Morgunblaðið - 09.06.1995, Side 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGN AFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR •
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Föstudagur 9. júní 1995
Blað D
Húsnæðis-
málastefna
í þættinum Markaðurinn
íjallar Grétar J. Guðmunds-
son um stefnu í húsnæðis-
málum og segir, að breyting-
ar þar megi ekki hafa nei-
kvæð áhrif á markaðinn.
Slíkt hafi oft gerzt. / 2 ►
Fasteigna-
markaður-
inn á Sel-
tjarnarnesi
SELTJAKNARNESBÆR
er fyrst og fremst íbúð-
arsvæði og atvinnuhús-
næði þar miðast fyrst og
fremst við verzlun og aðra
þjónustu, sem þjónar byggð-
inni. Sjávarútsýni er óvíða
meira, en byggðin báðum meg-
in á nesinu teygir sig frá
ströndinni upp á Valhúsahæð.
Mikið er um hús á einni hæð á
góðum lóðum og þau yfirleitt
skipulögð þannig, að þau taki
sem minnst útsýni hvert frá
öðru.
Norðan inegin er útsýnið tii
norðurs út yfir sundin, en síð-
an blasa við Skarðsheiði og
AkrafjaU að ógieymdri Esý-
unni. Snnnan megin er útsýni
yfir sjóinn til Reykjanesljall-
garðs. Vcgna útsýnisins norð-
an megin hafa húsin þar
gjarnan verið eftirsóttari en
húsin sunnan megin og hefur
þetta komið fram í verði. Dýr-
ustu húsin eru samt húsin á
sjávarlóðunum sunnan mcgin.
Þau hafa verið nánast ófáan-
lcg og eru afar dýr, þá sjaldan
þau koma í sölu.
Þó að fasteignamarkaður-
inn á höfuðborgarsvæðinu sé
stöðugt að renna meira og
meira saman í eina heild, mun
Seltjarnarnesbær vafalaust
hafa nokkra sérstöðu áfram.
Mjög lítið er eftir þar af lóð-
um. Því má gera ráð fyrir, að
lítið framboð verði þar á nýj-
um eignum í framtíðinni og
viðbúið, að fasteignaverð þar
muni af þeim sökum frekar
hækka en lækka, þegar fram í
sækir. / 14 ►
Frágangur
á baðkerum
í þættinum Lagnafréttir
Qallar Sigurður Grétar Guð-
mundsson um frágang á bað-
kerum og segir, að sú aðferð
að múra þau inn, hafi haft í
för með sér ómælt tjón, þeg-
ar lagnir skemmast. / 26 ►
Útlán Húsnæðis-
stofnunar frá upphafi
246 milljarðar
HÚSNÆÐISSTOFNUN ríkisins
hélt upp á 40 ára afrnæli sitt fyrir
skömmu. Eins og teikningin hér til
hliðar ber með sér, heíur vöxtur og
viðgangur stofnunarinnar verið
mikill. Framan af voru lánveitingar
hennar þó fremur litlar að vöxtum.
Þannig voru árleg útlán fyrstu tíu
árin að meðaltali einn milljarður kr.
Miðast sú tala eins og aðrar tölur
hér á eftir við núgildandi verðlag.
Meðaltal síðustu fimm ára er hins
vegar um 20 milljarðar kr. á ári.
Utlánin jukust' upp úr miðjum
sjöunda áratugnum í um 3 milljarða
kr. á ári og síðan voru árleg útlán 3-
4 milljarðar kr. fram yfir 1980. Út-
lánin jukust síðan enn til muna og
með lánakerfisinu frá 1986 jukust
útlánin í 12-14 milljarðakr. á ári.
Eftir tilkomu húsbréfakerfisins
eru árleg meðalútlán húsnæðislána-
kerfisins 18-20 milljarðar kr. áári og
í fyrra urðu heildarútlán Húsnæð-
isstofnunarinnar álíka mikil á einu
ári og samtals á fyrstu 14 starfsár-
um stofnunarinnar.
Frá upphafi nema heildarútlán
Húsnæðisstofnunarinnar 246 millj-
örðum kr. Þar af námu útlán sl. 10
ára um 152 milljörðum kr., sem er
um 2/3 af heildarlánveitingunum.
í byrjun hinnar opinberu lána-
starfsemi 1956 námu lánin innan við
1% af landsframleiðslu, en á síðustu
árum hafa þau komizt hæst í 6,3% af
landsframleiðslu. Það var árið 1991.
Af um 100.000 íbúðum landsmanna
hafa 67.000 eða tvær af hverjum
þremur verið byggðar á 40 ára
starfstíma Húsnæðisstofnunarinn-
ar.
Útlán félagslega kerfisins, sem
hófust um 1970, nema frá upphafi
samtals um 48 milljörðum kr. Af
þessari fjárhæð hafa slétt 50% ver-
ið lánuð út á sl. 5 árum. Sem að fram-
an segir eru allar þessar tölur á nú-
gildandi verðlagi.
Lánveitingar Húsnæðisstofnunar
1956 " 1994 [26,18 milljarðarkr.p
áverðlagi1995
'56 1960 '65 1970 '75 1980 '85
1990 '94
Nýjung:
Tryggingavernd
fyrir sjóðfélaga
Nú er kominn út nýr bæklingur um ALVÍB með góðum fréttum um
lífeyrismál. í honum er að finna upplýsingar um hvemig tryggja má
fj’árhagslegt öryggi alla ævina með því að greiða í ALVlB. Bæklingurinn liggur
frammi í afgreiðslum VlB, Tryggingamiðstöðvarinnar og Sjóvá-Almennra.
FORYSTA í FJÁRMÁLUM!
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSI.ANDSBANKA HF.
• Adili að Verdbréfaþingi íslands •
Ármúla 13a; 155 Reykjavík. Sími 560-8900.