Morgunblaðið - 16.10.1994, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 16.10.1994, Blaðsíða 6
6 B SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER1994 MORGUNBLAÐIÐ BÆRINN VAKNAR í sumar kom út síóari hluti aff hinu mikla verki Gudjóns Frióriks- sonar sagnfræó- ings Sögu Reykjavíkur á ár- unum 1870- 1940. Þetta er hversdagssaga, sögó f rá sjónar- hóli bæjarbúa sjálfra og kemur margt nútíma- ffólki skemmti- lega ffyrir sjónir. Einnig eru þar mörg hundruó gamlar myndir og teikningar, sem nokkrar birt- ast hér á sióunni meó viótali vió Guójón. Guójón Frióriksson sagnlræóingur. eftir Elínu Pólmadóffur uðjón Friðriksson sagnfræð- ingur hefur lokið sínum hluta af Sögu Reykjavíkur, sem spannar árabilið 1870 til 1940 og nefnist Bærinn vaknar. Það er orð að sönnu, því á þessu tímabili vex Reykjavík úr 2.000 manna byggð, sem ekkert hefur af neinu tagi, í borg. Fyrra bindið kom út 1991 og hlaut Guðjón fyrir það íslensku bókmenntaverðlaunin það ár. í sumar kom út síðari hlutinn, ekki síður veigamikill og með tugum skemmtilegra gamalla mynda og teikninga. Reykjavíkurborg stendur að þessu sagnfræðiriti og réð til þess sagnfræðinga, en Iðunn gefur það út. Guðjón Friðriksson hefur lokið sínum hluta. Næstu bindi fjalla um tímabilið eftir 1940 bg hefur Egg- ert Þór Bernharðsson sagnfræð- ingur lokið handriti sem er í undir- búningi til útgáfu, en það verður einnig í tveimur hlutum. Lokabindi þessa mikla sagnfræðiverks er um tímabilið frá Ingólfi Arnarsyni og fram til 1870 og er Þorleifur Ósk- arsson sagnfræðingur tangt kom- inn með ritun þess. Þannig að Saga Reykjavíkur verður fimm bindi þegar hún verður öll komin út. Guðjón Friðriksson kvað liggja í þessu verki gríðarlega mikla heimildavinnu, svo og söfnun gam- alla mynda, sem skipta huridruðum í bókinni. 1981 samþykkti borgar- ráð Reykjavíkur að efna til þessa verks í tilefni af 200 ára afmæli bcrgarinnar. Var Guðjón ráðinn til þess 1985 og vann við það í fullu starfi í hálft sjötta ár. Því verki lauk í árslok 1990. Seinni hlutinn kom svo út í sumar. Guðjón segir að haft sé að leiðarljósi við þessa söguritun að hún sé við alþýðu- hæfi án þess þó að slegið sé af fræðilegum kröfum. Hefur bókin við það orðið mjög aðgengileg fyr- ir allan almenning, enda hefur henni verið mjög vel tekið. Guðjón segir þetta hafa verið mjög skemmtilegt verkefni. Hann er sagnfræðingur frá Háskóla ís- lands og fjallaði prófritgerð hans um upphaf þorps á Patreksfirði og í framhaldi af því fór hann að skrifa byggðasögulegar blaða- greinar í I^óðviljann, mest um Reykjavík, sem varð til þess að Davíð Oddsson, þáverandi borgar- stjóri, sneri sér til hans vegna Sögu Reykjavíkur. Við heimildaöflun þurfti Guðjón að fara í gegn um öll blöð sem út komu á þessu tíma- bili, sem aftur varð til þess að hann vinnur nú að því að skrifa sögu íslenskrar blaðamennsku fyr- ir Blaðamannafélag íslands. En Guðjón kvaðst ekki aðeins hafa farið í gegnum blöð frá þess- um tíma heldur líka ógrynni af skjölum Reykjavíkurborgar og einnig hafði hann gömul sendibréf, sem hann notar sem krydd í text- ann, einkum bréf frá því fyrir alda- mót. „Þau eru mörg ákaflega skemmtileg og upplýsandi," segir hann og nefnir sem dæmi bréfa- safn Eiríks Magnússonar í Cam- bridge og konu hans Sigríðar Ein- arsdóttur, sem var úr Gijótaþorp- inu og skrifaðist á við fjölskyldu sína. Systur hennar voru í bréfun- um að segja henni frá því sem var að gerast í bænum og þá fregnir úr daglega lífinu. Sigríður var frá Brekkubæ í Gijótaþorpi, svo sem fram kemur í alkunnri vísu: Sigríður dóttir hjónanna í Brekkubæ, sú kann að gera skóna, ha-ha-ha-hæ... Blöóin aldaspegill „Blöðin eru mikill aldaspegill, bæði á þessari öld og einkum þó þeirri síðustu," segir Guðjón. í Dagbók Morgunblaðsins má til dæmis lesa smásögur úr bæjar- lífinu. Við að lesa þær skynjar maður mjög andrúmsloftið í bænum. Þar var til dæmis birtur farþegalisti þeirra sem komu með skipunum frá útlöndum og Tíminn birti nöfn bænda sem komu í bæinn. Þetta voru allt tíðindi þá.“ Til er eitthvað af æviminningum frá þessum tíma, þó mest frá fyrri hluta tímabilsins. En eins og Guðjón orðar það, er svolítið annað að lesa endurminningar sem skrifaðar eru eftir á en að skynja andrúmsloftið af þessum samtíma skrifum. Þessi aragrúi af myndum gefur auðvitað sýn á lífið í bænum á ýmsum tímum. Flestar eru þær úr þremur söfnum, Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Ljósmyndadeild Þjóðminjasafnsins og Árbæjarsafni. Mikið af teikningum er líka í bókinni, bæði úr Speglinum og einnig skemmtilegar skopmyndir úr Morgunblaðinu, sem lítt eru kunnar. Úr hljóólátum bæ meó hanagali Miklar breytingar urðu í Reykjavík á þessu tímabili. Guðjón bendir á að þegar frásögn hans lýkur í seinna bindinu, 9. maí 1940, daginn áður en Reykjavík er her- numin, heyrist flugvélaniður yfir bænum um miðja nótt, en þegar hann hefur frásögnina 1870 og lengst af á eftir ríkir þar dauðaþögn, ekkert hljóð heyrist nema stöku hundgá og hanagal. í lokin eru komnir bílar og alls konar bæjarhávaði. ;,Breytingarnar eru alveg ótrúlegar. Þegar vorskipið kom í apríl hafði ekki komið skip í marga mánuði. Þegar líður á fer þó að slæðast skip og skip að vetri. Þótt ekki væru það póstskip bárust með þeim útlend blöð og ritstjórar íslensku blaðanna voru þá eins og útspýtt hundskinn að útvega sér blöð og fá fréttir utan úr heimi. Þegar Friðrik VII. dó í janúar 1863 barst fréttin ekki til íslands um að konungur landsins væri látinn fyrr en 14. apríl. Síðan átti eftir að skrifa fréttina í íslensku blöðin og dreifa þeim um landið, sem tók marga mánuði. Þegar Kristján IX. svo dó 1906 er komið loftskeyta- samband og þá kemur fréttin til íslands samdægurs.“ Guðjón segir að breytingarnar verði mestar upp úr 1905. Fram að þeim tíma hafi bæjarstjómin ekki staðið fyrir neinum fram- kvæmdum að talist gæti. Verkefnið var lítið annað en fátækraframfæri, skólahald sem þó var ekki skólaskylda og óverulegar rennur lagðar í götur. Svo fer bærinn að stækka og þá horfir til vandræða og á árunum 1905-1918 verða gagngerar breytingar. Þá kemur fyrst vatnsveitan, sem var undirstaða þess að hægt væri að gera holræsi, því brunnarnir dugðu ekki. Og þá fyrst var hægt að hefja fiskþvott og iðnað sem byggðist á vatninu. Þá fór að koma margt sem fólki finnst alveg sjálfsagt nú. En ekki var enn rafmagn. Svo kom gasstö- ðin 1909 og ráðist var í hafnar- gerðina 1913-1917, sem færði Reykjavík yfirburðastöðu sem höfuðborg. Þegar við ræðum um sérkenni þessarar sögu Reykjavíkur, Bærinn vaknar, segir Guðjón Friðriksson að í upphafi hafi verið lagðar línur um það hvaða tökum skyldi taka frásögnina. „Ég ákvað að segja söguna neðanfrá. Ekki séða með augum stjórnenda heldur venjulegra borgara. Þessvegna legg ég lítið upp úr því að lýsa framkvæmdum, heldur hvaða áhrif þær höfðu á líf fólksins í borginni. Ég reyni að lifa mig inn í það og draga upp mynd af því,“ segir Guðjón. Bæði bindin fjalla um tímabilið 1870-1940. Að meginhluta nær þó það fyrra I tímaröð fram til 1916 ogþað síðara frá 1916-1940, en þó taka sumir kaflanir um einstök mál, svo sem skólamál og heilbrigðismál, yfir allan tímann. Gekksl upp i borgar menningunni „í seinna bindinu fannst mér ég skynja að unga fólkið sem kom úr sveitinni gekkst feikilega upp í borgarmenningunni, sem þá er að að verða í Reykjavík. Finn ekki hjá því þennan söknuð eftir sveitinni. Það er að flýja fátæktina og eygir betra líf í bænum, þó þar sé vissulega líka fátækt og átakan- legar lýsingar á kjörum fólks. Þetta fólk úr sveitinni lærir ný störf og iðnverk. Þarna voru margar umkomulausar persónur, en fólk var fljótt að koma sér fyrir, verða borgarasinnað. Á þriðja áratugnum hafa bíóin mikil áhrif á vaknandi borgarmenningu og aðflutta fólkið gengst upp í henni. Það sækir bíóin og hefur þar fyrirmyndirnar sem það líkir eftir. Sá tími fannst mér mjög spennandi að fást við, enda var ekki svo mikið skrifað um hann,“ segir Guðjón þegar hann er spurður um hvaða tíma honum hafi sjálfum þótt skemmtilegast að skrifa um. Guðjón kveðst hafa reynt að taka á sem flestum þáttum í bæjarlífinu á þessum tíma. Hans tímabil endar á árinu 1940, nóttina áður en Island er hemumið, sem fyrr segir vaknaði bærinn rækilega upp: „Einstaka nátthrafnar héldu lengur út og þeir sem ekki voru sofnaðir um klukkan þijú heyrðu drynjandi flugvélahljóð. Það boðaði nýja tíma í höfuðborg íslands.“ & S 23

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.