Morgunblaðið - 16.10.1994, Blaðsíða 16
16 B SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER1994
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU/A UGL YSINGAR
„Au pair" - ísafjörður
Bamgóð stúlka óskast til að gæta tveggja
barna á ísafirði í vetur.
Upplýsingar í síma 94-5336 á kvöldin og um
helgar.
Framreiðslunemi!
Óskum eftir að ráða nema í framreiðslu strax.
Stundvísi og reglusemi áskilin.
Uppl. á staðnum mánudag og þriðjudag milli
kl. 15-17.
Hótel Óðinsvé.
Matreiðslumaður
Veitingahúsið Ráin, Keflavík, óskar eftir
matreiðslumanni í fullt starf.
Upplýsingar í síma 92-14601.
Atvinnurekendur!
Hjá okkur er fjöldi fólks á skrá er leitar eftir
ýmiss konar störfum.
Vinsamlegast hafið samband og fáið frekari
upplýsingar.
Egill Guöni Jónsson
Ráöningarþjónusta og ráögjöf
Borgartúni 18 • 3. hæð • 105 Reykjavik • Slmi (91) - 61 66 61
MIÐSTÓÐ
FÓLKS í ATVINNULEIT
Breiðholtskirkju, Mjódd, sími 870880
Á dagskrá:
Miðstöð fóks í atvinnuleit efnir til Opinna
húsa í safnaðarheimilum borgarinnar í vetur.
Fyrsta Opna húsið verður í safnaðarheimili
Árbæjarkirkju fimmtudaginn þann 20. októ-
ber næstkomandi.
Yfirskrift hins Opna húss verður „Fjölskyldan
og atvinnuleysið".
Atvinnulausir og aðstandendur þeirra, svo
og aðrir þeir, sem ekki láta sér málefnið í
léttu rúmi liggja, eru hvattirtil þess að mæta.
EGJ
„Au pair“ Danmörk
Fjölskylda með þrjú börn (6 ára, 4 ára og
7 mán.) leitar að jákvæðri, sjálfstæðri og
barngóðri stúlku í húsið. Við búum í einbýlis-
húsi í Norður-Kaupmannahöfn. Þú færð eigið
herbergi með baðherbergi og 2.500 danskar
kr. í laun á mánuði + fæði og húsnæði.
Dönskukunnátta nauðsynleg og ökuleyfi
æskilegt.
Hafðu samband við Önnu Bjarnadóttur
í síma 90-45-42425414.
Aðstoðarlæknir
Staða aðstoðarlæknis (deildarlæknis) við ly-
flækningadeild er iaus frá og með 1. janúar
1995. Um er að ræða námsstöðu.
Viðkomandi þarf að taka bundnar bráðavakt-
ir á deildinni eftir nánara samkomulagi.
Upplýsingar gefur yfirlæknir og sérfræðingar
deildarinnar í síma 50188.
jmpmm
ST.JÓSEFSSPÍTALimm
HAFNARFIRÐI
LANDSPÍTALINN
.../' þágu mannúðar og vísinda...
LYFLÆKNINGA- OG KRABBA-
MEINSDEILDIR
Hjúkrunarframkvæmdastjóri
Laus er til umsóknar staða hjúkrunarfram-
kvæmdastjóra við lyflækninga- og krabba-
meinsdeildir Landspítalans. Starfið felst m.a.
í ábyrgð á rekstri, skipulagningu, stjórnun,
fræðslu og faglegri ráðgjöf. Æskilegt er að
umsækjandi hafi MS gráðu í stjórnun eða á
viðkomandi sérsviði.
Staðan veitirst frá 1. janúar 1995.
Upplýsingar um starfið veitir Vigdís Magnús-
dóttir, hjúkrunarforstjóri, í síma 601300.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist Vigdísi Magnúsdóttur,
hjúkrunarforstjóra, fyrir 1. nóvember nk.
GEISLAMEÐFERÐAREINING
Hjúkrunarfræðingar
Staða deildarstjóra á geislameðferðarein-
ingu er laus til umsóknar. Staðan veitist nú
þegar eða eftir samkomulagi. Á deildinni er
sjúklingum með krabbamein veitt geisla- og
hjúkrunarmeðferð. Unnið er alla virka daga
frá kl. 8.00-16.00.
Upplýsingar veita Bergdís Kristjánsdóttir,
hj.frkv.stj., s. 601303/601300 og Vigdís
Magnúsdóttir, hjúkrunarforstjóri, s. 601300.
ENDURHÆFINGAR- OG HÆFING-
ARDEILD LANDSPÍTALANS í
KÓPAVOGI
Þroskaþjálfa eða annað starfsfólk vantar á
ýmsar heimiliseiningar staðarins. Við leitum
sérstaklega eftir fólki með þekkingu og/eða
reynslu af starfi með fötluðum/þroskaheft-
um. Starfið er fjölþætt og krefjandi með
áherslu á einstaklingsmiðaða þjónustu og
jákvæð mannleg samskipti.
Upplýsingar um ofangreind störf gefa Hulda
Harðardóttir, yfirþroskaþjálfi, og Salóme
Þórisdóttir, deildarstjóri, í síma 602700.
GJORGÆSLUDEILD
Hjúkrunarfræðingar
Stöður hjúkrunarfræðinga eru lausar til um-
sóknar við gjörgæsludeild Landspítalans.
Við þjóðum hjúkrunarfræðingum störf við
einstaklingshæfða hjúkrun. Lágmarksráðn-
ingartími er 2 ár.
Á gjörgæsludeild Landspítalans er rými fyrir
11 sjúkfinga. Þar dveljast 1200-1300 ein-
staklingar á ári (börn og fullorðnir) með
margvísleg heilsufarsvandamál.
Störf hjúkrunarfræðinga á deildinni geta ver-
ið erfið og krefjandi, en bjóða upp á mikla
fjölbreytni og dýrmæta reynslu. Á gjörgæslu-
deild er samstilltur hópur fólks, sem hefur
það ad markmiði að veita skjólstæðingum
sínum og ástvinum þeirra sem besta umönn-
un og stuðning.
Leitað er að hjúkrunarfræðingum sem m.a.:
a) Hafa áhuga og metnað í starfi og eru
fúsir til að axla ábyrgð.
b) Geta unnið af öryggi og yfirvegun undir
álagi.
c) Hafa reynslu af gjörgæslu-, hand- eða
lyflæknishjúkrun.
Boðinn er aðlögunartími sem felur í sér les-
daga, fyrirlestra og handleiðslu.
Nánari upplýsingar gefur Lovísa Baldursdótt-
ir, hjúkrunarframkv.stjóri, í síma
601000/601300 og Anna Día Brynjólfsdóttir,
deildarstjóri, í síma 601370/601000.
GJÖRGÆSLUDEILD LANDSPÍTALA
Staða hjúkrunarritara á kvöldvöktum virka
daga er laus til umsóknar. Vinnutími er frá
kl. 15.30-21.30 (6 klst.) og vinnuhlutfall eftir
samkomulagi.
Nánari upplýsingar gefur Lovísa Baldursdótt-
ir, hjúkrunarframkv.stjóri, í síma
601000/601300 og Anna Día Brynjólfsdóttir,
deildarstjóri, í síma 601370/601000.
GEÐDEILD LANDSPÍTALANS
Stöður aðstoðardeildarstjóra og hjúkrunar-
fræðings á deild 33A á Landspítalalóð eru
lausar til umsóknar. Einnig er laus staða
sjúkraliða. Deildin þjónar sjúklingum með
almenna geðsjúkdóma og áfengis- og vímu-
efnafíkn. Tækifæri býðst til að taka þátt í
þróun áhugaverðra hjúkrunarviðfangsefna á
deildinni. Aðlögunartími og fræðsla eru í
boði. Starfsaðstaða er sérlega góð. Starfs-
hlutfall og vinnutími er eftir samkomulagi.
Allar nánari upplýsingar gefa Jóhanna Stef-
ánsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í sím-
um 601750 og 602600 eða Ragnheiður
Narfadóttir, deildarstjóri, í síma 601750.
Hjúkrunarfræðingar
Deildarstjóri, aðstoðardeildarstjóri
óskast til starfa nú þegar eða eftir nánara
samkomulagi. Okkur vantar áhugasama
hjúkrunarfræðinga sem eru tilbúnir að taka
þátt í endurskoðun á hjúkrunarskráningu og
öðrum spennandi verkefnum.
Sjúkraliðar
Sjúkraliðar óskast til starfa á allar vaktir.
Spennandi og sjálfstæð vinna.
Verið velkomin að koma og kynna ykkur
heimilið, sveigjanlegan vinnutíma og vinnu-
hlutfall.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri á staðn-
um eða í síma 26222 alla virka daga.
Elli- og hjukrunarheimilið Grund.
INNKAUPAMAÐUR
MATVÖRU
ÓSKUM EFITR AÐ RÁÐA duglegan
og drífandi innkaupamann hjá sölu- og
markaðsdeild öflugs verslunarfyrirtækis í
Reykjavík.
INNKAUPAMAÐUR sinnir samskipt-
um við vörusala erlendis og hérlendis auk
þess að annast tengsl við endurseljendur á
Stór-Reykjavíkursvæðinu sem og á lands-
byggðinni. Viðkomandi sér um samninga-
gerð, frágang pantana, auk þess sem gerð
markaðskannana er veigamikill þáttur í
starfinu, jafnframt því að fylgjast með nýj-
vmgum og vöruþróun innan matvörugeirans.
HÆFNISKRÖFUR eru að umsækjendur
hafi haldbæra reynslu af sambærilegu, séu
sjálfstæðir og skipulagðir í vinnubrögðum,
sýni gott frumkvæði og metnað í starfi,
ásamt því að vera lagnir í mannlegum sam-
skiptum. Enskukunnátta er nauðsynleg.
Æskilegur aldur 25-30 ár.
UMSÓKNARFRESTUR er til og með
21. október nk. Ráðning verður sem fyrst.
Umsóknareyðublöð og nánari npp-
lýsingar á skrif stofunni frá kl.
10.00-16.00, viðtalstímar frá kl.
10.00-13.00.
I. Starfsráðningar hf
I SuOurlandsbraut 30 ■ 5. hæð ■ 108 Reykjavík
, Sími: 88 30 31 ■ Fax: 88 30 10
Cubný Harðardóttir