Morgunblaðið - 21.10.1994, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994 19
LISTIR
EITT verka Gunnars Arnar.
Bræðralag og
náttúruundur
MYNPLIST
Listhúsið Borg
MÁLVERK
GUNNARÖRN
Opiðfrá 12-18 virkadaga, 14-18
laugardaga og sunnudaga. Til 30.
október. Aðgangur ókeypis.
MÁLARINN Gunnar Örn hefur
lifað tímana tvenna í einkalífi sínu
sem listinni og hafa þar skipst á
skin og skúrir. Eftir mikinn upp-
gang og meðbyr með ólíkindum
um árabil, kom kafli þar sem lík-
ast var sem hann svifi í lausu lofti
og ætti afar erfitt með að jarð-
tengja athafnir sínar í myndlist-
inni, þótt þær snerust einmitt um
bein og óbein hrif frá náttúrunni.
Margur fyrrverandi aðdáandi
málarans hristi höfuðið og var tíð-
rætt um eldri, og að þeirra mati
svipmeiri dúka, en kannski voru
þessi viðhorf lituð áhrifum að utan,
þangað sem full margir leita sér
helst leiðsagnar um myndræn gildi
hér á landi.
En það má telja borðleggjandi,
að Gunnar gekk í gegnum nýtt
þroskastig, sem mótaðist í ríkum
mæli af návist hans við fjölskrúð-
uga náttúru Suðurlandsins, og
margræð fyrirbæri hennar sem
hann var að meðtaka og melta.
Og þegar svo stendur á spyija
listamenn ekki utanaðkomandi
álits, heldur fylgja sannfæringu
sinni og eðlisvísun, og skiptir þá
minna máli þótt hún kunni að vera
röng, en öllu að koma nýjum við-
horfum frá sér og stokka upp spil-
in.
Það eru full fyrirferðamikil ein-
kenni mörlandans, að ganga á lag-
ið og afskrifa listamenn er þeir
eru í mótbyr, enda þótt listasagan
segi okkur að allir myndlistarmenn
hafa gengið í gegnum einhveijar
lægðir og jafnvel mjög djúpar. En
sannir listamenn eru einfaldlega
of fijálsbornir til að láta ráðskast
með sig af grafalvarlegum fulltrú-
um framandi gilda, títupijóna-
fræðum naflastrengja og handhöf-
um vizkunnar.
Sýning Gunnars í listhúsinu
Borg kemur ósjálfrátt af stað hug-
leiðingum um þróunarferli listar
hans, og hvort þessi uppstokkun
sé ekki í þann veginn að bera
árangur. í öllu falli er þetta svip-
mesta sýning listamannsins um
langt skeið og einkum fyrir þijá
ábúðarmikla dúka, er blasa við er
inn er komið, „Bræðralag" (1),
„Náttúruandar" (3) og „Á vængj-
um hugans“ (5). í þeim öllum
skynjar maður dijúg átök og jafn-
framt búa þeir yfír skyldri kynngi
og var aðal olíumálverka hans hér
áður fyrr. Rótleysið sem helst ein-
kenndi pensilstrokur listamanns-
ins hefur vikið fyrir meiri fágun
og litrænni ögun, en samt skynjar
skoðandinn undiröldu mikilla
átaka við efniviðinn. En það er
einmitt þetta sem er svo mikilvægt
í öllu málverki, að menn skynji
djúpa lifun að baki sköpunarferl-
inu, helst eitthvað máttugt og
svipmikið sem ekki verður með
góðu móti skilgreint. Pappírs-
myndirnar sem eru gerðar í bland-
aðri tækni eru líka mun sannverð-
ugri og útfærslan myndrænni en
um árabil.
Einna mesta athygli vöktu þó
verk þau er listamaðurinn klappar
í móberg og basalt, en magnaðri
verk af þessu tagi hef ég ekki í
annan tíma séð frá hans hendi.
Hér gengur Gunnar Örn hreinna
til verks en áður og lætur stein-
inn, lögun hans og rúmtak varða
veginn til ófreskra formmyndana,
sem í þessu tilviki eru ásjónur sem
eru eins og í bland við forynjur
og formanir landsins.
Bragi Ásgeirsson.
„Skógarmenn“
í Hafnarborg
NÚ STENDUR yfír sýning Sæ-
mundar Valdimarssonar „Skógar-
menn“ í Sverrissal í Hafnarborg. Á
sýningunni eru 32 verk unnin í
rekavið.
Sæmundur fæddist árið 1918 á
Barðaströnd, hann var búsettur þar
til fullorðinsára og stundaði ýmis
störf til sjps og lands samhliða bú-
störfum. Árið 1948 fluttist hann til
Reykjavíkur og frá 1988 hefur hann
eingöngu unnið að listsköpun.
Sæmundur hélt sína fyrstu
einkasýningu árið 1983, en sýning
hans í Hafnarborg nú er sú tólfta
í röðinni, þar af ein í Ósló, hann
hefur einnig tekið þátt í samsýning-
um hér heima og í Holiandi. Sýning-
unni lýkur 31. október.
NOATUN
Þegar allt er gott
er vandi að velja!
Rauðvínslegnir
lambahryggir
599
pr.kg.
Hangi
frampartar
Úrbeinaðir
og nýreyktir
799
pr.kg.
BtáVJSk
Lúxus vínbet
-\98.
Rauð
Paprika
159r
Sænskt
gæðakaffi
Löfbergs lilla
1/4 kg.
129.-
Rauð USIV
Kontekt epU
98
pr.kg-
SERVALID UNGNAUTAKJOT
- ORUGGLEGA MEYRT-
Laushakkað nautahakk
Mínútusteik,
Piparsteik
og Stroganoff.
ÖRUGGLEGA MEYRT
OG SÉRVALIÐ
i^i
Pylsu'3fi'partý
18 stk. pylsur,
10 pylsubrauð
1 fl. tómatsósa,
1 fl. sinnep
899
pr.kg.
Lambahryggir
og læri D1A
Nýslátrað kjöt,
fitusnyrt og
vel hangið!
Sjóeldislax
Glænýr
Lambafile
m/puru
998
pr.kg.
Fín
Hrossabjúgu
4 stk. í pakka
199.-
Ekta
ítölsk
meft þunnum botni
600gr
Ömmupizza
299.-
UMHVERFIS
VÆNN PAPPÍH:
Eldhúsrúllur
4stk.
139.-
WC pappír
8 rúllur
399: 159-
NOATUN
Nóatún 17 - S. 617000, Rofabæ 39 - S. 671200, Laugavegi 116 - S. 23456,
Hamraborg 14, Kóp. - 43888, Furugrund 3, Kóp. - S.42062, Þverholti 6, Mos. - S 666656,
JL-húsinu vestur i bæ - S. 28511, Kleifarseli 18 - S. 670900
/