Morgunblaðið - 21.10.1994, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 21.10.1994, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐW, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 86 FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Morgunblaðið/Kristinn Ungir eimreiðarstjórar Samstarfsnefnd gegn svartri at- vinnustarfsemi Nefnd skip- uð um ný kosningalög FORSÆTISRÁÐHERRA áformar að óska eftir því við þingflokkana að þeir tilnefni tvo menn í nefnd til viðræðna um breytingar á kosn- ingalögum. Stefnt er að því að frumvarp verði lagt fram og samþykkt fyrir þinglok. Nær öruggt er talið að breyta verði stjórnarskránni, en það þýðir að nýtt þing verður einn- ig að samþykkja breytinguna. Ekki verður því kosið til Alþingis eftir nýjum kosningalögum fyrr en 1998. Tilnefnt á næstunni Geir H. Haarde, formaður þing- flokks Sjálfstæðisflokksins, sagði að málið væri á undirbúningsstigi. Geir sagðist gera ráð fyrir að ósk- að yrði eftir tilnefningum frá þing- flokkunum á næstu dögum. Hann sagði að rætt hefði verið um að í nefndinni sætu formenn, varafor- menn flokka eða formenn þing- flokka. Innan Alþingis nýtur sú skoðun fylgis þorra þingmanna að ekki sé hægt að setja mannréttinda- kafla inn í stjórnarskrána, eins og samþykkt var að gera á hátíðar- fundi Alþingis á Þingvöllum í sum- ar, nema að breyta kosningalögum og leiðrétta það misvægi atkvæða sem nú er milli kjördæma. Flugfreyjur Umhlaða ekki mat í vélum FLUGFREYJUR hjá Flugleið- um hafa verið með lausa samn- inga í rúma 19 mánuði og segja að hvorki hafi gengið né rekið í viðræðum við Flugleiðir um gerð nýs kjarasamnings. í gær hættu flugfreyjur félagsins að umhlaða mat í eldhúsi sem borinn er fram í vélum félags- ins á Evrópuleiðum, en þær höfðu tekið það verk að sér þegar Flugleiðir gripu til sparn- aðaraðgerða á seinasta ári enda þótt það væri ekki í verkahring þeirra skv. kjarasamningum. Notuðu livíldartíma Erla Hatlemark, formaður Flugfreyjufélagsins, sagði að allur matur sem borinn væri fram á leiðum til og frá íslandi væri settur um borð í vélar hér á landi og starfsmenn á jörðu niðri hefðu séð um að endur- hlaða mat í ofna og á vagna á meðan beðið var erlendis. Flug- freyjur hefðu hins vegar tekið verkið að sér þegar Flugleiðir gripu til spamaðaraðgerða til að hjálpa til í þrengingum. Sagði hún að þær hefðu notað eina hvíldartímann sem þær höfðu á hverri vakt til að koma matnum fyrir. Að sögn Erlu hafa stjórnend- ur Flugleiða sýnt lítinn áhuga á að semja við flugfreyjur og sagði hún að flugfreyjur teldu ekki lengur ástæðu til að gera fyrirtækinu greiða utan samn- inga og verksviðs flugfreyja. ÞESSIR ungu drengir, sem eru á Waldorf-skóladagheimilinu, voru að leika lestarstjóra í gömlu eimreiðinni á Miðbakka Sighvatur Björgvinsson við- skiptaráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið að eigendur Irving Oil ráðgerðu að opna olíubirgða- stöð á íslandi og hefja sölu á bens- íni og öðrum olíuvörum hér á landi, fyrst um sinn á höfuðborgarsvæð- inu. Líst vel á aðstæður Sighvatur sagði að ef fyrirtækið afréði að hefja starfsemi hér á landi þyrfti ekkert að standa í vegi fyrir því ef það fengi nauðsynlega aðstöðu til að taka olíu á land og þegar ljósmyndarinn hitti þá. Drengirnir heita Hunter Y. Manuel Musca og Bjarni Þór Margrétarson. kæmi upp viðunandi birgða- geymslu. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri sagði að íslenskur full- trúi kanadíska fyrirtækisins hefði komið á hennar fund í gær til að kynna hugmyndir þess. „Þeir hafa greinilega áhuga á að koma sér inn á þennan markað og ná fótfestu hér,“ sagði Ingibjörg Sólrún. Hún sagði að fyrirtækið hefði aðeins verið að kynna sig og engar við- ræður væru hafnar en þær myndu fyrst og fremst snúa að hafnaryfir- völdum vegna hafnaraðstöðunnar í UNDIRBÚNINGI er skipun starfs- hóps á vegum borgaryfirvalda, til að vinna gegn svartri atvinnustarf- semi í borginni, sem beinist einkum gegn meintum skattsvikum og van- skilum á lögboðnum og samnings- bundnum gjöldum innan verktaka- starfsemi þar sem ráðnir hafa verið undirverktakar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri sagði að væntanlega yrði lögð fram tillaga um skipan starfs- hópsins á næsta borgarráðsfundi. Sagði hún að í samstarfshópnum yrðu, auk fulltrúa borgarinnar, full- trúar frá Dagsbrún, ríkinu, Inn- kaupastofnun Reykj avíkurborgar, ASI og VSÍ. „Borgin hefur frumkvæði að þessu, vegna þess að hún er stór aðili í útboðsmálum, en þetta snýr BÆJARRAÐ Hafnarfjarðar birti í gær endurskoðunarskýrslu vegna Listahátíðar í Hafnarfirði. Endur- skoðendur treysta sér ekki til að gefa álit á reikningsskilum hátíðar- innar þar sem allri meðferð gagna sé ábótavant. „Skýrslan er samfelldur áfellis- dómur yfir fjármálastjóm listahátíð- ar,“ segir Magnús Jón Árnason, bæjarstjóri. Hann segir ljóst að framkvæmdastjóri listahátíðar hafi verið starfsmaður bæjarins, og gera verði þá kröfu að þáverandi bæjar- ef af þessu yrði því töluvert aðdýpi þyrfti fyrir olíuskip félagsins. Sighvatur sagði að ákvarðanir um framhaldið væru í höndum fyr- irtækisins sjálfs en þarna gæti verið um talsvert mikla fjárfest- ingu að ræða. „Þeir hafa kannað mjög vel allar aðstæður hér á landi. Þeim líst vel á þetta og vilja gjarn- an skoða þetta af mjög mikilli al- vöru og hefjast handa,“ sagði hann. „Mér líst prýðilega á að fá fleiri aðila inn í þetta. Vonandi hefur það áhrif á verð og þjónustu sem hér er boðin og að einhverjar framkvæmdir verði í kringum þetta sem verða íslenskum aðilum að gagni,“ sagði hann ennfremur. Eitt af 300 fyrirtækjum Irving-fj ölsky ldunnar Irving Oil er meðalstórt olíufélag sem hefur aðallega starfað í norð- urbyggðum Kanada og á norðaust- urströnd landsins, þar sem aðstæð- meðal annars að undiiverktöku. Það hefur farið fram talsverð undirbún- ingsvinna og hafa verið haldnir fund- ir um þetta mál með Dagsbrún og ríkisvaldinu, en ég reikna með að þessum starfshópi verði komið á al- veg á næstunni til að festa þetta formlega,“ sagði hún. Sólveig Guðmundsdóttir, starfs- maður Dagsbrúnar, segir að Dags- brún hafi upphaflega leitað eftir samstarfi við borgaryfirvöld og ríkið vegna þessa vanda, sem hefði m.a. bitnað á fjölmörgu verkafólki sem misst hefði félagsréttindi sín. Sólveig sagði að sú vinna sem þegar hefði farið fram hefði skilað miklum árangri, vegna góðrar samvinnu við embættismenn ríkis og borgar. Fyr- irtækin væru nú í auknum mæli farin að standa skil á greiðslum. stjóri, Guðmundur Ámi Stefánsson, beri ábyrgð á verkum starfsmanna bæjarins á umræddu tímabili. í skýrslunni kemur fram að fram- kvæmdastjóri hafi tekið út af hlaupareikningi bæjarsjóðs sem að- eins prókúmhafar eiga að hafa að- gang að, til kaupa á gjaldeyri fyrir 9,2 millj. kr. Einnig að aðstandend- ur hátíðarinnar hafi ekki talið fram greiðslur fyrir rúmar 7,8 millj. ■ Meðferð gagna ábótavant/6 ur eru um margt líkar og hér á landi. Fyrirtækið er í eigu Irving- fjölskyldunnar, en hún á um 300 fyrirtæki í ýmsum greinum og er að sögn kanadíska tímaritsins Maclean’s talin reka stærstu fyrir- tækjasamsteypu Norður - Ameríku í einkaeign. Aðaleigandi fyrirtæk- isins var Kenneth Colin Irving, en hann lést árið 1992 og voru éignir fyrirtækjanna þá metnar á 10 milljónir kanadískra dollara. Skv. tímaritinu Forbes var hann talinn þriðji ríkasti maður í heimi að frá- töldu kóngafólki árið 1989. Þrír synir hans reka nú fyrirtæk- in og er miðbróðirinn Arthur for- seti Irving Oil. Að sögn tímaritsins Fortune má rekja velgengni Irving- fjölskyldunnar til þess að hún fjár- festir í fyrirtækjum, sem spanna öll framleiðslustig i viðkomandi iðnaði, frá sögunarmyllum til dag- blaða og hráolíu til bensíndæla. Fulltrúar kanadísks olíufyrirtækis, Irving Oil Ltd., hafa átt viðræður við stjómvöld Ráðgera sölu á olíu og bensíni á Islandi Fyrirtækið er hluti af veldi einnar ríkustu fjölskyldu heims KANADÍSKA olíufyrirtækið Irving Oil Ltd. hefur áhuga á að reisa olíubirgðastöð á íslandi og hefja dreifingu og sölu á olíuvörum hér á landi í samkeppni við olíufélögin þrjú sem fyrir eru á markaðnum. Fulltrúar fyrirtækisins voru staddir hér á landi fyrir nokkrum dögum til að kynna sér aðstæður og áttu meðal annars viðræður við viðskipta- ráðherra og borgarstjóra um málicl. Skýrsla um Listahátíðina í Hafnarfirði Samfelldur áfellisdóm- ur, segir bæjarstjóri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.