Morgunblaðið - 28.05.1995, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 28.05.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. MAÍ1995 B 21 H ATVINNU/AUGí YSINGAR íslensk forritaþróun hf. íslensk forritaþróun hf. óskar eftir að ráða starfsfólk í þjónustudeild fyrirtækisins. Starfið felst í ráðgjöf, aðlögun og þjönustu á ÓPUS ALLT viðskiptahugbúnaði. Leitað er að þjónustulipru og hugmyndaríku fólki, sem er tæknilega sinnað. Bókhalds- kunnátta er æskileg. Umsóknarfrestur er til og með 2. júní nk. Ráðning verður sem fyrst. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar aðeins veittar á skrifstofu Liðsauka hf., sem opin er frá kl. 9-14. Afleysinga- og ráðningaþjónusta Lidsauki hf. Skólavörðustig 1a - 101 Reykjavik - Sími 621355 SHI Stúdentaráð Háskóla íslands Stúdentaráð Háskóla íslands auglýsir laust til umsóknar starf ritstjóra Stúdentablaðsins fyrir skólaárið 1995-96. Stúdentablaðið kem- ur út á þriggja vikna fresti yfir vetrartímann og er ritstjóri ábyrgur fyrir útgáfu þess. Umsóknarfrestur rennur út 20. júní næst- komandi og ber að skila umsóknum ásamt hugmyndum umsækjenda um efni og áhersl- ur blaðsins á skrifstofu SHÍ, Stúdentaheimil- inu við Hringbraut, þar sem einnig fást allar nánari upplýsingar. Farið verður með um- sóknir sem trúnaðarmál. Vélstjórar, rafiðn- aðarfræðingar! Orkubú Vestfjarða hyggst ráða starfsmann til starfa við Mjólkárvirkjun í Arnarfirði. Einungis koma til greina vélstjórar með 4. stigs menntun og rafiðnfræðingar, eða menn með sambærilega menntun. Með umsókn um starfið skulu fylgja upplýs- ingar um nám, starfsreynslu, persónulega hagi og þ.h. Upplýsingar um starfið veita: Jakob Ólafsson rekstrarstjóri í síma 94-3211 og Helgi Helga- son stöðvarstjóri í síma 94-2222 (frá 3. júní koma 456 í stað 94). Umsóknir merktar: „Starf við Mjólkárvirkjun“ sendist Orkubúi Vestfjarða, Stakkanesi 1, 400 ísafirði og skulu hafa borist eða verið póstlagðar í ábyrgðarbréfi 5. júní nk. eða fyrr. Orkubú Vestfjarða. A iS&J KOPAVOGSBÆR Leikskólakennarar - lausar stöður við leikskóla Kópavogsbær auglýsir stöður leikskólakenn- ara við leikskóla bæjarins, ráðningartími eft- ir samkomulagi. Umsóknarfrestur til 10. júní. Upplýsingar gefur leikskólafulltrúi í síma 554-5700 eða leikskólastjórar. Umsóknum skal skilað á eyðublöðum sem liggja frammi í Fannborg 4, eða í leikskólun- um. Starfsmannastjóri. A iS&J KOPAVOGSBÆR Laust er til umsóknar starf við fjölskyldu- deild Félagsmálastofnunar Kópavogs. Um er að ræða 50% fasta stöðu að viðbættri 50% tímabundinni heimild til allt að 12 mánaða. Verksvið er m.a. barnavernd, fjárhagsaðstoð og málefni fatlaðra. Krafist erfélagsráðgjafamenntunar eða sam- bærilegs náms. Æskileg reynsla af starfi á félagsmálastofnun.. Frekari upplýsingar gefur Gunnar Klængur Gunnarsson, dieldarfulltrúi, í síma 554 5700. Umsóknarfrestur er til 9. júní nk. Starfsmannastjóri Leikskóli St. Franciskussystra Stykkishólmi Leikskólakennarar Leikskólakennarar óskast til starfa á leik- skóla st. Franciskussystra frá 1. ágúst nk. Hlutastarf 50% til 100% eftir samkomulagi. Við skólann starfa um 80 börn í blönduðum deildum og 12 fullorðnir auk skólastjóra. Ef þið hafið áhuga á skemmtilegu en oft krefjandi starfi með góðum launum í hinu fallega umhverfi okkar þá hafið samband við skólastjóra, systur Lovísu, í síma 93-81028 eða 93-81128. Veitustjóri Bæjarveitna Vestmannaeyja Stjórn Bæjarveitna Vestmannaeyja auglýsir stöðu veitustjóra Bæjarveitna Vestmanna- eyja lausa til umsóknar. Bæjarveitur Vestmannaeyja er sjálfstætt fyr- irtæki í eigu Vestmannaeyjabæjar, sem sér um rekstur hitaveitu, rafveitu, vatnsveitu og sorpbrennslu. Umsækjendur þurfa að vera verkfræðingar eða tæknifræðingar eða hafa sambærilega menntun og hafa reynslu af stjórnunarstörf- um. Ráðið verður í starfið frá 1 .desember nk. Umsóknarfrestur er til 1. júlí nk. Umsóknir er tilgreini menntun og fyrri störf skulu sendar: Stjórn Bæjarveitna Vestmannaeyja - Umsókn um starf veitustjóra Tangagata 1, 900 Vestmannaeyjum. Nánari upplýsingar veita Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri og stjórnarformaður Bæjarveitna eða Eiríkur Bogason veitustjóri. Stjórn Bæjarveitna Vestmannaeyja. Lausar stöður Svæðisskrifstþfa um málefni fatlaðra á Norður- landi vestra, Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki, aug- lýsir eftirfarandi stöður lausar til umsóknar: Forstöðumaður leikfangasafns á Sauðárkróki. Menntun á sviði uppeldismála nauðsynleg. Deildarstjóri á sambýli á Sauðárkróki. Viðurkennd menntun á uppeldis- eða félags- sviði áskilin. Forstöðumaður leikfangasafns á Blönduósi. Menntun á sviði uppeldismála nauðsynleg. Staðan er veitt til eins árs. Forstöðumaður sálfræði- og ráðgjafardeildar. Sálfræði-, félagsráðgjafa- eða sambærileg menntun áskilin. Staðan er veitt til eins árs. Allar frekari upplýsingar eru veittar á skrif- stofunni í síma 95-35002. Skriflegar umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu berast skrifstof- unni fyrir 20. júní nk. Matvælafræðingur Óskareftir vinnu. Starfsreynsla og meðmæli. Upplýsingar í síma 5644596 eða 48-75060. Hjúkrunarfræðingar Staða deildarstjóra á vistdeild er laus nú - þegar eða eftir nánara samkomulagi. Hjúkrunarfræðingar óskast til sumarafleys- inga og á kvöldvaktir. Okkur vantar áhuga- sama hjúkrunarfræðinga sem eru tilbúnir að taka þátt í endurskoðun á hjúkrunarskrán- ingu og öðrum spennandi verkefnum. Verið velkomin að koma og kynna ykkur heimilið. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri á staðn- um eða í síma 55 26222 alla virka daga. Elli- og hjúkrunarheimilið Grund. Verkefnastjóri Framsækið fyrirtæki óskar að ráða starfs- mann til fjölbreyttra og sérhæfðra verkefna. Starfið felst í verkefnum tengdum gæðamál- um, rekstri og skipulagningu. Leitað er að áhugasömum og drífandi aðila með háskólamenntun af viðskipta- eða tæknisviði og 1-5 ára starfsreynslu. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi frum- kvæði, geti unnið sjálfstætt og tekið þátt í hópstarfi. Reynsla af leiðbeinendastörfum æskileg. Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon. Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til Ráðgarðs merktar: „Frumkvæði 95“ fyrir 3. júní nk. RAÐGARÐUR hf STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF NÓATÚN17 105REYKJAVÍK SÍMI5616688 jfj&y Reykjavík Stoðhjúkrunarfræð- ingur 3 Starf stoðhjúkrunarfræðings 3 við Hrafnistu í Reykjavík er laust til umsóknar. Um er að ræða 80% stöðugildi. Við leitum að áhugasömum hjúkrunarfræð- ingi með nám í uppeldis- og kennslufræði, stjórnun eða öðrum sérgreinum hjúkrunar. Kennslureynsla mjög æskileg. Starfið felur í sér kennslu fyrir starfsfólk, umsjón með hjúkrunarskráningu og sjúklingaflokkun auk annarra sérverkefna. Umsóknarfrestur er til 5. júní. Hjúkrunarfræðinga vantar á heilsugæslu og hjúkrunardeildir til sumarafleysinga og í fastar stöður í haust. Upplýsingar um stöðurnar veita ída Atladótt- ir, hjúkrunarforstjóri í síma 35262 og Þórunn A. Sveinbjarnar. hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 689500. Qjðnt TÓNSSON RÁÐGTÖF & RÁÐNINGARÞTÓNUSTA HÁTEIGSVEGI7,105 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22 &

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.