Morgunblaðið - 16.10.1994, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1994 B 5
hann segir við aðra en sjálfan sig
og konu sína er yfirdrep. Hann
þarfnast ekki dulunnar gagnvart
konu sinni því hún er enn meiri
hræsnari. Frú Macbeth reynir jafn-
vel að kenna honum list hræsninn-
ar. Hún lýsir henni vel þegar hún
segir: „Seg „velkominn" með aug-
um, hönd og orðum, og vert'að
utan eins og saklaust blómstur, en
innra vertu naðran, sem það felur.“
Hræsnarinn er maður blekking-
arinnar og kemst til valda á fölskum
forsendum. Hann flytur langar
bænir að yfirskini en hirðir ekki um
réttlæti og miskunn. Hann sýnist
réttlátur í augum manna, en er hið
innra fullur ranglætis. Hann hrópar
„hneyksli!“ og kemur við veika
bletti annarra, en er sjálfur hið
sama.
Hann málar ljótt fagurt og fag-
urt ljótt. Hann er svikari sem rýfur
eyða sína og listin að rýna í verk
hans getur skipt sköpum fyrir heil-
lina og hamingjuna. Drengur einn
í leikritinu um Macbeth spyr móður
sína hvort það eigi að hengja alla
þá sem ljúga og svíkja. Hún svar-
ar: „Já, hvern og einn.“ Hann spyr:
„Hver á að hengja þá?“ Hún: „Nú,
góðu mennirnir.“ Drengurinn: „Þá
eru þeir, sem ljúga og svíkja, flón,
því þeir eru nógu margir til, að
hafa við góða fólkinu og hengja
það.“ Drengurinn er efnilegur í
greiningunni á hræsnurunum en
áttar sig ekki á að hræsnarinn þrá-
ir að vera krýndur af hinum góða.
Hann þrífst ekki innan um sitt eig-
ið kyn. Hann þarfnast andstæðu
sinnar — en góðmennið, á hinn
bóginn, kemst vel af án hræsnar-
ans.
Oft er sagt að andstæður þarfn-
ist hvor annarrar: Hið ljóta hins
fagra og hið fagra hins ljóta. Það
er rangt. Vissulega er hið illa háð
hinu góða, en hið góða er ekki háð
hinu illa, né hið fagra hinu ljóta eða
heiðarleikinn hræsninni. Það kemst
best af án þess, en hitt ekki. Hið
illa er ekkert án hins góða og
hræsnin flögrar í sudda, þoku og
nótt.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins
í fíeykjavík 28. og 29. október
Ásgerður Jóna Flosadóttir
Sjálfstæðisflokkurinn
metur konur að
verðleikum
Konur eru tilbúnar til að axla ábyrgð
Tryggjum Ásgerði lónu
8.-10. sttetiö
Lagerú tsci la
d flísum og
húsgögnum
Nýborgc§?
r
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Nú hefur okkur hlotnast sú ánægja að
geta boðið viðskiptavinum okkar að
kaupa þessa þekktu ítölsku gæða-
skó frá fyrirtækinu Attica.
Attica er eitt þekkt-
asta gæðamerki
✓
Italíu sem
hefur
innbyggðan
stuðning og fótlag sem gælir við fæturna.
Nokkrar fallegar
gerðir og hand-
töskur í stíl.
Þessir skór verða
eingöngu í nýju
búðinni í Domus
Medica.
Nú er gott tækifæri til að launa fótum
þínum dygga þjónustu og sæma þá heiðri
sem þeir eiga skilið með ATTICA
oJlX.
J
prófkjör SJálfstæðisflokksins I Reykjavlk
dr. Petur H. Blöndal
nýr maður - ný viðhorf - nýjar leiðir - ný öld
Nýsköpun og atvmnuleysi.
Hvers vegna viljum við ekki fjárfesta?
Pétur heldur annað erindi sitt af níu
í kosningaskrifstofunni að Skeifunni 11 (í húsi Stillingar)
kl. 17.30 í dag. Umræður og fyrirspurnir.
Ath. kosningaskrifstofa Péturs er opin daglega:
frá kl. 16 - 22.30 á virkum dögum 40*** ^
frá kl. 12 - 22.30 um helgar. jé yQtj.
Símar: 811 066,811 067 og 811 076. / f £
Allt sjálfstæðisfófk er velkomið. | ,*
Matrósafötin eru komin
Stæröir 0-6 ára.
Sendum í póstkröfu
DIMMALIMM
Bankastræti 4 Sími 11222
MANNVIRKJ AÞIN G
1994
Ö
„NÆSTU 50 AR“
verður haldið um stöðu og ftamtíðarhorfur í íslenskum
byggingariðnaði á Hallveigarstíg 1 föstudaginn 21. okt. nk.
frá U. 09.00 til kl. 16.00.
Skráning fer fram í síma 91-611111. Ráðstefhugjald er kr. 7.500.
Byggingarþjónustan.
Landsbókasafn íslands
- Háskólabókasafn
auglýsir eftirfarandi stöður
lausartil umsóknar:
Staða forstöðumanns þjóðdeildar, er hefur umsjón
með safnkosti deildarinnar og með þjónustu hennar
við notendur. Hann annast starfrækslu sérstaks lestrar-
salar og hefur umsjón með sérsöfnum, m.a. safni landa-
korta. Krafist er háskólamenntunar á sviði hugvísinda
og/eða bókasafnsfræði, auk verulegrar starfsreynslu
við umsjón og varðveislu íslenskra rita og við bókasafns-
þjónustu, sem þeim tengist.
Staða forstöðumanns handritadeildar, er hefur umsjón
með safnkosti handritadeildar, aðföngum til deildarinn-
ar, varðveislu ritakostsins, skráningu hans og annarri
fræðilegri úrvinnslu, ásamt þjónustu við notendur. Kraf-
ist er kandídatsprófs í íslenskum fræðum eða hliðstæðr-
ar menntunar, auk verulegrar starfsreynslu við rann-
sóknir og umsjón handrita.
Staða forstöðumanns aðfangadeildar, er hefur umsjón
með uppbyggingu safnkosts, þ.á m. vali rita og innkaup-
um, ritaskiptum og móttöku efnis, sem innheimt er
samkvæmt lögum um skylduskil til safna. Starfið kallar
á víðtæka þekkingu á starfsháttum og upplýsingaþörf
háskólakennara og annarra, sem stunda rannsóknir og
fræðistörf. Krafist er góðrar vísindalegrar menntunar,
starfsreynslu í bókasafni og/eða sérmenntunar í bóka-
safnsfræðum.
Staða forstöðumanns skráningardeildar, er hefur
umsjón með efnisgreiningu og skráningu safnkostsins.
Hann sér um uppbyggingu gagnasafna í tölvukerfi
safnsins. Gegni, bæði að því er tekur til bóka, tímarita
og greina í blöðum og tímaritum. Einnig er útgáfa bók-
fræðirita á verksviði deildarinnar. Krafist er sérmennt-
unar í bókasafnsfræði, góðrar álmennrar þekkingar og
starfsreynslu á sviði skráningar og bókfræði.
Staða forstöðumanns útlánadeildar, er hefur umsjón
með lánastarfsemi safnsins, annast eftirlit með ritkosti
á hinum opnu svæðum í safninu, svo og að nokkru
leyti ritum í lokuðum geymslum. Forstöðumaðurinn sér
um nýtingu lesrýma og skipuleggur kvöld- og helgar-
þjónustu í safninu. Krafist er sérmenntunar í bókasafns-
fræði, góðrar, almennrar þekkingar og starfsreynslu í
bókasafni.
Staða forstöðumanns upplýsingadeildar, er hefur, auk
upplýsingaþjónustu, umsjón með kynningarstarfi, not-
endafræðslu, útgáfu kynningarefnis og tengslum við
fagsvið. Einnig er efnisleit í erlendum gagnasöfnum
(tölvuleitir) á verksviði forstöðumannsins, svo og notkun
geisladiska (CD-ROM). Krafist er sérmenntunar í bóka-
safnsfræði, góðrar, almennrar þekkingar og starfs-
reynslu á sviði upplýsingaþjónustu í bókasafni.
Öll forstöðumannstörfin kalla á frumkvæði, vilja til ný-
sköpunar og góða samskiptahæfileika. Einnig er mennt-
un eða reynsla á sviði stjórnunar æskileg.
Umsækjendur eru beðnir að láta þess getið, ef þeir
óska eftir að koma til álita við ráðningu í aðrar af ofan-
greindum stöðum en þá, sem þeir sækja um sérstklega.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun, ritsmíðar,
rannsóknir og fyrri störf, skulu senda menntamálaráðu-
neytinu, merkt landsbókavörður, Sölvhólsgötu 4, 150
Reykjavík, fyrir 5. nóvember 1994.
Landsbókasafn íslands - Háskólabókasafn,
12. október 1994.