Morgunblaðið - 22.09.1994, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 22.09.1994, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1994 I DAG MORGUNBLAÐIÐ AUÐVELT *Þú setur vatnskútinn í vélina og hún er tilbúin til notkunar. Annað hólfið geymir hreina vatnið en hitt það óhreina. HEILNÆMT ■Vaxmop heldur hreina vatninu fullkomlega aðskildu frá óhreina vatninu þannig að ávallt er þrifiö með hreinu vatni.Óhreinindin og bleytan sogast upp. HAGSYNT 'Einn lítri af vatni dugar á allt að 20 m gólfflöt. BREYTILEGT 'Vaxmop geiur pú notað á mismunandi gólffleti parket - flísar - dúk eða marmara. EINFALT ■Vaxmop tekur lítið pláss. Festingar fylgja, auk þess hlíf yfir þrifhausinn. jgiyer stórkostleg bylting fyrir þá sem ekki vilja verja löngum tíma í þrif. Hringdu í síma: 91-886869 SEM RYKSUGAR SKÚRAR OG ÞURRKAR. - PARKET - FLÍSAR - DÚK OG MARMARA. GERIR ALLT SAMTÍMIS Pú þværö gólfin alltaf með hreinu vatni. Ekkert vatnssull með höndunum. Engin fata - engar tuskur. Engir kústar. AÁ Alþjóða verslunarfélagið hf. Skútuvogi 11, sími: 91 -886869 104 Reykjavík afmælisttlboð a KitchenAid í tilefni 30 ára afmælis okkar og 75 ára afmælis KitchenAid bjóðum við takmarkað magn af nýjustu heimilishrærivélinni K90 á kr. 31.400 (rctt vcrð kr. 36.900). Staðgreitt kr. 29.830. K90 vélin er framtíðarvél með enn sterkari mótor og hápóleraðri stálskál með handfangi. Fjöldi aukahluta er fáanlegur, m.a. kornmylla og kransakökustútur. íslensk handbók fylgir. KitchenAid Lágvær - níðsterk - cndist kynslóðir KMS Eínar MmM Farestveit & Co.hf. Borgartúni 28 S 622901 og 622900 Farsi „Au&vitok, þ&b cr 30 % rrtiywo-, en> kostar ýo*/o me-ira,!" B OrCL o& g efcL -fi'skUAum., cptskan. COSPER Mikki segist ekki vilja eignast fleiri börn, en þú veist nú hvernig hann er. VELVAKANDI Svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Stórkostleg sýning ÉG FÓR á hátíðarsýn- ingu íslenska dans- flokksins til styrktar Al- næmissamtökunum sl. mánudagskvöld. Þvílík sýning! Er ég þá aðallega að tala um verk Davids um alnæmi. Ég var og er eiginlega alveg orð- laus af hrifningu. Dansararnir voru stór- kostlegir og þvílíkur dans, með öllum tegund- um tónlistar, allt frá dramatískri píanótónlist til dúndrandi danstónlist- ar. Stórkostlegt, stórkost- legt. David Greenall á hrós og lof skilið. Magnea Magnús Vantar á vísuna MIG langar að fá upplýs- ingar um vísu sem ég lærði af föður mínum þá sex ára gamail, en síðan eru rúm 71 ár. Ég hef tapað fyrstu hendingu vísunnar. Það sem ég man er svona. ...borða titrar kjóinn sólin glitar gullofin guðdómsrit á sjóinn. Þeir sem kannast við þessa vísu eru beðnir að hafa samband við mig í síma 54758. Sigurður Pétursson Gæludýr Kettlingar GÓÐ heimili óskast fyrir þijá níu vikna kettlinga. Upplýsingar í síma 74076. SKÁK U m s j 6 n Margcir Pctursson Á ÁRLEGU móti Lloyds- bankans í London í ágúst var að þessu sinni teflt um fimm sæti á atskákmóti Intel og PCA þar sem há verðlaun voru í boði. Níu keppendur urðu jafnir í 3.-11. sæti og urðu að tefla hraðskákmót um þijá aðgöngumiða á stór- mótið. Sænski alþjóðameist- arinn Ralf Akesson (2.450) hafði komið mjög á óvart og í síðustu hraðskákinni dugði honum jafntefli til að komast áfram. En Pólveijinn Markowski (2.475) hafði hvítt og átti leik í stöðunni. Sjá stöðumynd 34. Rxh5+! - gxh5, 35. Rf5+ - Kf8, 36. Dh6 - Ke8, 37. Dxf6 - Df2+, 38. Bg2 - Hd7, 39. Hxd6 (39. Dh8+ strax var mát í öðrum leik) 39. - Had8, 40. Dh8+ og Svíinn gaf því hann er mát í næsta leik. Akesson var þó ekki af baki dottinn. Hann þurfti að tefla úrslita- hraðskák gegn Miles sem varð söguleg. Þegar þeir höfðu leikið u.þ.b. 20 leiki kom í ljós að klukkurnar voru rangt stilltar, í staðinn fyrir fimm mínútur höfðu þeir fimm klukkutíma. Það varð því að byija upp á nýtt og endaði sú skák með því að Miles féll á tíma í betri stöðu. Akesson komst því í Intel-PCA mótið en féll út í fyrstu umferð er hann tapaði fyrir ívantsjúk í aðeins 17 leikjum. Pennavinir UNGUR perúskur frí- merkjasafnari vill skiptast á merkjum: Gonzalo Portillo, Castilla 1480, Lima 21, Peru. LETTNESK kona, 41 árs innanhússarkitekt með áhuga á Islandi: Daiga Krieva, Skunu st. 13-8, 226050 Riga, Latvia. TUTTUGU og tveggja ára Ghanastúlka sem syngur í kór og hefur áhuga á tón- list, íþróttum og menning- armálum: Rose Jennifer Brown, The Great Singers, P.O. Box 1231, Oguaa State, Ghana. Víkverji skrifar... Um áramótin munu eiga að ganga í gildi ný lög um fjöl- býlishús. Víkverji sá frétt í sjón- varpinu, sem vakti hann óneitan- lega til umhugsunar um misjafnar áherslur fólks á hvað telst mikil- vægt í lífinu. í fréttinni kom fram, að nýju lögin banna fólki að vera með ketti og hunda í fjölbýlishús- um án samþykkis nágrannanna. Var sagt að þetta ákvæði væri inni í lögunum fyrir þrýsting frá Samtökum gegn astma og of- næmi. Nú er ekki um það deilt, að fjölmargir þjást af ofnæmi fyrir þessum gæludýrum og Víkveiji dagsins er einn þeirra. Honum fannst þetta ákvæði í nýju lögun- um því sjálfsagt og í hæsta máta eðlileg krafa að fólk þurfi ekki að óttast að veikjast af ofnæmi, svo ekki sé nú talað um að þurfa jafn- vel að flýja heimili sín, vegna þess að köttur eða hundur nágrannans er á ferli í stigaganginum. xxx Fréttamaðurinn spurði konu, sem Víkveija minnir að hafi verið kynnt sem formaður Katta- vinafélagsins, álits á nýju lögun- um. Hún sagði að katta- og hunda- eigendur myndu aldrei láta dýrin sín frá sér um áramót, þrátt fyrir ákvæði laganna. Búast mætti við að til handalögmála kæmi ef farið væri fram á slíkt. Aldrei minntist konan á að taka þyrfti tillit til þeirra mannvera, sem þjást af of- næmi, en nefndi að til væri fólk 'sem hataði dýrin. Þó fannst Vík- veija fyrst kasta tólfunum þegar konan líkti því, að krefjast þess að kattaeigendur létu dýrin frá sér, við að farið væri fram á að þeir létu aflífa börnin sín! Alit Víkveija mótast auðvitað af því að hann þekkir af eig- in raun hve bagalegt það er að þurfa að forðast gæludýrin til að koma í veg fyrir mikil óþægindi og oft alvarleg astmaköst. Það kemur honum þó afar spánskt fyr- ir sjónir ef fólk á ekki að ganga fyrir köttum með íbúðarrétt í fjöl- býlishúsum. Gæludýr eiga auðvitað fullan rétt á sér, en um leið og árekstur verður milli hagsmuna mannvera og gæludýra hljóta dýr- in að þurfa að víkja. Það er sjálf- sagt sárt fyrir gæludýraeigendur að þurfa að horfast í augu við þetta, en sárara hlýtur það þó að vera að vita ef dýr þeirra valda öðru fólki verulegum óþægindum og jafnvei alvariegum veikindum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.