Morgunblaðið - 22.09.1994, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1994 21
____LISTIR_
Forsíðan
KYIKMYNDIR
Iláskólabíó
BLAÐIÐ („THE PAPER“)
★ ★ ★
Leikstjóri Ron Howard. Handrit
David Koepp og Stephen Koepp.
Kvikmyndatökustj óri John Seale.
Tónlist Randy Newman. Aðalleik-
endur Michael Keaton, Robert Du-
vall, Glenn Close, Marisa Tomei,
Randy Quaid, Json Robards, Jason
Alexander, Spalding Gray. Banda-
rísk. Universal 1994.
ÞAÐ órar sjálfsagt fæsta fyrir
þeirri óhemju vinnu sem liggur að
baki jafn hversdagslegs hlutar og
eintaks af dagblaði. Það dettur inn
á gólf hjá manni að morgni (annars
er dagurinn ónýtur), er nokkuð ein-
faldara eða sjálfsagðara? í mynd-
inni Blaðið, sem er hið tilbúna New
York Sun, fáum við nasasjón af því
að svo er ekki. Heldur er stressið
og hamagangurinn slíkur á rit-
stjórnarskrifstofunum að helst
minnir á vitfirringahæli.
Áhorfendur eru á gægjum einn
sólarhring á ritstjórninni og fylgjast
með aðalpersónunum. Fréttastjór-
inn Hackett (Michael Keaton) er í
eldlínunni, á að auki í persónulegu
stríði við framkvæmdastjórann
Aliciu Clark (Glenn Close), á að
svara atvinnutilboði frá hinu virta
og stóra New York Sentinel fyrir
kvöldið og eins og það hálfa sé
ekki nóg er kona hans (Marisa
Tomei) komin á steypirinn. Alicia
er í fjárhagskröggum og framhjá-
haldi. Ritstjórinn, Bernie White,
(Robert Duvall) er fársjúkur og fjöl-
skyldulífið í molum. Svo mætti lengi
telja. Aðalviðfangsefnið er þó næsta
eintak af Sun, hvað á að birtast í
því, hver verði forsíðufréttin og þar
fram eftir götunum.
Annar þeirra Koeppsbræðra sem
skrifa handritið er blaðamaður hjá
Time og nýtur áhorfandinn góðs
af þeirri innsýn sem hann hefur af
blaðaheiminum og glæðir myndina
lífi. Ekki frítt við að New York
Times fái sína sneið af skopinu. Það
er fjörleg mynd sem þeir draga upp
af meting og dægurvanda á dag-
blaði og hinum fjölmörgu persónu-
legu vandamálum blaðamannanna.
Ritstjórnin er einn lífsins ólgusjór,
allt fram á kvöld. Þegar komið er
langt framyfir tímamörkin fellur
loks allt í einn farveg, sömuleiðis
vandamálapakkar starfsmannanna.
Efnið er eitt stórt púsluspil og bræð-
urnir fella brotin snyrtilega saman
í lokin. Þetta er gott efni fyrir leik-
stjórann Howard, sem fékk sinn
skóla í góðlátlegum sjónvarpsþátt-
um sem ætíð enduðu vel enda lýkur
Biaðinu í dæmigerðum „hávarðs-
enda“. Leikararnir eru flestir hrein-
asta afbragð og vel valdir og mynd-
in í heild hin besta skemmtun og
áhorfandinn nokkru vísari um hvað
gerist bak við tjöldin áður en blaða-
salinn hrópar „Góðan daginn“!
Sæbjörn Valdimarsson
FRAMHALDSNÁM
RT ÞÚ "TÖLVUMAÐUR'1
FYRIRTÆKISINS EÐA VILTU
VERÐA ÞAÐ?
Segðu þá yjirmanni þínumfrá þessari auglýsingu
Tölvuskóli Reykjavíkur býður 88 klst. framhaldsnám, þar sem markmiðið
er að mennta starfsmenn fyrirtækja til að hafa umsjón með tölvum,
uppsetningu hugbúnaðar, netkerfa og prentara auk þess að leiðbeina
öðrum starfsmönnum varðandi ýmis vandamál þessum tengdum.
Gert er ráð íýrir að nemendur hafi fengið talsverða reynslu og menntun
í meðferð tölva enda byggist námið á þeim grunni.
Tölvuskóli Reykjavíkur hefur alfarið séð um tölvumenntun starfsmanna
Búnaðarbanka íslands og Landsbanka íslands síðustu tvö árin.
KENNSLU GREINAR:
- Nowell netkerfi
- Access 2.0 - gagnagrunnur
- Windows for Workgroups
- MS-Dos frtmnald er tenglst
tæknilegum
- WindoWS úrlausnarefnum
- Excel-Word frekar en beinni
vinnu í forritunum.
• v*©oftí<íír£,Ni oc"
Innritun fyrir haustönn er hafin. Hafðu samband
og fáðu frekari upplýsingar.
I Tölvuskóli Revkíavíkur
KffTvranyr'-T! H EORGARTÚNI 28.105 REVKJftyÍK. sími 616699. fax 616696
.
Verðd
ALNAVORU
v'vý?..";
Aður allt að:
490 kp/m.-
Áður allt«
690 ki
k i i i
Mikið
úrval
■
ISkeifunm 13 Reykjarvíkurvegi 72 Norðurtanga3
l Reykjavík Hafnarfirði Akureyri
Holtagörðum
Reykjavík