Morgunblaðið - 28.05.1995, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 28.05.1995, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. MAÍ 1995 B 11 FRÉTTIR Opið hús í Viðskipta- skólanum VIÐSKIPTASKÓLI Stjórnunar- félagsins og Nýheija verður með opið hús sunnudaginn 28. mai frá kl. 13-17 að Ánanaustum 15. Nemendur og kennarar munu kynna námsbrautir skólans en þær eru: Almennt skrifstofunám, fjármála- og rekstrarnám og markaðs- og sölunám. Almenna skrifstofunámið er opið öllum 18 ára og eldri en fyrir fjármála- og rekstrarnámið og markaðs- og sölunámið þurfa umsækjend- ur að hafa lokið framhaldsskóla- prófi eða sambærilegri menntun. Skólaárið skiptist I tvær 13 vikna annir og skólinn býður upp á þijá mismunandi tíma dagsins til að stunda nám frá kl. 9-12, 13-16 eða 16-19. -------------- Hlýnun af völd- um vaxandi gróðurhúsa- áhrifa SÍÐASTI fræðslufundur Hins ís- lenska náttúrufræðifélags verður mánudaginn 29. maí kl. 20.30. Fundurinn verður haldinn í stofu 101 í Odda, Hugvísindahúsi Háskól- ans. Á fundinum flytja þeir Trausti Jónsson, veðurfræðingur á Veður- stofu ísíands, og Tómas Jóhannes- son, jarðeðlisfræðingur á Orku- stofnun, erindi sem þeir nefna: Hlýnun af völdum vaxandi gróður- húsaáhrifa? í fréttatilkynningu seg- ir að í erindinu segi þeir Trausti og Tómas frá nýjustu rannsóknum á þessum sviðum. Rannsókn áParkin- sonveiki Signrlaug Sveinbjömsdóttir Á VEGUM taugalækningadeildar Landspítalans er nú í gangi faralds- fræðileg rannsókn á Parkinsonveiki á íslandi og hvort erfðir eigi þátt í að framkalla sjúkdóminn. Áríðandi er að sem flestir taki þátt í rannsókn- inni, svo árangur náist í lækning- um í framtíðinni. Rannsóknin felst í viðtali, lík- amsskoðun og blóðprufu. Þátt- taka er frjáls og fullri þagmælsku heitið. Öll bióðsýni verða send til Harvardháskóla í Boston, þar sem erfðaathugun fer fram. Parkinsonsjúklingar á lands- byggðinni ættu að gefa sig fram við sína heilsugæslustöð eða taugalækn- ingadeild Landspítalans, séu þeir á ferð í Reykjavík. Allir læknar tauga- lækningadeildarinnar eru við þriðju- daga og fimmtudaga kl. 8.30-13. Þeir sjúklingar, sem ekki eiga heim- angengt geta hringt í ritara deildar- innar og kemur þá læknir heim til viðkomandi. Þetta á einnig við um sjúklinga úti á landi. Nú í sumar fer Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir, taugas- érfræðingur, til Keflavíkur, Akra- ness, Akureyrar og nágrennis. -------♦------------ ■ OPIÐ HÚS verður í Aerobic Sport, Faxafeni 12, mánudaginn 29. maí í tilefni sumarkomu. Frítt verður í leikfimi allan daginn og sum- ardagskráin kynnt þ.á m. hlaupahóp- ar sem verða með öðru sniði en venju- lega er. Boðið verður upp á léttar veitingar og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. VERSLUNARLÁNASJÓÐUR FJÁRFESTINGARLÁN - a fl 111 a t h a f n a ! Verslunarlánasjóbur (þ.m.t. fyrrum Vebdeild íslandsbanka) hefur flutt á Kirkjusand ÍSLAN DSBAN Kl - í takt v/ð nýja tíma Alnæmissamtökin Guðsþjónusta í Fríkirkjunni VIÐ guðsþjónustu í Fríkirkjunni 28. maí verður minnst þeirra sem látist hafa af völdum alnæmis. Prestur verður sr. Cecil Haraldsson. Guðsþjónustan hefst kl. 11 árdeg- is og verður henni útvarpað á Rás 1. Leikmenn annast ritningarlestur og listamenn flytja tónlist. Að guðs- þjónustu lokinni er kirkjugestum boðið í kirkjukaffi í safnaðarheimil- inu að Laufásvegi 13 og það eru félagar í aðstandendahópnum sem standa fyrir því. Sýning í Eden Bjarni Jónsson, listmálari, sýnir litlar myndir fram til annars í hvítasunnu. Dömusumarjakkar kr. 13.900 Dömubuxur kr. 4.930 Dömustrigaskór kr. 2.690 Dömurúskinnsskór kr. 5.950 Cortína sport Skólavörðustíg 20, sími 552 1555. Dílsseldorf Ferðamiðstöð Austurlands býður flugfargjöld í áætlunarflugi LTU til Diisseldorf í Þýskalandi, á kr. 28.640, fram og til baka, flugvallagjöld innifalin. Diisseldorf er í hjarta Evrópu og þaðan er auðvelt að ferðast til allra átta, á eigin bfl eða eftir öðrum leiðum. Ferðamiðstöð Austurlands veitir upplýsingar um ferðamöguleika frá Diisseldorf og býður flug og bfl á góðu verði. FERÐAMIÐSTCÆ) AUSTURLANDS HF Skógarlöndum 3 - Egilsstöðum Sími 97-12000 Símanúmera- mundu! & HI3 ■ ...... stafa símanumer k >reytingarnar taka gildi laugar- c iaginn 3. júní Númer breytast sem hér segir: 55 bætist framan við fimm stafa símanúmer á höfuðborgarsvæðinu 5 bætist framan við sex stafa símanúmer á höfuðborgarsvæðinu 42 bætist framan við öll símanúmer á Suðurnesjum 43 bætist framan við öll símanúmer á Vesturlandi 456 bætist framan við öll símanúmer á Vestfjörðum 45 bætist framan við öll símanúmer á Norðurlandi vestra 46 bætist framan við ötl símanúmer á Norðurlandi eystra 47 bætist framan við öll símanúmer á Austurlandi 48 bætist framan við öll símanúmer á Suðurlandi Eftir breytingarnar þarf ekki lengur að velja svæðisnúmer. Farsíma- og boðtækjanúmer. Talan 9 fellur burt þannig að farsímanúmer byrja á 85, GSM númer á 89 og boðtækjanúmer á 84. Dæmi: 985 489 89 verður 854 8989. PÓSTUR OG SÍMI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.