Morgunblaðið - 15.09.1995, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Fylgst með
stórum
ökutækjum
LÖGREGLAN á Suðvesturlandi
ætlar að ráðast í sameiginlegt um-
ferðarverkefni dagana 19.-21. sept-
ember. Að þessu sinni verður hugað
sérstaklega að skoðun og ástandi
stórra ökutækja, s.s. fólks- og vöru-
flutningabifreiða. Þá verður hugað
að tengitækjum, sem og ökuréttind-
um viðkomandi.
Tilgangurinn með umferðarátak-
inu er að kanna hvort hlutaðeigandi
ökutæki hafi verið færð til skoðun-
ar, hvort greiddar hafí verið af þeim
lögboðnar tryggingar, hvort staðin
hafí verið skil á opinberum gjöldum,
s.s. þungaskatti, hvemig ástand
ökutækjanna er almennt, notkun
yfírbreiðslna o.s.frv. og hvort öku-
menn hafí tilskilin réttindi.
Mjög mikil andstaða víð hækkun strætófargjalda
Morgunblaðið/Ásdís
UNDIRSKRIFTASÖFNUNIN hófst á Hlemmi í gær og voru viðtökur mjög góðar.
Vatnsyfirborð Grímsvatna hefur risið um 15-17 m á ári
Von á hlaupi í
vetur eða vor
Grímsvötn
VA T N ASj ÖKU LL
VATNSYFIRBORÐ Grímsvatna í
Vatnajökli hefur risið um 15 til 17
metra á einu ári og vantar aðeins
um 8 metra upp á að ná sömu hæð
og fyrir síðasta hlaup fyrir íjórum
ámm. Magnús Tumi Guðmundsson,
jarðeðlisfræðingur við Raunvísinda-
stofnun Háskólans, býst við hlaupi
í Grímsvötnum í vetur eða vor.
Þó lægri jarðhiti hafí haft þær
afleiðingar að hlaup í Grímsvötnum
hafí orðið minni með ámnum em
þau stærstu reglulegu jökulhlaup á
Islandi. Hámarksrennsli í síðustu
hlaupum hefur orðið um fímmfalt
rennsli Þjórsár. Vatnsyfírborð
Grímsvatna var 1.442 m yfir sjávar-
máli 14. júní síðastliðinn.
Grímsvötn em sigketill inn í miðj-
um Vatnajökli vestanverðum.
„Jarðhiti bræðir ísinn og myndar
vatn undir jöklinum," segir Magnús
Tumi. „ísinn umhverfís er hærri og
lokar vatnið af. Jarðhitinn heldur
hins vegar stöðugt áfram að bræða
ísinn og þegar vatnsyfírborðið er
orðið nógu hátt brýtur vatnið sér
leið í göngum í botni jökulsins.
Venjulega fara 70-80% af vatninu
fram eða um einn til einn og hálfur
rúmkílómetri af vatni," segir Magn-
ús Tumi.
Leiðhlaupa
■ undirjökli úr
I Grímsvötnum
> / Skeiöará
50 km leið
Hann segir að vatnið fari um 50
km langa leið við botn jöklsins og
komi niður í Skeiðará. „Jarðhitinn
hefur verið að lækka með þeim af-
leiðingum að hlaupin hafa minnkað
töluvert í Grímsvötnum frá því um
miðja öldina. Engu að síður eru
hlaupin stærstu reglubundnu jökul-
hlaupin hér á landi og t.d. tölvuert
stærri en Skaftárhlaup," segir hann
en eins og áður kom fram er heildar-
vatnsmagn hlaupa í Grímsvötnum
á bilinu 1 til 1,5 rúmkílómetri.
Hámarksrennslið hefur verið 2.000
rúmmetrar á sekúndu eða um fímm-
falt rennsli Þjórsár. Við venjuleg
skilyrði hlaupa Grímsvötn á 4 til 6
ára fresti. Síðast varð röskun á
hlaupunum í kjölfar smágoss í
Grímsvötnum árið 1983.
Magnús Tumi sagði að hlaupin
tækju oft um þijár vikur. „Vatnið
rís mjög hægt, nær hámarki og
dettur snögglega niður,“ sagði
hann. Hann sagði að hlaupin hefðu
ekki vaídið tjóni á samgöngumann-
virkjum. Grímsvötn eru ísi hulin að
mestu en smávakir finnast stundum
undir vestari Svíahnjúk. ísinn er
víðast um 250 m þykkur en vatnið
undir 50 til 150 m.
Kraftur og handagangur
roNusi
Iláskólabíó
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
Verk eftir Rossini, Khazaturian,
Doppler, Revueltas, Turina, Pro-
kofiev, Rodrigo og de Falla. S.Í. u.
stj. Enrique Batiz.
Fimmtudaginn 14. sept.
FERTUGASTI og sjötti starfsvet-
ur Sinfóníuhljómsveitar íslands
hófst fyrir fullu húsi í gær. Að
venju var létt yfír verkefnavaii
upphafstónleikanna og suðrænir
tónar í fyrirrúmi. Kynnir var Edda
Þórarinsdóttir leikkona, og fórst
henni dável úr hendi að slökkva
fróðleiksþorsta áheyrenda um
tónskáldin átta og verk þeirra.
Hljómsveitarstjórinn, Enrique
Batiz, listrænn stjórnandi Fíl-
harmóníusveitar Mexíkóborgar
og einn aðalgestastjómenda kon-
unglegu Filharmóníusveitar
Lundúna, virðist eftir tónleika-
skrá að dæma geysireyndur í fag-
inu; kvað t.a.m. hafa stjómáð
upptökum á yfir 120 geisladisk-
um, enda þótt undirrituðum þætti
stjómslög hans stundum jaðra við
að vera alltorræð.
Engu að síður tókst Senor
Batiz að ná býsna góðum hljómi
úr hljómsveitinni, ef frá er talinn
marsinn úr ópem Prokofíevs,
„Ástir þriggja glóaldina" (svo
nefnt í tónleikaskrá), sem var
heldur grófar fluttur en flest ann-
að og skorti meiri elegans. Aftur
á móti náðist aðdáunarverð syngj-
andi í Adagióinu úr Spartakusi
Katsjatúrians, sem er betur þekkt
sem kynningarstefíð úr sjón-
varpsþáttaröðinni „Onedin Line“
forðum daga, og hlustendur fóm
ekki varhluta af krafti og látum
í mexíkóska verki Revueltasar,
Sensamaya, er minnti á hasar-
kennda kvikmyndatónlist í anda
kappans Indiana Jones, að mestu
í sjöskiptum fmmskógartakti.
Afl-úthleðslur hljómsveitarinnar,
ekki sízt hjá lávörðum látúnsins,
vora víðar eftirtektarverðar þetta
kvöld, einkum í síðasta verkinu,
Þríhyrnda hattinum eftir Manuel
de Falla.
Fyrstu einleikarar kvöldsins
vom flautuleikarahjónin Guðrún
Birgisdóttir og Martial Nardeau,
er léku saman dúett í verki eftir
bræðuma Franz og Karl Doppler,
Minningar frá Prag. Þau hjónin
léku afbragðsvel, en leiftrandi
flauturanumar gátu þó ekki falið
heldur þynnildislegt innihald
þessa hljómskálakennda afþrey-
ingarverks frá Biedermeiertíma
19. aldar, upphaflega við píanó-
undirleik, en hér „endurfmm-
flutt“ í nýrri orkestmn Atla Heim-
is Sveinssonar.
Hin stutta Orgia úr Danzas
Fantasticas eftir Turina bar að-
alsmerki fágaðrar orkestmnar á
þjóðlegum spænskum gítarstíl, og
var jafnfalleg og hún var
skammæ. Einar Kr. Einarsson lék
einleik á þjóðarhljóðfæri Spán-
veija í hæga miðkaflanum á
Concierto de Aranjuez eftir Rodr-
igo, kannski bezt heppnaða gítar-
konsert tónbókmenntanna, og lék
af viðeigandi ljóðrænni yfírvegun.
Tókst uppmögnun gítarsins með
ágætum, því jafnvægið milli hans
og hljómsveitar var eins og bezt
varð á kosið.
í heild má segja, að 46. starfs-
árið hafí farið vel af stað, og ef
marka má aðsókn og undirtektir
áheyrenda í gær, þarf Sinfóníu-
hljómsveitin ekki að kvíða sinnu-
leysi tónlistarannenda á vetri
komandi.
Ríkarður Ö. Pálsson
Hafín und-
irskrifta-
söfnun
HAFIN er undirskriftasöfnun í
Reykjavík til að mótmæla ákvörð-
un sljómar SVR og borgarráðs
að hækka fargjöld strætisvagn-
anna. Söfnuninni, sem hófst með
formlegum hætti á Hlemmi í gær,
var hrint af stað að frumkvæði
íbúasamtaka Grafarvogs.
Friðrik Hansen Guðmundsson,
formaður íbúasamtaka Grafar-
vogs, sagði að stefnt væri að þvi
að fá foreldrafélög, nemendafélög
skólanna og félög aldraðra til að
dreifa undirskriftalistum um alla
borgina. Fólki yrði gefinn kostur
á að skrifa undir mótmælalistana
á helstu strætisvagnastöðvum og
víðar. Undirskriftalistarnir yrðu
síðan afhentir borgarfulltrúum á
fundi borgarstjórnar 21. septem-
ber, en á fundinum verður tekin
endanleg afstaða tii tillögunnar
um hækkun gjaldanna.
Friðrik sagðist hafa orðið var
við mjög jákvæð viðbrögð við
undirskriftasöfnuninni. Fólki of-
byði þessi mikla hækkun á gjöld-
um aldraðra og unglinga. Hann
sagði að 100% hækkun á strætó-
fargjöldum þessara hópa væri
alltof mikil.
8.000 kr. á
rauðu ljósi
SAUTJÁN vora teknir fyrir að
aka gegn rauðu ljósi og 83 fyr-
ir of hraðan akstur í höfuðborg-
inni á miðvikudag.
Þeir, sem óku gegn rauðu
ljósi, eiga von á allt að átta
þúsund króna sekt. Að auki
veldur akstursmáti þeirra mik-
illi hættu á óhappi. I gærmorg-
un voru lögreglumenn enn að
fylgjast með akstri við gatna-
mót og stóðvuðu 10 ökumenn
til viðbótar.
Hraðakstur var mældur víða
um borgina á miðvikudag, m.a.
á Sæbraut og Reykjanesbraut.
Þeir sem hraðast fóru óku á
100 kílómetra hraða.
Lítil meiðsl í
árekstri
MJÖG harður árekstur varð á
mótum Réttarholtsvegar og
Sogavegar kl. 14.23 í gær, en
ekki urðu alvarleg slys á fólki.
Tveir bílar skullu saman á
gatnamótunum og skemmdust
þeir svo mikið að fjarlægja varð
þá með aðstoð kranabíls. Öku-
menn beggja bílanna voru flutt-
ir á slysadeild, en að sögn lög-
reglu reyndust meiðsl þeirra
ekki alvarleg.
Reynitré
rifin upp
FIMMTÍU reynitré voru rifin
upp með rótum við Alaska í
Skógarseli í fyrrinótt.
Skemmdarvargamir fóru inn
á lóð fyrirtækisins, rifu 50 smá-
tré upp og stöfluðu þeim í haug.
Ok á ljós
og valt
BRONCO-jeppa var ekið á um-
ferðarljós á mótum Vestur-
landsvegar og Víkurvegar um
hádegisbil í gær.
Við ákeyrsluna valt jeppinn,
en engin slys urðu á fólki.
Andlát
JON EINARSSON
SÉRA Jón Einarsson,
prófastur í Saurbæ á
Hvalfjarðarströnd, lést
í gærmorgun á Sjúkra-
húsi Akraness, en hann
hafði átt við veikindi
að stríða um nokkurra
mánaða skeið.
Séra Jón var 62ja
ára að aldri, fæddur
15. júlí 1933 í Lang-
holti í Andakílshreppi,
sonur Einars Sig-
mundssonar bónda og
konu hans Jóneyjar
Sigríðar Jónsdóttur
húsmóður. Séra Jón
lauk stúdentsprófí frá MA vorið
1959 og Cand. theol. prófi frá guð-
fræðideild Háskóla íslands árið
1966. Hann var kennari um tíma
en sóknarprestur í Saurbæjar-
prestakalli frá árinu 1966.
Séra Jón gegndi mörgum trúnað-
arstörfum innan kirkjunnar. Hann
var prófastur í Borgarflarðarpróf-
astsdæmi 1977 til 1978 og frá 1980.
Hann var formaður Prófastafélags
íslands frá árinu 1989, kirkjuþings-
maður frá 1976 og kirkjuráðsmaður
frá 1986. Auk þess sat hann um
tíma í stjórn Prestafélags íslands.
Séra Jón starfaði einnig mikið að
fræðslumálum og
menningarmálum í sínu
héraði og var t.a.m.
formaður fræðsluráðs
Vesturlands 1978-
1982 og sat um tíma í
skólanefnd Leirárskóla,
skólanefnd Fjöl-
mikið að
var m.a.
I
í
i
I
I
I
»
I
I
»
I
i
brautaskóla Vestur-
lands og í skólanefnd
Héraðsskólans í Reyk-
holti. Hann starfaði
mikið fyrir Sögufélag
Borgarfjarðar og var
framkvæmdastjóri fé-
lagsins í Í2 ár.
Séra Jón vann mjög
sveitarstjórnarmálum og
formaður héraðsnefndar
Borgarfjarðarsýslu frá árinu 1989.
Hann sat í sveitarstjórn Hvalfjarðar-
strandarhrepps frá 1974 og var
oddviti sveitarfélagsins frá 1978.
Séra Jón tók talsverðan þátt í stjórn-
málum og sat m.a. í miðstjórn Fram-
sóknarflokksins í 15 ár.
Eftir séra Jón liggur fjöldi greina
og bókakafla í fjölmörgum tímarit-
um og safnritum.
Eftirlifandi eiginkona Jóns er
Hugrún Valný Guðjónsdóttir. Séra
Jón lætur eftir sig fjögur uppkomin
böm.
|
I
i