Morgunblaðið - 21.10.1994, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994 33
MINNINGAR
BRIDS
GUÐMUNDUR
KRISTJÁNSSON
+ Guðmundur
Kristjánsson
var fæddur á Gísla-
bæ á Snæfellsnesi
18. júlí 1902. Hann
lést á Siglufirði 10.
október síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Kristján
Kristjánsson báta-
smiður og Helga
Ingibjörg Helga-
dóttir. Móður sína
missti hann ungur.
Atti hann einn al-
bróður, Helga. Fað-
ir hans kvæntist
aftur og eru hálfsystkini hans
Jóhanna, Oliver og Magnús.
Hann stundaði sjómennsku á
unga aldri, nam síðar málm-
smíði og rak vélaverkstæði á
Siglufirði í áratugi. Utför hans
fer fram frá Fossvogskirkju í
dag.
GUÐMUNDUR Kristjánsson, eld-
smiður og hugsjónamaður, er látinn
níutíu og tveggja ára gamall.
Guðmundur vandist ungur smíð-
um og fiskveiðum hjá afa sínum
og ömmu í Skógarnesi á Snæfells-
nesi enda var hann af mikum hag-
leiksmönnum og sjósóknurum kom-
inn. Flestir hlutir voru smíðaðir
heima fyrir, bæði úr tré og járni,
og notaði Guðmundur t.d. fram á
síðustu ár nokkur verkfæri sem
hann smíðaði sér í æsku. Frá tíu
ára aldri og fram yfir tvítugt stund-
aði hann sjóróðra á seglbátum frá
Snæfellsnesi. Síðar var hann við
fiskveiðar á Selvogsbanka á vetrum
og síldveiðar fyrir Norðurlandi á
sumrum. Á Siglufirði settist Guð-
mundur svo að upp úr 1930, var
mótoristi á síldarbátum og stofn-
setti eigin vélsmiðju skömmu fyrir
1940 og rak hana í 40 ár. í smiðj-
unni vann hann með starfsmönnum
sínum við viðgerðir á vélum og
tækjum og smíðaði margs konar
verkfæri, svo sem járnkarla, kú-
bein, axir, dixla sem hann seldi víða
um land. Að vinnu sinni gekk Guð-
mundur með hugarró og nákvæmni
hagleiksmannsins eins og öll verk
hans báru merki um.
Hugur þessa manns, sem mótaði
glóandi málma með sleggju sinni,
var ákaflega næmur fyrir hinu smáa
og fíngerða í tilverunni. Ekki er ólík-
legt að sár móðurmissir í bernsku
hafí gert skynjunina næmari en ella
fyrir fegurð og leyndardómum nátt-
úrunnar og í samræmi við það stóð
skilningur Guðmundar opinn fyrir
austrænum dulvísindum sem hann
kynntist ungur. Lífssýn hans og
heimspeki var miðuð við þær víðátt-
ur sem guðspekistefnan lauk upp
fyrir þeim sem henni vildi kynnast.
Þannig fór Guðmundur lítt troðn-
ar slóðir í fleiri greinum. Hann gerð-
ist ötull fylgismaður náttúrulækn-
ingastefnunnar, valdi sér fæðu í
anda hennar og studdi Náttúru-
lækningafélagið með ráðum og dáð.
Guðspekifélag íslands naut einnig
gjafmildi Guðmundar en samúðin
og örlætið beindist fyrst og fremst
að fátækum og sjúkum á Indlandi.
í þeim efnum var Guðmundur lengi
traustur samverkamaður Móður
Teresu og Þóru Einarsdóttur. Mörg
Önnur málefni styrkti Guðmundur
á langri leið.
Löngu áður en það fór að tíðkast
almennt í hinum vestrænu samfé-
lögum að gefa gaum að mengun
og náttúruspjöllum barðist Guð-
mundur gegn eitrun andrúmslofts-
ins með skrifum í siglfírsk blöð.
Kannski var hann litinn homauga
af sumum samferðamönnum sínum
fyrir tiltækið rétt eins og fyrir „sér-
viskulegt" mataræðið. Nú eru mörg
ár liðin og líffræðingar og læknavís-
indin hafa kveðið upp úr með það
hvernig mönnum er hollast að
breyta og hvað að borða.
Eftir að störfum lauk í eldsmiðj-
unni í vélaverkstæðinu flutti Guð-
mundur öll smærri verkefnin í kjall-
arann á íbúðarhúsi
sínu í Grundargötu.
Þar vann rennismiður-
inn gamli margs konar
muni úr tré og málmi
sem hann seldi síðan í
þágu hjálparstarfsins á
Indlandi. Einnig mál-
aði hann myndir og
skrifaði smásögur sem
hinir hrjáðu og smáðu
nutu góðs af. I þessum
verkum birti Guð-
mundur okkur fagrar
og barnslegar hugsýnir
sínar. Myndirnar eru
ýmist af fiskimiðum
ungdómsáranna eða af fjöllum frá
innlöndum málarans. Skútu- og
skipamálverkin eru nánast sagn-
fræðilegar lýsingar á sjósókn og
siglingum í sólskini og góðum byr
á himinbláu hafi og sagt er að sjálf-
ur meistari skútumyndanna, Kjarv-
al, hafi hrifíst af nákvæmni og ein-
lægri sjón Guðmundar í Selvogs-
bankamynd frá 1932.
Nú er þessi aldni stuðningsmaður
Lífsins fallinn frá. Hann batt ekki
bagga sína sömu hnútum og sam-
ferðamennirnir, en átti því láni að
fagna að sjá iðju sína þera ávöxt
og njóta velvildar og hlýhugar
margra vina og kunningja.
Örlygur Kristfinnsson.
Gamall nágranni og vinur hefur
nú kvatt þetta líf. Hver minningin
á fætur annarri kemur ljóslifandi
upp í huganm Ég sit inni í stofu
fyrir norðan. Út um gluggann sést
yfir í ngpsta garð. í þessum garði
vaxa hvönn og fífill óáreitt og færa
eigenda sínum ómælda gleði. Sunn-
an við skúrinn eru kartöflugrös í
örum vexti og skarfakál í fjöru-
sandi sem fær sína réttu vökvun á
hveijum degi. Einhvers staðar ná-
lægur var Guðmundur, oftast við
einhver verk, kannski að dytta að
húsinu sínu eða bara sitjandi upp
við húsvegg að láta sólina verma
sig.
Guðmundur var einsetumaður og
fór sína eigin leiðir í mataræði og
öðrum lifnaðarháttum. Hann bakaði
sitt eigið brauð, orkuríkt og nær-
andi, og jurtafæði var á borðum
hans því að hann vildi þyrma lífi
saklausra dýra.
Umhyggju Guðmundar fyrir líf-
inu var engin takmörk sett. Hann
fann til með þeim sem minna máttu
sín og sat ekki hjá eins og við hin,
heldur rétti fram hjálparhönd. Hann
átti það eitt markmið þau ár sem
ég þekkti hann að bæta líf bág-
staddra í heiminum. Að þessu mark-
miði vann hann með starfi sínu sem
listamaður. Hann málaði myndir,
samdi sögur og renndi ýmsa muni
úr tré. Alla hluti vann hann af ein-
lægni og með fegurðina að leiðar-
ljósi og í hvert sinn sem verk seld-
ist vænkaðist hagur einhvers barns
úti í hinum stóra heimi.
Nú þegar ég kveð Guðmund
Kristjánsson er mér efst í huga inni-
legt þakklæti fyrir að hafa fengið
að vera honum samferða nokkurn
spöl.
Guðný.
Fátækleg orð segja lítið um það
þakklæti, sem ég óska að koma á
framfæri til vinar míns Guðmundar
Kristjánssonar, vélsmiðs frá Siglu-
firði, sem er látinn eftir langa van-
heilsu. Eftir margra ára höfðingleg-
an styrk til Indversku barnahjálpar-
innar er mér þó á þessari stundu
efst í huga það hugarfar, sem að
baki bjó gjöfínni og traust, sem
hann sýndi nefndinni sem kom róti
á hugann og kallaði fram hvort
tveg®a gleði og sekt og tilfinningu
fyrir þeirri ábyrgð, sem gjöfunum
fylgdi.
Á tímum þegar einstaklingurinn
er metinn eftir stöðu, fjármunum
eða því sem mestu máli virðist
skipta var í huga hins látna vinar
annað viðhorf. „Ábyrgðartilfinning-
in er undirstaða siðmenningarinnar.
Réttlætið er helgidómur lífsins.
Stjörnurnar eru draumar Guðs, en
kærleikurinn er stórveldi allra stór-
velda.“
Guðmundur Kristjánsson var
ekki maður hávaðans, en gæddur
heitum tilfinningum og heitu hjarta.
Gott var að mæta honum á „vegin-
um“, handtakið þétt, ylur í augum
og festa í svip, vörður vina sinna
og tryggur í lund. Hvar sem göfug
sál nemur land er gott að dvelja.
Sagt er að dauðinn sé öllum líkn
sem lifa vel. Við sem eftir lifum
samfögnum við sólrás þess lífs, sem
leysir fjötur af fæti.
Guðmundur fórnaði öllu sínu lífi
fyrir bágstadda. Öllu starfí fylgir
þó nokkur fórn eins og skáldið okk-
ar góða, Einar Benediktsson, orðaði
það: „Þitt verðmæti gegnum lífið
er fórnin.“ Annar vitur maður sagði:
„Fórn og þjónustan er manninum
tímanleg og varanleg.“
Eitt sinn heyrði ég ræðumann
gefa eftirfarandi heilræði: „Teldu
aldrei mínúturnar, sem þú vinnur,
gerðu ávallt eitthvað sem þú tekur
ekki peninga fyrir né metur til fjár.
Með öðrum orðum: gefðu eitthvað
af sjálfum þér.“ Þannig og aðeins
þannig verða menn ríkir að þeim
auðæfum sem ein hafa nokkurt
gildi. Guðmundur Kristjánsson var
ríkur maður. Hann var hagur, lík-
lega á allt sem hann lagði fyrir sig.
Hann var mjög góður málari, mál-
aði fjölda mynda, sem hann seldi
til gjafar fátækum. Hann var mik-
ill náttúruunnandi og beitti sér fyr-
ir mörgu sem snerti þau málefni.
Menn eru sjaldan lofaðir að
óþörfu, en Guðmundur var lofaður
og virtur af öllum, sem til hans
þekktu og meðal fólks kallaður
„Guðmundur góði“! Ekki eingöngu
vegna jarðneskra úthluta heldur
vegna hugarfars síns og hjarta-
gæsku sem hann miðlaði af hvert
sem hann fór.
Hann var guðspekingur og lifði
samkvæmt þeirri hugsun einföldu
lífi í ætt við heiðríkjuna og fjöllin
að mæta hverri stund lífsins eins
og hún er.
Innilegar þakkir færi ég þér að
lokum. Megi birta lífs þíns, sem þú
hefur áunnið þér með elskusemi og
fórnfýsi, fylgja þér næsta tilveru-
stig.
Sist vil ég tala um svefn við þig.
Þreyttum anda er hægt að blunda,
og þannig bíða sælla funda.
Það kemur ekki mál við mig.
Flýt þér vinur í fegra heim.
Kijúptu að fótum friðarbogans
og fljúgðu á vængjum morgunroðans
meira að starfa guðs um geim.
(J.H.)
Fyrir hönd Indversku barnahjálp-
arinnar.
Þóra Einarsdóttir.
Kveðjuorð frá Náttúrulækn-
ingafélagi Akureyrar
Kynni Náttúrulækningafélags
Akureyrar og Guðmundar stóðu
aðeins yfir í fá en einstök ár. Þau
hófust-með því að góður vinur hans
hér á Akureyri færði félaginu þau
boð að Guðmundur vildi leggja fram
eina og hálfa miljón til ákveðins
verkefnis í Kjarnalundi.
Síðar bætti hann enn um betur
og færði Náttúrulækningafélaginu
erfðaskrá þar sem hann arfleiddi
það að nær öllum eigum sínum.
Við þessari einstöku vináttu og
rausn gat félagið aðeins brugðist
með þeim hætti að útnefna hann
heiðursfélaga sinn.
Guðmundur var á Siglufirði jafn-
an nefndur „Guðmundur góði“,
enda fóru góðverk hans víða innan-
lands sem utan. Á Indlandi var
hann í sambandi við „Móður Ther-
esu“ og studdi hennar merka starf
fyrir fátæk börn með ómældum
framlögum.
Náttúrulækningafélag Akur-
eyrar kveður nú þennan velgjörðar-
mann sinn með virðingu og miklu
þakklæti og biður honum blessunar
á Guðs vegum.
Jón Kristinsson.
Þær fréttir bárust okkur suður
yfir fjöll að Guðmundur „góði“
Kristjánsson frá Siglufirði, sem
Grétar Fells nefndi eitt sinn
Leynijógann, hefði kvatt þetta til-
verusvið hinn 10. október og haldið
sem leið liggur til friðsamari lendna.
Undirritaður átti því láni að
fagna að kynnast Guðmundi lítil-
lega fyrir um tuttugu árum, en þá
gerði hann sér stöku sinnum ferð
inn á Akureyri til að vera með okk-
ur guðspekifélögum á fundum þar.
Ég man vel að Guðmundi fylgdi
kyrrð og birta þess hjartalags, sem
hann var jafnan þekktur af. En það
er í nafni íslandsdeildar Guðspeki-
félagsins og sérstaklega fyrir hönd
þeirra félaga, sem samíeið áttu með
honum, að ég vil nú færa honum
sérstakar þakkir, kveðjur og góðar
óskir á vegferðinni miklu.
Guðmundur var fæddur 18. júlí
1902 og hafði því liðlega tvö ár um
nírætt er hann kvaddi þennan heim.
Hann gekk ungur í Guðspekifélagið
og það kom fljótlega í ljós hvað
hinn hagsýni völundur hafði þar til
málanna að leggja. Segja má að
hann hafi tekið þar upp þráðinn við
að sjá um að umgjörð félagsins
væri í hinu stakasta lagi, þegar
Lúðvígs Kaaber naut ekki lengur
við. Því jafn mikilvægar og hugsjón-
ir félagsins eru gagna þær lítt ef
þær standa ekki á traustum verald-
legum grunni. Guðmundur gaf ekki
einvörðungu háar fjárhæðir og hag-
nýta hluti, heldur starf sitt og líf,
ljúft viðmót og gott hjartalag, svo
aðrir mættu njóta. Félaginu gaf
hann látlaust af auðlegð þeirri sem
líf hans var og éftir situr digur
Menningar- og fræðslusjóður þess.
En góðsemi Guðmundar náði ekki
einvörðungu til Guðspekifélagsins.
Hún flæddi yfír heiminn, kannski
fyrst og fremst á vængjum andans,
en einnig í formi kærleiksríkra gjafa
til góðra málefna. Þannig mun hann
hafa styrkt vel hjálparstarf á Ind-
lándi og víðar. Líf hans var ein
samfelld gjöf. Við sem eftir sitjum
ættum að minnast þess sannleika,
að hið eina sem hægt er að hafa
með sér yfir móðuna miklu, er það
sem við sjálf gefum í þessu lífi. Þar
fer því sannkallaður auðjöfur.
Einar Aðalsteinsson, deildar-
forseti Guðspekifélagsins.
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar end-
urgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringl-
unni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akur-
eyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfí í númer
691181. Það eru vinsamleg tilmæli blaðsins að lengd greinanna fari
ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línu-
lengd — eða 3600-4000 slög. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sin en ekki stuttnefni undir greinunum.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein-
ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfrétt-
ir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentun-
inni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur i veg fyrir tvíverknað.
Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali
eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfín Word og Word-
perfect einnig auðveld í úrvinnslu.
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Stórmót
í Sandgerði
Stórmót Samvinnuferða-Landsýnar
og Bridsfélagsins Munins, Sandgerði,
verður haldið í íþróttahúsinu í Sand-
gerði laugardaginn 5. nóvember og
hefst kl. 10.00. Spiiaformið er Mitch-
ell-tvímenningur. Skráning er hafin
og er takmarkað pláss í húsinu. Skrán-
ing er hjá Garðari Garðarssyni s.
92-13632 og 985-32974 og hjá BSÍ
s. 91-619360. Keppendur eru beðnir
að skrá sig tímanlega. Spiluð verða
60-70 spil. Keppnisgjaldið er 6.000
kr. á par. Verðlaun fyrir efstu sætin:
1. sæti 100.000 kr., 2. sæti 70.000
kr., 3. sæti 50.000 kr.(ferðavinning-
ur), 4. sæti 20.000 kr., 5. sæti 10.000
kr.
Keppnisstjóri er hinn kunni reikni-
meistari Kristján Hauksson. Svo verða
örugglega einhveijar óvæntar uppá-
komur að hætti stjórnar.
Bridsfélag Hornafjarðar
Sl. sunnudag lauk þriggja kvölda
hraðsveiþakeppni BH með þátttöku 7
sveita. Úrslit urðu eftirfarandi:
HótelHöfn 1747
Borgeyhf. 1726
GunnarPáll 1713
Gestur Halldórsson 1653
í sveit Hótel Hafnar spiluðu: Árni
Stefánsson, Jón Sveinsson, Ólafur
Magnússon og Jón Gunnar Gunnars-
son. Nk. sunnudag bytjar þriggja
kvölda Bord-a-Match-sveitakeppni.
Hraðsveitakeppni Vesturlands
Hraðsveitakeppni Vesturlands í
brids verður spiluð í samkomuhúsinu
í Borgarnesi laugardaginn 22. október
nk. og hefst upp úr kl. 10.00. Skrán-
ing verður á staðnum og lýkur kl.
10.00. Fyrirkomulag fer eftir þátttöku
og verður notað Monrad-kerfi við nið-
urröðun leikja eða að allar sveitir spila
innbyrðis stutta leiki og fer það eftir
þátttöku hvor aðferðin verður notuð.
Þátttökugjöldum verður stillt í hóf.
Spilað verður um silfurstig.
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Kópavogi
Föstudaginn 14. október var spilað-
ur tvímenningur og mættu 16 pör.
Úrslit urðu:
Þorsteinn Erlingsson - Bergsveinn Breiðfjörð 250
V aldimar Láruss. - Sveinbjöm Guðmundss. 246
Eysteinn Einarsson - Kári Sigutjónsson 231
Þriðjudaginn 18. október var spilað-
ur tvímenningur, 20 pör mættu, spilað
var í 2 riðlum, A og B. Úrslit í A-
riðli urðu:
Eggert Einarsson - Karl Adolfsson 129
Jensína Stefánsd. - Siguijón Guðröðarson 123
Garðar Sigurðsson - Júlíus Ingibergsson 122
B-riðill
HannesAlfonsson-EinarElíasson 116
HeiðurGestsdóttir-StefánBjömsson 116
U na Jónsdóttir - Júlíana Bjamadóttir 112
Frá Skagfirðingum
Spilaður var eins kvölds tvímenn-
ingur síðasta þriðjudag. Úrslit urðu:
Helgi Hermannsson - Hjálmar S. Pálsson 272
Einar Guðmundsson - Ingi S. Gunnlaugsson 231
Friðbjöm Steinsson - Garðar V. Jónsson 226
Sveinn Siguijónsson - Sigurður Marelsson 222
Jón Stefánsson - Ragnar Þorvaldsson 219
Júlíus Sigurðsson - Jón Ingólfsson 215
Næsta þriðjudag er áætlað að hefja
aðalsveitakeppni félagsins, ef næg
þátttaka fæst. Ef ekki, verður spilaður
eins kvölds tvímenningur. Skráning
sveita er hjá Ólafi Lárussyni í s. 16538,
sem jafnframt aðstoðar spilara við
myndun sveita, sé þess óskað.
Spilað er í Drangey, Stakkahlíð 17,
og hefst spilamennska kl. 19.30.
Bridsdeild Barðstrendinga
Lokið er 4 umferðum í hausttví-
menningi deildarinnar. Heildarstaðan
eftir 4 lotur er þessi:
ÞórarinnÁmason/GísliViglundsson 980
Ragnar Bjömsson/Leifur Jóhannesson 961
Viðar Guðmundsson/Pétur Sigurðsson 942
ÁrniMagnússon/AntonSigurðsson 912
Eðvarð Hallgrimsson/Jóhannes Guðmundsson 910
OskarKarlsson/ÓlafurBergþórsson 904
Úrslit síðasta spilakvöld.
16 para riðill.
Viðar Guðmundsson/Pétur Sigurðsson 265
Árni Magnússon/Anton Sigurðsson 245
Þorleifur Þórarinsson/Jón Sindri Tryggvason 243
10 para riðill.
Þórarinn Ámason/GIsli V íglundsson 251
ÓskarKarlsson/ÓlafurBergþórsson 235
Ásthildur Sigurgísladóttir/Lárus Amórsson 231
Síðasta umferðin verður spiluð
mánudaginn 25. október.