Morgunblaðið - 28.05.1995, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 28.05.1995, Blaðsíða 8
8 B SUNNUDAGUR 28. MAÍ 1995 MANNLIFSSTRAUMAR MORGUNBLAÐIÐ Bláa veröldin BLÁ, stór og þykk bók gekk á milli ungu hjónanna í sömu sætaröð í flugvélinni frá út- löndum. Þegar annað sleppti henni greip hitt hana um leið. Þetta vakti forvitni. Hvaða bók var svona spennandi? Veröld Soffíu! Nýkomin út. Undirtitill- inn: Skáldsaga um heimspekina. Þessi bók eftir Norðmanninn Jóstein Gardner hafði ég heyrt að væri afbragð fyrir unglinga, enda greip hún svo, skildist mér, að hún hefur þegar verið þýdd á 30 tungumál. Nú á íslensku. Og þarna sat ungt háskólageng- ið fólk, á kafí í þjóðmálum og viðskiptalífínu, og leit varla upp úr bláu bókinni. Eftir heimkomuna varð ég dulítið hissa að fá fréttir af öðr- um ungum hjónum, sem á hveiju kvöldi lesa kafla úr þessari sömu bók fyrir son sinn fimm ára. Sá stutti fylgist ekki aðeins með bókinni um heimspeki, heldur getur varla beðið eftir næsta kafla áður en hann fer að sofa. Nú náði ég mér í þessa bók og las. Sagan nær sýnilega til æði íjölbreyttra lesenda. Ekki er hún aðeins náma um menningarsögu heims- byggðarinnar heldur líka eins og bráðskemmtileg leynilögreglusaga sem dregur mann áfram til að kynnast leyndardómum unglingsstelpunnar Soffíu. í leiðinni fylgja svolítil kynni við alla helstu heim- spekinga veraldarsögunn- ar, í tímaröð, svo samhengi verður í hvað hefur leitt af öðru, allt frá goðsögun- um og fram á okkar daga. Óvenjuleg bók, sem sýn- ir að hreinn óþarfi er að vera að saxa lesendur niður í smá aldurshópaskammta. Mér hefur raunar alltaf þótt það asnalegt. Kannski af því að sjálf lagðist ég, eftir að ég varð læs, átölu- laust í bækur sem fullorðna fólkið bar heim af bókasafninu. Veit fullorðna fólkið raunar nokkuð hvað nær til hvaða krakka, þegar það með yfirlæti er að skammta þeim lesefni eft- ir sínum ímynduðu aldursmörk- um? Ég var einmitt nýbúin að taka eftir þegar bresk kona lét um daginn þau orð falla að hún hefði búið að því alla ævi að hafa um 12 ára aldur lent í skóla, þar sem vakinn var upp áhugi hennar á sögu, grískri goðafræði, líffræði og fleiru. Farið var með telpurn- ar út í náttúruna og þeim sýnt og þær fræddar um svo margt. Það hefði verið svo dýrmætt að vera vakin til áhuga á ýmsu á þessum viðkvæma aldri, einmitt þegar krakkar eru svo móttæki- legir. Þetta sama er sagt um fimm ára börnin og þar áfram, að þau gleypi allt í sig eins og svampur, hvort sem þau skilji það eða ekki. Eru að þreyfa fyr- ir sér. Undarlegustu hlutir sitja svo eftir í minninu eða skilningn- um og dúkka upp síðar. Stundum hefí ég heyrt við- mælendur, sem afrekað hafa eitthvað, segja frá því hvernig þeir komust á sporið í lífsfaginu við að eitthvað vakti áhuga þeirra þegar þeir voru litlir. Fólk veit ekkert hvað þau kunna að velja úr af því sem að vitundinni berst. Ætli geti ekki verið verst að skammta krökkum og ungling- um smátt eða kannski alls ekk- ert til að moða úr í lífsreynsl- una. Einn angi af þessu er ald- Gárur eftir Elínu Pálmadóttur ursskömmtunin á lesefni, sem virðist viðtekin og miða stundum helst að því að halda aftur af þeim meðan þau eru full af áhuga á að tileinka sér alla skap- aða hluti og prófa. Bækur skrif- aðar fyrir einhveija ímyndaða meðalgetu. Líklega er það orðið tiltölulega sjaldgæft að bók sé skrifuð ein- faldlega fyrir fólk - á öllum aldri. Þessvegna hafí Veröld Soffíu vakið slíka athygli og flogið sem sölubók út yfír landa- mæri. í viðtali við höfundinn sýndist hann líka dálítið hissa á að bókin hans náði til svo breiðs aldurshóps. Nú mun Jostein Ga- arder ætla að koma á bók- menntahátíð á íslandi í haust og þá má spyija hann hvernig höf- undar eigi að losna úr aldurs- fjötrunum. Nú, og kannski líka efnisfjötrunum og tegunda- spennitreyjunum, sem flestir virðast fastir í. Allt fyrir löngu saxað niður í sagnfræðibók, fræðibók, skáldsögu, leynilög- reglusögu, ævintýri, að ekki sé talað um eitthvað sem heitir fag- urbókmenntir. Stóru sneiðamar má svo skera niður í aldur- flokkabækur o.s.frv. Þarna hefur norska höfundinum tekist að blanda þessu öllu saman, skáld- sögu, leynilögreglusögu, ævin- týri, fræðiriti og bók fyrir alla aldursflokka. Leynilögreglumað- urinn ungi er ekki bara að fínna lík og leysa morð, heldur raða saman brotum og fá heillega mynd af kenningum evrópsku heimspekinganna frá upphafí. Leita að sanneikanum. Hvorki meira né minna. Fullorðnir og lesnir segja kannski með yfír- læti, að þetta viti þeir nú allt saman. Kannski mundi ekki saka að fá svolítla yfirreið yfir helstu kenningar um heiminn og Iífið í réttri afleiddri röð fram á okkar daga. Þeir geta þá bara lesið með ólíkindalátum fyrir börn sín smá eða með bömunum sínum stóru. Hver kafli er skemmtilegt fílósófískt umræðurefni á eftir. Sagði ekki Hallgrímur Péturs- son: Oft er sá í orðum nýtur, sem iðkar menntun kæra, en þursinn heimskur þegja hlýtur, sem þijóskast við að læra. Megum við raunar nokkuð missa af fræðslu og menntun, ef við ætlum að halda í við sam- keppnina í hinum stóra heimi nú til dags? Bónus: Þessi stóra bók er svo meðfærileg, stórt letur og létt band. SIÐFRÆÐI /rcebur sanngimin ferbinni? „EN SKOÐANIR eru ekki einka- mál. Ef skoðun er meinað að njóta sín, þá er gervallt mannkynið rænt eign sinni,“ skrifaði J.S. Mill í bók sína Frelsið 1859. Kjarni íjölmiðla er að athafnir og skoðanir einstakl- inganna eru ekki alltaf einkamál. Ef hegðun og skoðun einstaklings varðar annan mann, hóp eða al- menning þá getur verið ástæða til að upplýsa það. Fjölmiðlar eru til að upplýsa al- menning og veita umhverfínu eftirlit. Markmið þeirra er m.a. að veita embættismönnum aðhald og fylgjast með stjórnsýslunni. Hlut- verk fjölmiðla er að fylgjast með þeim sem fara með valdið og hafa um- sjón með pening- unum og að upp- lýsa almenning um hvemig þeir nota valdið og pening- ana. Fréttamenn allra fjölmiðla byggja á staðreyndum en mannheimurinn er einfaldlega þess eðlis að hugtökin líklegt og ólíklegt falla betur að hon- um. Gagnrýnin hugsun er af þeim sökum aðall sérhvers fréttamanns. Hann kemst aldrei hjá því að þurfa að meta og túlka upplýsingamar sem hann hefur komist yfír. Hann þarf að geta greint samhengið í atburða- rás eða þróun og grafast fyrir um áhrifaþætti. Hann getur ekki sagt frá nema með því að öðlast fyrst skiln- ing. En skilning öðlast hann ekki nema með því að raða saman og draga réttar ályktanir. Þetta merkir þó ekki að frétta- maðurinn blandi eigin tilfinningum, duttlungum og fordómum í mál sitt. Heldur einungis að hann beiti gagn- rýnni hugsun sem sannast á því að hann reynir iðulega að draga fram tvær eða fleiri hliðar á málunum. Hann reynir að horfa á samfélagið utan frá og markmiðið er að gefa lesandanum raunsanna mynd af at- burðum og skoðunum. Hann rann- sakar, dregur ályktanir sem byggja eftir Gunnor Hersvein á traustum upplýsingum og setur þær fram á hlutlausan hátt. Fréttamaður má ekki taka þátt í atburðarásinni sem hann ætlar að lýsa og enginn má hafa taumhald á honum. Hann þarf helst að vera óvirkur innan stjórnmálaflokka og eiga engra persónulegra hagsmuna að gæta. Hann þarf að starfa ótrufl- aður af löngunum sínum gagnvart viðfangsefnunum. Hann hefur ein- ungis áhrif á mál með því að upp- lýsa almenning og spyija gagnrýnna spurninga. Áhrif fjölmiðla felast því að lýsa því sem er að gerast og bera það saman við það sem hefur gerst áður eða við mannlega mælikvarða um rétt og rangt. Góður fréttamaður kann listina að spytja réttra spurn- inga. Það er forvitnin sem rekur hann áfram og löngunin og skyldan að miðla svörunum. Það er puð og púl að hafa réttar skoðanir en það sem vegur þyngst til að öðlast þær er að sjá gagnrýna hugsun að starfi við að grafast fyrir um réttar upplýsingar. Skoðanir eru oft undanfari hegðunar og móta þ.a.l. samfélagið. Fjölmiðlar eru vettvang- ur upplýsinga og skoðanaskipta og þess vegna er biýnt að fréttamenn standi vaktina. Frelsið verður nefni- lega ekki virkt nema menn geti skipst fijálst og jafnt á skoðunum. Fjölmiðl- ar miðla skoðunum og upplýsingum og hljóta því að leggja sig fram við að vera heiðarlegir, vinna bug á for- dómum og ganga að öllu með gagn- rýna hugsun að vopni. Fréttamenn geta lent í vanda um hvenær eigi að birta upplýsingar og hvenær ekki. Það þarf að spyija sig: Er rétt að segja frá þessu á þessu stigi málsins, er rétt að birta nafn eða mynd af viðkomandi? Ef frétta- maður kemst t.d að misferli innan tiltekins líknarfélags, sem treystir á fijáls framlög almennings, knýr skyldan við almenning á og hann getur ekki þagað. Hann þarf þó allt- af að muna að mannorðið er það dýrmætasta sem menn eiga. Fjölmiðlar eru oft skammaðir fyr- ir að flytja neikvæðar fréttir. En það „HÆTTULEGT samband" e. Rene Magritte. er einfaldlega vegna þess að mark- miðið er að upplýsa um siðspilling- una, lestina, dómgreindarleysið, ill- mennin, skortinn, bölið og illskuna sem bitnar á hinum saklausu. Bruðl, óreiða, öfund, ágirnd og skeytingar- leysi gagnvart gæðum eru oft í frétt- um vegna þess að heimskunni þarf að linna. Óréttlætið er í fréttum og siðfræði fjölmiðla er að sigrast á því með réttlátri umíjöllun. Fréttamanninum ber að sýna drengskap, gæta hagsmuna lesenda sinna og að nota tjáningarfrelsið til hins ýtrasta. Hann á að hlusta á minnihlutahópa og þá sem enga tals- menn hafa og vera hreinskilinn við almenning. Hann þarf að vera ná- kvæmur og hafa sanngirni sem höf- uðdyggð. Hann þarf ávallt að spyija sig: Hef ég verið eins sanngjarn og mögulegt er? Hann lætur ekki undan þrýstingi hagsmunahópa og þiggur ekki mútur. Gefí hann eftir, glatar hann sjálfstæði sínu. Fjölmiðlar eru hlífðarlausir og þess vegna verður fréttamaðurinn að geta gert greinarmun á góðu og vondu, réttu og röngu. Hann verður að vaka á verðinum svo blindur leiði ekki blindan og báðir falli í gryfju. ÞJÓÐLÍFSÞANKAR /Er ekki mikils um vert ab fá útrás fyrir eblishvatimar? _ Handbolti og tilfinningarót ÞAÐ FÓR víst ekki framhjá nein- um að heimsmeistarakeppnin í hand- bolta stóð yfír undanfarnar vikur hér á landi. Fyrir allflesta karlmenn þessa lands þýddi þetta mikla hátíð. Alvarlegir í bragði og samhuga héldu þeir sig fast við sjónvarp- ið. Þar drógu þeir til sín næringu, drykki og reyk fyrir Iíkamshylkið meðan andinn átti óðul sín öll í íþróttasölum í Laugardalshöll, á Akureyri og í Smáranum í Kópa- vogi. Þýðingar- mest af öllu var þó þegar „strákamir" okkar kepptu. Þeir byijuðu vel og kyn- bræður þeirra og landar fylgdust léttbrýndir með fyrstu þremur leikjunum. Svo fór að versna í því. Suður- Kóreumenn urðu þeim níðþungir í skauti, ekki n eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur síst kóreski markvörðurinn sem án þess að blikna varði meiri partinn af skotum íslendinga. Það var víst heldur ekki nema von ef marka má orð þjálfara rússneska liðsins, sem líka bar sigurorð af íslendingum. Hann sagði að íslenska liðið ætti enga „skyttu" og þess vegna hefði verið auðvelt að „taka þá í vörninni". Ég gat ekki annað en öfundað Svisslendinga í huganum, sem áttu þessa líka dæmalausu skyttu, Baumgartner, sem sumir töldu ein- sýnt að ætti fyrir því að „fá á sig frakka“, þegar hann léki með liði sínu móti íslenska landsliðinu. Baumgartner varð að því er ég best veit af frakkanum og íslendingar töpuðu leiknum, ekkert samhengi þarf þó að vera þar á milli. Þegar þessum þremur tapleikjum var lokið var þolinmæði íslenskra karlkynsá- horfenda líka þrotin. Þeir áttu engin orð til að lýsa frammistöðu sinna manna, nema þá niðrandi. Sum voru þannig að best er að hafa þau ekki eftir. En þegar hér var komið sögu tóku íslenskar konur við sér. Margar þeirra höfðu fram að þessu lítið sem ekkert sinnt um handboltann og bardaga íslenska landsliðsins. En f þegar þær heyrðu reiðilestur karl- mannanna við sjónvarpið varð tals- verð breyting þar á. Við lítilsvirðing- arorð karlanna, svo sem eins og: „Þetta eru aumingjar, þeir gera ein- tóm mistök,“ vöknuðu mörgum kon- um í bijósti hinar viðkvæmu móður- tilfinningar, sem ekkert aumt mega heyra eða sjá. Þær tóku umsvifa- laust upp hanskann fyrir „strákana okkar“, og sögðu með þjósti: „Hvernig haldið þið að ykkur myndi líða í þeirra sporum, þeir gerðu eins og þeir gátu, það er kannski meira en sumir aðrir gera í þessu lífi,“ og vildu ekki hlusta á neitt múður meira um þetta mál. Hnarreistar og stoltar héldu þær sumar hveijar uppi svo stórfenglegum vörnum fyrir íslenska landsliðið að karlmenn sem urðu áheyrendur að orðum þeirra urðu klumsa og jafnvel skömmustulegir yfir tilætlunarsemi sinni. Öll þessi uppákoma fékk mig til að velta fyrir mér mismuninum á afstöðu kynjanna til keppnisíþrótta, svona almennt talað. Því verður ekki á móti mælt að karlmenn hafa mun meiri áhuga á keppnisíþróttum en konur. Ég er á þeirri skoðun að þetta sé af hinu góða, hvernig ætli heimurinn væri ef ekki væru til keppnisíþróttir, hvernig ættu menn að fá útrás fyrir árásargirni sína á siðmenntaðan hátt? Það er jú vitað mál að það býr eðlislæg ársárhvöt í hveiju heiðarlegu karlmannshjarta. Það er svo eins og hrein rúsína í pylsuenda þegar svo háttar til að konur fá líka útrás fyrir sínar hvat- ir af sama tilefni. í þetta sinn gátu þær veitt hinum meðfæddu verndar- tilfinningum sínum útrás án þess að rífast t.d. við nágrannana vegna barna sinna, en slíkar uppákomur geta stundum orðið afdrifaríkar og dregið langan dilk á eftir sér. Hvað sem líður hinum fjárhagslega og keppnislega afrakstri heimsmeist- arakeppninnar í handbolta hér á landi þá er hitt víst að ýmsir fengu útrás fyrir innibyrgðar hvatir sem ella hefðu allt eins getað orðið til vandræða. Það er ekki slæmt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.