Morgunblaðið - 22.09.1994, Side 18

Morgunblaðið - 22.09.1994, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR ur í Djúpinu, Hermann og Dídí og Það rís úr Djúpinu. Hins vegar leik- gerði ég atriði úr þessum bókum fyrir afmælisdagskrá Guðbergs í Gerðubergi fyrir tveim árum. Og tók því fegins hendi að vinna leik- gerðina áfram fyrir Þjóðleikhúsið. Guðbergur sýndi mér óbilandi traust, tíminn með leikurunum skil- aði miklu og aðstoðarleikstjórinn hefur staðið sig frábærlega. Eg hef verið í þeirri einkennilegu aðstöðu síðan í haust að funda með henni gegnum síma um uppfærsluna. Sjálfur á Akureyri að stjórna leik- húsi og Ásdís í Reykjavík að ljúka við Sögurnar í Þjóðleihúsinu." Guðbergur skrifar í leikskrá að yiðar eigi ytra form leiksins en Ásdís hið innra og þannig sé þetta líka með lífið. Ytri bygging sé af eðli karla en innri formgerð kven- leg. Ásdís segist hafa stokkað upp atriði og reynt að styrkja tengsl persóna og gera söguna aðgengi- legri. „Hún er í mörgum lögum og íjallar ekki um neitt eitt, Guðbergur segist sjálfur íjalla um fólk sem er í miðjunni, þar sem allt geijast. Mér finnst alveg rétt að þetta leikrit fjalli um um fallin goð. Fólk- ið lifir í raun heimspekilegu lífi í skítnum og hrákanum. Það stendur vörð um tilveru sína, breiskt og raunverulegt og eins og sagt er í lokin heldur Valhallarlífið áfram. Dótturdóttir tekur við af móður og ömmu, Anna binst Magnúsi þegar frelsið virðist fengið, drengurinn Hermann tekur yfir hlutverk sögu- mannsins Svans. Við komum að hafinni sögu og förum heim úr leik- húsinu þegar hún heldur áfram.“ Við framtíðinni taka þau Dídí og Bjössi, þroskaheft ungmenni og að áliti Guðbergs fulltrúar eðlisbundins sakleysis og langana. Hann er þeirr- ar skoðunar að maður fari alltaf út í framtíðina þroskaheftur á vissan hátt. „Framtíðin fer eftir því, hvort maður nái þar þroska vegna kosta hennar, og honum takist að þróa hana í sambúð við mannkosti sína. Ef við vissum hvað í framtíðinni felst mundu margir ekki halda út í hana, vegna þess að þegar við leitum að persónulegu frelsi, en ekki félagslegu, fer gjarnan þannig, að leitin endar í nýjum fjötrum." Spillt eins og óspillt náttúran Þjóðleikhúsið frumsýnir í kvöld Sannar sögur úr sálarlífi systra, sem Viðar Eggertsson byggir á bókum Guðbergs Bergssonar. í leikritinu birtist alþýðufólk í íslensku sjávarplássi á árunum eftir stríð, fallin goð, rithöfundar og konur sem ryðja brautina gegnum hrákann. HEILAGRAKVENNASÖGU hefur Guðbergur Bergsson rithöfundur kallað leikrit sem frumsýnt verður á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins í kvöld. Það heitir Sannar sögur af sálarlífí systra og er unnið af Viðari Eggertssyni upp úr þeim bókum Guðbergs sem saman eru kallaðar Tangasögur. Viðar er leikstjóri en Ásdís Þórhallsdóttir aðstoðarleikstjóri hefur unnið sýninguna til fulls í flar- veru hans. Um miðbikið segir sú persóna sem þráir frelsið heitast og er hreinust og beinust: Ykkur er ráð- lagt að lesa ekki línur sögunnar, heldur á milli þein'a. Svo óska ég ykkur góðrar ferðar inn í hugarheim ykkar. Sá skáldskapur er bestur sem segir ekkert sjálfur heldur vekur ímyndunaraflið af svefni. Við höfum kynnst fólkinu á Tanga þegar Anna kveður upp úr með þetta, rétt í þann mund sem óskyld systir hennar, Katrín, hefur lestur sögunnar af Gunnu og Tótu. Sú frásögn geymir hennar mynd af systrunum og því úrvali mága, svila, mæðra og dætra sem íslensk- ar fjölskyldur státa af. Katrín segir söguna eins og hún vill hafa hana: Dyggðir og pijál koma fyrir skít og horið er pússað af fólkinu. Annars eru allir alltaf að segja sögur, segja sögur eða blaðra, eins og Guðbergur bendir á að einkenni okkur. Sögurnar í leikritinu eru af íslensku alþýðufólki í sjávarplássi eftirstríðsáranna. Þar getur sitt- hvað virst kunnuglegt en langt í frá allt skiljanlegt. Þá gefst tækifæri ímyndunaraflsins og ástæða til að nota það. í upphafi leikritsins segir Anna að fólk án ímyndunarafls beri hvorki skynbragð á list né skáldskap. Því sé þess vegna ráð- legast að láta sér nægja fjölskyldu- myndir og kjaftasögur. Katrín svar- ar þessu þegar á líður og segir: Þótt fólk hafi lítið ímyndunarafl, ber það leynt skynbragð á listir og skáldskap. Því er ráðlagt að nota fjölskylduljósmyndir, kjaftasögur og ímyndunarafl annarra til að auðga sitt* eigið Báðar hafa þær lög að mæla, lík- ar og ólíkar, skyldar og óskyldar, tvær, ein og tvíein. Ljósmyndir, sögur og iífið á Tanganum, allt sest í hugskot blekþrælsins sem aftur og aftur skrifar um sama fólk- ið. í því býr uppruni hans og vegna ástar getur hann ekki annað en verið heiðarlegur. Sýnt fólkið eins og. það er, í eymd sinni, stolti og græðgi. Farðu og vertu spillt eins og óspillt náttúran, segir ókunn kona í leikritinu við Önnu. Þetta er konan sem veit sínu viti, man eftir fortíðinni og sér inn í framtíð- ina. Hún tengir saman tíma og fólk og ýtir sögunni af stað. „Það hefur orðið tómstundagam- an bókmenntafræðinga að, útbúa ættartölur persóna í bókum Guð- bergs,“ segir Viðar Eggertsson. „En það er ekkert einfalt. Tengslin milli fólksins eru margslungin, stundum ómöguleg eða siðferðilega bönnuð. Þetta eru nefnilega ekki venjulegar persónur heldur fulltrú- ar ákveðinna einkenna þessa þjóð- félags sem Guðbergur rannsakar. HERMANN, sem Höskuldur Eiríksson og Sverrir Örn Arnarson skiptast á að leika, ókunna konan, sem Þóra Friðriksdóttir Ieik- ur, og Anna, leikin af Ingrid Jónsdóttur. Morgunblaðið/Kristinn HÉR sjást Guðrún Gísladóttir og Valdimar Örn Flygenring í hlut- verkum Katrínar og Magnúsar. Hann athugar hvað getur hent og mér finnst veröld hans makalaust leikræn. Hún kristallar spuming- una um hvenær við séum að leika og hvenær við séum við sjálf. Hver sé höfundur örlaga okkar. Mér fannst eiginlega erfiðast að hafna svo mörgu óborganlegu í bókunum. Það stóð aldrei til að leika frá upphafí til enda Önnu, Það sef- Aðalfundur Gilfélagsins verður haldinn í Deiglunni.Kaupvangsstræti 23, laugardaginn 24. september nk. og hefst kl. 15. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. önnur mál. Stjórnin. TÖLVUNÁMSKEIÐ — Windows 3.1 — Word 6.0 fyrir Windows og Macintosh — WordPerfect 6.0 fyrir Windows — Excel 5.0 fyrir Windows og Macintosh — PageMaker 5.0 fyri Windows/Macintosh — Access 2.0 fyrir Windows — Paradox fyrir Windows — PowerPoint 4.0 fyrir Windows/Macintosh — Tölvubókhald — Novell námskeið fyrir netstjóra — Word og Excel uppfærsla og framhald — Unglinganám — Windows forritun l Kennt er á nýjustu útgáfur og veglegar kennslubækur fylgja öllum námskeiðum. Upplýsingar og skráning í síma 616699. Tölvuskóli Reyhiavíkur Borgartúni 28, slmi 91-687590 Mínníngarplata TONLIST Nýbylgja HEITUR VINDUR Breiðskífa hljómsveitarinnar Neols Einsteigers, Heitur vindur, til minn- ingar um Pétur Inga Þorgilsson. Öll lög eru eftir Pétur Inga, ýmist einan eða í samvinnu við meðlimi hljóm- sveitarinnar. Neol Einsteiger skipa Kristján Eggertsson, söngur og hljómborð, Eyvindur Sólnes, raddir, Brynjar H. Ottósson, gítarar, Stefán M. Magnússon, kassagítar, Georg Bjamason, bassi, og Einar Seheving, trommur, en auk þeirra koma ýmsir hljóðfæralekarar við sögu. Pétur Ingi syngur einnig í nokkrum lag- _ anna og leikur á gítar og píanó. Útgefandi minningarsjóður Péturs Ihga Þorgilssonar, Japís dreifír. 75,26 mín., 1.990 kr. HUÓMPLATAN Heitur vindur með hljómsveitinni Neol Einsteiger var gefin út til minningar um Pétur Ingi Þorgilsson, sem fór§t af slysför- um fyrir ári. Liðsmenn sveitarinnar, sem voru í hljómsveitinni Invictus með Pétri, stofnuðu nýja hljómsveit eftir fráfall hans og ákváðu í kjölfar- ið að gefa út minningardisk þann sem hér er gerður að umtalsefni. Af Heitum vindi má marka að Pétur Ingi var hæfíleika- og hu- myndaríkur tónlistarmaður. Þegar í fyrsta lagi kveður við tón sem ekki hefur oft heyrst í íslensku rokki, einskonar nýbylgju, sem minnir jafn- vel á köflum á upphafsverk Grafík- ur. Pétur syngur þetta upphafslag og fleiri iaganna, en prýðilegur söngvari Neols Einsteigers, Kristján Eggertsson, syngur annars obbann af plötunni. Þriðji aðalsöngvari er Eyvindur Sólnes. Lagaval er fjölbreytt, reyndar svo fjölbreytt að piatan verður sundur- laus á köflum, til að mynda sker lagið Yggdrasill sig nokkuð úr, en kafli iágstemmdra leikinna laga þeg- ar sígur á seinni hluta plötunnar lyfta henni aftur á móti. Inn á milli eru bráðskemmtileg nýbylgja, eins og upphafslagið I Don’t Want it, Hrun, Heitur vindur, titillag plötunn- ar, og Næturflug. Flest laganna eru á íslensku, sem er vel, en á miili eru enskir textar, sumir þokkalega ortir. Hljóðfæraleikur er allur vel heppnað- ur, og má þar nefna ágætt framlag Péturs sjálfs, afbragðs píanóinnlegg Kjartans Valdimarssonar og smekk- legar gítarleik Brynjars Ottóssonar. Útgáfa þessa geisladisks er öll framúrskarandi vönduð og heiðrar minningu Péturs. Hann er reyndar hvarvetna nálægur og frábærlega hefur tekist að fella upptökur með rödd hans og hljóðfæraleik, sem eflaust hafa margar verið tæknilega gallaðar, inn í lögin svo varla heyr- ist misfella. Líkiega er mesta afrekið við þessa plötu í ljósi tilurðar hennar að hún er bráðskemmtileg og áheyrileg heild. Umslagið hannar Kjóll & And- erson og gerir það vei að vanda. Helsti gallinn á því er sá sami og jafnan hjá Kjól & Anderson að iðu- lega er nánast ógjörningur að lesa texta sem þó verður að teljast nauð- synlegt. Árni Matthíasson i: í »

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.