Morgunblaðið - 03.09.1995, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1995
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 27/8 - 2/9
► STJÓRN Alusuisse-
Lonza ræddi á mánudag-
inn hugsanlega stækkun
álversins í Straumsvík
um 62 þúsund tonna af-
kastagetu. Á fundinum
var frestað að taka
ákvörðun um stækkun og
framkvæmdastjórn fyrir-
tækisins falið að halda
áfram athugunum á ýms-
um atriðum semenn eru
ófrágengin í hugsanleg-
um samningum.
► ÁFENGI hækkaði að
meðaltali um 1,05% á út-
sölustöðum Áfengis- og
tóbaksverslunar ríkisins
1. september. Meginá-
stæða hækkunarinnar er
vegna þess að Alþingi
samþykkti í sumar að
stofna Forvamarsjóð til
að stuðla að áfengisvöm-
um og að til hans rynni
1% af vínandagjaldi.
► DROG að breytingum
á sauðfjárhluta búvöru-
samningsins vom sam-
þykkt í meginatriðum á
aðalfundi Landssamtaka
sauðfjárbænda sem hald-
inn var að Brúarási á
FJjótsdalshéraði. Helstu
atriðin í drögunum eru
að verðlagning kinda-
kjöts verði gefin ftjáls,
keyptur verði upp fram-
leiðsluréttur með sér-
stökum tilboðum og
greiðslumarki sem ríkið
kaupir á þann hátt ráð-
stafað til framleiðenda til
að hagræða í greininni.
Chase Manhattan
Bank leggnr fé í ÍÚ
CHASE Manhattan Bank hefur ákveð-
ið að leggja 2,6 milljarða króna í rekst-
ur íslenska útvarpsfélagsins með lána-
fyrirgreiðslu við fyrirtækið, eigendur
þess og með kaupum á hlutabréfum.
Bankinn hefur hlutabréf meðeigenda
sinna að veði. Endurgreiðslur lánanna
miðast við rekstur fyrirtækisins undan-
farin ár, að teknu tilliti til hugsanlegs
samdráttar vegna nýrrar samkeppni á
sjónvarpsmarkaðnum.
Nýtt félag fær út-
sendingarleyfi
ÚTVARPSRÉTTARNEFND hefur
samþykkt að veita nýju félagi, Islenska
sjónvarpinu hf., leyfí til.að befja sjón-
varpsútsendingar. Nýheiji, Sambíóin,
Japis, Árvakur hf. og Texti hf. eru
meðal þeirra sem standa að nýja fyrir-
tækinu, en alls eru hluthafar um fimmt-
án talsins og heildarhlutafé um 250
milljónir króna.
Klakfiski úr
Kollafirði lógað
LAXELDISSTÖÐIN í Kollafirði hefur
lógað öllum klakfiski sínum, um 500-
600 löxum, vegna kýlapestar sem
fannst í klakfiskinum. Lax úr eldisstöð-
inni fór í Brynjudalsá í Hvalfirði og
Hellisá á Síðu í sumar og hefur greinst
kýlapest úr einum laxi úr Hellisá.
Forsetinn í Kína
FORSETI íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, var í opinberri heimsókn í
Kína í vikunni ásamt föruneyti, en þar
ræddi hún meðal annars við forseta
landsins og fleiri ráðamenn Þá átti
sérstök viðskiptanefnd undir forsæti
Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráð-
herra viðræður við ráðamenn og við-
skiptaaðila, en Kínveijar hafa m.a lýst
áhuga á að kanna möguleika á álveri
hér á landi.
Holbrooke
Loftárásir gegn
Bosníu-Serbum
HERÞOTUR Atlantshafsbandalagsins
og stórskotalið „hraðliðs SÞ“ á Igman-
fjalli við Sarajevo réðust aðfaranótt
miðvikudagsins 30. ágúst til atlögu
gegn víghreiðrum Bosníu-Serba í kring
um Sarajevo og víðar í
Bosníu. Á mánudag
höfðu serbneskir umsát- * j
ursmenn við Sarajevo
varpað sprengjum á
útimarkað í borginni,
með þeim afleiðingum
að 37 óbreyttir borgarar
létu lífið og 85 særðust.
Loftárásir NATO, sem
eru umfangsmesta hernaðaraðgerð
sem bandalagið hefur ráðist í hingað
til, voru svar við þessari og fleiri slíkum
árásum Bosníu-Serba á undanfömum
mánuðum. Sprengjuárásunum var
haldið áfram fram á föstudag en þá
var gert hlé á þeim til að kanna friðar-
vilja Bosníu-Serba. Richard Holbrooke,
sendimaður Bandraíkjastjórnar, ræddi
við stríðandi fylkingar í vikunni og
féllust fulltrúar þeirra á föstudag að
ganga til friðarviðræðna í Genf sem
hefjast munu í vikunni.
Oopinbera kvenna-
ráðstefnan hafin
í HUAIROU, um 45 km norðan við
Peking, hófst á miðvikudag ráðstefna
fijálsra félagasamtaka um málefni
kvenna, fimm dögum á undan hinni
opinberu kvennaráðstefnu SÞ. Búizt
var við allt að 30.000 gestum á óopin-
beru ráðstefnuna, en Kínvetjar hafa
aðeins hleypt 18.000 konum inn á ráð-
stefnusvæðið. Stjómvöld reyna hvað
þau geta til að hindra opinber mót-
mæli í tengslum við ráðstefnuna.
► FRAKKAR handtóku á
föstudag tvo kafara eftir
að þeir syntu undir bor-
pall sem nota á við fyrir-
hugaðar kjarnorkutil-
raunir Frakka í lóni á
Mururoa-eyju. Áður
höfðu franskir sjóliðar
ráðist til uppgöngu í Ra-
inbow Warrior, skip
grænfriðunga, sem sigldi
inn fyrir 12 mílna lögsögu
Mururoa til að mótmæla
áformum Frakka um að
sprengja allt að átta
kjarnorkusprengjur í S-
Kyrrahafi. Mótmælum
vegna tilraunanna hefur
ekki linnt og voru um 300
mótmælendur handtekn-
ir i París á föstudag.
►EDÚARD She-
vardnadze, leiðtoga Ge-
orgíu, var sýnt banatil-
ræði á þriðjudag. Mikil
mildi þótti að hann skyldi
ekki hljóta nema skrámur
þegar öflug bílsprengja
sprakk rétt hjá bifreið
leiðtogans við þinghúsið
í Tbilisi. Shevardnadze
hyggst bjóða sig fram til
forseta í kosningum í nóv-
ember. Við leit í þinghúsi
landsins fannst töluvert
magn-vopna á skrifstofu
eins þingmannana,
höfuðandstæðings She-
vardnadzes. Hann fer
fyrir vopnuðum sveitum
manna, sem She-
vardnadze hefur sakað
um að stunda skipulagða
glæpastarfsemi. Ekki
hefur verið gefin út
ákæra vegna tilræðisins.
Bamadeild Landa- 1
kots í F ossvoginn
BARNADEILD Landakotsspítala
flutti fonnlega úr húskynnum sínum
í nýuppgerð húsakynni á fimmtu hæð
Borgarspítalans í fyrradag, en flutn-
ingurínn er í tengslum við samein-
ingu spítalanna og stofnun Sjúkra-
húss Reykjavíkur. Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri ávarpaði við-
stadda með þeim orðum, að um ein-
stakt gleðiefni væri að ræða. „Þetta
er langþráð stund, því nú breytist
verulega til batnaðar allur aðbúnaður
veikra bama í sjúkrahúsum. Þá er
þetta skýrt dæmi um góðan ávinning
af sameiningu spítalanna," sagði
Ingibjörg.
Ámi Þórsson, yfirlæknir á bama-
deild Landakotsspítala, minntist í
ávarpi sínu þáttar St. Jósefssystra,
„þær lögðu fram stærsta skerfinn
og ón þeirra hefðu bamadeildin ekki
orðið til,“ sagði Ámi. Hann gat einn-
ig Thorvaldsensfélagsins sem hefði
ávalt verið stærsti styrktaraðilinn.
Félagið gaf hinni nýju bamadeild 5
milljónir króna í tilefni dagsins.
Stórbætt aðstaða
Morgunblaðið/Ami Sæberg
FJÖLMENNI var er hin nýja barnadeild var vígð í fyrradag.
í fréttatilkynningu frá Sjúkrahúsi
Reykjavfkur kemur fram að húsnæði
bamadeildarinnar á Borgarsítala B-5
er stærra heldur en var á Landa-
koti. Þó er rúmafjöldi sá sami, alls
26 rúm. í innréttingu og hönnun
hins nýja húsnæðis hefur verið lögð
áhersla á að bæta stöðu foreldra.
Fullbúin rúm em á stofum hjá yngstu
börnunum og færanleg rúm fyrir
foreldra eldri bama. Einnig er sér-
stakt foreldraherbergi með eldhúsað-
stöðu. Þá kemur fram, að milli 30
og 40 sérþjálfaðir starfsmenn vinna
á hveijum tíma á barnadeildinni.
Langflestir starfsmenn barnadeildar
Landakotsspítala fluttu með henni í
Borgarspítala og munu starfa á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur, eða eins og
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráð-
herra sagði í ræðu, „reynsla og sér-
hæfing Landakots fylgir með“.
Alþjóðleg ráðstefna um i
öryggis-og umhverfismál ‘
á N-Atlantshafssvæðinu
SAMTÖK um vestræna samvinnu
(SVS) og Varðbergs standa fyrir
ráðstefnu 7. og 8. október í sam-
vinnu við systurfélögin í Danmörku
og Noregi.
Ráðstefnan ber yfirskriftina Ör-
yggis- og umhverfismál á Norður-
Atlantshafssvæðinu og fer bæði fram
á Seandic Hótel Loftleiðum í Reykja-
vík og á Keflavíkurflugvelli. Á ráð-
stefnunni flytja menn frá erlendum
og innlendum fyrirtækjum mörg er-
indi.
Tilgangurinn með ráðstefnunni að
vekja athygli Atlantshafsríkjanna á
mikilvægum málefnum Norður-Atl-
antshafssvæðisins og um leið íslensk-
um utanríkismálum og hagsmunum
íslands. Þetta er í fyrsta sinn sem
slík ráðstefna er haldin hér á landi.
Ráðstefnuna munu sitja félagar
SVS og'Varðbergs, sendinefndir frá
dönsku og norsku félögunum, sendi-
herrar Norðurlandanna og NATO-
ríkja á íslandi, innlendir stjómmála-
menn og embættismenn, fræðimenn,
fulltrúar vamarliðs NATO á Kefla-
víkurflugvelli og aðrir þeir sem
áhuga hafa á umhverfis-, utanríkis-
og öryggismálum.
Margir fyrirlesarar
Meðal ræðumanna verða Halldór
Ásgrímsson, utanríkisráðherra,
Björn Bjamason, menntamálaráð-
herra, Magnús Jóhannesson, ráðu-
neytisstjóri og Albertr Jónsson, deild-
arstjóri.
Erlendu fyrirlesararnir verða Siri
Bjerke, aðstoðarmaður utanríkisráð-
herra Noregs, Per Fischer, ráðgjafi
forsætisráðherra Danmerkur í mál-
efnum N-Atlantshafsins, Robert
Hunter, sendiherra Bandaríkjanna
hjá NATO, dr. Deniz Yuksel-Betten
frá vísinda- og umhverfisdeild
NATO, Robert Edson, sérfræðingur
bandaríska vamamálaráðuneytisins
í kjarnorkuúrgangi á norður heim-
skautasvæðinu og Pauli Járvenpáa,
aðstoðarráðuneytisstjóri í finnska
vamamálaráðuneytinu. Fundarstjóri
verður Jón Hákon Magnússon, for-
maður SVS.
>
i
i
Atvinn
Og
málastofa
stofnsett
ATVINNU- ogferðamálastofa
Reykjavíkurborgar var formlega
sett á laggirnar í vikulokin, en í
raun hófst þar starfsemi 1. ágúst
siðastliðinn. Skrífstofan er stað-
sett á 2. hæð Aðalstrætis númer
6 og er hlutverk hennar að sögn
borgaryfirvalda er margþætt.
í fréttatilkynningu borgaryfir-
valda kemur fram, að aðdragandi
að stofnun skrifstofunnar sé rak-
inn til þess að samþykkt var í
borgarráði þann 31. janúar síðast-
liðinn að stofna slíka skrifstofu.
Hlutverkið er m.a. að samræma
stefnumótun í atvinnu- og ferða-
málum I borginni, sjá um fram-
kvæmd þeirrar stefnu sem mörk-
uð er hveiju sinni, veita umsagnir
vegna erínda sem berast stofnun-
um og fyrirtækjum borgarinnar
og heyra undir atvinnu- og ferða-
Morgunblaðið/Kristinn
VIÐ opnun atvinnu- og ferðamálastofunnar. Frá vinstri: Róbert
Jónsson framkvæmdastjóri, Þórhildur Andrésdóttir ritari, Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgarsljóri og Anna Margrét Guðjóns-
dóttir ferðamálafulltrúi.
ýmis átaks- og atvinnuskapandi
verkefni á vegum borgarinnar og
samstarf við iðn- og atvinnuráð-
gjafa á landsbyggðinni.
Fastir starfsmenn eru þrír, Rob-
ert Jónsson framkvæmdastjón,
Anna Margrét Guðjónsdóttir
ferðamálafulltrúi og Þórhildur
Andrésdóttir ritari. Sigurður
Helgason markaðsráðgjafi er
verkefnaráðinn starfsmaður stof-
mál, umsjón með og/eða þátttaka
í ýmsum tengdum sérverkefnum,
umsjón með almennri viðskiptar-
áðgjöf og þróun hennar, en sér-
stakur markaðsráðgjafi hefur ver-
ið ráðinn til þess að sinna þeirri
þjónustu, en alls hafa um 70
manns nýtt sér hana.
Þá verður umsjón með átaks-
verkefnum á vegum borgarinnar,
samstarf við vinnumiðlun, upplýs-
ingaþjónusta fyrir almenning um