Morgunblaðið - 11.11.1994, Qupperneq 44
44 FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
GETRAUN
Það gæti hent þig að vinna helgarferð með Flugleiðum til New York með gistingu á hinu stórglæsilega Plaza-hóteli. Það
eina, sem þú þarft að gera, er að svara tveimur laufléttum spurningum og skila þeim i afgreiðslu Stjörnubíós fyrir 13.
nóvember. Þá kemst þú i vinningspott sem dregið verður úr á Bylgjunni i beinni útsendingu þann 15. nóvember 1994.
' Svarseðilinn færðu þegar þú kaupir miða á myndina.
Svarseðilinn færðu þegar þú
kaupir miða á myndina.
FLUGLEIDIR
Troustur (slenskurfer&tfélagi *
STJÖRNUBÍÓLÍNAN SÍMI 991065 Framlag Islands til óskarsverðlauna 1994
Taktu þátt í spennandi kvikmyndagetraun.
Verðlaun: Boðsmiöar á myndir í Stjörnubíói
og „It could happen to you" filofax. KR. 800,- F. FULLORÐNA
Verð kr. 39,90 mínútan. KR. 500,- F. BÖRN Sýnd kl. 5.
ULFUR
NICHOLSON
I’ F E I F P t R
WOLF
Sýnd kl. 6.45.
16500
ÞAÐ GÆTI HENT ÞIG
Já, það gæti hent þig, þvi þessi ótrúlega gamanmynd er byggð á raunverulegum atburðum. Lögga á ekki fyrir þjórfé
en lofar gengilbeinunni að koma með það daginn eftir eða þá að skipta með henni lottóvinningnum sfnum... ef svo
ólíklega færi að hann fengi vinning. En viti menn, hann vinnur og það enga smáaura, heldur fjórar milljónir dalal
Aðalhlutverk: Nicolas Cage, Bridget Fonda, Rosie Perez og Stanley Tucci.
Leikstjóri: Andrew Bergman C,The Freshman", „Honeymoon In Vegas").
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Sýnd kl. 9 og 11.05.
Bönnuð innan 16 ára.
Allt látið flakka
Nýjar hljómplötur
Hljómsveitin Quicksand Jesus er ein þeirra
ungsveita sem senda frá sína fyrstu skífu
fyrir þessijól. Franz Gunnarsson, gítar-
leikari sveitarinnar, segir að hljómsveitin
hafí reynt að hafa plötuna, sem kemur
út í dag, sem hráasta.
NÓVEMBERTILBOÐ Á
HREINLÆTISTÆKJUM O.FL.
20-40% AFSLÁTTUR
VATNSVIRKINN HF.
Ármúla 21, símar 68 64 55 - 68 59 66
Morgunblaðið/Ingibjörg
FRANZ Gunnarsson gítar-
leikari Quicksand Jesus.
Míele
Bjóðum
takmarkað
magn
af þvottavélum,
uppþvottavélum,
helluboróum
og ryksugum
á sérverði.
Opfð laugardag
frá kl. 10-14
k
£
EIRVÍK #
Suðurlandsbraut 22,
108 Reykjavík,
sími 91 -880200.
MÖRGUM er í fersku minni uppi-
standið sem varð í miðbænum fyr-
ir skemmstu, þegar rokkhljóm-
sveit hóf leik sinn þar um miðja
nótt, ungmennum til ánægju, en
íbúum og yfirvöldum til ama. Lög-
reglan brást og skjótt við og stöðv-
aði tónleikana, en hljómsveitin
hvarf út í myrkrið. Hljómsveitin
sem þama var á ferðinni heitir
Quicksand Jesus og sendir frá sína
fyrstu breiðskífu í dag.
Byrjað í Þjórsárdal
Breiðskífan nýja heitir The
More Things Change, the More
They Stay the Same, en Quicksand
Jesus skipa Franz Gunnarsson gít-
arleikari, Guðfinnur „Finni“ Karls-
son söngvari, Amar Bjarnasson
bassaleikari og Davíð Ólafsson
trommuleikari.
Franz segir að Quicksand Jesus
hafi byijað í Þjórsárdal 1993, þeg-
ar þeir Finni hittust og léku hvor
fyrir annan lög sem þeir vora bún-
ir að semja hvor fyrir sig. Síðar
slóst í hópinn Arnar og loks Davíð
á trommumar. í lagi sem sveitin
sendi frá sér á safnplötu á vegum
Skífunnar í sumarbyijun heyrist
reyndar mikið í Hammondorgeli,
og Franz segir að í upphafi hafíð
þeir félagar ætlað sér að hafa
Hammondleikara með í hópnum,
en gengið illa að fínna slíkan og
líka ekki þótt passa að hafa hann
með á tónleikum. Hann segir að
það'sé gaman að hafa slíkt hljóð-
færi með í hljóðverinu, en þegar
komið sé á svið kárni gamanið;
„við viljum ekkert aukavesen á
tónleikum, þá viljum við bara gítar
bassa og trommur“.
Upp á yfirborðið
Það tekur hljómsveitir mis lang-
an tíma að komast upp á yfirborð-
ið, ef svo má að orði komast, og
Franz tekur undir að nokkur
neðanjarðarstimpill sé á sveitinni,
„en við erum engin sérstök neðan-
jarðarsveit; við ætlum okkur að
komast upp á yfirborðið sérstak-
lega núna til að vekja athygli á
hljómsveitinni og selja sem mest
af plötunni. Aðal hugsjónin núna
er að hafa upp í kostnað," segir
Franz og bætir við að það rekist
vissulega á að vera að reyna að
höfða til sem flestra, en leika sam-
tímis tónlist sem er hrá og ögrandi.
„Fólk þarf ekki að fara út í búð
og kaupa bara þær plötur sem
búið er að segja því að séu sölu-
vænar og það er fáránlegt að allt
þurfi að miðast við hversu útvarps-
vænt það er. Núna er gróska í því
að hljómsveitir eru að gefa út sjálf-
ar og láta sér fátt um finnast
hvort þær em spilaðar í Bylgj-
unni. Við höfum líka ekki efni á
því að gefa þessum útvarpsstöðv-
um tugi af diskum til að reyna
að komast inn á einhvern lista.“
Franz vill ekki gera of mikið
úr uppistandinu í Miðbænum, en
segir að þeir félagar hafi síst af
öllu átt von á að eins mikið yrði
úr tóleikahaldi þeirra og varð.
„Við áttum ekki von á öðrum eins
viðtökum, að minnsta kosti ekki
að önnur eins læti yrðu í fjölmiðl-
um. Við bjuggumst við því að
krakkarnir myndu taka þessu vel
og vorum búnir að skipuleggja
allt mjög vel, enda átti ekkert að
fara úrskeiðis. Þegar við svo byij-
uðum að spila og sáum hveijar
viðtökurnar urðu, brá okkur svolít-
ið í brún. Þetta gekk þó allt vel
fyrir sig, því sem betur fer meidd-
ist enginn,“ segir Franz og bætir
við að þeir félagar hafi fengið
hljóðfærin aftur eftir að hafa gef-
ið skýrslur niðri á lögreglustöð,
en hann sagðist vona að engin
eftirmál yrðu af þessu tilstandi
þeirra félaga. „Við áttum eins von
á því að við yrðum handteknir á
staðnum, en það er ekki rétt hjá
lögreglunni að við hefðum forðað
okkur á hlaupum; við stóðum þeil-
lengi og horfðum steinhissa á læt-
in.“
Franz segir að ekki geri þeir
félagar sé vonir um að það seljist
meira af plötunni beinlínis út á
uppákomuna í Miðbænum, en von-
andi kvikni einhver forvitni hjá
fólki og það leggi við hlustir. Aðal
málið sé að fá fóik til að hlusta,
en svo sé framhaldið vitanlega
undir smekk hvers og eins komið.
„Við erum að reyna að gera sitt-
hvað nýtt á plötunni, en tónlistin
er í einfaldara sniðinu og við not-
um einfalda hljóma, því minna sem
þú gerir, því betur hljómar það;
minna er meira. Helsta einkenni
plötunnar er þó að'það var allt
látið flakka. Við stilltum upp græj-
unum saman í herbergi og tókum
þetta upp eins og við værum á
tónleikum."
Eftir engu að bíða
Eins og áður er rakið átti Quick-
sand Jesus lag á safnplötu Skíf-
unnar í sumar, en Franz segir að
þeir hafí ekki viljað bíða eftir því
að útgáfunni þætti ástæða til að
gefa út breiðskífu með sveitinni
og því ákveðið að gefa þetta út
sjálfir. „Við erum búnir að sjá það
að það er hægt að gera margt ef
maður tekur til hendinni sjálfur,"
segir Franz, „og þegar við vorum
byrjaðir var ekki hægt að hætta
þegar við vorum hálfnaðir.“
Eins og áður segir kemur fyrsta
breiðskífa þeirra félaga út í dag
og útgáfutónleikarnir verða líka í
kvöld í Tjarnarbíói. Þar verður sitt-
livað gert til skemmtunar, en lík-
lega verður ekki af fyrirhugaðri
flugeldasýningu fyrir tónleikana,
„þessi yfirvöld eru alls staðar",
segir Franz og bætir við að lög-
reglan hafi bannað sýninguna og
þar við sitji, en tónleikunum verð-
ur útvarpað á Rás 2.