Morgunblaðið - 21.10.1994, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
*
Islensk sjóefni hf. undirbúa vinnslu í saltverksmiðjunni
ing á Eðalsalti
er að hefjast
Gjaltleyriskaup Seðlabanka á millibankamarkaði
og opinber gengisvísitala
Vikuleg,
nettókaup,
milljónir kr.
1000
800
600
400
200
0
-200
-400
-600
-800
-1000
-1200
-1400
Gengisvísitala,
í vikulok.
SIGHyATUR Björvinsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra og Sigurður J. Halldórsson framkvæmda-
stjóri Islenskra sjóefna voru kampakátir þegar tilkynnt var formlega um markaðssetningu á Eðalsalti.
Gengisvísitalan
sýnir 2% gengis-
lækkun á einu ári
MEÐALGENGI íslensku krónunn-
ar, mælt með opinberri gengisvísi-
tölu lækkaði um tæp 2% á tímabil-
inu 30. september 1993 til 30. sept-
ember sl. Þetta kemur fram í októb-
erhefti Hagtalna mánaðarins þar
sem segir að þessi lækkun meðal-
gengisins sé athyglisverð í ljósi þess
að viðskiptajöfnuður hafi verið hag-
stæður.
Eftir gengisfellinguna 28. júni
1993 vour sett ný vikmörk; 112,43
og 117,6. Eftir þá breytingu fór
gengisvísitalan lækkandi og náði
lágmarki 18. nóvember 1993 i
1113,83. Lækkun gengisvísitölu
sýnir styrkari krónu en eftir 18.
nóvember á síðasta ári hefur meðal-
gengi krónunnar skv. gengisvísi-
tölunni smám saman farið lækk-
andi.
í Hagtölum mánaðarins segir að
upplýsingar Seðlabankans bendi til
þess að innlend fyrirtæki hafi verið
að greiða niður erlend lán á árinu
í skiptum fyrir innlenda fjármögn-
un. Það hafi valdið myndun á út-
streymi fjármagns og þrýstingi á
gengi krónunnar. Þá segir að einn-
ig sé líklegt að innlendir fjárfestar
séu að einhveiju leyti að dreifa
áhættu sinni betur með kaupum á
erlendum langtímabréfum sem
heimilt hefur verið frá síðustu ára-
mótum.
ÍSLENSK sjóefni hf. eru nú að hefja markaðssetningu hérlendis á
natríumsalti úr birgðum saltverksmiðjunnar á Reykjanesi undir vöru-
merkinu Eðalsalt. Hér er um að ræða fyrirtæki sem stofnað var af 20
fyrrum starfsmönnum íslenska saltfélagsins í byrjun júlí. Samningar
tókust við eiganda verksmiðjunnar, Hitaveitu Suðurnesja, um að fyrir-
tækið tæki að sér hreinsun vinnslukerfa og viðhald í verksmiðjunni.
Jafnframt tryggði félagið sér efni af birgðum verksmiðjunnar til mark-
aðssetningar innanlands. Að undanfömu hafa farið fram athuganir á
því hvort grundvöliur sé fyrir því að hefja rekstri verksmiðjunnar að
nýju og leitað er markaða fyrir saltið erlendis.
Öll vinnsla í saltverksmiðjunni
hefur legið niðri frá því íslenska
saltfélagið varð gjaldþrota fyrr á
árinu. Hitayeita Suðurnesja keypti
allar eignir þrotabúsins í sumar
en sjálf átti hún fyrir jarðhitarétt-
indi, fasteignir o.fl. Að sögn Sig-
urðar J. Halldórssonar, fram-
kvæmdastjóra íslenskra sjóefna
er nú stefnt að því að hefja vinnslu
í verksmiðjunni á ný innan
skamms en unnið er að þessum
málum í nánu samstarfi við Hita-
veituna. Viðræður standa yfir við
aðila í Bandaríkjunum og Evrópu
um kaup á Eðalsalti og virðast
sölumöguleikar góðir.
Heilsusamlegra en matarsalt
Framleiðslugeta verksmiðjunn-
ar við núverandi aðstæður er um
2.500 tonn á ári af eðalsalti og
jafnhliða er unnt að framleiða um
12.500 tonn af matar-, fiski- og
iðnaðarsalti. í verksmiðjunni gætu
skapast störf fyrir 35-40 manns
miðað við fuli afköst.
Eðalsalt sem áður var nefnt
Heilsusalt þykir heilsusamlegra en
venjulegt matarsalt þar sem það
inniheldur minna af natríumklór-
íði. Sama bragð er hins vegar af
því og matarsalti. Þá inniheildur
Eðalsalt í ríkum mæli steinefni,
kalíum og magnesíum ásamt snef-
ilefnum. Vinnsla saltsins fer þann-
ig fram að heitum jarðsjó er dælt
úr borholu í nágrenni við verk-
smiðjuna. Er gufan notuð sem
orkugjafí til að eima saltið úr sjón-
um. Það kemur á markað í tveim-
ur pakkningum þ.e. 95. gramma
og 215 gramma krukkum. Ryd-
enskaffi hf. í Reykjavík annast
dreifingu í matvöruverslanir.
Bílaiðnaður
GMmeð
552 millj.
dalaí
hagnað
Detroit. Reuter.
GENERAL MOTORS-bíla-
verksmiðjurnar hafa skýrt frá
552 milljóna dollara hagnaði á
þriðja ársfjórðungi, þótt enn
sé halli á rekstri deildarinnar
í Norður-Ameríku.
Á sama tíma í fyrra var GM
rekið með 113 milljóna dollara
tapi. Norður Ameríkudeildin
var rekin með 328 milljóna
dollara tapi á þriðja fjórðungi
þessa árs, en minnkaði tapið
úr 1.1 milljarði dollara á sama
tíma í fyrra. Hagnaður af al-
þjóðaumsvifum GM var minni
en í fyrra, 240 milljónir dollara
nú, en $403 milljónir í fyrra.
Sérfræðingar í Wall Street
höfðu spáð GM 620-650 millj-
óna dollara hagnaði.
Markaðssetn-
Evrópa
Minnsta
verðbólga í
ESB í sjö ár
Briissel. Reuter.
VERÐBÓLGA miðuð við eitt
ár í Evrópusambandinu
minnkaði í 3% í september og
hefur ekki verið lægri í sjö og
hálft ár að því er tilkynnt hef-
ur verið í Brússel. Til saman-
burðar var verðbólgan 3.1% í
ágúst og 3.4% í september
1993.
Verðbólga var minnst í
Frakklandi í september eða
1.6% samkvæmt bráðabirgða-
tölum. Aðeins á Ítalíu, Spáni
og í Portúgal og Grikklandi
var verðbólga meiri en í meðal-
lagi.
Af þeim fjórum ríkjum, sem
líklegt er að fái aðild að ESB
— Noregi, Finnlandi, Svíþjóð
og Austurríki — var Austurríki
eina landið þar sem verðbólga
var meiri en meðalverðbólgan
í aðildarlöndunum, sem var
3.2%. í september.
Taflan sýnir nýjustu tölur
um verðbólgu á ársgrundvelli
í prósentum samanborið við
sama mánuð í fyrra.
Irland Sept. 94 Sept. 93
1.3*
Danmörk 2.2m 1.2
Frakkland 1.6b 2.3
Holland 2.7 2.8
Belgía 2.5 2.8
Lúxemborg 2.2 3.7
Bretland 2.2 1.8
Þýzkaland 3.0 4.0
Ítalía 3.9b 4.5
Spánn 4.5 4.3
Portúgal 4.7 5.9
Grikkland 11.9 12.8
ESB-meðaltal (*=ágúst 93/ágúst 92) (b=bráðabirgðatölur) (m=mat ESB) m3.0 3.4
Verð á kopar
snarhækkar
London. Reuter.
VERÐ á kopar fór yfir 2,600
dollara tonnið á fimmtudag í
fyrsta skipti í tæp fjögur ár
og verð á öðrum málmum
hækkaði um leið.
Spákaupmennska fjárfest-
ingar sjóða og veikur dollar
" stuðluðu að hækkuninni, sem
sýnir að mikil eftirspurn er
eftir málmum um leið og sér
fyrir endann á samdrætti í
heiminum. Ýmsir hagfræðing-
ar óttast verðbólgu.
Kopar hefur hækkað um
60% síðan hann komst lægst
í 1,600 dollara í fyrra. Verðið
hefur ekki verið hærra síðan
í janúar 1991 og sumir spá.
því að kunni að slaga upp í
hæsta verð sem hefur fengizt
- 2,900 dollara 1990.
Blý hefur hækkað 82% á
þessu ári. Nikkel hefur hækk-
að um 75% og seldist á rúm-
lega 7,000 dollara á fímmtu-
dag. ÁÍ hefur hækkað um 70%.
Prófkjörsskrifstofan Faxafeni 5 er opin kl. 16-22 virka daga og 14 - 19 uni helgar. Síntar 811235, 811265 og 811275. Allir stuðningsmenn velkomnir!
EINN, TVEIR OG GEIR!
Veljum formann þingflokksins - Geir H. Haarde í