Morgunblaðið - 11.11.1994, Síða 44

Morgunblaðið - 11.11.1994, Síða 44
44 FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ GETRAUN Það gæti hent þig að vinna helgarferð með Flugleiðum til New York með gistingu á hinu stórglæsilega Plaza-hóteli. Það eina, sem þú þarft að gera, er að svara tveimur laufléttum spurningum og skila þeim i afgreiðslu Stjörnubíós fyrir 13. nóvember. Þá kemst þú i vinningspott sem dregið verður úr á Bylgjunni i beinni útsendingu þann 15. nóvember 1994. ' Svarseðilinn færðu þegar þú kaupir miða á myndina. Svarseðilinn færðu þegar þú kaupir miða á myndina. FLUGLEIDIR Troustur (slenskurfer&tfélagi * STJÖRNUBÍÓLÍNAN SÍMI 991065 Framlag Islands til óskarsverðlauna 1994 Taktu þátt í spennandi kvikmyndagetraun. Verðlaun: Boðsmiöar á myndir í Stjörnubíói og „It could happen to you" filofax. KR. 800,- F. FULLORÐNA Verð kr. 39,90 mínútan. KR. 500,- F. BÖRN Sýnd kl. 5. ULFUR NICHOLSON I’ F E I F P t R WOLF Sýnd kl. 6.45. 16500 ÞAÐ GÆTI HENT ÞIG Já, það gæti hent þig, þvi þessi ótrúlega gamanmynd er byggð á raunverulegum atburðum. Lögga á ekki fyrir þjórfé en lofar gengilbeinunni að koma með það daginn eftir eða þá að skipta með henni lottóvinningnum sfnum... ef svo ólíklega færi að hann fengi vinning. En viti menn, hann vinnur og það enga smáaura, heldur fjórar milljónir dalal Aðalhlutverk: Nicolas Cage, Bridget Fonda, Rosie Perez og Stanley Tucci. Leikstjóri: Andrew Bergman C,The Freshman", „Honeymoon In Vegas"). Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Sýnd kl. 9 og 11.05. Bönnuð innan 16 ára. Allt látið flakka Nýjar hljómplötur Hljómsveitin Quicksand Jesus er ein þeirra ungsveita sem senda frá sína fyrstu skífu fyrir þessijól. Franz Gunnarsson, gítar- leikari sveitarinnar, segir að hljómsveitin hafí reynt að hafa plötuna, sem kemur út í dag, sem hráasta. NÓVEMBERTILBOÐ Á HREINLÆTISTÆKJUM O.FL. 20-40% AFSLÁTTUR VATNSVIRKINN HF. Ármúla 21, símar 68 64 55 - 68 59 66 Morgunblaðið/Ingibjörg FRANZ Gunnarsson gítar- leikari Quicksand Jesus. Míele Bjóðum takmarkað magn af þvottavélum, uppþvottavélum, helluboróum og ryksugum á sérverði. Opfð laugardag frá kl. 10-14 k £ EIRVÍK # Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík, sími 91 -880200. MÖRGUM er í fersku minni uppi- standið sem varð í miðbænum fyr- ir skemmstu, þegar rokkhljóm- sveit hóf leik sinn þar um miðja nótt, ungmennum til ánægju, en íbúum og yfirvöldum til ama. Lög- reglan brást og skjótt við og stöðv- aði tónleikana, en hljómsveitin hvarf út í myrkrið. Hljómsveitin sem þama var á ferðinni heitir Quicksand Jesus og sendir frá sína fyrstu breiðskífu í dag. Byrjað í Þjórsárdal Breiðskífan nýja heitir The More Things Change, the More They Stay the Same, en Quicksand Jesus skipa Franz Gunnarsson gít- arleikari, Guðfinnur „Finni“ Karls- son söngvari, Amar Bjarnasson bassaleikari og Davíð Ólafsson trommuleikari. Franz segir að Quicksand Jesus hafi byijað í Þjórsárdal 1993, þeg- ar þeir Finni hittust og léku hvor fyrir annan lög sem þeir vora bún- ir að semja hvor fyrir sig. Síðar slóst í hópinn Arnar og loks Davíð á trommumar. í lagi sem sveitin sendi frá sér á safnplötu á vegum Skífunnar í sumarbyijun heyrist reyndar mikið í Hammondorgeli, og Franz segir að í upphafi hafíð þeir félagar ætlað sér að hafa Hammondleikara með í hópnum, en gengið illa að fínna slíkan og líka ekki þótt passa að hafa hann með á tónleikum. Hann segir að það'sé gaman að hafa slíkt hljóð- færi með í hljóðverinu, en þegar komið sé á svið kárni gamanið; „við viljum ekkert aukavesen á tónleikum, þá viljum við bara gítar bassa og trommur“. Upp á yfirborðið Það tekur hljómsveitir mis lang- an tíma að komast upp á yfirborð- ið, ef svo má að orði komast, og Franz tekur undir að nokkur neðanjarðarstimpill sé á sveitinni, „en við erum engin sérstök neðan- jarðarsveit; við ætlum okkur að komast upp á yfirborðið sérstak- lega núna til að vekja athygli á hljómsveitinni og selja sem mest af plötunni. Aðal hugsjónin núna er að hafa upp í kostnað," segir Franz og bætir við að það rekist vissulega á að vera að reyna að höfða til sem flestra, en leika sam- tímis tónlist sem er hrá og ögrandi. „Fólk þarf ekki að fara út í búð og kaupa bara þær plötur sem búið er að segja því að séu sölu- vænar og það er fáránlegt að allt þurfi að miðast við hversu útvarps- vænt það er. Núna er gróska í því að hljómsveitir eru að gefa út sjálf- ar og láta sér fátt um finnast hvort þær em spilaðar í Bylgj- unni. Við höfum líka ekki efni á því að gefa þessum útvarpsstöðv- um tugi af diskum til að reyna að komast inn á einhvern lista.“ Franz vill ekki gera of mikið úr uppistandinu í Miðbænum, en segir að þeir félagar hafi síst af öllu átt von á að eins mikið yrði úr tóleikahaldi þeirra og varð. „Við áttum ekki von á öðrum eins viðtökum, að minnsta kosti ekki að önnur eins læti yrðu í fjölmiðl- um. Við bjuggumst við því að krakkarnir myndu taka þessu vel og vorum búnir að skipuleggja allt mjög vel, enda átti ekkert að fara úrskeiðis. Þegar við svo byij- uðum að spila og sáum hveijar viðtökurnar urðu, brá okkur svolít- ið í brún. Þetta gekk þó allt vel fyrir sig, því sem betur fer meidd- ist enginn,“ segir Franz og bætir við að þeir félagar hafi fengið hljóðfærin aftur eftir að hafa gef- ið skýrslur niðri á lögreglustöð, en hann sagðist vona að engin eftirmál yrðu af þessu tilstandi þeirra félaga. „Við áttum eins von á því að við yrðum handteknir á staðnum, en það er ekki rétt hjá lögreglunni að við hefðum forðað okkur á hlaupum; við stóðum þeil- lengi og horfðum steinhissa á læt- in.“ Franz segir að ekki geri þeir félagar sé vonir um að það seljist meira af plötunni beinlínis út á uppákomuna í Miðbænum, en von- andi kvikni einhver forvitni hjá fólki og það leggi við hlustir. Aðal málið sé að fá fóik til að hlusta, en svo sé framhaldið vitanlega undir smekk hvers og eins komið. „Við erum að reyna að gera sitt- hvað nýtt á plötunni, en tónlistin er í einfaldara sniðinu og við not- um einfalda hljóma, því minna sem þú gerir, því betur hljómar það; minna er meira. Helsta einkenni plötunnar er þó að'það var allt látið flakka. Við stilltum upp græj- unum saman í herbergi og tókum þetta upp eins og við værum á tónleikum." Eftir engu að bíða Eins og áður er rakið átti Quick- sand Jesus lag á safnplötu Skíf- unnar í sumar, en Franz segir að þeir hafí ekki viljað bíða eftir því að útgáfunni þætti ástæða til að gefa út breiðskífu með sveitinni og því ákveðið að gefa þetta út sjálfir. „Við erum búnir að sjá það að það er hægt að gera margt ef maður tekur til hendinni sjálfur," segir Franz, „og þegar við vorum byrjaðir var ekki hægt að hætta þegar við vorum hálfnaðir.“ Eins og áður segir kemur fyrsta breiðskífa þeirra félaga út í dag og útgáfutónleikarnir verða líka í kvöld í Tjarnarbíói. Þar verður sitt- livað gert til skemmtunar, en lík- lega verður ekki af fyrirhugaðri flugeldasýningu fyrir tónleikana, „þessi yfirvöld eru alls staðar", segir Franz og bætir við að lög- reglan hafi bannað sýninguna og þar við sitji, en tónleikunum verð- ur útvarpað á Rás 2.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.