Morgunblaðið - 03.09.1995, Side 34
34 SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1995
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
döivsk
ORÐABÆKURNAR
34.000 cnsk uppBeilícið
Ensk
íslensk
orðobók
IngHsh-kelundic
Diclionnry
---
Dönsk
íslensk
íslensk
arðobók
fnsk
orð°%r:^.
íslensk
ensk
orðabók
ÓDYRAR
Frönsk
íslensk
íslensk
frönsk j
orðnbók
s*r. é
Þýsk
islensk
íslensk
þýsk
orðobók
Ulbnrfitik Deiilnk
tXraHA-lOöndÍMh .
jtjda
itölsk
•slensk
wlensk
Aelsfc
orðabók
Uelondii*lngHsb
DUIlonoiy
ENsk
§ensk
!5’ensk
'sfensk
Sa*
CnaMlck
feSÍ
íslensk
spænsk
aráöbók
Ódýrnr og góðar orðabækur fyrir skólann,
ó skrifstofuna og í ferðalagið
ORÐABÓKAÚTGÁFAN
TÍX
a/x,
Wo;
<0**0,
'h 'h
Eitt blab
fyrir alla!
- kjarni málsins!
SOFFIA
PÁLSDÓTTIR
+ Soffía Pálsdótt-
ir var fædd að
Ögri við Stykkis-
hólm 7. júlí 1907.
Hún lést í sjúkra-
húsinu í Stykkis-
hólmi 24. ágúst sl.
Soffía var ein af 14
börnum þeirra
hjóna, Helgu Jónas-
dóttur og Páls Guð-
mundssonar, sjó-
manns og útvegs-
bónda sem lengst
af var kenndur við
Höskuldsey, en það-
an stundaði hann
sjóróðra um langt skeið. Þau
hjónin hófu búskap í Undirtún-
um, lítilli bújörð í Helgafells-
landi, þá voru þau í Ögri um
skeið, eitt ár eða svo á Hellis-
sandi, en lengst af var hann í
Höskuldsey og þar ólst Soffía
upp. Þau Helga og
Páll áttu sjö stúlk-
ur og sjö stráka en
misstu eina stúlku
og einn dreng. 12
komust til fullorð-
insára. Soffía gift-
ist Sigurbirni
Kristjánssyni frá
Eiði í Grund-
arfirði, bjuggu þau
allan sinn búskap
í Stykkishólmi,
lengst af í Viðvík.
Þau eignuðust 9
börn, en misstu tvö
drengi á voveifleg-
an hátt, 11. júní 1945, sama
dag, er þeir voru að leika sér
á sjónum í bát sem þeir voru
með, og einir, en við leit fund-
ust þeir í fjörunni og voru þá
örendir. Sigurbjörn er látinn
fyrir nokkrum árum.
SOFFÍA var merk dugnaðarkona,
það fékk ég að reyna þegar ég
kynntist henni eftir stutta veru hér
í Stykkishólmi. Ennþá betur fann
ég hvem mann hún hafði að geyma
þegar hún og maður hennar urðu
fyrir því sorglega slysi rétt við
bæjarvegginn að tveir drengir
þeirra, Birgir og Kristján, 5 og 7
ára, drukknuðu. Þetta áfall bar hún
með þeirri reisn að ég gleymi því
aldrei. Hún var þar sem í öðru
styrkurinn á heimilinu og hlúði að
manni sínum og bömum. Þau fluttu
nokkru síðar inn í bæinn og þar
sýndi hún eitt sinn að henni var
ekki fisjað saman þegar henni var
litið út um gluggann í eldhúsinu
og sá þá dóttur sína, fárra ára, fljót-
andi í sjónum þar skammt frá. Hún
var snögg að koma henni til hjálpar
og óð eftir henni og gat bjargað,
en ekki mátti miklu muna. Hún
setti sig þar í hættu en hvað gerir
móðurástin ekki þegar bamið er í
veði og áður búin að reyna missi
tveggja myndarlegra sona sinna.
Hún Soffía var ekki rík á verald-
lega vísu, en úr móður- og föður-
garði kom hún auðug af hinum
góðu mannkostum sem hún varði
alla æfi og miðlaði náunganum af
alla tíð. Oft var vakað yfir bama-
hópnum þegar aðrir voru gengnir
til náða. Eftir missi manns síns
bjó Soffía lengst af í húsinu sínu
út á Ytri Höfða hér í bæ og var
oft fjölmenni þar og aldrei var
kvartað yfir þrengslum. Henni var
unaður að vinir og vandamenn og
kunningjar litu inn og alltaf var
eitthvað til staðar fyrir þá sem þar
komu. Þetta varð ég mjög var við,
þá daga sem ég var á ferðinni, og
kom þar við. Seinustu tvö árin var
hún á Dvalarheimili aldraðra í
Stykkishólmi og þar leið henni vel
og hún kunni vel að meta þá að-
hlynningu sem þar var á boðstólum
og var ekki laust við að henni fynd-
ist um of „stjanað við sig“, eins
og hún orðaði það, enda vanari að
þjóna öðrum. Seinustu dagana átti
hún athvarf í sjúkrahúsinu hér í
Stykkishólmi og þreytt að loknu
erfiðu dagsverki lést hún þar sl.
sunnudag. Ég vil í þessum fáum
orðum þakka þessari góðu konu
fyrir samfylgdina og að hafa átt
þess kost að kynnast henni, hjýj-
unni allri sem frá henni stafaði og
hversu hún sátt við allt og alla
kvaddi þennan heim. Hún fól jafn-
an Guði sínum líf sitt og sinna,
þakklát og öfundarlaus. Einum
góðum borgara er Hólmurinn fá-
tækari við brottför hennar. Ég bið
þann sem öllu ræður, að blessa
hana og lýk þessu með orðum frels-
arans. Þú góði og trúi þjónn, gakk
inn til fagnaðar herra þíns.
Árni Helgason.
I
I
I
I
I
e Þú getur iagt inn á
innlánsreikninga
í sparisjóðnum.
NYJUNG
knm sparis
I Nú getur þú lagt inn og greitt reikninga.
* Miliifært a reikninga
• Peningaúttektir.
e Fengið yfirlit.
SPARISJÓÐUR HAFNARFJARÐAR
Reykjavíkurvegi 66 Strandgötu 8-10
SPARISJÓÐURINN í KEFLAVÍK
Tjarnargötu 12, Keflavík