Morgunblaðið - 22.09.1994, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1994 11
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra
settur í fimmtánda sinn
Nýtt bóknámshús
tekið í notkun
Sauðárkróki - Fjöldi fólks var
viðstaddur þegar nýr og glæsilegur
fyrri hluti bóknámshúss Fjöl-
brautaskóla Norðurlands vestra á
Sauðárkróki var formlega tekinn í
notkun og skólinn settur í fimmt-
ánda sinn nú í haust.
Sá hluti þessa áfanga sem þegar
er fullfrágenginn er kennslustofur
og aðstaða fyrir kennara skólans
og stjórnendur, bókasafn og sam-
komusalur en á neðri hæð er ætlað
að komið verði fyrir tölvuveri skól-
ans og þar verður einnig meðal
annars stór fyrirlestrarsalur, en
frágangur þess hluta mun þurfa
að bíða betri tíma. Húsið er hannað
af Guðfinnu og Albínu Thordarson,
en aðalverktaki við bygginguna var
Trésmiðjan Borg á Sauðárkróki.
Við upphaf og lok skólasetning-
arathafnarinnar léku þau Steinunn
Birna Ragnarsdóttir og Þorsteinn
Gauti Sigurðsson nokkur tónverk
íjórhent á flygil skólans. Við at-
höfnina rakti Ragnar Arnalds al-
þingismaður byggingarsögu húss-
ins, en hann hefur verið formaður
byggingarnefndar, allt frá því er
fyrst var farið að ræða um þörf
skólans fyrir bóknámshús og benti
á það brautryðjendastarf sem unn-
ið hefði verið í samvinnu sveitar-
stjórna á Norðurlandi vestra. Það
eru Héraðsnefndir Austur- og
Vestur-Húnavatnssýslna og Siglu-
fjarðarkaupstaður sem standa að
uppbyggingu og rekstri Fjölbrauta-
skólans ásamt Héraðsnefnd Skaga-
fjarðar og Sauðárkrókskaupstað.
Kostnaður 300 milljónir
Kostnaðarskipting heimaaðila er
í hlutfalli við ibúatölu og nálægðar
skólans við viðkomandi sveitarfélög
og þannig greiða Skagfirðingar
mest, enda taldir njóta mestrar
hagræðingar af nálægð skólans á
Sauðárkróki.
Þá kom einnig fram í máli Ragn-
ars að kostnaður við bygginguna
er nú orðinn röskar 300 milljónir
en fullbúinn ætti þessi fyrri áfangi
að kosta um 370 milljónir.
Að loknum þessum áfanga í upp-
byggingu húsnæðis Fjölbrautaskól-
ans kvað Ragnar næsta brýna
verkefnið að stækka heimavistina
verulega enda skólinn búinn að
vinna sér það traust sem öflug
skólastofnun að búa yrði þeim sí-
vaxandi fjölda nemenda sem hing-
að vildu sækja sér menntun góða
aðstöðu.
Að lokum afhenti Ragnar Jóni
Fr. Hjartarsyni skólameistara höf-
uðlykil að öllum vistarverum húss-
ins og bað öllu starfi skólans vel-
farnaðar.
Að loknu máli Ragnars Arnalds
var húsið blessað af biskupi íslands
herra Ólafi Skúlasyni en Hjálmar
Jónsson prófastur las ritningar-
greinar.
Menntamálaráðherra Ólafur G.
Einarsson flutti ávarp og fagnaði
þeim áfanga sem nú hefði náðst
og þeirri uppbyggingu sem farið
hefði fram við skólann, og benti á
að þessi skóli svo sem margar aðr-
ar stofnanir þyrftu að marka sér
sérstöðu á kennslusviði og ná varð-
andi það samvinnu við aðila utan
skólans til dæmis í atvinnulífinu.
Ávörp fluttu Ólafur Óskarsson
f.h. Héraðsnefnda Húnavatns-
sýslna, Þorbjörn Árnason formaður
skólanefndar og Páll Pétursson al-
þingismaður og fluttu þeir allir
góðar óskir til handa skólanum og
báðu því starfi sem þar væri unnið
allra heilla.
Jón Fr. Hjartarson skólameistari
tók síðastur til máls og ræddi skóla-
starfið og þá breytingu sem verður
með tilkomu hins nýja og glæsta
húss þá vék Jón einnig að góðum
gjöfum sem skólanum hefðu borist
í tilefni af þessum merka áfanga.
Sagði Jón skólann settann og
bað gesti að skoða húsið en þiggja
síðan veitingar í boði skólans.
Morgunblaðið/Silli
ÓLAFUR Erlendsson og kona hans Helen Hannesdóttir fyrir
miðju, læknar og verðandi forsljóri.
Ólafur Erlendsson
lætur af störfum
Húsavík - Eftir 23 ára farsælt
starf lætur Ólafur Erlendsson af
störfum sem forstjóri Sjúkrahússins
á Húsavík og kvöddu starfsmenn
stofnunarinnar hann með viðhöfn
fyrir skömmu.
Ólafur tók við forstjórastarfinu
um það leyti sem nýja sjúkrahúsið
tók til starfa og í hans tíð hafa á
því verið gerðar ýmsar breytingar
og endurbætur.
Að skilnaði ávörpuðu læknar
sjúkrahússins Ólaf og þökkuðu hon-
um gott samstarf og færðu honum
gjöf. Af hálfu starfsstúlkna ávörp-
uðu Ólaf Kristrún Sigryggsdóttir
og Regína Sigurðardóttir sem
leystu hann út með gjöfum sem
þakklætisvott fyrir mjög gott sam-
starf.
Viðtakandi forstjóri, Friðfinnur
Hermannsson, kvaddi Ólaf og
þakkaði honum störfin í nafni
stofnunarinnar og sagðist vona að
hann yrði jafn farsæll í starfi og
forveri hans.
• Morgunblaðið/Björn Blöndal
FRÁ opnun málverkasýningu barna í Keflavík.
Málverk barna sýnd
í Keflavík
Keflavík - Ólafur G. Einarsson
menntamálaráðherra opnaði sýn-
ingu á úrvalsverkum barna og
unglinga sem nú er í bókasafninu
við Hafnargötu. Þar eru sýnd 120
verk.
Sýningin er farandsýning á úr-
valsverkum barna og unglinga á
vegum ferðaátaksins „ísland —
sækjum það heim!“. Verkefni þetta
fór fram í skólum landsins og alls
bárust 5.000 verk til dómnefndar
sem síðan valdi 120 verk. í umsögn
dómnefndar segir að sköpunar-
mætti barna séu engum takmörk
sett og að valið hafi verið ákaflega
vandasamt. I þessu úrvali birtist
ólík verk sem hvert um sig hafi
verið metið á eigin forsendum og
þar leitað að krafti, sköpunargleði
og líflegu hugmyndaflugi. Sýning-
in hefur verið sýnd á átta stöðum
víðs vegar um landið, hún verður
opin til 25. september.
Bundið
slitlag á
Húsa-
víkurvelli
Laxamýri - Það var hátíðarbrag-
ur yfir fólki þegar Húsavíkurflug-
völlur var formlega tekinn í notkun
eftir að lagt hafði verði bundið
slitlag á 1650 m flugbraut, flug-
vélastæði og bílastæði.
Ástand vallarins hefur oft verið
slæmt síðustu árin vegna aur-
bleytu og hefur margsinnis orðið
að fresta flugi eða aka farþegum
til Akureyrar af þeim sökum.
Völlurinn þjónar
nútímakröfum
Við opnun vallarins voru flutt
mörg ávörp. Halldór Blöndal, sam-
gönguráðherra, lýsti sig mjög
ánægðan með að á Húsavík væri
kominn völlur sem þannig væri
búinn að hann gæti þjónað nútíma-
kröfum og ef horft væri til fram-
tíðar ,í ferðamálum mætti búast
við nánari samstarfi við önnur lönd
í flugsamgöngum. Hér mætti e.t.v.
auka tíðni flugferða þó með þeim
takmörkunum sem lengd vallarins
segir til um.
Það voru Klæðning sf. í Garða-
bæ, Vegagerðin og fleiri aðilar
sem unnu að framkvæmdum og
nú hafa orðið þau þáttaskil að
flugsamgöngur ættu að geta orðið
öruggari auk þess sem moldrok
og aur á flugvellinum heyra sög-
unni til.
SONGLEIKURINN
LONDON
NEW YORK
REYKIAVÍK
MHl
I
Síðustu sýningar
2319 Sýning kl. 21.30
24/9 Sýningkl. 21.30
2819 Framh.skólasýning kl. 21.00
29/9 Framh.skólasýning kl. 21.00
30/9 Sýningkl. 21.30
2/10 Barnasýning kl. 21.30
2/10 unglingasýning kl. 20.00
• .. ■
^ÆFái
Etfa Gísladóttir,
Jóhannes Bachmann.
cnm
Magnús KJartansson.
Esther Helga Guömundsdóttir.
SÖNGSMIÐJAN
A HOTEL ISLANDI
Miða- og borðapantanir alla daga á Hótel íslandi
í síma 687111 og hjá Söngsmiðjunni í síma 612455.
Námufélagar fá 10% afslátt á Ctease •r;'“ •