Morgunblaðið - 16.10.1994, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1994 B 27
KÍNVERSK börn eru mjög sérstæð og falleg
og voru óspart ljósmynduð á múrnum mikla.
VIÐ öðluðumst töluverða leikni við að borða með
prjónum og hér sýnir Kristbergur Pétursson
kampakátur færni sína.
I MENNINGARHÓPURINN í forboðnu borginni og við gröf hins mikla keisara Quin Shi Huang.
<
an fótinn í menningarbyltingunni. í
borginni er glæsilegasta fornminja-
og þjóðháttasafn sem við sáum á
ferðinni og geri ég fastlega ráð fyrir
að UNESCO eða í öllu falli útlending-
ar hafi lagt þar hönd á plóginn. Þar
bjuggum við á notalegu hóteli
( Jianguo að nafni.
| Enn var haldið í loftið og nú til
i silkiborgarinnar Chengdu í suðaust-
’ ur Kína, og þar m.a. skoðuð vatns-
veita, sem hefur verið í stöðugri
uPPbyggingu frá því um 250 f.Kr.
Hið gríðarlega mannvirki hefur gert
Sichuan hérað að einu hinu frjósam-
asta í landinu, ennfremur eins hins
mannflesta, en þar búa 110 milljón-
ir. Hótelið bar nafn héraðsins og var
ágætt.
j Það var líka tveggja klukkustunda
{ flug til Guilin í Suður Kína, en marg-
, ur teiur það fegursta hérað landsins,
' og jafnframt undir sólinni. Upp úr
flatlendinu og langa leið meðfram
fljótinu Lijiang rísa mikilfenglegir
og dulúðugir fjallagarðar úr kalk-
steini, vaxnir ijölþættum og fijósöm-
um gróðri. Toppamir á þessum
hrikalegu en samt blíðu náttúruund-
rum eru í senn líkastir loðnum fingr-
um sem ótal flosgrænum kirkjuturn-
| um, er teygja sig upp hver af öðrum
, og eins og minnast ástúðlega við
' guði himinsins.
( Og þrátt fyrir að ólíku sé saman
að jafna, má segja að um kínverska
Þingvelli sé að ræða, því að Kínveij-
um þykir náttúrufegurðin sú stór-
fenglegasta í heiminum og fjöllin
sjást á ótal kínverskum landslags-
málverkum, eru trúlega algengasta
myndefni listamanna eystra eins og
Þingvellir voru hér lengi.
/ í Guilin eru stórir dropasteinshell-
ar og hér hafa Kínveijar auðsjá-
( anlega ráðið framkvæmdum, því inni
| í þeim er allt eins og frumstæðir
halda að útlendingar vilji hafa það.
Dísæt og væmin lýsingin minnti mig
á lituðu gærurnar í verzlunum hér
áður fyrr. Hótel Holiday Inn var
voldugt, vélrænt, dýrt og kalt.
Síðasti áfanginn í lofti var borgin
Guangzhou, sem áður var mun betur
þekkt undir nafninu Kanton, og var
mikilvægt hlið vestursins inn í land-
ið. Forn viðskiptaborg er varð mið-
stöð ópíumverzlunnar og vaki hvers
konar skuggaverka er í kjölfarið
fylgdu, en einnig drauma og ævin-
týra. Hótel Jiangnan var fínt, og þar
gerðist það, yfir málsverði í hádeg-
inu, að sýndir voru þjóðdansar og
þótti öllum frumlegt. En mál manna
var að fólkið hefði að ósekju mátt
dansa betur og var vankunnátta
sumra hálf neyðarleg, en svo kom
upp úr kafinu-að þetta var sjálft þjón-
ustuliðið!
Kína er vanþróað og fátækt á
vestræna vísu, en hagvöxtur er þar
meiri en annars staðar í heiminum.
Landsmenn virðast byggja meira af
kappi en forsjá og hinar hrikalegu
andstæður á milli hins nýja og gamla
sker í augu. Þeir sem áður hafa kom-
ið til landsins og þó ekki séu nema
fimm ár síðan, fá hálfgert menning-
arsjokk, er þeir sjá breytingarnar.
Öfgarnar eru með ólíkindum og
þannig getur verið fimmfaldur verð-
munur á sömu vörunni og yfirþyrm-
andi götuprangið fer í fínu taugamar
á mörgum. Þá hefur verðlag þotið
upp og jafnvel ferðalangar frá Form-
ósu og Japan eru farnir að gera at-
hugasemdir.
Hvar sem við komum reyndum við
að skoða listmenjar eftir föngum og
sums staðar gafst okkur kostur á
að hitta listamenn, en þó höfðu sum-
ir í flimtingum að þetta væri allt
eins matarlistarferð. Borðuðum
veislumat tvisvar á dag og fengum
við a.m.k. í þrígang keisaralegan
málsverð, þ.e. það sem matreiðslu-
menn keisaranna mölluðu ofan í þá
fyrr á öldum. þrátt fyrir fjölþættan
og ókunnuglegan kost, fór maturinn
yfirleitt vel í menn, en í einstaka til-
viki vildi hin keisaralega virkt storma
full hratt um meltingarveginn og
burtkallast sviplega.
Það var farið hratt yfir landið, og
líti maður á framkvæmdina sem
skotferð til að athuga það sem land-
ið hefur upp á að bjóða, má slá föstu
að ferðalagið hafi haft ómælt gildi,
en ég mæli með rólegrj yfirferð og
skilvirkari undirbúningi.
Málið er þó þannig vaxið, að hinir
kínversku gestgjafar vilja hafa hönd
{ bagga með því sem útlenskir ferða-
menn skoða og þannig séð hefði þetta
ferðalag þurft mjög sértækan undir-
búning.
En ljósa hliðin á hinum fjölbreyti-
lega mat sem meltingarfærin réðu æ
betur við eftir því sem sunnar dró,
er að í tækniheimi okkar getum við
ferðast um allan heiminn á skjánum
sitjandi í hægindum heima í stofu.
Hið eina sem ekki er mögulegt, er
að nema andrúmið, og nálgast fæð-
una sem neytt er á hveijum stað og
þannig séð kynntumst við Kína frá
fleiri hliðum, en ef við hefðum t.d.
verið aldir á vestrænum mat allan
tímann.
Að lokum kom frumstæð lestar-
ferð til Hong Kong og þar bjuggum
við á hótel Prudential í Kowloon, þar
sem borð svignuðu undan dýrðleg-
ustu krásum og aðbúnaður allur var
fyreta flokks. Fengum með sanni
nasasjón af hinni miklu verzlunar-
borg vegna þess að fjórar eða fimm
hæðir niður af hótelinu voru verzlun-
armiðstöðvar.
Ljósmyndir: Björg Þorsteinsdóttir, Þor-
gerður Sigurðardóttir, Bragi Ásgeirsson.
NÝ SliNDING
af Eclipse vörum.
Einnig gott úrval af barnafatnaði.
! VERSLUNIN
s_ ____
IINGIJNGAFATNADUU
í Mjódd,
sími 871115.
Sálfrœðistofan sf
Meðferð • Ráðgjöf • Rannsóknir
Klapparstíg 25-27 • Sími 91-1 95 50
Námskeið um:
Svefn og svefnleysi
Efni: Eðlilegur svefn; svefnleysi.
Leiðir til úrbóta.
Leiðbeinandi: Júlíus K. Björnsson sálfræðingur.
Upplýsingar og skráning í síma 91-650426 í dag og í
síma 91-19550 kl. 17 - 18 alla virka daga.
VIRKA
Tískufataefni — Bútasaumsefni
Margeftirspurða, þykka, teygjanlega
prjónasilkið komið. Fallegir litir.
Einnig nýjar bútasaumsbœkur.
Opið mánudaga tii föstudaga frá kl. 9—18,
á laugardögum frá 1. sept. til 1. júní frá kl. 10—14.
VIRKA
MÖRKINNI3, SÍMI 687477
(við Suðurlandsbraut).
TU S öfu
Sterra ctmmslc
Einn vandaðasti, minnst notaði og öfiugasti jeppi landsins, ekinn
47 þús. km. 14 bolta aftan, No spin, Danc 16 framan, No spin. 6,21
diesel með Banks Turbo. Dekk 44". Utur mjög vel út.
Upplýsingar í Bilabatteríinu, Bfldshöfða 12, sími 673131.
IMPACT dagur
fimmtudaginn 20. október 1994 kl. 13.30
íHvammi, Holiday Inn.
Veist þú að Evrópusambandið reiknar með að upp-
lýsingaiðnaðurinn muni skapa 15 milljón störf í Evr-
ópu árið 2000.
Hversu mörg verða þau á íslandi?
Um þetta verður m.a. fjallað á Impact-deginum.
Ekkert þátttökugjald er innheimt, en þátttöku þarf
að tilkynna til Hörpu Halldórsdóttur í síma 886666
fyrir kl. 16.00 þann 19. október nk.
-kjarni málsins!