Morgunblaðið - 03.09.1995, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.09.1995, Blaðsíða 18
18 SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ í landi óttaog ófriðar íslenski hjúkrunarfræðingurínn, Sigurbjörg Söebech, starfar við næsta óvenjulegar að- stæður, á sjálfstjómarsvæði Palestínumanna á Vesturbakkanum. Rauði krossinn veitir fjár- hagsaðstoð til heilsugæslustöðva á Vestur- bakkanum og á Gaza-svæðinu. í dag fer ein- mitt fram landssöfnun Rauða krossins fyrir konur og böm í neyð. Þórunn Stefánsdóttir fór í fylgd Sigurbjargar um Vesturbakkann og kynntist lífí og lífsviðhorfum íbúanna. GÖMUL kona undirbýr kvöldmat í bambuskofa. Hún er fædd á þessum slóðum og vill hvergi annars staðar vera. FYRIR utan þorpið Tammun má sjá merki um átökin á svæðinu. AÐ er óvenjulegt að vakna upp í stórborg við hana- gal, eins og hér í Ras E1 Amoud í Jerúsalem. Það er árla morguns, Sigurbjörg er á leið í vinnuna. í dag ætlar hún að heimsækja þijár heilsugæslustöðv- ar. Ég fæ að slást í för með henni og aðstoðarmanni hennar, ungum palestínuaraba, Ghassan að nafni. Leiðin liggur fyrst til þorpsins Al-Jiftlik í Jordan-dalnum. Við ök- um framhjá tjaldbúðum bedúína, sem eru dreifðar meðfram vegin- um. Okkur sem alist höfum upp í borgarlífi nútímans er kippt inn í framandi heim gamalla lífshátta, þar sem mannfólkið lifir í nánu samneyti við húsdýrin, í tjöldum sem slegið er upp á heitglóandi sandinum, þar sem varla sést sting- andi strá fyrir dýrin að narta í. Forvitni vaknar um líf og hagi þessa fólks. Með aðstoð Ghassan erum við fljótlega komin í heimsókn í eitt tjaldið. Fjölskyldan sem þar býr er stór og heimilið fábrotið. í tjaldinu er ábreiða á gólfinu, eld- húsáhöld hanga í tjáfrinu og eina húsgagnið er trékassi sem gegnir hlutverki borðs. Á því er sjónvarps- tæki, en ekkert er rafmagnið og því ógerlegt að fá mynd á skjáinn. Hún er glæsileg húsmóðirin sem stjórnar þessu frumstæða heimilis- haldi. Klæði hennar virka sem und- arleg þversögn í þessu fátæklega umhverfi. Það væri auðvelt fyrir ókunnuga að aka framhjá veginum sem liggur inn í Al-Jiftlik. Þorpið er lítið og ótrúlegt að kofamir sem standa hér í þyrpingu séu mannabústaðir. Eitt húsið sker sig úr, hlaðið úr múr- steinum, í útjaðri þorpsins. Það reynist vera áfangastaður okkar, heilsugæslustöðin. Hún tilheyrir stofnun sem er með heilsugæslu- stöðvar víðsvegar um vesturbakk- ann. Þær eru allar mjög vel skipu- lagðar og yfirleitt staðsettar á frum- stæðum og einangruðum stöðum. Umskipti Sigurbjörg er ánægð. „Síðast þegar við komum hérna var hér aðeins mold og drulla. Yfirleitt eru heilsugæslustöðvarnar ekki svona hreinlegar. Þessar breytingar eru lækninum að þakka sem hér er nýkominn til starfa. Hann er lærð- ur í Saudi Arabíu. Læknar sem fá menntun sína þar eru viðurkenndir víðast um heim og koma yfirleitt ekki til starfa á vesturbakkanum, þar sem laun og starfsskilyrði eru léleg." Lítill drengur situr á biðstofunni með mömmu sinni. Það er sama hvort börnin eru íslensk eða arab- ísk, þau láta óánægju sína í ljós á sama hátt, þegar læknir nálgast með sprautu í hendinni. Undir sár- um gráti geng ég út og virði fyrir mér lífið í þorpinu. Húsin standa sólbökuð í hitanum, sem er um 44 gráður. Þau eru reist á súlum, með jámþaki og bakhlið úr leir, en eru annars úr tjöldum sem dregin eru upp yfir daginn og sett niður yfir nóttina. Það er fátt fólk sem býr hér yfir sumartímann, en margar bedúína-fjölskyldur hafa hér vetrarsetu og senda börnin sín í skóla. Inni á heilsugæslustöðinni eru feðgar hjá lækninum. Hann er að segja föðurnum að litli sonur hans sé með Down’s syndrome, sé mon- gólíti. Flestum foreldrum þykja þetta váleg tíðindi, en maðurinn tekur þessu sem sjálfsögðum hlut. Hér er fólk orðið vant því að taka hlutunum eins og þeir koma fyrir, í öllum fjölskyldum eru einstakling- ar fatlaðir af völdum styijalda og átaka, byrðarnar eru margar að bera og sjálfsagt að taka á sig eina í viðbót. Fjallaþorpið Það er langt í næsta viðkomu- stað, fjallaþorpið Tammun. Við njótum þess að aka um Jordan-dal- inn, gróðursælan og fijósaman. Hlaðnir hellismunnar sem sjást frá veginum vekja athygli okkar. Ghassan fer í könnunarleiðingur. Eftir stutta stund gefur hann okk- ur merki um að koma, hér séu búsettar forvitnilegar konur. Okkur er boðið til sætis, reyndar ekki í helli, heldur í stórum kofa, reistum úr bambusstöngum. Hér eru bú- settar þtjár konur, ásamt börnum sínum. Það er undarlegt að sjá konunar fallega klæddar og skreyttar gulli í þessu hreysi. Hér er moldargólf, óhreinindi, ólykt og flugnamergð. Elsta konan í hópn- um undirbýr næstu máltíð. Hún er brosmild og ánægð með lífið, sem okkur gestunum finnst hljóta að vera erfítt og ömurlegt. Hún segist fædd á þessum slóðum, hér sé fjöl- skylda hennar, hún vilji hvergi ann- ars staðar vera. „Hér líður okkur vel, þetta er það líf sem við þekkj- um, en auðvitað búum við í sífelld- um ótta um hernaðarátök og ófrið.“ Á þessum slóðum er lífið áhætta. Við sjáum þess merki þegar við ökum framhjá húsum sem eru rúst- ir einar. Ghassan segir þetta vera hús sem ísraelsir hermenn hafa fengið fyrirmæli um að sprengja. „Hér hefur einhver íbúi, eða hugs- anlega ættingi, verið eftirlýstur af ísraelskum yfirvöldum. Þegar her- mennirnir koma þurfa íbúarnir að yfírgefa húsið samstundis, síðan er allt sprengt upp, með húsgögn- um og öllum eigum fólksins, sem verður að leita á náðir ættingja. I verstu tilfellum hefur Rauði kross- inn boðið tjöld til að búa í tímabund- ið. En yfirleitt þarf fólkið að sjá um sig sjálft, fær enga aðstoð til að koma undir sig fótunum á ný.“ Læknirinn Vegurinn versnar stöðugt. Við ökum inn í Tamman, framhjá óhreinni vatnsuppsprettu. Asnarnir fá sér að drekka, börnin kæla sig í hitanum og konurnar ausa vatni í krukkur. Við villumst og ökum í hringi eftir þröngum götunum. Hér eru óhreinindi hvar sem litið er og ólykt leggur upp úr götunum, sem hér gegna hlutverki klóaksins. Læknirinn á heilsugæslustöðinni er ómyrkur í máli. „Hér hafa marg- ir veikst í hitanum, fengið slæman sólsting. Ég hef verið önnum. kaf- inn, ég er eini læknirinn hér, og íbúarnir eru um 10.000. Hér er mikið atvinnuleysi, fólk þarf að fara langa leið til að leita sér að starfi. Ástandið fer sífellt versnandi og streitusjúkdómar algengir." Sigurbjörg innir hann eftir starf- Eins og dýr í búri BALATA-flótta- mannabúðirnar eru í útjaðri borgarinnar Nablus. Þær voru reistar árið 1948, eft- ir að zionistar lýstu yfir stofun Ísraelsrík- is og hundruð þús- unda Palestínu- manna voru hrakin frá heimilum sínum. Sagan endurtók sig árið 1967 þegar ísra- elsríki hertók allt land Palestínu. Það er lífsreynsla að heimsækja Balata. Það sem situr sterk- ast eftir í minningunni er lyktin úr klóakinu sem liggur í opnum rennum eftir götunum. Hitinn magnar lyktina og maður óskar þess helst að þurfa ekki að draga að sér andann. Búðirnar eru reistar á litlu landsvæði og ótrú- legt að þar skuli búa um 30.000 manns. . Jamal er fæddur í Balata. „Foreldrar mínir komu hingað árið 1967 ogþau fengu tvö herbergi til umráða. Eftir því sem fjölskyldan stækkaði var byggt ofan á þessi tvö herbergi og nú búum við tuttugu og fimm saman í þessari byggingu. Ég á tvo einhleypa bræður sem vilja gifta sig, en þeir geta ekki fengið húsnæði, ekki má stækka húsið meira og okkur er bannað að byggja fyrir utan búðirnar." Jamal segir lífsskilyrðin í búð- unum ömurleg og efnahag fólks- ins bágborinn. „Um það bil 80% af vinnufæru fólki hefur ekki atvinnu. Flestir þeir sem hér búa unnu í Israel, en fá nú ekki leng- ur atvinnuleyfi þar. Ég er lán- samur, hef fuUt starf sem kenn- Jamal ari, aðrir íbúar hússins eru at- vinnulausir." Hann segir nálægðina við borg- ina gera þau meðvitaðri um hversu líf þeirra er frábrugðið lífi annarra. í borginni á fólkið hús og aðrar eignir, við sem hér búum eigum ekki neitt. Við lifum hér eins og dýr í litlum búrum. í desember 1987 hófst uppreisn Palestínumanna, Intifada. Jamal segir lífið sjaldan hafa verið erf- iðara íbúum flóttamannabúðanna en á fyrstu mánuðum uppreisn- anna. „Stjómvöld höfðu sérstak- ar gætur á búðunum, vissu að hér bjó fólk sem hafði engu að tapa. í langan tíma ríkti hér ömurlegt ástand, í fyrstu var sett á okkur tímabundið farbann, við máttum yfirgefa búðirnar þrjár klukku- stundir á dag. Síðan var eftirlitið hert, í þrjá mánuði var okkur ekki ekki leyft að fara út fyrir búðirnar.“ Við tölum um framtíðina og þá staðreynd að flóttamannabúð- ir sem þessar séu ennþá til. „Flóttamannabúðir eru Iýsandi dæmi óvissunnar um framtíð Pa- lestínu. Sýna það óleysta mál í sinni verstu mynd. Við höldum í - vonina um að búð- irnar verið lagðar niður og að við get- um eignast eigið heimili, en ég held að stjórnvöld séu búin að gera að engu vonina um að mín kynslóð fái til baka landið sem er okkar heimaland, Palestínu." Þegar út kemur tekur gamall mað- ur okkur tali. Hann er með húslykil í hendinni. „Éinu sinni átti ég hús og heimili. Meðan ég geymi þennan lykil held ég í vonina um að einhvern tímann snúi ég aftur til þorpsins þar sem ég bjó. Húsið mitt sé ennþá á sínum stað og ég geti gengið að því, opn- að það með lyklin- um og að allt sé óbreytt, allt sé eins ogþað var.“ LÍFSKILYRÐIN í flóttamannabúðunum eru ömurleg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.