Morgunblaðið - 11.11.1994, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Snigla- og pastaveisla frá Vöku-Helgafelli
Saga þjóðar,
ógnir og ævintýri
Morgunblaðið/Svecrir
NOKKRIR nemendanna sem spila í Norræna húsinu á mqrgrtn
ásamt stjórnandanum Guðna Franzsyni.
Ný tónlist -
nýir flyljendur
í kjölfar nýstárlegs
námskeiðs í Tónlistar-
skólanum í Reykjavík
verða tónlekar í Nor-
ræna húsinu á morgun.
Nemendur flytja þar
nýja tónlist undir stjóm
Guðna Franzsonar.
NEMENDUR Tónlistarskólans
í Reykjavík halda tónleika
á morgun, laugardag, kl.
17 í Norræna húsinu, undir yfír-
skriftinni Tónónóva.
Tónleikarnir eru haldnir í kjölfar
nýstárlegs námskeiðs við skólann,
sem Guðni Franzson, klarinettuleik-
ari, hefur séð um og er hann jafn-
framt stjórnandi tónleikanna.
Á efnisskránni eru eftirtalin fimm
kammerverk:
Frumflutningur á píanókvintett
eftir Atla Heimi Sveinsson. Verkið
tileinkaði hann Tónlistarskóla
Reykjavíkur fyrr á þessu ári og er
kvintettinn byggður á þjóðlegu stefí
„Yfir kaldan eyðisand".
Frumflutningur verks eftir Eirík
Árna Sigtryggsson frá Keflavík.
„Gamlar vísur“ sem hann byggir á
þjóðlagastefjagrunni.
„Coyote Blues“ eftir Magnus
Lindberg frá Finnlandi. Magnus er
handhafí verðlauna Norðurlanda-
ráðs í tónsmíðum. Verkið er samið
undir áhrifum Stravinskys.
„Verso" eftir Veli-Matti Puumala
frá Finnlandi. Það er undir sterkum
ítölskum áhrifum, allt í flúri og
rococostíl.
„S“ eftir Asbjöm Schaathun,
norskan verðlaunahafa fyrir tón-
smíðar. Örstutt verk fyrir kammer-
svejt.
Ég leit inn á æfingu þar sem
Guðni var að æfa með nokkrum flytj-
endanna og spurði hann um tilurð
þessa námskeiðs og tónleikana.
„í fyrra var uppi hugmynd um
að vinna að nýrri músík við skólann.
Nú í haust var svo þetta námskeið
haldið og sóttu það um tuttugu nem-
endur sem langt eru komnir í námi
við skólann. Verkin sem þau vinna
með eru ný, eða ekki eldri en þriggja
ára. Þau eru því að kljást við
splunkunýja músík - nútímamúsík
og jafnvel blús. Til dæmis eru er-
lendu tónskáldin sem við vinnum
með ekki nema rétt um 10 árum
eldri en nemendurnir sjálfir og tel
ég þá meðal mest spennandi tón-
skáldunum í Skandinavíu.
Svona námskeið eru æskileg og
lærdómsrík þar sem trúlega bíður
nemendanna að fást við nútímatón-
list að námi loknu. Við flutning nútí-
matónlistar verður hver og einn að
finna út sjálfur hvernig hann fram-
kallar eða býr til eitthvað í líkingu
við það sem stendur á pappírnum
svo þetta er skapandi reynsla fyrir
einstaklinginn. Tónlistarfólkið unga
sem varð fyrir svörum þegar ég
spurði það út í námskeiðið og flutn-
ing þessara verka sagðist hafa æft
stíft í u.þ.b. þrjár vikur.
„Þetta hefur verið mjög skemmti-
legt, en líka mjög erfitt. Svona tæki-
færi er okkur öllum kærkomið og
það er ögrun að fá að takast á við
alvöru nútímatónlist. Við fáum t.d.
rytmíska þjálfun og okkur finnst
hafa opnast margar nýjar gáttir við
að spreyta okkur á þessum verkum.
Það koma upp svo mörg ný tæknileg
vandamál sem aðeins er að finna í
nútímatónlist“.
„Þetta hefur verið svínslega erfítt
en rosa skemmtilegt", bætti einn úr
hópnum við svona í lokin og hin
samþykktu það svo sannarlega og
sneru sér aftur full ákafa að æfing-
unni og renndu Iéttilega í gegnum
verk finnska tónskáldsins Puumala,
sem þau virðast hafa mikið dálæti á.
VAKA-Helgafell gefur út margar
bækur á þessu ári þegar allt er
talið. Bækumar koma flestar á
almennan markað í fyrsta sinn nú
fyrir jólin, en hluti þeirra hefur
áður verið í boði í þeim fimm bóka-
klúbbum sem forlagið rekur.
Sniglaveisla
Ólafur Jóhann Ólafsson sendir
frá sér nýja skáldsögu, Sniglaveisl-
una, og er það fjórða bók hans.
Að sögn útgefanda kveður við nýj-
an tón hjá höfundi í Sniglaveisl-
unni og gildir það sérstaklega um
kímni.
Þjóð á Þingvöllum er eftir Ing-
ólf Margeirsson og fjallar í máli
og myndum um hálfrar aldar af-
mælishátíð lýðveldisins á Þingvöll-
um í sumar. Þetta er bók í stóru
broti.
Dagar íslands - Atburðir úr
sögu og samtíð alla daga ársins
tengist einnig sögu þjóðarinnar.
Jónas Ragnarsson tók bókina sam-
an. Atburðum er skipað eftir dög-
um, en ekki árum og öldum eins
og venjan er.
Heimsstyrjöldin og ógnir á
Balkanskaga og í Saudi-Arabíu
Jónas Jónasson hefur skráð
ævisögu Péturs H. Ólafssonar.
Krappur lífsdans nefnist sagan og
lýsir fjölbreyttri ævi, segir m.a. frá
siglingu skipalesta um Norður-Atl-
antshaf á stríðsárunum.
Dagbók ungrar stúlkur í
Sarajevó, Zlötu Filipovic, hefur
MYNPLIST
Listhúsið Laugardal
BÚTASAUMUR
Björg Friðriksdóttir. Opið alla daga
kl. 10-18 til 13. nóvember.
Aðgangur ókeypis.
Á SÍÐUSTU árum hafa mörkin
milli listar og handverks orðið sí-
fellt óljósari, eftir því sem einstak-
ir listamenn hafa leitað í smiðju
handverksfólks á ýmsum sviðum,
numið hina nauðsynlegu verk-
tækni og síðan beitt henni í ný-
sköpun sinni í myndlist. Þannig
hefur hið besta úr ólíkum áttum
verið sameinað og handverkinu
jafnt sem listinni gefið nýtt líf;
dæmi þessa má t.d. fínna í vinnu
ýmissa yngri listamanna eins og
Hannesar Lárussonar með tré.
Óvíða eru möguleikarnir til
samþættingar handverks og listar
meiri en á sviðum vefnaðar og
sauma. Valgarður Gunnarsson
listmálari hefur skapað nýjar vídd-
ir í málverki sínu með því að sauma
í flötinn, og veflistafólk hefur tek-
ið ýmis ólíkleg efni til notkunar í
verkum sínum, eins og nýleg sýn-
ing Guðrúnar Gunnarsdóttur bar
órækt vitni um. Hins vegar hafa
færri leitað fanga í bútasaum,
gerð stórra teppa og veggmynda,
sem á sér svo ríkulega hefð að
baki.
Bútasaumur eða gerð vegg-
teppa (,,quilts“) hefur síðustu ára-
tugi komið fram sem athyglisverð
listgrein, einkum í Bandaríkjun-
um, og þá helst á grunni gamalla
hefða meðal afkomenda innflytj-
enda frá ýmsum löndum Evrópu.
Fyrir nokkrum árum var á Kjarv-
alsstöðum athyglisverð sýning
verið líkt við Dagbók Önnu Frank
og hvarvetna vakið mikla athygli.
Önnur bók af svipuðu tagi er í
fjötrum, reynslusaga prinsessu í
Saudi-Arabíu sem er fangi í eigin
höll. Höfundur bókarinnar er Jean
P. Sasson, en prinsessan notar
dulnefnið Sultana.
Þýddar skáldsögur og
matreiðsla
Margar þýddar skáldsögur eru
á útgáfulista Vöku-Helgafells,
flestar metsölubækur. Kunnust er
skáldsaga Roberts James Waller,
Brýrnar í Madisonsýslu.
Svikalogn er fyrsta bók metsölu-
höfundarins Belvu Plain. Þá má
nefna Á valdi vitna eftir William
J. Coughlin, Austan við sól eftir
Barböru Bickmore, Leyndarleik
eftir Warren Adler, Fanga ástar
og ótta eftir Victoriu Holt, Dóttur
foringjans eftir Nelson DeMille og
loks nýjustu bók Kens Follett, Fall-
valta gæfu.
Pastaréttir koma til móts við
pastaunnendur. Höfundar eru
Björg Sigurðardóttir og Hörður
Héðinsson, en þau hafa séð um
val uppskrifta og matreiðslu fyrir
Nýja eftirlætisrétti, matreiðslu-
klúbb Vöku-Helgafells.
Stóra bakstursbókin er að sögn
forlagsins viðamesta bók um
bakstur sem gefin hefur verið út
á íslensku. í henni eru um 500
uppskriftir, 300 litmyndir af kök-
um, brauðum, bakstursaðferðum
i
verka á þessu sviði, sem margir
minnast, en hún sýndi glögglega
fram á þá fjölbreyttu möguleika
sem þessi miðill býður upp á.
Nú fer senn að ljúka sýningu
Bjargar Friðriksdóttur á verkum
á þessu sviði. Hér getur að líta
rúmlega tuttugu veggteppi og
myndir sem hún hefur hannað og
saumað, auk ýmissa smálegra
hluta, sem eru raunar óþörf viðbót
á sýningunni.
Björg mun ekki hafa hlotið
formlega listmenntun, en verkin
bera með sér að hún hefur næma
tilfinningu fyrir þeim efnivið, sem
hún vinnur með, sem og þeirri fjöl-
breyttu mynsturgerð, sem er
möguleg í þessum teppum. Þetta
á einkum við um stóru veggtepp-
in, sem eru einkar glæsileg í hóg-
værri formgerð sinni; ljölbreytnin
og áhöldum til baksturs. Efnið er
sænskt, en Soffía Ófeigsdóttir
þýddi og staðfærði.
Barnabækur verðlauna-
höfunda
Fyrr á árinu kom út verðlauna-
bókin Röndóttir spóar eftir Guð-
rúnu H. Eiríksdóttur. Draugúr í
sjöunda himni eftir Kristínu Steins-
dóttur er sjálfstætt framhald bók-
arinnar Draugar vilja ekki dósa-
gos. Elías Snæland Jónsson er
höfundur unglingabókarinnar
Haltu mér fast.
í bókaflokknum Ævintýraheim-
ur Ármanns kemur út ný bók sem
nefnist Valli valtari, fjórar sögur
sem tengjast jólunum með ein-
hveijum hætti. Ármann Kr. Ein-
arsson á 60 ára rithöfundarafmæli
á þessu ári.
Meðal nýjunga í útgáfu Vöku-
Helgafells eru fjögur sígild ævin-
týri fyrir börn frá Walt Disney-fyr-
irtækinu. Ævintýrunum fylgja
hljóðsnældur með tónlist og leik-
lestri textans. Fleiri bækur úr
smiðju Disneys eru komnar út,
m.a. teiknimyndasögur og ævintýri
og þjóðsögur frá ýmsum löndum.
Laxness endurútgefinn
Átta skáldsögur Halldórs Lax-
ness verða endurútgefnar. Brekku-
kotsannáll og íslandsklukkan
koma út í kiljum með nýjum svip
og á mun lægra verði en inn-
bundnu bækurnar.
felst í efnisvali, mynstri og litav-
ali, þar sem skiptast á bjartir litir
líkt og í „Tengsl“ (nr. 6) og klass-
ísk hrynjandi endurtekningarinnar
í „Fjölbýli“ (nr. 20).
Smærri myndimar eru einnig
vel unnar, og gefa Björgu ef til
vill betra tækifæri en stóru teppin
til að skapa eigin form og ímynd-
ir. „Kærleikur" (nr. 8) er einföld
að byggingu, en tekst afar vel; á
sama hátt er „Í stofunni“ (nr. 12)
fjörleg útfærsla á þröngu rými,
sem nýtur sín vel í grófum ram-
manum.
Sýningar á bútasaumsverkum
hafa ekki verið margar síðustu
misseri, en hér er vissulega vel
að verki staðið, og vert að benda
áhugafólki á að nýta síðustu sýn-
ingardagana.
Eiríkur Þorláksson
OKI
Tækni til tjáskipta
Faxtæki fyrir heimilið
og skrifstofuna
MeÖál eiginleika má nefna:
• Simi og fax (sjálfskipting) • Símsvari
innbyggöur • 50 númer í minni • Ljósritun
• Arkamatari • Skurður • Þægilegur í notkun
OKIFAX 450 er nú á kynningarverði
kr. 49.900,- stgr. m. vsk.
H0 Tæknival
Skerfunni 17 - Sími (91) 681665 - Fax (91) 680664
Mynstur veggteppisins
BJÖRG Friðriksdóttir við eitt verka sinna.