Morgunblaðið - 28.05.1995, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 28. MAÍ1995 B 13
wsm
BF mm Mi MMM I M B æJPJHL Wk M — m JL 5 I *5SL
Frisklegt vortilboo
MJÖG TAKMARKAÐ MAGN
VERÐ AÐUR 119,520 KR
TILBOÐSVERÐ
ÞÓR HF
Reykjsvík - Akuroyri
ÍReykjavfk: Ármúla 11 - Sími 568-1500
j Akureyri: Lónsbakka - Sími 96-11070
Sænsku konungshjónin á ráðstefnu
Hvetja til aðgerða
gegn ofbeldi
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
KARL Gústaf Svíakonungur og
Silvía drottning héldu á dögunum
ráðstefnu með stjórnmálaleiðtog-
um og öðrum sænskum áhrifa-
mönnum um vaxandi ofbeldi. Til-
gangurinn var að vekja athygli á
starfi er miðar að því að draga
úr ofbeldi víðs vegar um Svíþjóð.
Framtak konungsins hefur vakið
mikla athygli í Svíþjóð, því að öllu
jöfnu blandar hann sér lítt í þjóð-
málaumræðuna.
Ýmis ofbeldisverk hafa dregið
að sér athygli landsmanna undan-
farna mánuði og nú síðast um
helgina er nokkrar skallabullur í
Stokkhólmi misþyrmdu manni að
tilefnislausu. Á blaðamannafundi
eftir ráðstefnuna sagði Karl Gú-
staf að það hefði ekki verið neinn
einn atburður, sem hefði orðið
honum tilefni til að vekja athygli
á ofbeldisvandanum, heldur aðeins
æ tíðari ofbeldisfréttir. Sem for-
eldrar gætu þau hjónin ekki látið
þessar fréttir sem vind um eyru
þjóta og þannig væri vísast með
fleiri.
Á ráðstefnuna mættu Ingvar
Carlsson forsætisráðherra, auk
annarra ráðherra, formanna
stjómmálaflokkanna og annarra
stjómmálamanna. Til hennar boð-
aði konungur einnig forsvarsmenn
ýmissa samtaka er beijast gegn
ofbeldi, því markmiðið var ekki
síst að vekja sem flesta til meðvit-
undar um samábyrgð foreldra og
allra samfélagsþegna.
Mjög var rætt um ábyrgð for-
eldra, en jafnframt að hlutverk
þeirra væri erfitt í þjóðfélagi þar
sem eiturlyf og vopn væru of al-
geng fyrirbæri. Aðspurð sagðist
Silvía drottning hafa áhyggjur af
ofbeldiskenndu sjónvarpsefni og á
hennar heimili fengju börnin ekki
að horfa á hvað sem væri.
Krítarlitur sagð-
ur 60.000 ára
Sydney. Reuter.
VERA kann að endurskrifa þurfi
listasögu heimsins í kjölfar upp-
götvana sem gerðar vora í helli í
Ástralíu. Inni í honum fannst
krítarlitur, rautt okkur, sem var
flattur út öðrum megin. Talið er
að liturinn sé allt að 60.000 ára
gamall. Elstu myndir sem hingað
til hefur verið vitað um eru um
30.000 ára gamlar og fundust í
Frakklandi.
Með því að beita nýrri en um-
deildri tækni við aldursgreiningu
hafa ástralskir fornleifafræðingar
komist að því að elstu mannvistar-
leifarnar í Ástralíu séu yfir 60.000
ára gamlar. Tæknin sem Ástral-
irnir beittu felst í því að mæla
orku í kristöllum sem hafa verið
grafnir í jörðu.
Fundur krítarinnar er á skjön
við listasöguna eins og hún er nú
kennd, segir Alan Thorne, yfir-
maður fornleifadeildar Þjóðarhá-
skóla Ástralíu (ANU). Segir
Thorne okkurlitinn einungis hafa
verið notaðan í listrænum til-
gangi, til að mála á líkama, á
skildi eða til að setja handarför á
hellaveggi.
Evrópskir fornleifafræðingar
eru hins vegar á öndverðum meiði,
segja að hellamyndirnar í Lascaux
og Comde d’Arc í Frakklandi og
í Altamira á Spáni séu elstu dæm-
in um listfengi mannsins.
Fylgstu meb í
Kaupmannahöfn
Morgunblabib
fæst á Kastrupflugvelli
og Rábhústorginu
ItagmiHflMfr
-kjarni málsins!
Er laxvéiðisumarið
1995 það „stsóra” á
Suður- og Vesturlandi?
Allt bendir til þess að vegna góðra skilyrða í
sjónum og góðs seiðabúskapar í ám á Suður-
og Vesturlandi muni laxveiðin verða mjög góð á
þessu svæði. Beðið hefur verið eftir sumri
sem gefur afburða veiði.
Er það nú komið - sumarið 1995?
Fiskifræðingar hafa verið varkárir, í að spá í
laxveiði sumarið 1995, en þeir hafa þó óformle-
ga gefið ýmislegt í skyn.
Skoðum hvað er laust hjá okkur í SVFR:
Norðurá I:
Af sérstökum ástæðum eru fáeinar stangir
lausar á topp” tíma í þessari verölaunaá (júlí
3.-6. og 24.-27.) sömuleiðis örfáar stangir í
ágúst. Nú er lag.
Hítará I:
Þessi silungs- og laxveiðá með sitt sögufræga
veiðihús á eftir að koma verulega á óvart í
sumar. Verðinu er stillt í hóf og það er ekkert
skyldufæði. Veiðileyfi. eru enn fáanleg á þesta
tíma í júlí og ágúst.
Miðá í Dölum:
Aðalástæðan fyrir minni laxveiði í Miðá
undanfarin ár er vatnsleysi. Allir sem þekkja
til vita að ef nóg vatn er í Miðá er góð laxveiði,
Ekki vantar hyiina og vatnasvæðið er stórt.
Nú er mikið af snjó, algjört forðabú, svo
yfirgnæfandi líkur eru á að Miðá verði með
gott vatn í sumar og því nóg af laxi og þá
bónusinn - silungur. Þetta er tilvalin fjölskyldu
á því veiðihúsið tekur 12 manns. Veiðileyfi eru
fáanleg.
Hítará II:
Stórbrotið umhverfi, falleg á, fallegir hylir, lax
og silungur. Veiðileyfi í Hítarvatni fylgir hverju
leyfi.
Gljúfurá:
í sumar verður að öllum líkindum nóg vatn í
Gljúfurá. Þessi þriggja stanga á er vinsæl af
þeim sem til þekkja Ágætis gistiaðstaða er
fyrir 8-10 manns og ein stöng í Langavatni
fylgir hverri stöng. Nokkrar stangir lausar.
Sogið:
Svæðið við Sog eru: Alviðra, Ásgarður I og II,
Bíldsfell og Syðri-Brú. Við Alviðru, Ásgarð og
Bi'ldsfell eru stórglæsileg veiðihús. Miðað við
þær væntingar sem, menn hafa vegna
laxveiði á Suður- og Vesturlandi, er líklegt að
Sogið verði fengsælt í sumar. Þetta svæði er
steinsnar frá Stór-Reykjavíkursvæðinu og ekki
skemmir að vita að þar veiðast „þeir
stóru”.Laus veiðileyfi á öllum svæðunum.
Önnur svæði sem við höfum á boðstólum :
Norðurá II, Norðurá/Flóðatangi, Tungufljót,
Stóra Laxá I, II, III og IV, Snæfoksstaðir og
Laugabakkar.
Hægt er m.a. að greiða með greiðslukorti,
raðsamningum eða á anna þann hátt sem um semst.
Allar upplýsingar eru gefnar á afgreiðslu Stangaveiðifélags Reykjavikur,
Háaleitisbraut 68 eða í síma 91-568 6050, fax. 91-553 2060.
Opið er mánudaga til föstudaga frá kl. 9-18 e.h.
Wj
SVFR
■BBBBBBHBBBBBBBBBBBBHDB
hozeiock
ESSjholl
HÚSBÓNDA SÍNUM
150 blaða bakki fyrir A4 blöð.
^Ljósritar 10 síður á mínútu.
►Sérstök stilling til
að ljósrita ljósmyndir.
-Minnkun og stækkun 64% -156%.
►Blaðastærð: Frumrit B4 og minna,
afrit A5 og A4.
ZEqttl Guttormsson - Fjölval hf.
Mörkin 1-128 Reykjavík • Símar: 581 2788 og 568 8650 • Bréfsími: 553 5821
Helstu söluaðilar: REYKJAVÍK, Penninn Hallarmúla - AKUREYRI, Bókval - SAUÐÁRKRÓKUR, Bókabúð Brynjars - ÍSAFJÖRÐUR, Straumur.