Morgunblaðið - 28.05.1995, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 28.05.1995, Blaðsíða 30
30 B SUNNUDAGUR 28. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ Nemendur og kennarar lögðu metnað sinn í að standa sig vel ÞEIR útskrifuðust saman fyrir hálfri öld, fyrstu stúdentarnir úr Verslunarskóla íslands. Aftari röð: Óskar Kristjánsson, Jón Ó. Hjörleifsson, Karl B. Guðmundsson og Arni J. Fannberg, Fremri röð: Gísli Guðlaugsson sem nú er látinn, Valgarð Briem og Helgi Hjartarson. Fimmtíu ár frá fyrstu stúdentaútskrift Verslunarskóla Islands Inntökuskilyrðin voru ströng FIMMTÍU ár eru í vor liðin frá því fyrstu stúdentarnir út- skrifuðust úr Verslunarskóla íslands. Þetta var sjö manna hóp- ur, allt piltar, sem höfðu tekið verslunarpróf eftir fjögurra ára nám og ákváðu síðan að halda áfram í tvö ár til viðbótar eftir að Verslunarskólinn öðlaðist réttindi til að útskrifa stúdenta. Þrír úr hópnum tóku verslunarpróf vorið 1941 og höfðu þegar haldið út á vinnumarkaðinn en fjórir útskrif- uðust úr verslunardeildinni vorið 1943 og héldu beint í stúdentsnám- ið. Að stúdentsprófi loknu lágu leiðir þeirra allra ýmist beint út í atvinnulífið, í Háskóla íslands eða til náms annars staðar. Tveir úr hópnum, þeir Karl B. Guðmunds- son viðskiptafræðingur og Valgarð Briem hæstaréttarlögmaður rifja hér á eftir upp nokkur atriði frá þessum árum. . „ÞAÐ var gott að vera í þessum fyrsta hópi og engin spuming að við fengum fyrsta flokks kennslu, þetta var eins og að vera í einka- tíma, enda lögðu allir, kennarar sem nemendur, metnað sinn í að standa sig vel og Vilhjálmur Þ. Gíslason sem þá var skólastjóri var notalegur við okkur og gladdist með okkur þegar námið gekk vel,“ sagði Valgarð Briem hæstaréttar- lögmaður. „Vorið 1943 var stríðið í algleymingi og þá var atvinna næg og fiestir nemendur Vei-slun- arskólans voru þar fyrst og fremst til að sækja þangað hagnýta menntun og búa sig undir marg- háttuð störf strax að loknu versl- unarprófí en höfðu ekki í hyggju langskólanám eins og þeir sem fóru í menntaskólana. Strax eftir verslunarpróf fór ég norður í Eyja- fjörð í kaupavinnu eins og ég hafði gert fyrri sumur en réði mig ekki í fasta vinnu. Hefði ég gert það þykir mér eins líklegt að ekki hefði orðið úr frekara námi. En þegar ég kem til Reykjavíkur aftur um haustið varð úr að ég settist í stúd- entsdeildina." Lögfræðingur eða prestur Lá Ijóst fyrir hvert framhaldið yrði hjá þér? „Fljótlega. í ættinni var bæði talsvert um lögfræðinga og presta og mér fannst hvort tveggja koma til greina. Lögfræðin varð nú ofan á og ég sé ekki eftir því. Mér fannst ég ekki síður undirbúinn en stúd- entamir sem komu úr M.A. eða M.R. í lagadeildinni var skilyrði að kunna vélritun og ég hafði hana á hreinu og við höfðum lært bók- hald og verslunarrétt þannig að á sumum sviðum stóðu nemendur frá Verslunarskólanum betur að vígi en nemendur menntaskólanna." Eftir kandídatspróf sigldi Valgarð til Englands og stundaði fram- haldsnám í sjórétti og trygginga- rétti. Þegar heim kom gerðist hann forstöðumaður Innkaupastofnunar Reykjavíkur og gegndi því starfi í 15 ár en hefur síðan starfað sem hæstaréttarlögmaður. Félluð þið vel inn í hóp stúdenta við Háskólann? „Ég held að það sé óhætt að segja það. Að vísu var það svo að minnsta kosti fyrst í stað að ósjálf- rátt héldu nemendur M.R. saman og síðan nemendur M.A. ekki síst af því að þeir bjuggu á stúdenta- görðunum og höfðu mikinn sam- gang og þá vorum við kannski þriðji hópurinn, þessir frá Verslun- arskólanum. En auðvitað kynnt- umst við strax öðrum nemendum og ég er ekki frá því að norðan- stúdentar hafí nú tekið_ okkur bet- ur en þeir úr M.R. Áður höfðu VERSLUNARSKÓLI íslands öðlaðist formlegt leyfi til að útskrifa stúdenta með reglu- gerð sem sett var 5. nóvember 1942 af Magnúsi Jónssyni sem þá var atvinnumálaráðherra og hafði jafnframt menntamál á sinni könnu. Aðdragandinn var alllangur og segir Lýður Björnsson sem kennt hefur við Verslunarskólann allt frá árinu 1964 og þekkir þessa sögu vel að deilur hafi risið meðal há- skólastúdenta um þessa heimild sem skólinn fékk. „Verslunarskólinn var í stöð- ugri þróun. Árin 1905 til 1926 er hann tveggja vetra skóli en þá er þriðja bekknum bætt við og þeim fjórða árið 1935. Vil- hjálmur Þ. Gíslason sem þá var skólasljóri leggur til árið 1934 að skólanum verði veitt heimild til að útskrifa stúdenta og reka tvær deildir við skólann, verslunardeild og lærdóms- deild. ítrekar hann þessa hug- mynd sína alloft næstu árin í hven i skólasetningar- eða skólaslitaræðu,“ segir Lýður þegar hann er beðinn að rifja upp j>essa sögu. „Arið 1938 er stofnaður Við- skiptaháskóli á vegum ríkisins og Steinþór Sigurðsson jarð- fræðingur ráðinn forstöðumað- ur hans. Náði Vilhjálmur samn- ingum um að einn til tveir nem- endur úr Verslunarskólanum fengju inngöngu í Viðskiptahá- skólann. Þegar Viðskiptahá- skólinn er sameinaður Háskóla íslands árið 1941 óskar Vil- hjálmur eftir því við Alexander Jóhannesson þáverandi rektor að þessi samningur standi og virðist hann hlynntur því en rekur sig hins vegar á það skil- yrði að háskólanemar skuli hafa stúdentspróf. Vilhjálmur tekur því málið upp við Magnús Jóns- son guðfræðiprófessor sem þá fer með menntamál í minni- hlutasljórn Ólafs Thors og tók hann málið að sér og gaf út fyrrnefnda reglugerð 5. nóvem- ber 1942.“ Deilt um heimildina Lýður segir að allur þessi aðdragandi hafi ekki vakið neina eftirtekt en þegar reglu- gerðin hafði verið gefin út komu fram ásakanir um að Magnús hafí með þessu verið að reyna að veiða atkvæði vegna komandi kosninga. „En hvað sem því líður rísa stúdent- ar upp, eldri og yngri, ræða málið í sínum hópum og boða til funda. Á fundum í Stúdenta- félagi Reykjavíkur og hjá há- skólastúdentum voru samþykkt mótmæli gegn þessari heimild svo að segja mótatkvæðalaust. Þá ritaði Kristján Eldjárn, sem þá var formaður stúdentaráðs, grein í Helgafell og rökstuddi afstöðu stúdenta. Þar telur hann Vérslunarskólann þarfan skóla en óþarfí sé að fjölga skól- um sem útskrifi stúdenta og skólinn kenni naumast nógu öguð vinnubrögð til að nýtast megi stúdentum við háskóla- nám. Telur hann að verslunar- fræðigreinarnar séu of rýrar til þessa undirbúnings. Villyálmur svarar þessum skrifum og minnir á að menn séu oft ekki hrifnir af nýjungum og rifjar upp að stúdentar frá M.R. bafi ekki verið hrifnir þeg- ar Gagnfræðaskóla Akureyrar var veitt heimild til að útskrifa stúdenta. í þessu sambandi var einnig rifjað upp að nemendur úr Verslunarskólanum urðu að taka stúdentspróf utanskóla ef þeir vildu komast í háskólann svo að þessi ósk og heimild til skólans var í hæsta máta eðli- leg.“ Lýður segir að þrátt fyrir þessi skoðanaskipti hafi stúd- entsefni verið tekin í skólann, að vísu ekki fyrr en haustið 1943 þar sem liðið var of langt á haustið 1942 til að hægt væri að hefjast handa þá. Inntöku- skilyrði í lærdómsdeildina eins og hún var kölluð voru ströng, 1. einkunn, og var því haldið nyög lengi. Eins og fram kemur hér voru sjö piltar í fyrsta hópn- um, átta höfðu byijað en einn heltist úr lestinni en strax næsta ár og mörg næstu ár á eftir eru stúdentar veiyulega kringum 20. Eftir fá ár eru bekkimir orðnir tveir og um 1970 voru þeir þrír en era nú sjö til átta. Deildir eru i dag þijár, mála- deild, hagfræðideild og stærð- fræðideild. orðið nokkrar umræður meðal menntskælinga og háskólastúd- enta sem fannst sumum að stúd- entar úr þessum „kaupmangara- skóla“ ættu ekkert erindi í Háskól- ann en þær raddir þögnuðu þó fljótt og vorum við alls ekki látnir gjalda þessara skoðana þegar í Háskólann kom enda held ég að við höfum fljótt sýnt það og sann- að að við stóðum okkur ekkert síð- ur en menntskælingar. Það kom líka fljótt í ljós í sambandi við val á deildum því stúdentar úr Versl- unarskólanum fóru í verkfræði, læknisfræði og dreifðust þannig í allar greinar rétt eins og þeir sem komu úr M.A. og M.R.“ Tekist á um stefnur Valgarð segir að samskipti framhaldsskóla á þessum árum hafí ekki verið eins mikil og nú er orðið. „Við höfðum sennilega mest samband við nemendur í Samvinnuskólanum en það fólst þó einkum í ræðukeppnum og málfundum. Þessir tveir skólar gegndu að vissu leyti svipuðu hlut- verki, að útskrifa fólk með hag- nýta menntun sem miðaðist að mestu við verslunarstörf. Oft var þó sagt að tilgangur skólanna væri misjafn því að í Samvinnu- skólann fóru þeir sem hugðust gerast kaupfélagsstjórar eða fara í önnur störf fyrir Samvinnuhreyf- inguna en í Verslunarskólann fóru þeir sem ætluðu í einkageirann. Um þessi sjónarmið var helst tek- ist á í ræðukeppnum skólanna og urðu oft fjörlegar og heitar umræð- ur um hið fijálsa framtak og sam- vinnustefnuna,“ segir Valgarð að lokum. „Eftir verslunarprófið vorið 1941 fór ég að vinna hjá Jóni Loftssyni sem rak allumfangsmikil viðskipti á þessum tíma. Við stofn- un stúdentadeildarinnar bauðst gott tækifæri tl frekari menntunar og greip ég það. Eftir stúdents- prófíð var ég strax ákveðinn í að halda áfram námi og varð við- skiptafræðin fyrir valinu,“ segir Karl B. Guðmundsson. -Námslána- kerfí var ekki fyrir hendi líkt og nú. Menn unnu fyrir námskostnaði á sumrin enda var þá nóg vinnu- framboð. Mér fannst mjög ánægju- legt að setjast að námi aftur og þar hitti ég aðra úr mínum árgangi. Eftir viðskiptafræðiprófíð vann Karl um hríð hjá sama fyrirtæki og áður en síðan gafst honum kostur á árs námsdvöl í Þýskalandi til að kynna sér skipulagsmál banka. Eft- ir heimkomuria hóf hann störf hjá Landsbanka íslands og starfaði þar, lengst af sem skipulagsstjóri bank- ans, allt fram á eftirlaunaaldur. Meira að gera Var námið í stúdentsdeildinni mjög frábrugðið því sem verið hafði? „Talsvert. Við höfðum ekki lært frönsku eða latínu, stærðfræðin miðaðist sérstaklega við verslun- arstörf og náttúrufræði var ný námsgrein. Munurinn var kannski fyrst og fremst sá að við höfðum meira að gera, sóttum fleiri tíma og þurftum að lesa meira. í þá daga var kennt fram eftir degi, gert hádegishlé sem við notuðum oft til að lesa. Einnig var kennt á Iaugardögum sem voru eins og hverjir aðrir virkir dagar. Þegar heim kom var oftast sest við lestur enda var engin truflun af sjónvarpi en auðvitað kom fyrir að við skellt- um okkur í bíó eða færum eitthvað saman. Ég þykist vita að í dag sé félagslífið í Verslunarskólanum öllu umfangsmeira en þá var en auðvitað er einnig margt annað frábrugðið því sem þá tíðkaðist." Þið hafíð ekki tekið mikinn tíma frá náminu fyrir félagslíf? „Nei, enda erfítt að halda úti fjölbreyttu félagslífí í sjö manna bekk! Við stóðum ekki fyrir böllum eða þess háttar skemmtunum svo fáir. Það hafði á hinn bóginn einn- ig sína kosti að vera fáir til dæm- is þegar við lukum fimmta bekk nægði okkur að að leigja sjö manna fólksbíl og fórum við á honum uppí Borgarfjörð. Útskriftarferðin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.