Morgunblaðið - 16.10.1994, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER1994 B 19
ATVIN N1MAUGL YSINGA R
Ertu
framtakssamur?
Viltu atvinnu eða aukavinnu?
í boði er svæðisbundin þjónustusala
um allt land.
Nánari upplýsingar í síma 618401.
PÓIARHE
EINHOLTI 6 - BOX5009 - 105 REYIQAVlK
Lagmeti
verkstjóri
Óskum að ráða verkstjóra til að stjórna
niðursuðu á rækju og kavíarvinnslu hjá
Strýtu hf. á Akureyri.
Viðkomandi þarfa að hafa reynslu af verk-
stjórn og/eða menntun á sviði matvæla-
vinnslu.
Umsóknir óskast sendar til Strýtu hf. við
Laufásgötu, 600 Akureyri, merktar: „Verk-
stjóri", fyrir 21. október nk.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál.
Upplýsingar um starfið verða ekki veittar í
síma.
Strýta hf.
Áhugavert starf
við tölvur
Vegna mikilla verkefna leitum við að einstakl-
ingi með háskólapróf og mikla tölvuþekkingu
í fullt starf til þess að vinna við ráðgjöf,
kennslu og útgáfustarf á tölvusviði.
Umsækjandi verður að eiga auðvelt með að
umgangast fólk, hafa gaman af að vinna við
tölvur og eiga auðvelt með tjá sig í mæltu
og rituðu máli.
Krafist er góðrar þekkingar á hugbúnaði fyr-
ir PC/Windows einmenningstölvur.
Við bjóðum áhugavert starf miðsvæðis í
Reykjavík, hjá mjög traustu fyrirtæki.
Þeir, sem hafa áhuga, eru vinsamlegast
beðnir að skila inn umsóknum til afgreiðslu
Mbl. merktum: „T - 5198“, eigi síðar en 21.
október.
Rætt verður við alla sem sækja um.
/°n\.
ff
Forstjóri
Kirkjugarðar
Reykjavíkurprófastdæma
óska að ráða forstjóra til starfa.
Starfið er laust 1. janúar 1995.
Forstjórinn hefur yfirumsjón með allri starf-
semi stofnunarinnar samkvæmt lögum um
kirkjugarða.
Leitað er að einstaklingi, sem hefur menntun
og þekkingu til að takast á við þetta starf.
Algjört skilyrði að viðkomandi hafi víðtæka
stjórnunarreynslu.
Góð tungumálakunnátta er nauðsynleg,
enska og eitt norðurlandamál.
Umsóknareyðublöð og nánari uppiýsingar
fást eingöngu á skrifstofu Guðna Jónsson-
ar, Tjarnargötu 14, og skal umsóknum skil-
að á sama stað.
Umsóknarfrestur er til 28. okt. nk.
Gudni ÍÓNSSON
RAÐCJOF feRAPNllNCARHONUSTA
TJARNARGÖTU 14. 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
Kvikmyndir
Óskum eftir að ráða starfskraft með þekkingu
á kvikmyndum. Þarf að hafa reynslu af rekstri,
starfsmannahaldi og markaðsstörfum.
Upplýsingar um menntun, aldur og fyrri störf
sendist afgreiðslu Mbl., merktar:
„Kvikmyndir - 7520“, fyrir 20. okt.
SKÓLASKRIFSTOFA REYKJAVÍKUR
Uppeldismenntaða
starfsmenn
vantar nú þegar við skóladagheimilið Skála
við Kaplaskjól.
Nánari upplýsingar gefur Kristrún Jónsdóttir,
forstöðukona, í síma 17665.
llr
ST. JÓSEFSSPlTALI
LANDAKOTI
Röntgentæknir
Röntgentæknir óskast á röntgendeild
Landakotsspítala.
Upplýsingar veitir Soffía Sveinsdóttir,
sími 604320.
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðing vantar til starfa sem fyrst
á hjúkrunardeild 1A. Aðallega er um dagvakt-
ir að ræða.
Upplýsingar veitir deildarstjóri, Bryndís Gest-
dóttir, sími 604312.
DUX
GEGNUMGLERIÐ
DÚX og Gegnutn glerib er verslun, sem býbur vandab-
ar vörur; húsgögn, húsbúnab og ýmsa gjafavöru.
Verslunin hefur einkaumbob á Islandi fyrir hinar
vöndubu scensku DÚX dýnur.
Er þjónusta þitt f ag?
Ofangreind verslun óskar eftir að ráða
starfsmann sem hefur áhuga á hönnun og
handverki. Leitað er að smekklegum,
ábyrgum aðila með fágaða framkomu og
góða hæfileika í mannlegum samskiptum.
Æskilegur aldur 30-40 ár.
Starfið felst í daglegri umsjón með gjafa-
vörudeild verslunarinnar, ráðgjöf við val á
gjafavöru og húsgögnum, frágangi sölu auk
uppstillingar í verslun. Ahersla er lögð á að
viðskiptavinir fái umfram allt góða þjónustu.
Umsóknarfrestur er til og með 21.
október nk. Ráðning verður fljótlega.
Vinsamlega athugið að umsóknar-
eyðublöð og allar nánari upplýs-
ingar eru eingögnu veittar hjá
STRA Starfsráðningum hf.
Skrifstofan er opin frá kl. 10-16, en við-
talstímar eru frá kl. 10-13.
,\
ST
Starfsráðningar hf
Suðurlandsbraut 30 ■ 5. hæð ■ 108 Reykjavík
, Sími: 88 30 31 Fax: 88 30 10
Cuðný Harðardóttir
FJORÐUNGSSJUKRAHUSIÐ AISAFIRÐI
Yfirmaður
mötuneytis
Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði óskar að ráða
yfirmann mötuneytis nú þegar eða sam-
kvæmt nánara samkomulagi. Um er að ræða
ráðningu til eins árs í fyrstu og skilyrði er
að viðkomandi sé fagmenntaður matreiðslu-
maður, hafi reynslu af stjórnunarstörfum og
sé áhugasamur.
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri,
Guðjón S. Brjánsson, í vs. 94-4500 og í hs.
94-4660 næstu daga.
Sölumaður
- sjávarútvegur
Fyrirtæki í Reykjavík óskar að ráða sölumann
til að annast sölu á vörum til útgerðar og
fiskvinnslu. Viðkomandi þarf að geta unnið
sjálfstætt, koma vel fyrir, eiga gott með að
umgangast fólk og hafa að baki reynslu í
sjómennsku, helst skipstjórn eða útgerð.
í starfinu felst bæði skrifstofuvinna og ferða-
lög um landið með daglegum samskiptum
við skipstjórnarmenn og fiskverkendur. Um
er að ræða framtíðarstarf fyrir réttan aðila.
Umsækjendur eru beðnir að gera grein fyrir
sér í skriflegri umsókn, merktri: „Sölumaður
- sjávarútvegur - 10772“ og senda hana til
afgreiðslu Mbl. fyrir 25. október.
BORGARSPÍTALINN
W Borgarspítali - Landakot
Deildarlæknir
Staða deildarlæknis við handlækningadeildir
Borgarspítala og St. Jósefsspítala, Landa-
koti, er laus til umsóknar. Staðan veitist til
eins árs frá 1. janúar 1995 að telja. Gert er
ráð fyrir að viðkomandi vinni 1/3 tímabilsins
á Landakoti og 2/3 á Borgarspítala.
Umsóknir, er tilgreini starfsferil, sendist
Gunnari Gunnlaugssyni, yfirlækni á Borgar-
spítala, fyrir 1. nóvember nk.
Nánari upplýsingar gefa Þorsteinn Gíslason,
yfirlæknir í Landakoti, og Gunnar Gunnlaugs-
son.
Vita- og hafnar-
málastofnun
Vita- og hafnarmálastofnun óskar eftir að
ráða tæknimann til að starfa við hafnargerð.
Starfssvið: Umsjón verka.
1. Kostnaðareftirlit.
2. Útboð og samningagerð.
3. Framkvæmdaeftirlit.
4. Uppgjör og kostnaðareftirlit.
Við leitum að byggingaverk-/ eða tæknifræð-
ingi. Æskileg starfsreynsla við framkvæmdir
og eftirlit. A.m.k. 3ja-5 ára starfsreynsla
nauðsynleg.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir
til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar:
„Tæknimaður 375“ 22. október nk.
Hagvangurhf