Morgunblaðið - 28.05.1995, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 28. MAÍ1995 B 27
RADA UGL YSINGAR
Þingeyingar, takið eftir
Aðalfundur Þingeyingafélagsins verður hald-
inn þriðjudaginn 30. maí kl. 20.00 í Lækjar-
brekku - kornhlöðu. Venjuleg aðalfundar-
störf. Fjölmennið. _ .
Stjornm
Aðalfundur Heyrnarhjálpar
Aðalfundur Félagsins Heyrnarhjálpar verður
haldinn þriðjudaginn 30. maí kl. 20.00 í sam-
komusal húsfélagsins Sólvogs, Sléttuvegi
15-17, Reykjavík.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Fundir um ferðamál
Ferðamálaráð íslands boðar til funda um
ferðamál dagana 29. maí-1. júní á sex stöð-
um á landinu.
Rætt verður um stöðu ferðaþjónustunnar og
ástand og horfur í atvinnugreininni nú í upp-
hafi sumars. Sérstaklega verður farið yfir
málefni viðkomandi landshluta með tilliti til
árangurs og möguleika.
Einnig verður fjallað um stöðu íslenskrar ferða-
þjónustu og möguleika á Evrópumarkaði.
Frummælendur verða:
Magnús Oddsson, ferðamálastjóri
Dieter Wendler, forstöðumaður skrifstofu
ferðamálaráðs í Frankfurt.
Almennar umræður og fyrirspurnir.
Fundarstaðir:
Mánudagur 29. mai kl. 17.00 Flughótel, Keflavík
Mánudagur 29. maí kl. 21.00 Laugaland í Holtum
Þriðjudagur 30. maí kl. 20.30 Hótel Valaskjálf, Egilsst.
Miðvikudagur 31. maí kl. 17.00 Hótel KEA, Akureyri
Miðvikudagur 31. maí kl. 21.00 Varmahlíð
Fimmtudagur 1. júnf kl. 20.30 Finnabær, Bolungarvík
Fundirnir eru öllum opnir og áhugafólk hvatt
til að koma og taka þátt í umræðum um
ferðaþjónustu.
Mrm FERÐAMÁLARÁÐ
ÍSLANDS
Kvótakerfi í sjávarútvegi
Fiskveiðistefnan, reynsl-
anog framtíðin
Ráðstefna um fiskveiðistjórnun haldin af
Fiskifélagi íslands á Hótel Sögu, Ársal,
miðvikudaginn 31. maí 1995 kl. 13.00-
18.00.
Dagskrá:
1. Fiskveiðistjórnunarkerfi annarra landa.
RagnarÁrnason, prófessor ífiskihagfræði
við Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla
íslands.
2. íslensk fiskveiðistjórnun og hagkvæmni
hennar.
Snjólfur Ólafsson, dósent við Viðskipta-
og hagfræðideild Háskóla íslands.
3. íslensk fiskveiðistjórnun og eignarhald í
sjávarútvegi.
Agnar Helgason, doktorsefni frá Brunel
University, London.
4. íslensk fiskveiðistjórnun og brottkast
fisks.
Guðjón A. Kristjánsson, formaður Far-
manna- og fiskimannasambands íslands.
5. Aðrir valkostir fiskveiðistjórnunar, eru
þeir raunhæfir?
ÞorvaldurGarðarsson, skipstjóri, Þorláks-
höfn.
Einar Oddur Kristjánsson, alþingismaður,
Flateyri.
Sigurbjörn Svavarsson, útgerðarstjóri
Granda hf., Reykjavík.
Skráning er hjá Fiskifélagi íslands, í síma
55-10-500 eða á faxi 552-7969, skráningar-
gjald er kr. 1.500. Vinsamlegast skráið ykkur
sem fyrst, en hægt er að skrá sig til hádeg-
is þann 31. maí nk.
Kynningarfundur FHF
Félag háskólamenntaðra fjölskyldufræðinga
(Family Therapists) FHF efnir til kynningar-
fundar f Tæknigarði þann 30. maf 1995 kl. 20.
Fjallað verður um tilgang og markmið félagsins
sém er nýstofnað fagfélag þeirra sem starfa
við hjóna- og fjölskyldumeðferð hér á landi.
Allir þeir sem starfa á þessu sviði og hafa
áhuga eru velkomnir á kynningarfundinn.
Stjórnin.
Dómkirkjan
- aðalsafnaðarfundur
Aðalsafnaðarfundur Dómkirkjusafnaðarins
verður í Safnaðarheimilinu Lækjargötu 14a,
þriðjudaginn 30. maí kl. 20.30.
Dagskrá:
Venjuleg störf aðalfundar.
Sóknarnefndin.
Fundarboð
Aðalfundur S.Í.B.S. deildarinnar, Vífilsstöð-
um, verður þriðjudaginn 30. maí kl. 20.30. í
Skútunni, Hólshrauni 3, Hafnarfirði.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Að þeim loknum fyrirlestur Júlíusar K. Björns-
sonar, deildarsálfræðings, um svefn og
svefnleysi.
Kaffiveitingar. Fjölmennum.
Fundurinn er öllum opinn.
Stjórnin.
Með VÍK og ungu fólki til
listiHavana íágúst
Æskulýðsfélög á Kúbu boða til Heimsmóts
æskunnar „Kúba lifir“, 1.-7. ágúst. Mótið
gefur ungu fólki um víða veröld tækifæri til
að hittast, ferðast, kynnast byltingunni á
Kúbu og reyna ýmislegt þar. Þátttaka kostar
nálægt 100.000 krónum. Innifalið er flugfar-
gjald um London, sjö gistinætur og átta
dagar með fæði ásamt ferðum og dagskrá
í tengslum við mótið. Boðið er upp á auka-
viku fyrir eða eftir mótið.
Þátttaka tilkynnist í síma 651464 (Gunnar), 551 3695 (Sigurlaug),
666848 (Sylvía), 551 6810 (Jóhanna), eða V(K, pósthólf 318, 121
Reykjavík. Staðfestingargjald 5.000 kr. greiðist fyrir 12. júní.
Vináttufélag íslands og Kúbu, VÍK, heldur
opinn fund þriðjudaginn 30. maf kl. 20.00 á
efri hæð veitingahússins Lækjarbrekku, þar
sem tilhögun mótsins verður m.a. kynnt.
Akureyri - Reykjavík
Nýlegt 135 fm einbýlishús við Eyjafjörð til
leigu frá 1. ágúst.
Húsið stendur á fallegum stað um 7 km frá
Akureyri. Skipti á góðu húsnæði, helst með
bílskúr, í Reykjavík eða nágrenni æskileg.
Upplýsingar í síma 5525319.
Málverkauppboð
Höfum hafið móttöku á málverkum fyrir
næsta málverkauppboð, sem haldið verður
á Hótel Sögu fimmtudaginn 8. júní.
BOBG
v/Austurvöll.
Laxveiðimenn
Örfá laxveiðileyfi til sölu í Laxá á Refasveit.
Upplýsingar gefur Reynir í síma 91-72294 frá
kl. 17 til 20 næstu kvöld.
Reiðskóli Gusts
Námskeiðin hefjast mánudaginn 12. júní nk.
Skráning fer fram 29. - 31. maf milli kl. 17.00
og 19.00 í reiðskemmu Gusts, Glaðheimum.
Einnig er hægt að skrá nem. í s. 5543610.
Tveggja vikna námskeið kosta kr. 8.000.-
og viku námskeið kosta kr. 4.000.-
tækniskóli BLJ íslands
Höfðabakka 9, 112 Reykjavík
Auglýsing um breytingu á
námsbrautum
Ný námsbraut í vél- og orkutækni-
fræði
í haust verður í fyrsta sinn boðið upp á nám
í vél- og orkutæknifræði til B.S. prófs. Nám-
ið tekur þrjú og hálft ár og er fyrsta árið
samræmt námi í Odense Teknikum í Dan-
mörku. Eftir fyrsta árið geta nemendur valið
að læra vél- og orkutæknifræði við Tækni-
skóla íslands eða halda áfram í tæknifræði
í Danmörku eins og verið hefur hingað til.
Inntökuskilyrði í vél- og orkutæknifræði eru
stúdentspróf af eðlissviði eða raungreina-
deildarpróf auk tveggja ára viðeigandi starfs-
reynslu.
Vél- og orkutæknifræði er fag sem tekur
mið af þörfum íslensks iðnaðar og nýtingu
íslenskra auðlinda, einkum varmaorku. Nem-
endum er gefinn kostur á að velja nokkur
sérsvið og fer það eftir áhuga nemenda hvað
í boði verður hverju sinni.
Nám íiðnaðartæknifræði
Sú breyting hefur orðið á námsbraut til BS-
prófs í iðnaðartæknifræði að nám hefst nú
á haustönn í stað vorannar. Inntökuskilyrði
eru stúdentspróf af eðlisfræðibraut eða
raungreinadeildarpróf.
Nám í iðnaðartæknifræði tekur þrjú og hálft
ár. Nemendum er gefinn kostur á að velja
nokkur sérsvið og fer það eftir áhuga nem-
enda hvað í boði verður hverju sinni.
Umsóknarfrestur um skólavist er til 31. maí
nk.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans.
Rektor.
Kirkjugarðar
Annast endurhönnun og við-
gerð gamalla kirkjugarða hvar
sem er á landinu.
Margra ára reynsla og þekking
fyrir hendi.
Hafið samband við mig í síma
456 2186.
Jón Kr. Ólafsson, Bíldudal.
Uppboð
Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins, Ólafsvegi 3, Ólafsfirði,
fimmtudaginn 1. júní 1995 kl. 10.00 á neðangreindum eignum:
Brekkugata 23, efri hæð, Ólafsfirði, þinglýst eign Guðmundar Þórs
Guðjónssonar og Aöalheiðar Einarsdóttur en talin eign Ragnars Þ.
Björnssonar, eftir kröfum Byggingarsjóðs ríkisins og Lífeyrissjóðs
verslunarmanna.
Bylgjubyggð 57, Ólafsfirði, þinglýst eign Guðmundar P. Skúlason-
ar, eftir kröfu Soffaniusar Cecilssonar hf.
Hliðarvegur 48, Ólafsfirði, þinglýst eign Arnbjörns Arasonar og
Soffíu Húnfjörð, eftir kröfu Lífeyrissjóðs sjómanna.
Ólafsvegur 8, efri hæð, Ólafsfirði, þinglýst eign Tryggva M. Stefáns-
sonar og Kristjönu J. Ásbjörnsdóttur, eftir kröfu Byggingarsjóðs ríkis-
ins.
Ólafsvegur 36, Ólafsfirði, þinglýst eign Davís H. Gígja, eftir kröfu
Byggingarsjóðs ríkisins.
Páls-Bergsgata 3, Ólafsfirði, þinglýst eign Stiganda hf., eftir kröfum
Fiskveiðasjóðs Islands og Bæjarsjóðs Dalvíkur.
Páls-Bergsgata 5, Ólafsfirði, þinglýst eign Stíganda hf., eftir kröfum
Hafnarbakka hf. og Bæjarsjóðs Dalvíkur.
Strandgata 8, efri hæð, Ólafsfirði, þinglýst eign Tryggva Jónssonar
og Valgerðar Sigtryggsdóttur, eftir kröfu Lífeyrissjóðs Norðurlands.
Ólafsfirði, 24. mai 1995.
Sýslumaðurinn í Ólafsfirði,
Björn Rögnvaldsson.