Morgunblaðið - 03.09.1995, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 03.09.1995, Qupperneq 6
6 SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ [f ERLENT BAKSVIÐ EFTIR samfylgd ríkis og kirkju í Svíþjóð síðan 1686 skilja nú leiðir. í þessu máli eru hvorki sigurvegarar, né einhverjir sem tapa, sagði Gunnar Weman erk- ibiskup að bæn lokinni, þegar kirkjuþing hafði samþykkt tillögur ríkisstjórnarinnar um að sænska kirkjan yrði ekki lengur ríkis- kirkja. Málinu var fyrst hreyft fyrir tæpum fjórum áratugum og hefur löngum verið hitamál í Sví- þjóð, þó samþykktin nú hafi geng- ið friðsamlega fyrir sig. Um er að ræða stjórnarskrárbreytingu, sem verður að fara fyrir tvö þing og gengur ekki í gildi fyrr en 1. janúar 2000. Enn liggja aðeins megindrög hinnar nýju skipunar fyrir. Mörg atriði eru óljós, til dæmis hvort líta eigi á gjald sókn- arbarna til kirkjunnar sem gjald eða skatt. Það var með kirkjulögum 1686 á stjórnarárum mektarkóngsins Gústavs Vasa að eining kirkju og ríkis komst á. Þau lög voru ekki numin úr gildi fyrr en 1992. Árið 1809 var lögfest í Svíaríki að hver mætti trúa eftir sinni samvisku, en ekki ganga af trúnni og það var ekki fyrr en með lögum 1951 að Svíar gátu sagt sig úr kirkj- unni. Fyrsta tillagan um aðskilnað ríkis og kirkju var lögð fram 1909, en ekki komst hreyfing á málið fyrr en 1958. Með nýjum lögum 1982 var sjálfstæði kirkjunnar aukið og 28. ágúst síðastliðinn samþykkti kirkjuþingið svo að- skilnaðinn með miklum meirihluta. Reyndar voru atkvæði ekki talin, aðeins ríkið getur lagt á skatt. Hann verður þó líkur venjulegum skatti, þar sem hann verður tekju- tengdur. Eingöngu þeir sem eru meðlimir í kirkjunni borga skatt- inn. Kirkjan mun halda eignum sínum og áfram sjá um greftrun, bæði sóknarbarna og annarra. Ekki hefur enn verið gengið frá hvernig þeir sem ekki tilheyra kirkjunni greiða kirkjugarðsgjald- ið, því það er innifalið í kirkju- skatti hinna. Uppskipting safnaða breytist °g fylgir ekki bæjarfélögum eins og áður, en enn á eftir að ákveða skipulagið. Kirkjan mun fá ríkis- framlag til að halda við menning- arverðmætum. Frá og með 1. jan- úar 1996 fæðist enginn inn í kirkj- una, heldur verður að skrá börn í hana, ef foreldrar óska þess. Meðal kirkjunnar manna gætir kvíða yfir hvort og í hversu ríkum ■ j mæli foreldrar hugsi til þéssá. Nýja skipanin hefur einnig í för með sér að kirkjan velur sjálf bisk- upa og dómsprófasta. En það voru aðeins gróf drög, sem kirkjuþing samþykkti nú. Enn er eftir að greiða úr ýmsum flókn- um málum svo mikið starf er fram- undan. Stóra spurningin er svo hvort þetta verður sú vítamín- sprauta fyrir kirkjuna, sem for- kólfar aðskilnaðarins innan kirkj- unnar vonast eftir, eða hvort það færist deyfð yfir yfir fátæk svæði og fjör í ríku svæðin. Fyrst þarf að bíða fram til ársins 2000 og síðan í nokkur ár, áður en í ljós kemur hver áhrifin á safnaðarlífið og starfsemi kirkjunnar verða. Aðskilnaður en ekki viðskilnaður Leiðir kirkju og ríkis skilja í Svíþjóð önnur um önnur trúfélög. Þar með er líka lagður grunnur að sam- bandi kirkju og ríkis, meðal ann- ars um að kirkjan eigi að vera lýðræðisleg og starfa um allt land. Þetta er til að tryggja að kirkj- an breytist ekki í eðli sínu og meðal annars mun ríkið hafa fing- urna með í spilinu við ákvörðun um uppbyggingu kirkjunnar, til dæmis er varðar skiptingu starf- seminnar í bæjarfélögum og á rík- issviðinu. Ýmsir hafa orðið til að gagnrýna þetta nýja fyrirkomu- lag, þar sem lögin komi kirkjunni í þá aðstöðu að vera stöðugt að semja um eitt og annað við ríkið og því sé ekki hægt að tala um viðskilnað, heldur aðeins aðskiln- að, þar sem kirkjan sé ekki sjálf- stæð gagnvart ríkinu. Hvernig á að borga kirkjugarðsgjald? Eftir sem áður verður lagður á kirkjuskattur, en óljóst er hvort hann verður skilgreindur sem skattur eða gjald, þar sem í raun Nýlega vom samþykkt á sænska kirkjuþing- inu drög að skilnaði kirkju og ríkis. Sigrún Davíðsdóttir rekur aðdraganda ákvörðunar- innar og hvaða áhrif hún muni hafa. heldur vottuðu viðstaddir aðeins afstöðu sína með því að standa á fætur. Fáir sátu eftir. Ein lög um kirkjuna, önnur um trúfélög Það er ríkisstjómin, sem hefur lagt línumar og samið tillögumar, sem nú vom loksins samþykktar. Stjómmálaflokkamir hafa deilt um málið og síðastur varð Mið- flokkurinn til að leggja blessun sína yfir ráðahaginn. Marita Ulv- skog kirkjumálaráðherra lagði til- lögurnar fyrir kirkjuþingið, sem ekki hafði vald til að breyta svo mikið sem einni kommu, heldur aðeins samþykkja tillögurnar eða hafna. I raun urðu þó smávægileg- ar breytingar á tillögu ríkisstjórn- arinnar, sem Ulvskog samþykkti. Kirkjunnar menn hafa verið við- kvæmir fyrir orðalaginu og ekki viljað tala um skllnað. Samkvæmt lögunum, sem væntanlega verða samþykkt má fremur tala um að- skilnað en viðskilnað, því sérstök lög verða sett um kirkjuna og i Átta danskir fangar ganga enn lausir Leiðtog’i fanganna í sjónvarpsviðtali FRÉTTAMAÐUR dönsku sjón- varpsstöðvarinnar TV3 ræddi á fimmtudag í síma við Lars Hitchin- son, sem talinn er forsprakki fang- anna sem flýðu úr Vridsloselille- fangelsinu um síðustu helgi. Sagði hann hópinn brátt á förum úr landi. Gífurleg leit hefur staðið yfir að föngunum frá því að þeir flýðu úr fangelsinu með aðstoð manns sem ók ýtu á fangelsisvegginn. Þrír af tólf föngum náðust sam- dægurs, einn náðist síðar í vikunni en átta ganga lausir. Þar af eru fjórir sagðir hættulegir. Viðtal fréttamannsins við Hitc- hinson var flutt í sjónvarpsfréttum stöðvarinnar á fimmtudagskvöld og að því er segir í Berlingske Tidende var greinilegt að Hitchin- son var illur vegna þess að ekki náðist samkomulag um 2 milljón kr. greiðslu sem hann hafði kraf- ist fyrir að hafa milligöngu um viðtöl við fleiri í hópnum. Sagði hann fangana þurfa á fénu að haljda til að halda flóttanum áfram. í samtalinu sagði Hitchinson að hann væri á stað þar sem hann sæi út á sjó en að það myndi ekki vara lengi þar sem hann og aðrir í hópnum væru á leið úr landi. Danska lögreglan er afar ósátt við þátt sjónvarpsstöðvarinnar í þessu máli þar sem fréttamaður frá stöðinni hafi átt í samningavið- ræðum við fangana um viðtöl á sama tfma og víðtæk leit hafí stað- ið yfir að þeim. Reuter Safnað fyrír endurbyggingu UNGUR rússneskur munkur grísk-kaþólsku rétttrúnaðar- kirkjunnar stendur á votum degi í miðborg síberísku borgarinnar Tomsk og safnar fé til endur- byggingar kirkjunnar sem sést í bakgrunni. Frá falli Sovétrílq- anna hefur rússneska rétttrúnað- arkirkjan verið að sækja í sig veðrið og auka áhrif sín. Orsök krabba- meins EIN AF meginorsökunum fyrir myndun krabbameinsæxla hefur verið uppgötvuð af vísindamönnum í Bandaríkjunum. Um er að ræða hluta ensíms í erfðavísum frumna, DNA, sem sér um „viðhald“ litn- inga. Frá þessu er sagt í bandaríska vísindatímarit.inu Science. Ensíminu má líkja við plasthúðina á endum skóþvengja, sem hindra að þeir rakni upp í endana. Kallast fyrirbærið ensím-telomerasi. Þeir gefa frumunum ekki aðeins lengra Iíf, heldur auka þeir hættuna á að fruman breytist í krabbameins- frumu. Þessir telomerasar finnast í um 90% allra krabbameinsæxla, en aðr eins sjaldan í heilbrigðum vefjum- Vísindamennirnir hafa einnig fundið leið til að hefta virkni telomerasanna sem gæti hjálpað til við að drepa krabbameinsfrumur. Enn hefur þó ekki verið þróuð aðferð til að beita þessari þekkingu í lækningaskyni. ft I I i I I I : í I I l I l

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.