Morgunblaðið - 22.09.1994, Blaðsíða 27
26 FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1994 27
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 691100.
Auglýsingar: 691111. Askriftir: 691122. SfMBRÉF: Ritstjórn 691329, frétt-
ir 691181, íþróttir 691156, sérblöð 691222, auglýsingar 691110, skrif-
stofa 681811, gjaldkeri 691115. Áskriftargjald 1.400 kr. á mánuði innan-
lands. í lausasölu 125 kr. eintakið.
RÉTTLÆTANLEG
ÍHLUTUN?
DICK Cheney, fyrrum varnarmálaráðherra Bandaríkjanna,
var ómyrkur í máli er hann lýsti skoðun sinni á íhlutun
Bandaríkjastjórnar á Haítí í byrjun vikunnar: „Haítí er eitt alls-
herjar klúður, sorglegur harmleikur. En Haítí hefur ávallt verið
eitt allsheijar klúður, það hefur verið eitt allsherjar klúður í tvö
hundruð ár. Það er engin ástæða til að ætla að Bandaríkjamönn-
unum muni núna allt í einu takast að innleiða lýðræði á Haítí.“
Ein helsta röksemd Bills Clintons Bandaríkjaforseta fyrir
íhlutun á Haítí hefur verið sú að Bandaríkjamönnum beri „sið-
ferðileg skylda“ til þess að hafa afskipti af ástandinu. Þeir verði
að „endurreisa" lýðræði á Haítí og koma hinum lýðræðislega
kjörna forseta landsins, Jean Bertrand Aristide, til valda á ný.
Her landsins hrakti Aristide frá völdum árið 1991 og hefur
herforingjastjórn farið með völdin síðan. í kjölfarið streymdi
fjöldi flóttamanna til Bandaríkjanna. í kosningabaráttunni fyrir
forsetakosningarnar 1992 gagnrýndi Clinton þáverandi Banda-
ríkjaforseta, George Bush, harðlega fyrir þá stefnu hans að
senda flóttamenn aftur heim. Þar með var Haítímálið komið
ofarlega á dagskrá bandarískra stjórnmála.
Undanfarin tvö ár hafa Bandaríkjastjórn og Sameinuðu þjóð-
irnar reynt að miðla málum á Haítí og sett var viðskiptabann
á ríkið í fyrra sem hert var á í vor. Fyrr á þessu ári heimilaði
öryggisráð SÞ hernaðaríhlutun eftir mikinn þrýsting frá Banda-
ríkjastjórn.
Það mótmælir enginn því að mannréttindi hafa verið fótum
troðin á Haítí undir stjórn herforingjanna. Það er líka óumdeilan-
leg staðreynd að ríkið er engin háborg vestræns lýðræðis. Engu
að síður spyija menn hvernig réttlæta megi að tugþúsunda
manna herliði sé safnað saman til að breyta um stjórnarfar.
Engu öðru ríki stafar nein hernaðarleg ógnun af þessu sjö millj-
óna manna ríki í Karíbahafi, sem er eitt hið fátækasta í heimi.
Eina ríkið í þessari heimsálfu sem öðrum ríkjum stafar hugsan-
lega einhver ógnun af er Kúba. Jafnvel sú ógnun er hugsanlega
liðin tíð.
Það er ekki heldur hægt að bera Haítí saman við önnur ríki,
þar sem herlið undir forystu Bandaríkjamanna hefur gripið til
aðgerða á undanförnum árum, þ.e. Kúveit og Sómalíu. Sama á
við um fyrrverandi Júgóslavíu. Þar hefur í nokkur ár geisað
blóðug borgarastyijöld, sem ógnað hefur öryggi í suðaustur-
hluta Evrópu, og fjöldamorð verið framin í nafni þjóðernishreins-
ana. í Sómalíu var hætta á að heil þjóð yrði hungurmorða vegna
borgarastyijaldar og í Kúveit var markmið afskipta að hrekja
innrásarlið íraka á brott. Ekkert af þessu á við um Haítí. Að-
stæður á Haítí eru ekkert mjög frábrugðnar þeim sem því mið-
ur er að finna í fjölmörgum öðrum ríkjum. Á að hlutast til um
mál þeirra með hervaldi?
Hvort sem mönnum líkar það betur eða verr mega afskipti
af innanríkismálum annarra ríkja ekki stjórnast af tilfinningum
eða því að menn vilji þröngva ákveðnu pólitísku siðferði upp á
aðrar þjóðir með hervaldi. Forsenda íhlutunar í innri málefni
ríkja er að fylgja þeim ramma sem alþjóðalög, þá ekki síst stofn-
sáttmáli SÞ, setja, og að umboð liggi fyrir til aðgerðanna. Kúv-
eitdeilan er ágætt dæmi um hvar mörk réttlætanlegra afskipta
liggja: Umboð SÞ náði til þess að hrekja íraka frá Kúveit en
ekki til að steypa einræðisherranum í Irak af stóli, þrátt fyrir
blóði drifinn feril hans. Frekari þróun alþjóðaréttar á þessu
sviði hlýtur að snúast um það, að móta almennar reglur og
fækka geðþóttaákvörðunum.
Jafnvel þó að hugsanlega megi finna einhveija réttlætingu
fyrir innrás Bandaríkjahers á’Haítí (og að fyrir liggi umboð
SÞ) er mjög ólíklegt að hún muni skila einhverjum árangri, líkt
og Cheney bendir réttilega á. Engin hefð er fyrir Iýðræði á
Haítí heldur einkennist saga landsins þvert á móti af ofbeldi
og einræði. Jafnvel Aristide, sem markmiðið er nú að koma til
valda á ný, var harðlega gagnrýndur af mannréttindasamtökum
er-hann stjórnaði landinu.
í Kúveit og Sómalíu (að minnsta kosti að hluta) náðust þau
markmið sem lágu fyrir í upphafi. íhlutunin hafði hins vegar
engin áhrif á pólitíska menningu og stjórnkerfi þessara landa,
sem líkt og annars staðar byggja á sögu og gömlum hefðum.
Sú verður eflaust einnig raunin á Haítí. Lýðræði er ekki hægt
að „endurreisa" ef iýðræðishefð er ekki til staðar.
Líkt og John Stuart Mill benti á á síðustu öld hefur fólk sem
er svo ógæfusamt að búa við ógnarstjórn aldrei fengið tæki-
færi til að þróa „dyggðir þær sem nauðsynlegar eru til að við-
halda frelsinu". En Mill lagði áherslu á að menn yrðu að hjálpa
sér sjálfír: í harðvítugri baráttu fyrir að öðlast frelsið af eigin
hvötum eiga dyggðir þessar mestan möguleika á að spretta,
sagði Mill, en þau orð eiga við enn þann dag í dag.
LÍFEYRISSJOÐIR
Dæmi m sreiðslur í og úr frjálsa líleyrissjúliniiii
Sparnaður:
Áætlaðir vextir á ári:
Árafjöldi sem greitt er i sjóð:
Fjöldi greiðslna á ári:
Upphæð greiðslu:
Inneign í lok tímabils:
Dæmi 1: Dæmi 2:
3,5% 5,0%
35 ár 35 ár
12, mán.l. 12, mán.l.
15.000.- 15.000.-
12,2 millj. 16,6 millj.
Ráðstöfun: Lífeyrisgreiðslur í 15 ár:
77/ ráðstöfunar: 12,2 millj. 16,6 millj.
Árafjöldi sem greitt er úr sjóði: 15 ár 15 ár
Fjöldi greiðslna á ári: 12, mán.l. 12, mán.l.
Upphæð greiðslu á mánuði: 86.835.- 130.525.-
Upphæð greiðslna á ári: 1.042.300.- 1.566.300.-
Heimild: Skandla
Dæmi um greiðsliir í og úr almeooum líleyrissjóði
Iðgjöld:
’Fjr Árafjöldi sem greitt er í sjóð: 35 ár
Fjöldi iðgjaldsgreiðslna á ári: 12, mánaðarl.
j|: ÍÉi Upphæð iðgjaldsgreiðslu: 15.000,-
II' Réttindi: Lífeyrisgreiðslur frá 70 ára aldri:
Árafjöldi sem greitt er úr sjóði: Ótakmarkaður
Fjöldi greiðslna á ári: 12, mánaðarl.
Upphæð greiðslu á mánuði: 87.500,-
Réttindi: Makalífeyrir. Sjóðfélagi fellur frá 60 ára:
Árafjöldi sem greitt er úr sjóði: Ótakmarkaður
LjJM Fjöldi greiðslna á ári: 12, mánaðarl.
Ur Upphæð greiðslu á mánuði: 53.000.-
Heimild: S.A.L.
Samtrygg-
ing eða
séreign?
Lífeyrissjóðir vilja margir stofna séreignadeild-
ir við hlið sameignarsjóðsins. Verðbréfafyrir-
tæki reka slíka séreignasjóði, en Ragnhildur
Sverrisdóttir telur villandi að kalla þá lífeyris-
sjóði. Sjóðimir bjóða upp á reglubundinn
spamað með ákveðnum tryggingum, en trygg-
ingaþátturinn er mun veikari en hjá almennum
lífeyrissjóðum.
AF
INNLENDUM
VETTVANGI
Langt virðist enn í að ný lög
verði sett um lífeyrissjóði,
enda hugmyndir manna
um slíka lagasetningu
ólíkar. Á meðan þær hugmyndir eru
ræddar fram og til baka skjóta upp
kollinum ýmsir möguleikar fyrir
launþega til að búa betur í haginn
fyrir sig og sína á elliárunum. Hefð-
bundnir lífeyrissjóðir með sam-
tryggingu hafa löngum haft það
orð á sér að þar rýrni fé manna
og ýmsir halda því fram að tíund-
inni af laununum sé betur borgið
annars staðar. Þeir geta þá m.a.
leitað til sjóða, sem verðbréfafyrir-
tæki hafa komið á fót og kalla
gjarnan lífeyrissjóði. Innborgun
einstaklings í sjóðinn myndar sér-
eign, sem síðan er borguð út aftur
á elliárunum, á mislöngum tíma,
en þó skemmst tíu árum. Það er
hins vegar villandi að kalla sjóðina
lífeyrissjóði, því í hugum flestra er
það heiti bundið við sjóði sem veita
mikla tryggingavernd, mun víðtæk-
ari vernd en þá sem felst í trygg-
ingapakka „lífeyrissjóða“ verð-
bréfafyrirtækjanna. Þeir sjóðir
bjóða upp á reglubundinn sparnað,
sem vissulega er hægt að mæla
með, en geta seint komið að fullu
í stað samtryggingasjóðanna.
Ýmsir sameignarsjóðir hafa sótt
um að fá að stofna séreignadeild,
en verið hafnað. Sem dæmi um slíka
afgreiðslu má taka umsókn Líf-
eyrissjóðsins Hlífar. Fjármálaráðu-
neytinu voru send drög að nýrri
reglugerð fyrir sjóðinn árið 1991,
en samþykki ráðuneytisins þarf fyr-
ir slíkum breytingum. Gert var ráð
fyrir stofnun séreigna-
deildar innan sjóðsins og
vísað til sambærilegra
reglugerða Fijálsa lífeyr-
issjóðsins og Álmenns líf-
eyrissjóðs VÍB. „Úr því
að hið opinbera viðurkennir sér-
eignasjóði til jafns við almenna
kerfið þá er þetta nú aðallega
spurning um fijálsa samkeppni eða
hvort þeir sem nú þegar eru viður-
kenndir sitji þarna einir um mark-
aðinn,“ segir í bréfi sjóðsins til
ráðuneytisins.
Að fenginni umsögn Landssam-
bands lífeyrissjóða og Sambands
almennra lífeyrissjóða hafnaði fjár-
málaráðuneytið umsókn Lífeyris-
sjóðsins Hlífar. í umsögn Lands-
sambandsins sagði m.a., að ekki
væri hægt að mæla með reglu-
gerðarbreýtingunni þar sem sam-
þykkt hennar hefði í för með sér
að þeir einstaklingar, sem kysu að
greiða til séreignadeildarinnar,
myndu ekki njóta þeirrar trygging-
ar, sem sameignardeildin veitti til
greiðslu örorku- og makalífeyris,
en í henni væri ekki einungis tekið
tillit til áunninna stiga heldur einn-
ig stiga vegna ókomins tíma til 70
ára aldurs. Innistæðu í séreigna-
deild væri ætlað að greiðast út á
skemmst 10 árum við 60 ára ald-
ur. Ljóst væri að séreignadeildin
tæki enga áhættu af félögum henn-
ar ef þeir yrðu mikið eldri en 70
ára. í því sambandi mætti benda á
að 65 ára karlmaður ætti
mestar líkur á að lifa í
15,7 ár til viðbótar og
kona í 18,9 ár. Enn frem-
ur mat sijórn LL það svo,
að óheppilegt væri að
gundvallarbreytingar yrðu gerðar á
reglugerðum einstakra sjóða á með-
an frumvarp til laga um starfsemi
lífeyrissjóða væri til umfjöllunar,
en hugmyndirnar að reglugerðar-
breytingunni gengju þvert á það
skipulag lífeyrismála sem frum-
varpið gerði ráð fyrir.
Landssamband lífeyrissjóða
hnýtti því aftast í bréf sitt, að öðru
máli gegndi ef breytingin á reglu-
gerð lífeyrissjóðsins fælist í að sér-
eignadeildin væri hugsuð fyrir þá
sjóðsfélaga sem vildu greiða viðbót-
ariðgjald til sjóðsins við hið hefð-
bundna 10% iðgjald, því allur sparn-
aður til elliáranna væri af hinu
góða.
„Okkur finnst felast mismunun
í því að sum félög geti haft lífeyris-
sjóði sína. sem séreignasjóði og
verðbréfafyrirtæki geti boðið fólki
aðild að séreignasjóðum, en við
fáum ekki tækifæri til að bjóða
okkar félögum val um hvernig þeir
veija lífeyrisiðgjöldum sínum,“
sagði Valdimar Tómasson, fram-
kvæmdastjóri Lífeyrissjóðsins Hlíf-
ar. Hann sagði að stjórn sjóðsins
myndi ræða stöðu málsins á næst-
unni.
Sjóðir þeir, sem verðbréfafyrir-
tæki hafa stofnað og
nefna lífeyrissjóði, byggj-
ast eins og áður ságði á
reglubundnum sparnaði.
Sem dæmi má nefna
Fijálsa lífeyrissjóðinn,
sem rekinn er af Skandia. Einstakl-
ingnum er í sjálfsvald sett hversu
háa upphæð hann leggur í sjóðinn
mánaðarlega og hversu lengi sá
sparnaður stendur. Við 60 ára aldur
getur hann byijað að taka fé sitt
úr sjóðnum og ákveður sjálfur á
hve löngum tíma, en þó skemmst
tíu árum. Látist sjóðsfélagi rennur
inneign hans til erfíngja. Ekki er
um að ræða tryggingu makalífeyris
eða örorkubætur umfram inneign í
sjóðnum, en sjóðfélagar fá afslátt
af líftryggingu og heilsutryggingu.
í upplýsingabæklingi sem Skandia
gefur út kemur fram að séu inn-
borgaðar 10 þúsund krónur á mán-
uði í 35 ár nemur inneignin rúm-
lega 11 milljónum í lok tímabilsins
og Iífeyrir á mánuði í 15 ár nemur
rúmum 87 þúsund krónum. í þessu
dæmi reiknar Skandia með 5%
raunvöxtum á tímabilinu. Sé mán-
aðarlegt framlag 15 þúsund á mán-
uði í 35 ár er hægt að fá greiddar
rúmar 130 þúsund krónur á mán-
uði í 15 ár.
Það skal tekið fram, að í bækl-
ingi verðbréfafyrirtækisins er bent
á, að sjóðurinn sé fyrst og fremst
hugsaður fyrir þá, sem ekki séu
skyldaðir til að greiða í hefðbundna
lífeyrissjóði. Þá sé viðbótaraðild að
sjóðnum góð leið fyrir þá, sem geri
hærri kröfu um lífeyri en fáist úr
tryggingakerfínu og almennum líf-
eyrissjóðum og þá sem vilji hætta
að vinna fyrr en hægt sé að fá
bætur úr hefðbundnum lífeyrissjóð-
um.
Samkvæmt upplýsingum Sam-
bands almennra lífeyrissjóða fær
maður, sem hefur greitt 15 þúsund
krónur á mánuði í 35 ár, um 87.500
krónur á mánuði í lífeyri frá 70 ára
aldri og til dauðadags.
Launafólk vill gjarnan eiga
möguleika á meiri sparnaði en
skylduaðild að lífeyrissjóðunum
býður upp á og þess vegna vilja
hefðbundnir lífeyrissjóðir veita því
aðgang að séreignadeildum. Hins
vegar koma séreignasjóðir eða sér-
eignadeildir aldrei í stað almennu
Iífeyrissjóðanna. Þar kemur margt
til. í fyrsta lagi er sparnaður al-
mennra lífeyrissjóða þvingaður, þ.e.
fólk er skyldað til að greiða í þá
og iðgjaldið er dregið af launum.
Þó margir bölvi því fyrirkomulagi,
þá er reyndin allt of oft sú, að
menn láta undir höfuð leggjast að
spara til elliáranna, eigi þeir að sjá
um slíkan sparnað sjálfir. Forsvars-
menn lífeyrissjóða kunna allir sögur
af fjölskyldum, sem lenda í vand-
ræðum þegar fyrirvinnan fellur frá
og hefur ekki greitt í lífeyrissjóð,
eins og alltaf var þó meiningin að
gera.
Stundum er því haldið
fram, að þegar menn falla
frá, til dæmis um sex-
tugt, þá „steli“ lífeyris-
sjóðirnir peningum þeirra,
því þeir njóti aldrei sparnaðarins.
Þá ber að hafa í huga að samtrygg-
ingin að baki lífeyrissjóðunum
tryggir einnig, að menn fá lífeyri
þó þeir lifi fram á aðra öldina. Þar
er kominn annar veikleiki séreigna-
sjóðanna í samanburði við lífeyris-
sjóðina, því lífeyrir úr þeim er upp
urinn eftir 10, 15, eða 20 ár. Ál-
mennir lífeyrissjóðir tryggja einnig
eftirlifandi maka lífeyri og greiða
örorkubætur, en til að njóta ein-
hverrar slíkrar verndar hjá sér-
eignasjóðunum þarf að kaupa sér-
stakar tryggingar.
Vilja stofna
séreigna-
deildir
Allur viðbót-
arsparnaður
af hinu góða
Framkvæmdir við um 3.500 m2 menningarmiðstöð í Kópavogi hefjast næsta ár
Sérhannaður tón-
leikasalur fyrir 300
gesti verður í húsinu
Sérhannaður fjölnota
tónlistarsalur, hinn fyrsti
sinnar tegundar hér á
landi, verður hluti af
Menningarmiðstöð
Kópavogs sem reist
verður vestan við Kópa-
vogsgjána, milli Hamra-
borgar og Borgarholts-
brautar, suðaustan við
Listasafn Kópavogs,
Gerðarsafn. Pétur
Gunnarsson kynnti sér
málið, en áætlað er að
framkvæmdir við fyrsta
áfanga miðstöðvarinnar
hefjist á næsta ári.
IMenningarmiðstöðinni verða
sameinaðar fjórar stofnanir
undir einu þaki; bókasafn
bæjarins, náttúrufræðistofa,
Tónlistarskóli Kópavogs og mynd-
listarskóli. Auk tónlistarsalarins
verður byggð í tengslum við mið-
stöðina skiptistöð fyrir Almennings-
vagna bs.
I fyrsta áfanga, sem ráðast á í
á næsta ári, verður byggt yfir bóka-
safn Kópavogs og náttúrufræði-
stofu, auk biðstöðvar Almennings-
vagna.
I öðrum áfanga verður hús tón-
listarskólans og myndlistarskólans
en tónlistarsalurinn í hinum í þriðja
áfanga. Að sögn Gunnars Birgis-
sonar, formanns bæjarráðs Kópa-
vogsbæjar, verður menningarmið-
stöðin 3.500-3.800 fermetrar að
grunnfleti og áætlaður kostnaður
við hana verður 350-450 milljónir
króna. Gunnar sagði áætlað að um
80-100 milljónir króna fáist til
verkefnisins með sölu á núverandi
húsnæði tónlistarskóla og bóka-
safns en að öðru leyti yrði fram-
kvæmdin fjármögnuð með framlög-
Um úr bæjarsjóði.
A.m.k. fyrsti áfangi á
kjörtímabiiinu
Gunnar sagði stefnt að því að
taka a.m.k. fyrsta áfangann í notk-
un fyrir lok þessa kjörtímabils en
varðist frétta af nánari áformum
um hraða framkvæmda. Hann sagði
að vegna þess að brýnt væri að
bæta úr húsnæðismálum tónlist-
arskólans og bókasafnsins hefði
verið lögð áhersla á að fyrst yrði
ráðist í þá áfanga.
Tónlistarsalurinn yrði hins vegar
fjölnota, fyrst og fremst ætlaður
sem kennslu- og tónleikasalur fyrir
tónlistaskólann og hljómleikasalur
þegar það hentaði en yrði einnig
væntanlega notaður fyrir aðra liluti,
Fyrirhuguð
menningar-
miðstöð
Menningarmiðstöðin
ÚTLITSTEIKNING JL-arkitekta af Menningarmiðstöðinni sem rísa á í Kópavogi, en hönnunin er enn ^
á hugmynda- og vinnslustigi.
opav
Listasafn Kópavogs
Borgarholt
friðlýst svæði
Fannborg
garour
Byggt suður af Gerðarsafni
MENNINGARMIÐSTÖÐ Kópavogs sem reist verður vestan við Kópavogsgjána, milli Hamraborgar og
Borgarholtsbrautar, suðaustan við Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn. I Menningarmiðstöðinni verða sam-
einaðar fjórar stofnanir undir einu þaki; bókasafn bæjarins, náttúrufræðistofa, Tónlistarskóli Kópa-
vogs og myndlistarskóli. Auk tónlistarsalarins verður skiptistöð fyrir Almenningsvagna bs. reist í
tengslum við Menningarmiðstöðina.
t.d. leiksýningar og myndlistarsýn-
ingar ef því væri að skipta. Gunnar
sagði að sérhannaðan tónleikasal
hefði skort tilfinnarilega
hérlendis og kvaðst telja
líklegt að þessi salur yrði
að vissu leyti eins konar
miðpunktur tónleikahalds
á höfuðborgarsvæðinu.
„Hugmyndin er sú að hafa sam-
þjöppun menningarstarfsemi á ein-
um stað á þessu svæði. Annars veg-
ar verðum við með Listasafn Kópa-
vogs þarna rétt hjá og Menningarm-
iðstöðina hins vegar. Það er verið
að reyna að lífga upp á miðbæinn
í Kópavogi og starfsemi í kringum
hann. Þarna verður nokkurs konar
miðja bæjarins með biðstöð almenn-
ingsvagna og það er reynt
að hafa lifandi starfsemi
á þessum stað fyrir það
mikla gegnumstreymi af
fólki sem þarna verður,“
sagði Gunnar I. Birgisson.
Jakob E. Líndal, arkitekt, og
samstarfsmenn hans á JL-arki-
Fjórar
stofnanir und-
ir einu þaki
Byrjað á bygg
ingu bóka-
safnsins
tektastofunni, vinna nú að hönnun
Menningarmiðstöðvar Kópavogs og
sagði Jakob í samtali við Morgun-
' blaðið í gær að stefnt
væri að því að á útmánuð-
um yrði hönnunin komin
á það stig að undirbúning-
ur framkvæmda gæti haf-
ist.
Jakob sagði að segja mætti að
tónleikasalurinn við Menningarmið-
stöð Kópavogs yrði fyrsti sérhann-
aði salurinn sinnar tegundar á land-
inu þar sem við hönnun flestra ann-
arra tónlistarsala hefði verið miðlað
málum milli þarfa leikhúsa, kvik-
myndahúsa og tónleikasala.
Allt annan hljómburð þyrfti fyrir
siíka starfsemi en fyrir tónlistar-
-------- flutning og því hefðu þess-
ar málamiðlanir ávallt
rýrt möguleika salanna til
hljómleikahalds. Engar
________ slíkar málamiðlanir yrðu
gerðar við hönnun tón-
leikasalarins í Kópavogi.
Jakob sagði að lofthæð tónleika-
salarins yrði 10 metrar, það væri
sú lofthæð sem þyrfti í sérhönnuð-
um tónlistarsal af þessari stærð og
úr henni yrði ekki dregið nema á
kostnað hljómgæða.
Dugir fyrir þorra einleiks- og
kammertónleika
í salnum yrðu sæti fyrir 300
gesti, 180 í sal en 120 á svölum.
„Við komumst að því að 300 sæta
salur væri kjörstærð fyrir 95% sóló-
konserta og tónleika 3—5 manna
sveita á þessu svæði,“ sagði Jakob
Líndaí. Hann sagði að frá fyrsta
stigi hönnunarinnar hefði verið haft
náið samráð við sérfræðinga á sviði
hljómburðar.
Jakob sagði að í fullkláraðri menn-
ingarmiðstöðinni yrðu fjórar menn-
ingarstofnanir undir sama þaki og
kvaðst telja að sú nálægð ætti eftir
að gefa af sér aukabónus fyrir stofn-
anirnar og þá sem þangað sæktu
vegna mikilla og nánast ótæmandi
möguleika á margs konar samvinnu
og samstarfi milli stofnana.