Morgunblaðið - 28.05.1995, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 28.05.1995, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. MAÍ1995 B 1& ATVINWWAUGl YSINGAR Markaðsstjóri Eitt stærsta innflutningsfyrirtæki landsins Ieitar að starfsmanni í stöðu markaðsstjóra. Helstu verksvið: • Gerð markaðsáætlana. • Gerð og framkvæmd auglýsingamála. • Samskipti við erlenda viðskiptamenn. • Samskipti við fjölmiðla og innlenda við- skiptamenn. Fyrirtækið sækist eftir einstaklingi sem er vel menntaður, framsækinn og umfram allt metnaðargjarn til að ná árangri og settum markmiðum ásamt því að geta unnið undir miklu álagi. Markaðsstjóri vinnur í nánu samstarfi við sölustjóra og framkvæmdastjóra að mótun markaðs- og sölustefnu fyrirtækisins. Starfið býður upp á mikla möguleika hjá fram- sæknu fyrirtæki og góð starfsaðstaða er fyr- ir hendi. Reynsla á sviði markaðsmála er nauðsynleg- ur grunnur í starfinu. Mað allar umsóknir verður farið sem trúnað- armál, þeim skal skila til afgreiðslu Mbl. fyr- ir föstudaginn 2. júní merktar: „Markaðs- stjóri - 11666“. Computer 2000 er alþjóðlegt heildsölu og dreifingarfyrirtæki á tölvum og tölvubúnaði. Fyrirtækið starfar í 28 löndum og veltir yfir 200 milljörðum. Heildarfjöldi starfsmanna er um 2500. Computer 2000 á íslandi hf, hóf starfsemi fyrir tæplega ári síðan og hefur verið í örum vexti og stöðugri sókn. Til að auka enn á þjónustu við íslenskar tölvuverslanir og endursöluaðila viljum við bæta við 3 nýjum starfsmönnum. MARKAÐSFULLTRÚI Hugbúnaður Krefjandi og umfangsmikið starf með megináherslu á sölu notendahugbúnaðar til tölvuverslana og endursöluaðila. Starfið krefst mjög góðrar þekkingar og áhuga á hugbúnaði, góðrar enskukunnáttu og lipurðar í mannlegum samskiptum. • Æskileg reynsla af sölu tölvubúnaðar, viðkomandi þarf að hafa bíl til umráða. >- MARKAÐSFULLTRÚl Tækni - Ráðgjöf Krefjandi og umfangsmikið starf með megináherslu á tækni- ráðgjöf og sölu tæknilegra lausna til tölvuverslana og endur- söluaðila. Starfið krefst mjög góðrar þekkingar og áhuga á tölvum og tölvubúnaði, góðrar enskukunnáttu og lipurðar í mannlegum samskiptum. • Æskileg reynsla af sölu tölvubúnaðar, viðkomandi þarf að hafa bíl til umráða. >- RITARI Bókhald Krefjandi ritara og bókhaldsstarf. Ritari annast daglega umsjón og úrvinnslu úr bókhaldi, afstemmingar, skýrslugerð og inn- heimtu auk almennra skrifstofustarfa. Starfið krefst reynslu af skrifstofustörfum, góðrar bókhalds- kunnáttu og þekkingar á notendahugbúnaði í Windows. • Viðkomandi þarfað hefja störf fljótlega. í öll þessi störf leitum við að kraftmiklum og drífandi starfsmönnum, með góða samskiptahæfileika, þjónustulund og metnað til að leggja sig fram í starfi hjá öflugu þjónustufyrirtæki í örum vexti. Nánari upplýsingar aðeins veittar hjá Ábendi. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál. Vinsamlegast sækið um á eyðublöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar fyrir 6. júní 1995. Á <s r^j>I + Rauði kross Islands Rauöarárstíg 18, 105 Reykjavík, sími 91-626722 Starfsmaður á IMorðurlandi Rauði kross íslands óskar eftir starfsmanni á Norðurlandi til að annast stuðning við RKÍ deildirnar á svæðinu. Um heilsdagsstarf er að ræða. Áætlað er að helmingur tímans sé viðverutími á skrif- stofu. Hinn hlutinn fer í fundi, námskeiða- hald og fræðslu utan fasts viðverutíma. Á Norðurlandi eru 13 deildir frá Hólmavík til Þórshafnar. Æskilegt er að starfsmaður sé staðsettur miðsvæðis á svæðinu. Æskilegt er að viðkomandi hefji störf 1. september nk. Helstu verkefni • Auka tengsl milli skrifstofu RKÍ og deilda á Norðurlandi. • Er framkvæmdastjóri fyrir svæð- isnefnd og sinnir sameiginleg- um verkefnum deilda og stuðn- ingi við þær. Aðstoðar deildir við að koma upp nýjum verkefn- um. • Rauða krossfræðsla á svæðinu. Aðstoð við námskeiðahald, kynningamál og útgáfustarf (fréttabréf o.fl.). • Stuðningur við barna-og ung- mennastarf RKÍ. • Fylgja eftir skipulagi neyðarvarna RKI. • Verkefni fyrir RKÍ sem tengjast deildarstarfi annars staðar á landinu. Kröfurtil umsækjenda • Verður að vera lifandi í starfi, vinnusamur og hafa frumkvæði. • Hafa bíl til umráða og geta farið um svæðið. • Reynsla af störfum með félagasamtökum. • Góð ensku- og tölvukunnátta æskileg. • Gert er ráð fyrir að viðkomandi sé/verði búsettur á Norðurlandi. Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon hjá Ráðgarði frá kl. 9-12 í síma 561 6688. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðgarðs hf., Nóatúni 17, 105 Reykjavík, merktar: „RKÍ - Norðurland" fyrir 17. júní nk. RÁÐGARÐUR hf STfÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF NÓATÚN17 105 REYKJAVÍK SÍMI5616688 Leikskólar Reykjavíkurborgar Óskum að ráða leikskólakennara eða annað uppeldismenntað starfsfólk í bæði fullt og hálft starf e.h. í leikskólann Funaborg v/Funafold, s. 587 9160. Einnig vantar aðstoðarleikskólastjóra í leik- skólann Engjaborg v/Reyrengi, s. 587 9130. Leikskólar Reykjavíkurborgar eru reyklaus- ir vinnustaðir. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 552-7277. Eitt ár Bandaríkgunum er reynsla sem þú býrá aá alla ævi Síðastliðin 5 ár hafa mörg hundruð íslensk ung- menni farið á okkar vegum til Bandaríkjanna til eins árs dvalar við nám og störf. Og ekki að ástæðulausu, því engin önnur samtök bjóða eins góða, örugga og ódýra þjónustu. • Allar ferðir fríar. • 32.000 krónur í vasapeninga á mánuði. • 5 daga námskeið í Washington D.C. í skyndihjálp og uppeldisfræðum. • 32.500 krónu styrkur til að stunda nám að eigin vali. • Einstök tilboð á ferðum um Bandaríkin t.d. á vegum Trek America. ... og síðast en ekki síst "BRING A FRIEND" Þú þarf ekki lengur að kvíða því að vera án vinanna í heilt ár - taktu einn með þér. AuPair Homestay U.S.A. eru einu samtökin sem bjóða vinum að sækja um saman og dvelja hjá fjölskyldum á sama svæði. Erum að bóka í brottfarir íjúlí, ágúst, september, október og nóvember. AuPAIR VISTASKIPTI & NÁM ÞÓRSGATA26 101 REYKJAVÍK SÍMI 562 2362 FAX 562 9662 í SAMSTARFI MEB VIÐURKENNDUM MENNINGARSAMTÓKUM í AUSTURRlKI. BANDARÍKJUNUM. BRETLANDI. DANMÓRKU. FINNLANDI, FRAKKLANDI. HOLLANDI, ÍTALÍU, NOREGI. SPANI. SVlÞJÓÐ OG PÝSKALANDI. RÁÐNINGARÞJÓNUSTAN hefur tekið til starfa. Þjónusta til einstaklinga og fyrirtækja. Ráðgjöf í starfsmannahaldi og skipulagningu á rekstri. Kappkostað er að veita trausta, örugga og fljóta þjónustu. Ráðningarþjónustan er opin virka daga frá kl. 9.00-17.00 Ráðningarþjónustan Jón Baldvinsson Háaleitisbraut 58-60 108 Reykjavík n Sími 588 3309 Fax 588 3659

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.