Morgunblaðið - 21.10.1994, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 21.10.1994, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Þúsund- ir laxa veiddir í Hvalfirði F.V. BÖÐVAR Sigvaldason, formaður Veiðifélags Miðfjarðarár, Helgi Jóhannsson lögfræðingur með 14 punda Vesturárhrygnu og Manfred Raguse, þýskur ferðaskrifstofueigandi sem ætlar að selja löndum sínum leyfi í Miðfjarðará á næstu vertíðum. HEIMTUR úr merkingum laxa á Færeyjamiðum, tölur yfir veidda laxa í sjó við ísland og fregnir um að sel hefur snarfjölgað við árósa voru meðal þeirra umræðuefna sem upp komu á ráðstefnu Norður-Atl- antshafslaxasjóðsins og Fróða hf. um laxveiðimál í Háskólabíói í síð- ustu viku. Orri Vigfússon greindi frá því á ráðstefnunni, að í sumar hefðu fyrstu heimtur skilað sér úr merk- ingarátaki á Færeyjamiðum í fyrra. Merktir voru 3.000 laxar og komu merktir laxar fram í laxveiðiám sjö landa, Noregs, Skotlands, írlands, Svíþjóðar, Spánar, Rússlands og Englands. Athygli vekur að enginn kom fram í íslenskri á. Athugun á löxunum sem til merkingar voru teknir leiddi í ljós að um 2/3 hluta þeirra voru villtir fiskar, en lh hluti eldislaxar. Við þetta má bæta, að í sumar hófst nýtt verkefni sem felst í því að fylgjast með ferðum laxa með ströndum fram. Sendi- tæki voru fest á milli 20 og 30 laxa sem gengu í veiðigildru haf- beitarstöðvarinnar í Hraunsfirði. Nokkuð var liðið á ágúst er þetta átti sér stað og til stendur að fram halda athugunum að ári. Miklar deilur hafa verið á svæðinu um gönguvenjur laxa og hafa veiðirétt- areigendur í næsta nágrenni haf- beitarstöðvarinnar haldið því fram að fullkominn veiðibúnaður stöðv- arinnar hafí hirt bróðurpartinn af laxinum sem hafi verið á leið í lax- veiðiámar í Breiðafirði. Samkomu- lag náðist milli deiluaðila í sumar um minni sókn hafbeitarstöðvar- innar og auknar rannsóknir til að fá botn í málið. Stórveiði í sjó Laxveiði í sjó hefur ekki verið lögum samkvæmt við Island um árabil, en þó eru fáeinar jarðir á Suðvestur- og Vesturlandi sem hafa heimildir samkvæmt gamalli hefð. Tvær þessara jarða eru í Hvalfirði og fleiri skammt frá ósum Langár á Mýrum. Hvalfjarðarlagn- irnar eru kenndar við Kirkjuból og Kúludalsá og kom fram á ráðstefn- unni að sumarveiðin hafi verið með mesta móti, eða 6.000 laxar, og bendi fyrstu athuganir á merktum löxum í aflanum til þess að um 3.600 fiskar eigi uppruna í hafbeit- arstöðvum, en 2.400 séu úr lax- veiðiám á Vesturlandi og þá senni- lega helst í Laxánum í Kjós og Leirársveit og svo Borgarfjarð- aránum. Ingvi Hrafn Jónsson, sem var ráðstefnustjóri ásamt Steinari J. Lúðvíkssyni, benti á að ekki vant- aði mikið upp á að um væri að ráða samanlagða sumarveiði í Norðurá og Grímsá og munaði um minna. Orðrómur hefur verið á kreiki í allt sumar og haust, að viðræður hagsmunaaðila við um- rædda netabændur um uppkaup netanna hafi staðið yfir. Menn sem leitað hefur verið til hafa hvorki viljað jánka því né neita. Netaleysi og selir í umræðu á ráðstefnunni um slakar laxagöngur kom fram í máli Áma ísakssonar að með nokkrum undantekningum hefði veiði í ám á Suðvestur- og Vestur- landi einnig verið mun slakari í sumar. Hið vonda ástand ætti ekki einvörðungu við um Norðurland. Það hefði að sönnu verið meira af smálaxi í ám í þeim landshluta heldur en norðanlands og norðaust- an, en varla gæti það talist hafa verið meira en í slöku meðallagi. Borgarfjarðarárnar hefðu staðið fyrir sínu, en þær hefðu notið þess ríkulega að net eru ekki lengur lögð í Hvítá. Það kom einnig fram í máli Þor- kels Fjeldsted netabónda í Fetju- koti, sem var meðal ráðstefnu- gesta, að honum þætti áberandi að það er miklu minni lax að ganga heldur en fyrrum og væru lýsingar manna á laxatorfum við árósa sem ekki vildu ganga lengra orðnar æði margar og fyrirferðarmiklar. Upp úr þeim vangaveltum kom fram eftir veiðieftirlitsmanni á Vestur- landi, að þegar árósar og næsta nágrenni þeirra væri skoðað úr flugvél kæmi í ljós að gífurleg aukning væri orðin á selagangi. Þeir væru fleiri en áður og kæmu nær ósunum. Fyrir nokkrum árum hafði að mestu tekist að stugga þeim frá, en þeir sækja nú í sig veðrið aftur. Áð sama skapi hefur víða færst í vöxt að menn veiði laxa sem eru iila leiknir eftir seli. Garðabæj- ardagur á morgun Samninganefnd ríkisins Tilbúin til samninga við sjúkraliða frá upphafi viðræðna SAMNINGANEFND ríkisins hefur frá upphafi viðræðna við Sjúkra- liðafélag íslands verið tilbúin til samninga með hiiðstæðum hætti og við önnur félög opinerra starfs- manna, segir í fréttatilkynningu frá ljármálaráðuneytinu. SLFÍ hefur tilkynnt ráðuneytinu að það muni á næstunni láta fara fram allsherj- aratkvæðagreiðslu um boðun verk- falls 10. nóvember nk., en verkfalls- boðunin er til þess gerð að knýja viðsemjendur félagsins til viðræðna um kjarasamninga sem verið hafa lausir í tíu mánuði. í tilkynningunni segir að Sjúkra- liðafélagið hafi fyrst óskað eftir samningaviðræðum í september 1993, þegar rúmir fimm mánuðir voru frá því að samningar við félag- ið losnuðu. „Fyrsti samningafund- urinn var haldinn 20. september 1993. Á þeim fundi lagði félagið fram minniblað með óskum um efn- isatriði viðræðna. Á fundi viku síðar lagði SNR fram drög að samningi sem var hliðstæður þeim samning- um sem þá höfðu verið gerðir á almennum vinnumarkaði og við nokkurn hluta opinberra starfs- manna. Sjúkraliðafélagið hafnaði þessu tilboði um samning, eitt fé- laga innan BSRB,“ segir í tilkynn- ingu ráðuneytis. „Síðan þá hafa samningaviðræð- ur staðið með hléum af ýmsum ástæðum og hafa verið haldnir 15 samningafundir til þessa. Félagið lagði fram kröfugerð sína á fundi 1. júní 1994 og gerði SNR félaginu nýtt tilboð um samning 13. júní 1994 sem einnig var hafnað af fé- laginu. Óskaði félagið þá eftir híéi á viðræðum sem stóð þar tii í lok september að félagið óskaði eftir samningafundi. Var þegar orðið við því og hafa sjö fundir verið haldnir síðan. Á þeim fundum hafa m.a. verið rædd mál er varða framhalds- menntun sjúkraliða og málefni fé- laga SLFÍ sem starfa utan höfuð- borgarsvæðisins. Undimefndir í þeim málaflokkum hafa náð veru- legum árangri." GARÐABÆJARDAGUR verð- ur haldinn í Garðaskóla laugar- daginn 22. október kl. 13—17 undir yfirskriftinni: Fjölskyld- an og bærinn okkar. Deginum er ætlað að vera vettvangur fyrir bæjarbúa á öllum aldri til að koma saman, fræðast, ryóta skemmtiatriða og kynnast starfsemi ýmissa félagasamtaka og annarra aðila í bænum. M.a. verður haldið málþing um málefni fjölskyldunnar, umhverfismál o.fl., tónlistaratr- iði og skátafélagið Vífill mun m.a. standa fyrir ratleik. Á bókasafninu verður sögustund fyrir börn og unglinga ásamt kynningu á bókmenntum um sögu Garðabæjar og Myndlist- arskólinn setur upp sýningu á verkum nemenda. Það er fjölskyldunefnd Garðabæjar sem stendur fyrir þessari hátíð og er aðgangur er ókeypis. íslensk frímerki sýnd í 3 mánuði í Kaupmannahöfn FRÁ þriðja janúar allt fram til þrítugasta mars 1995 verður haldin sýning íslenskra frí- merkja í Danska póst- og síma- minjasafninu við Valkend- orfsgade í Kaupmannahöfn. Þarna verða eingöngu sýnd ís- lensk frímerki, en safnið á heilt safn allra íslenskra frímerkja sem út hafa verið gefin og jafn- vel í heilum örkum fram til 1993. Þettaer sérstök kynning- arsýning á frí- merlqum hinna Norðurlandanna, sem að þessu sinni fjallar um frímerki og póst- sögu Islands. I fréttabréfi safnsins segir: „Eyríkið í hinum norðlæga hluta Atlantshafsins fékk eigin póst- þjónustu ekki fyrr en árið 1873“. Þarna er auðvitað átt við frímerkjaútgáfu í nafni lands- ins og einnig notkun íslenskra stimpla á þessi frímerki. Berufjord Fyrstu póststöðvarnar sem opnaðar voru á árunum 1870- 1871 voru á Seyðisfirði, í Reykjavík og á Berufirði. Fengu pósthúsin í Reykjavík og á Seyðisfirði danska númerast- impla til að ógilda frímerkin með, en Berufjörður fékk stimpil með staðarheiti upp á dönsku, „Berufjord", enda var sú póstafgreiðsla opnuð seinna. Sumir þessara stimpla eru í vörslu danska safnsins, þar sem þeim var skilað til Kaupmanna- hafnar af aflokinni notkun. Frá 1870-1873 voru svo að- eins notuð dönsk frímerki hér, eða þar til íslensk frímerki höfðu verið prentuð og tekin í notkun árið 1873. Þá verður einnig í raun til íslensk Póst- málastofnun, undir Póshúsinu í Reykjavík. Islandssafn Danska póst- og símaminjasafnsins er heilt allar götur frá 1873 fram áþennan dag. Öll íslensk frímerki voru líka prentuð í Danmörku allt frá 1873 og að mestu leyti fram til 1933, ef frá eru taldar yfir- prentanir og Alþingishátíðin. Þá höfðu Danir einnig með að gera að velja myndir fyrir ís- lensk frímerki. Það var eitt og sama fyrirtæki, sem prentaði íslensk frímerki allan þennan tíma eða H.H. Thiele í Kaup- mannahöfn. Vinnubækur þeirra með skrá um allar prent- anirnar eru ennþá til í vörslu dönsku Póststjórnarinnar. Þar er ennfremur að finna tillögur að gerð og litum frímerkjanna og árituð eintök þeirra sem samþykkt var að gefa út. Af þessu má sjá að það var ekki að undra að íslensk, dönsk og t.d. frímerki frá Dönsku Vestur-Indíum voru svo lík, en þau voru öll unnin á sama stað. Danska póst- og símaminjasafnið í Kaupmannahöfn. Félag íslenskra sjúkraþjálfara Aformum um niðurskurð mótmælt FÉLAG íslenskra sjúkraþjáifa hefur mótmælt fyrirhuguðum niðurskurði í sjúkraþjálfun, sem boðaður er í fjár- lagafrumvarpinu. Einng mótmælir félagið nýrri reglugerð sem felur það í sér að kostnaður vegna vottorða, þar á meðal beiðni um þjálfun, er færður á sjúklinga. Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu eiga 50 milljónir að sparast í sjúkra- tryggingum á næsta ári vegna nið- urskurðar í sjúkraþjálfun. Stjórn Félags íslenskra sjúkraþjálfa telur óljósar forsendur fyrir þessum nið- urskurði og engin svör hafi borist frá opinberum aðilum um hvaðan eigi að taka umræddar 50 milljónir. Stjórnin telur að ef þessar aðgerð- ir heilbrigðisyfirvalda nái fram að ganga sjái sjúkraþjálfar fram á að fjöldi sjúklinga hafi ekki ráð á sjúkra- þjálfun. Þess vegna trúi sjúkraþjálfar því ekki að þessi niðurskurður gangi eftir. „Það er hættulegt heilbrigði þjóð- arinnar að ekki sé mörkuð skýr, markviss stefna í heilbrigðismálum. Niðurskurður á útgjöldum til heil- brigðisþjónustu er vandmeðfarinn og krefst markvissrar vinnu og skoðun- ar á því hvaða þjónustu ríkið vill greiða fyrir og hvað ekki. Áður en sú vinna hefur farið fram verður nið- urskurðurinn tilviljunarkenndur og marklaus," segir í samþykkt stjórnar Félags íslenskra sjúkraþjálfa. Norrænn þjóðfundur SAMBÖND Norrænu félaganna standa fyrir norrænum J)jóðfundi í Kaupmannahöfn í næstu viku. Fundinum er ætlað að skapa um- ræðugrundvöll fyrir um það bil 200 fulltrúa norrænna samtaka sem hafa samtals um 10 milljónir meðlima. Tilgangurinn er að ræða hvert hlut- verk frjálsra félagasamtaka kemur til með að vera í norrænu samstarfi í framtíðinni. Fundurinn verður hald- inn í Hotel Scandic Hvidovre í Kaup- mannahöfn dagana 24.-26 október. I frétt frá Norræna félaginu á ís- landi segir að fundurinn sé fyrsta skrefið á leiðinni til samstarfs al- mennings á Norðurlöndum til ársins 2000. Stefnt er að því að halda álíka fundi annað hvert ár, þann næsta í Finnlandi 1996.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.