morðingi heltekinn af sifjaspelli heldur gegnheill nýaldarmaður, sem „lifir einföldu og dularfullu lífi“ svo vitnað sé í prógrammið. Hinrik fær óslökkvandi áhuga á honum á meðan Halla Margrét reynir að flýta sér í burtu en inn í söguna blandast undar- lega óvirkur hjólreiðamaður, dularfull persóna, sem hyggur á illt og vinsam- legir viðgerðarmenn úr nærliggjandi þéttbýli. Ertu sannur? er önnur sameiginleg mynd höfundanna, Lýðs Ámasonar og Jóakims Reynissonar, og er ágæt- lega heppnuð grínsaga úr afskekkt- inni þar sem tekin eru fyrir á skopleg- an máta ýmis velkunn, séríslensk fyr- irbrigði eins og hið ógnvænlega og afskekkta eyðibýli, nýaldarfrelsun og ógöngur ferðalanga. Ekkert af þessu er tekið sérlega alvarlega en blandað er saman lúmskum húmor, sérkenni- legum persónum og náttúrufegurð Snæfellsnessins án nokkurrar of- keyrslu og þótt sumt sé látið óútskýrt heldur sagan furðuvel allt til enda. | Að auki er leikurinn ágætur bæði hjá áhuga- og atvinnumönnunum. Öglemannen eða Eðlumaðurinn er skondin norsk hrollvekja eftir Bendik Grossmann gerð í svart/hvítu um mann sem vinnur á rannsóknarstofu og tekur fyrir klaufaskap sinn að breytast í eðlu. Hér er á ferðinni mjög góð tilraun til vísindaskáldskapartryll- is þar sem háðið er í fyrirrúmi og ósvikinn hrollvekjustíll einkennir | handbragðið en Grossmann þessi á _ sjálfsagt framtíð íyrir sér í iðninni. 1 Matarsýki er svart/hvít leikin heim- ildar- og gamanmynd af bústnu átvagli og hvernig því gengur í stríð- inu við ofátið. Til að fylgjast með honum hefur leynilegum myndavélum verið komið fyrir á þeim stöðum sem hann dvelur og kemst hann hvergi undan vökulum augum vélanna. Einn- ig er talað við aðstandendur og er móðirin sérlega fræðandi og einlæg. _ Höfundamir, Amar Jónasson og Reynir Lyngdal, sýndu það einnig með | fyrstu verðlaunamynd sinni, Athyglis- sýki, að þeir hafa auga fyrir hinu skoplega og geta gert mikið fyrir lítið. Að lokum er norska heimildarmynd- in Men i himmelen fár jeg vinger um útigangskonu í Óslóborg, bogna í baki en með hjartað á réttum stað. Hún er þekkt kona í borginni og menn bera fyrir henni virðingu. Hún er 75 ára, ánægð með lífið og tilveruna og hefur sérstakt yndi af að syngja; kyn- | legur kvistur í stórborginni. ^ Arnaldur Indriðason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.