Morgunblaðið - 15.09.1995, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1995
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Eggjum
kastað í
stjómarráðið
EGGJUM var kastað 1 bakhlið
stjórnarráðsins í gærkvöldi. Lög-
reglu er ekki kunnugt um hverj-
ir voru þarna á ferð. Lögreglan
kom á staðinn og tók m.a. skýrslu
af næturverði hússins.
-----♦ ♦ ♦
Jóna Eðvalds
með nálægt
fullfermi
Hornafírði. Morgunblaðið.
NÚ er haustið komið í loftið á Homa-
firði, sæt lykt sfldarinnar fyllir vit
þeirra sem leggja leið sína niður á
bryggju. Jóna Eðvalds SF-20 kom
að landi með sinn annan farm af
sfld á þessu hausti. Síldina fengu
þeir að mestu leyti í einu kasti rétt
við Berufjarðarál.
„Við vorum ofan í álnum um ljósa-
skiptin en síldin var mjög dreifð og
við náðum ekki nema 25 tonnum,
en eftir að við færðum okkur svolítið
NV úr álnum komum við í kaldari
sjó og þá fóm torfumar að verða
þéttari, þar fengum við tæp 300 tonn
í einu kasti,“ sagði Ingólfiir.
Sfldin er mjög stór eða um 60%
yfír 300g. Jóna er sem kunnugt er
búin sjókælitönkum sem henta einkar
vel til geymslu á hráefni og er því
landað jafnört og vinnslan afkastar.
......... ♦ ♦ ♦
Sendiherrar
færðir
HELGI Ágústsson, sendiherra í
London, tekur við starfi ráðuneytis-
stjóra í utanríkisráðuneytinu frá og
með nk. mánudegi 18. september.
í frétt frá ráðuneytinu kemur enn-
fremur fram að núverandi ráðuneyt-
isstjóri, Róbert Trausti Ámason, fari
til starfa erlendis á vegum utanríkis-
þjónustunnar. Þá munu Ólafur Egils-
son, sendiherra í Danmörku, og Sig-
ríður Snævarr, sendiherra i Svíþjóð,
koma til starfa á aðalskrifstofu ráðu-
neytisins í ársbyrjun 1996.
Forsvarsmenn tveggja sjávarútvegsfyrirtækja á Vestfjörðum
Grunur um sölu 1.000 tonna
aflaheimilda til Þjóðveija
FORSVARSMENN tveggja sjávarútvegsfyrirtækja
á Vestfjörðum em gmnaðir um að hafa selt og átt
þátt í að selja þýsku fiskvinnslufyrirtæki 1.000
tonn af aflaheimildum á nýliðnu fiskveiðiári. Rann-
sóknarlögregla ríkisins hefur staðfest við Morgun-
blaðið að rannsókn á máli af þessu tagi sé að ljúka
og séu þrír einstaklingar hér á landi kærðir í mál-
inu. RLR vill að öðm leyti ekki tjá sig um málið.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er um
að ræða fyrirtækin Ósvör í Bolungarvík og Frosta
í Súðavík og þýska fyrirtækið Lubbert í Þýskalandi.
Málið kom upp í framhaldi af rannsókn á meint-
um fölsunum starfsmanna Ósvarar á undirskrift
og embættisstimpli bæjarstjórans í bænum er fyrir-
tækið leigði Frosta kvóta af m/b Dagrúnu.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hefur
umfangsmikil rannsókn lögreglunnar, með bók-
haldsrannsókn og yfirheyrslum, leitt í ljós ætlaða
sölu á nýliðnu fiskveiðiári á 1.000 þorskígildistonn-
um af aflaheimildum til fyrirtækisins Liibbert í
Bremerhaven í Þýskalandi, sem á og stýrir með
virkum hætti því hvemig veitt er upp í aflaheimild-
imar.
Eftir skoðun á bókhaldi fyrirtækjanna þykir
leika grunur á að um beina sölu hafí verið að
ræða en ekki lán vegna fjármögnunar til kaupa á
aflaheimildum.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins eru
fyrrverandi framkvæmdastjóri Ósvarar og fyrrver-
andi útgerðarstjóri fyrirtækisins kærðir í málinu
ásamt framkvæmdastjóra Frosta.
Um var að ræða 1.000 tonn, um það bil helm-
ing þess kvóta sem skráður er á togarann Bessa
frá Súðavík. Kvóti skipsins var í aflaheimildum á
ýmsar tegundir en þýska fyrirtækið fékk til vinnslu
1.000 tonn af karfa til verkunar.
Aflaheimildunum var breytt milli tegunda í
margþættum viðskiptum. Með þeim viðskiptum
er talið*að íslenskir milliliðir hafi náð til sín afla-
heimildum.
Allmörg útgerðarfyrirtæki víðs vegar um land-
ið, sem sjálf hafa úr litlum aflaheimildum að moða
og veika fjárhagsstöðu, hafa að sögn átt þátt í
að veiða upp í aflaheimildir Liibbert í föstum við-
skiptum.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er tal-
ið að mennimir hafi gerst sekir um brot á lögum
um fjárfestingar erlendra aðila í atvinnurekstri og
lögum um rétt til veiða í efnahagslögsögu ís-
lands. Brot gegn lögunum varða sektum, varð-
haldi eða fangelsi í allt að 2 ár.
Sænskir
kjúklingar
í Bónus
í dag
JÓHANNES Jónsson í Bónus
reiknar með að sænskir kjúklingar,
sem hann flytur inn, fáist tollaf-
greiddir í dag og verði til sölu í
verslunum Bónus seinnipartinn.
Enn er ekki ljóst hvaða verð verður
á þessum kjúklingum.
„Yfírdýralæknir er búinn að
samþykkja innflutninginn, en svo
þurfti ráðuneytisstjórinn að skrifa
upp á það og hann var ekki við í
dag [í gær]. Hann hefur ábyggilega
verið á þessum fundi niðri á torgi,“
sagði Jóhannes þegar hann var
spurður af hveiju kjúklingarnir
hefðu ekki fengist tollafgreiddir í
gær.
Jóhannes sagði að aðeins væri
um hálft tonn af kjúklingum að
ræða, en þetta fyrirtæki sem hann
keypti kjúklingana af framleiddi
ýmsar vömr úr kjúklingum, sem
ekki fengjust hér og hann myndi
flytja þessar vömtegundir inn í
framtíðinni. „Þetta er bara fyrsta
skrefið, en þetta er auðvitað mjög
merkilegt skref. Ef ég fæ þetta
frosna ósoðna kjöt inn í landið á
morgun, þá er það væntanlega í
fyrsta skiptið í 60-70 ár,“ sagði
Jóhannes ennfremur.
.. Morgunblaðið/Julíus
LOGREGLA fjarlægir einn þeirra fjögurra sem handteknir voru fyrir slagsmál á Laugardalsvelli.
Handteknir eftir stympingar
ENGLENDINGUR, sem kom til landsins í gær til
að fylgjast með leik Everton og KR í Evrópukeppn-
inni á Laugardalsvelli, var handtekinn um miðjan
dag á veitingastað í miðborginni fyrir að veita lög-
regluþjóni áverka í andliti og sat í fangageymslu
meðan leikurinn fór fram. Fjórir landar hans voru
handteknir vegna slagsmála á Laugardalsvelli með-
an leikurinn stóð yfir og voru færðir á brott. Lög-
regla fór með fimmmenningana til Keflavíkur eftir
að leik lauk í gærkvöldi og áttu þeir að halda utan
með stuðningsmannahópi Everton, að sögn Guð-
mundar Einarssonar aðalvarðstjóra. Hópur Eng-
lendinga var á áðurnefndum veitingastað í gær.
Að sögn vitnis var það íslendingur sem reitti ein-
hveija þeirra til reiði, og í framhaldi af því kom
til stympinga milli þeirra ensku — en þá var íslend-
ingurinn á bak og burt. Lögreglan skakkaði leik-
inn, en þá rak einn Englendinganna oinbogann í
andlitið á lögreglumanni. Englendingurinn var tek-
inn úr umferð, að sögn aðalvarðstjóra, en lögreglu-
maðurinn mun ekki alvarlega slasaður.
Tár úr steini
frumsýnd í kvöld
Þúsundir launþega lögðu niður vinnu
Talverð röskun
KVIKMYNDIN Tár úr steini
verður frumsýnd í Sljörnubíói
í kvöld. Myndin fjallar um ævi
Jóns Leifs og tónlist hans, en
sem kunnugt er ríkti lengi tóm-
læti um verk hans og það er
fyrst á allra síðustu árum sem
þau hafa verið hafin til vegs
og virðingar. Líf Jóns var einn-
ig stormasamt og þykir mikil
örlagasaga.
Það er Hilmar Oddsson sem
er leikstjóri myndarinnar en
Jóna Finnsdóttir er framleið-
andi. Handritshöfundar eru
Hjálmar H. Ragnarsson og
Sveinbjörn I. Baldvinsson, en
Sigurður Sverrir Pálsson kvik-
myndaði. Aðalleikendur eru
Þröstur Leó Gunnarsson sem
leikur Jón Leifs og Ruth Ólafs-
dóttir sem leikur Annie, fyrstu
eiginkonu hans.
I tilefni af frumsýningu
myndarinnar fylgir blaðinu í
yittQKnblnMb
-mr
dag sérútgáfa af menningar-
blaði Morgunblaðsins með
æviágripi Jóns Leifs og við-
tölum við nokkra helstu að-
standendur myndarinnar.
hjá fyrirtækjum
TALSVERÐ röskun varð víða á
vinnustöðum þegar launafólk lagði
niður vinnu til að mótmæla launa-
hækkunum þingmanna og æðstu
embættismanna þjóðarinnar. Mjög
mismunandi var hve röskunin var
mikil. Talið er að meirihluti launþega
hafi snúið aftur til vinnu að loknum
fundinum á Ingólfstorgi. Ekki eru
mörg dæmi um að fyrirtækjum hafi
verið lokað vegna fundarins.
Starfsemi í mjög mörgum fyrir-
tækjum var hálflömuð meðan fund-
urinn stóð yfir. Víða fór meirihiuti
starfsmanna og eftir urðu aðeins
nokkrir til að sjá um að halda fyrir-
tækjum opnum og um brýnustu verk-
efni.
Talið er að a.m.k. 60% starfsfólks
í Granda hafi lagt niður störf á há-
degi í gær og kom það ekki til vinnu
aftur eftir fundinn. Miðasalan á BSÍ
var Iokuð meðan fundurinn stóð yfír,
en röskun varð ekki á ferðum þar
sem bílstjórar seldu miða í bílunum.
Talsvert tjón
Hannes Sigurðsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri VSÍ, sagði að margir
stjórnendur fyrirtækja hefðu haft
samband við VSÍ fyrir hádegi í gær
til að spyrjast fyrir um rétt vinnuveit-
enda til að bregðast við vinnustöðvun-
inni. Hann sagði að margir væru
óánægðir með það tjón sem þeir hefðu
orðið fyrir vegna fundarins. Hver og
einn yrði hins vegar að taka ákvörðun
um viðbrögð við vinnustöðvuninni.
Um væri að ræða ólöglega aðgerð
og vinnuveitendur væru í fullum rétti
til að draga vinnutapið af launum
starfsmanna sinna.