Morgunblaðið - 16.10.1994, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1994 B 13
fenginn á köflum þegar tenórsax-
inn er þaninn. Svo er þó ekki alltaf
því Bob er með betri ballöðublásur-
um sinna jafnaldra í djassheimin-
um. Hann hefur aldrei komið til
íslands en biandaði þó geði við
Andreu Gylfa og tríó Kalla Möllers
á Norrænum útvarpsdjassdögum í
Ósló í hitteðfyrra. Þar blés hann
með The Organizers, þar sem Kjeld
Lauritsen tryllti á Hammond-orgel-
ið. Oftar hefur maður þó hlustað á
Bob með Jan Kaspersen, Bo Stief
eða einhverjum öðrum Dananum,
ekki hvað síst í Soffíukjallaranum
á sunnudagseftirmiðdögum og þá
hefur verið gott að sitja eftir tón-
leika og spjalla með Túborg í hönd
við sólbaðaða Kristjánshöfn. Bent
Jædig, Richard Boone, Doug Raney
og Harvey Sands eru meðal fasta-
gesta og stundum rekur Paba Bue
inn nefið, gjarnan með servíettur í
eyrunum, til að sýna vanþóknun
sína á nútíma djassi.
Jesper Lundgaard og Jakob Fisch-
er komu bá£ir á RúRek-
djasshátíðina í fyrra. Þeir voru í
kvartetti fiðlumeistarans Svend
Asmussens. Tónleikar Svends voru
á föstudagskvöldi, en Jesper hafði
þó skroppið til íslands þriðjudaginn
þar á undan og leikið með kvart-
etti Freddie Hubbards. Hann fór á
kostum og var hetja kvöldsins.
Bassaleikari Hubbards hafði orðið
strandaglópur i Bandaríkjunum og
bjarga varð bassaleikara í hans
stað. Gítaristinn Doug Raney var
þá að leika á RúRek og sagði strax
og hann vissi af hann vandræðum
okkar: „Hringjum í Jesper. Við
verðum að fá Jesper.. Hann spilar
þetta eins og að drekka vatn." Það
varð einnig raunin, en tæpt stóð
það. Þetta var eina fríkvöld Jespers
í heilan mánuð og Dorte kona hans
var ekki hrifin af að sjá á eftir
honum til Reykjavíkur kvöldið það.
En Dorte var bætt það því hún kom
með honum föstudaginn eftir og
Jónas Hvannberg bauð þeim hjón-
um gistingu á Hótel Sögu og í kjöl-
farið fylgdi hvítasunnan. Friðrik
Theódórsson flaug með þau til
Vestmannaeyja og svo leigðu þau
bíl og skoðuðu Suðurlandið undur-
fagurt.
Jakob Fischer varð afturá móti
af hvítasunnusólinni á íslandi og
fór í bítið á laugardagsmorgni -
konsert beið einsog venjulega því
trúlega er hann einn eftirsóttasti
gítarleikari Norðurlanda um þessar
mundir. Áður en hann fór að spila
með Svend var hann í tríói Peter
Gullins og átti ekki hvað minnstan
þátt í að skífa Peters, Tenderness,
var valin besta djassskífa Svíþjóðar
1992. Hann var nýhættur í Gullin-
tríóinu er það kom til íslands sum-
arið 1992 til að leika hjá Áma
djassgoða ísleifssyni á djasshátíð-
inni á Egilsstöðum. Jakob er aðeins
27 ára gamall og hefur sópað að
sér verðlaunum, síðast Ben Webst-
er verðlaununum í fyrra. Hann hóf
gítarferilinn í anda Jimi Hendrix
en síðan hafa ýmsir komið við sögu:
Jim Hall og Wes Montgommery svo
tveir séu nefndir - og Jakob er
jafnvígur á rafmagnaðan og óraf-
magnaðan gítar.
♦
ARúRek hlustuðum við á tríó
Niels-Hennings á dönsku
beykiskógalínunni en í kvöld verður
dansk/amerískur djass á dagskrá
og spannar allt djassrófið frá
hráum blús til ljóðrænna ballaða,
með þjóðlegu jafnt sem fijálsu
ívafi. „Þegar við göngum á sviðið
höfum við fyrst og fremst í huga
að tónlistin verði skemmtileg," seg-
ir Jesper Lundgaard og það verður
sannkölluð djassveisla á Hótel Sögu
í kvöld og ekki ætla ég að láta
mig vanta og vonandi fæstir sem
unna sterkri sveiflu og bláum tón-
um.
Höfundur erkennari oghefur
skrifað um (fjass fyrir Morgunblaðið
Átthagafélag Þórshafnar
og nágrennis
Vetrarfagnaður félagsins verður haldinn í Mána-
bergi, Lágmúla 4, laugardaginn 22. október nk. og
hefst með borðhaldi kl. 20.00.
Miðasala á sama stað miðvikudaginn 19. október
kl. 17.00-19.00.
Stjórnin.
Veljum traustan mann
til forystu!
Geir H. Haarde í
3. sæti
Prófkjörsskrifstofan Faxafeni 5 er opin kl. 16 - 22 virka daga og 14 - 19 um helgar.
Símar 811235,811265 og 811275. Allir stuðningsmenn velkomnir!
Verslunin Okkar
30% aukaafsláttur af útsöluvörum
20% afsláttur^f öðrum vörum
frá 17.-22. október.
Verslunin okkar
Strandgötu 31, Hafnarfirði, sími 651588.
Vikutilboð
FAGOR LVE-95E
Stgr.kr.
44.900
AfborgunarverO kr. 47.300 - Visa, Euro, Munalán
RÖNNING
BORGARTÚNI 24
SÍMI 68 58 68
VÍÐ FIYTJUM
Súðarvog 2
GÁMAMÓNUSTAN HF.
SÍMI 688555
VERSLUNARTÆKNI HF.
SÍMI 688078
FLUTNINGATÆKNI HF
SIMI 688155
Viðskiptavinir athugið!
Við flytjum í dag starfsemi okkar frá Vatnagörðum 12,
að Súðarvogi 2, Reykjavík.
Öll símanúmer fyrirtækjanna verða óbreytt.
Nýtt faxnúmer Gámaþjónustunnar verður 688534