Morgunblaðið - 22.09.1994, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER1994 9
FRÉTTIR
Síðbúinn
smálax
áferð
TUTTUGASTA þessa mánaðar lauk
veiði í nokkrum ám og er þá_ veiði
lokið í flestum ám landsins. Á ein-
staka veiðistað hefur þó verið fram-
lengt samkvæmt nýrri reglugerð um
lengdan veiðitíma. Dæmi um ár þar
sem framlengt var, eru Breiðdalsá
og Laxá á Ásum, en veiði í þeirri
síðamefndu er þó lokið. Veiði var
víðast léleg, en þó viðunandi sums
staðar, s.s. í Borgarfjarðaránum
flestum, Langá, Laxá í Leirársveit,
Rangánum og Leirvogsá. Einnig má
nefna Svartá sem kom vel út þrátt
fyrir aflabrest í flestum ám á Norður-
landi. Veiðimenn sem voru þar undir
lok veiðitímans sáu talsvert af nýleg-
um smálaxi í ármótum Svartár og
Blöndu. Víðar hefur smálaxinn guð-
að á glugga þar nyrðra og spurning
hvort hann ætlar að skila sér eftir
allt saman. Bara of seint! Það fylgdi
sögunni frá Svartá, að smálaxinn var
afar smár, 2-4 pund. En við skulum
renna yfir nokkrar tölur úr ýmsum
áttum. Á næstu dögum munum við
safna saman lokatölum eins víða að
og kostur er.
Misjöfn útkoma
Sem fyrr segir kom Svartá vel út,
þar veiddust um 380 laxar. í fyrra
komu að vísu 500 fiskar úr ánni, en
það var metveiði og veiðin nú er vel
yfir meðalveiði í ánni síðustu árin.
Hátt í tvö hundruð laxar í aflanum
voru 10 til 20 pund. Blanda var aft-
ur á móti slök. Þar veiddist vel fram-
an af sumri, en síðan dró úr veiði
og eftirspurn veiðimanna eftir leyf-
um með. Heyrst hefur að heildarveið-
in í Blöndu hafi verið nærri 860 lax-
ar og skráðir laxar af tilraunasvæð-
inu ofan Ennisflúða hafi verið 50 til
60. Það er ódýrt svæði og talsvert
stundað. Vel má hugsa sér að meira
hafi veiðst þar en ekki verið skráð.
Yfir 1.000 laxar fóru um teljarann
í Ennisflúðum og eftir að Blanda
varð greiðfærari laxinum eftir til-
komu Blönduvirkjunar, fer ávallt
talsvert af laxi flúðirnar sjálfar, not-
ar ekki stigann.
Við fréttum nýverið að um 150
laxar væru komnir úr Ormarsá á
Sléttu og eitthvað ámóta úr Sval-
barðsá í Þistilfirði. Fyrir skömmu
veiddust stærstu laxamir í Ormarsá,
22 og 20 pund, en þá veiddi sami
maðurinn, Heiðar Ingi Ágústsson.
Betri en í fyrra
Þær eru teljandi á fingrum annarr-
ar handar árnar sem eru betri í sum-
ar en í fyrra. í fljótu bragði koma
aðeins fjögur nöfn upp, Leirvogsá,
Laxá í Leirársveit, Langá og Rang-
ámar. Laxveiði er lokið í Leirvogsá
og veiddust þar 484 laxar, en sam-
svarandi veiði í fyrra var 428 laxar.
Þar var að ganga lax fram á síðasta
dag og talsverður lax er talinn eftir
í ánni. Einhver sjóbirtingsveiði verð-
HEIÐAR Ingi Ágústsson
gerði góða ferð í Ormarsá á
dögunum. 7. september veiddi
hann þessa tvo dreka í ánni,
20 punda á rauða Frances í
Fitjahyl og 22 punda á maðk
við „Bergið“.
ur neðst í ánni næstu daga og ætli
það slæðist ekki stöku laxar í afl-
ann? Það sama má segja um Rang-
árnar, en þar stendur laxveiðin út
þennan mánuð og sjóbirtingsveiði
eitthvað lengur. Yfir 1.500 laxar eru
komnir á land, en síðasta sumar var
veiðin rétt um 1.000 stykki. Langá
fór fyrir nokkru yfir 1.000 laxa og
síðast er fréttist var stutt í áfangann
í Laxá í Leirársveit. í Laxá hefur lax
verið að ganga fram á síðasta dag.
Fjögur Vikublöð í viku?
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ undirbýr
nú að gefa út málgagn sitt, Viku-
blaðið, fjórum sinnum í viku, a.m.k.
fram að alþingiskosningum.
Einar Karl Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri Alþýðubandalagsins,
staðfesti í samtali við Morgunblaðið
í gær að þetta væri í undirbúningi
sem tilraun sem látin yrði standa
fram yfir kosningar. Þótt hvorki
hefðu verið teknar ákvarðanir um
hvort í breytingarnar yrði ráðist eða
hvenær það yrði kvaðst hann reikna
með að niðurstaðan yrði sú að út-
gáfudögum fjölgaði einhvern tímann
fyrir jól og þannig yrði blaðinu hald-
ið út fram að kosningum.
Einar Karl sagði að ýmsi.r tækni-
legir og fjárhagslegir þættir væru
enn óleystir en að undirbúningi lokn-
um yrði málið lagt fyrir stofnanir
flokksins sem tækju ákvörðun um
framhaldið.
Á ritstjórn Vikublaðsins, serri
kemur út á föstudögum, starfa nú
tveir blaðamenn auk ritstjóra. Einar
Karl sagði að ef útgáfudögum yrði
fjölgað myndu þessir starfsmenn
væntanlega halda úti blaðinu með
aðstoð þátttakenda í kosningabar-
áttu flokksins.
Einar Karl sagði að þessi hug-
mynd hefði kviknað í umræðum um
þörf fyrir málgagn vinstrimanna eft-
ir að Mótvægi, útgáfufélag Tímans,
hefði orðið gjaldþrota. Með aukinni
útgáfu væri ætlunin þó einkum að
sjá núverandi áskrifendum Viku-
blaðsins, sem séu á þriðja þúsund,
og öðrum sem hafi áhuga á vinstri
stefnu, fyrir daglegum skilaboðum
og stjórnmálalegum túlkunum.
BIG
YOUNG
frá cibecita
Stærðir 75-100.
B, C, D, E skálar.
Verð kr. 2.995, ~
Hvíld, kyrrð og náttúrufegurð
✓
Asheimar
á Eyrarbakka
Leigjum út fullbúna íbúð með svefn-
plássi fyrir fjóra. Opið allt árið.
Kr. 4.000,- sólarhringurinn,
18.000,- vikan.
98-31120/98-31112 eða
985-41136/985-41137
Mikið úrval
af haustfatnaði
Tískuverslunin
Guðrún,
Rauðarárstíg 1, sími 615077
,A3M
fungnBnið&öiWl
.vönqXöita Vn^
e9\n\26u6U
ABWb 6
.linqelqlöile
HAUHM2A2IIH
.iöiitisnlBH go >)ivsi>Iy9H
NYBYLAVEGUR
DALBREKKA
AUÐBREKKA
sími 45800.
KR-INGAR
Til hamingju með bikarinn!
Vegna lokahátíðar
knattspyrnudeildar á
laugardaginn bjóðum við ykkur:
K.R. blazerjakka á kr. 11.900,-
K.R. bindi kr. 1.490,-
Skyrtur frá kr. 990,-
Fínni buxur kr. 4.900,-
Allar aðrar vörur í verslun okkar með
10% afslætti fyrir meðlimi K.R. klúbbsins
fimmtudag, föstudag og laugardag.
Getum saumaö fyrir ykkur
blazerjakka meö ykkar merki
á góöu veröi í ykkar félagslit.
Sömuleiöis buxur,
mittisjakka, úlpur,
bindi, skyrtur,
peysur.
SAUMASTOFA/HEILDVERSLUN
Milliliðalaus viðskipti
Nýbýlaveg 4, (Dalbrekku megin) Kópavogi,
ALLT FYRIR
ÖRYGGIÐ
lh 5
j ^ |! ' I ‘
Mikilvægt er að nota réttar öryggishlífar
þar sem þörf er á.
Höfum fjölbreytt úrval af viðurkenndum
öryggishlífum sem henta hverjum og einum.
Allt fyrir örýggið
i 40 ár