Morgunblaðið - 15.09.1995, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR15. SEPTEMBER 1995 9
Enn um hundrað laus störf við fiskvinnslu
Fiskverkendur minntir
ájafnréttislög
SAMTÖK fiskvinnslustöðva hafa
vakið athygli fiskverkenda á þvi að
hvers kyns mismunun á grundvelli
kynferðis bijóti í bága við jafnréttis-
lög. Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra telur að ef farið sé að lögum
megi finna íslendinga í yfir hundrað
laus störf í fiskvinnslu.
Páll sagði að viðbrögð við aug-
lýsingu félagsmálaráðuneytis um
laus störf í fiskvinnslu hefðu verið
vonum framar. „Af um 290 lausum
störfum hefur verið ráðið í 106.
Nú eru í biðstöðu 130 til 150 störf
og því vantar kannski um 100
manns ennþá. Nóg framboð virðist
vera af fólki í störfin. Hins vegar
virðast stöku vinnuveitendur vera
dálítið fastir í fortíðinni og vilja
heldur konur í pökkun og snyrt-
ingu. Slíkt er hins vegar ekki sam-
rýmanlegt jafnréttislögum og því
hafa Samtök fiskvinnslustöðva
sent áminningu í símbréfi á sínar
stöðvar til að vekja athygli stjórn-
enda á því að jafnréttislög banni
hvers konar mismunun eftir kyn-
ferði. Ef horfið væri frá kyngrein-
ingunni væri út af fyrir sig nóg
af fólki í lausu störfin," sagði Páll.
Málið í biðstöðu
Páll átti fund með Arnari Sigur-
mundssyni, formanni Samtaka
fiskvinnslustöðva, og Ágústi El-
íassyni, framkvæmdastjóra Sam-
taka fiskvinnslustöðva, á miðviku-
dag. „Arnar og Ágúst gerðu mér
grein fyrir því, eins og ég vissi
reyndar áður, að enn vantaði 100
til 120 manns í fiskvinnsluna.
Hins vegar voru þeir ánægðir
með þau viðbrögð sem orðið höfðu
hjá vinnumiðlununum og hvað
hefði tekist að ráða í mörg störf.
Eins og ég höfðu þeir áhyggjur
af atvinnuleysistryggingarsjóði
,sem þarf mikið af peningum, og
við ætlum að bíða í nokkra daga
enn og vita hvort ekki rætist úr,“
sagði Páll.
Hann sagði að beðið yrði við-
bragða við skilaboðum samtak-
anna og ekki afgreiddar beiðnir
um atvinnuleyfi til útlendinga utan
Evrópska efnahagssvæðisins
næstu daga. Ekki vildi Páll segja
til um hvað beðið yrði lengi en
sagðist verða í sambandi við Sam-
tök fiskvinnslustöðva.
VSÍ hefur miklar áhyggj-
ur af hækkunarskriðu
Þórarinn segir að VSÍ sé jafn
fært um að horfa í baksýnisspegil-
inn og forstjóri Þjóðhagsstofnunar.
„Okkur er það vel ljóst að það sem
af er árinu er verðbólgutakturinn
1,8% en hann hefur farið hækkandi
með hveijum mánuðinum og við
höfum frekar áhyggjur af framtíð-
inni en fortíðinni,“ sagði hann.
Launanefnd fljótlega
kölluð saman
„Við höfum miklar áhyggjur af
því þegar landbúnaðarvöruverðið
fer svona upp, vegna þess að annað
verðlag hefur tilhneigingu til að
fylgja á eftir," segir Þórarinn.
„Við höfum líka miklar áhyggjur
af þeirri hækkunarskriðu sem okk-
ur sýnist að sveitarfélögin, undir
forystu Reykjavíkurborgar, séu að
hella fram og horfum á það í undr-
un að hvorki fulltrúar meirihluta
eða minnihluta í borgarstjórn
Reykjavíkur ræða um hagræðingu,
útboð á rekstrarverkefnum eða
annað sem gæti orðið til þess að
lækka kostnað við þjónustu, til að
mynda Strætisvagna Reykjavíkur,“
segir hann.
Aðspurður kvaðst Þórarinn gera
ráð fyrir að launanefnd aðila vinnu-
markaðarins kæmi fljótlega saman
til að meta hvort forsendur samn-
inga héldu.
„EF það er varanleg breyting að
verðlag hækki um 0,3-0,4% í hveij-
um mánuði, þá er hægt að fara að
leiða að því rök að verðbólga hér á
landi sé ekki sambærileg við það
sem gerist í nálægum löndum, en
forsenda kjarasamninganna er sú
að verðbólga hér verði sambærileg
og í nálægum löndum. Þar erum
við kannski að tala um 2‘/2%-3
V2°Á“ segir Þórarinn V. Þórarins-
son, framkvæmdastjóri VSÍ.
í ályktun framkvæmdastjómar
VSÍ á þriðjudag segir að gríðarl'egar
hækkanir landbúnaðarafurða ógni
verðlagsforsendum kjarasamninga.
Forstjóri Þjóðhagsstofnunar benti
aftur á móti á það í Morgunblaðinu
á miðvikudag að eitthvað sérstakt
þyrfti að gerast til að verðlagsbreyt-
ingarnar næstu mánuði yrðu óhag-
stæðari en í nágrannalöndunum.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
GUÐBJORG Jóhannsdóttir í grænmetisdeildinni og Árni Bene-
diktsson vöruhússtjóri KA við grænmetisborðið í versluninni.
Salanjókst
um 120%
Selfossi. Morgunblaðið.
SALA á grænmeti og ávöxt-
um í Vöruhúsi KÁ á Selfossi
jókst um 100% í peningum talið
og 120% í magni eftir að nýtt
og betra grænmetisborð var
tekið í notkun. „Það hefur orðið
hrein sölusprenging í grænmeti
og ávöxtum," sagði Árni Bene-
diktsson vöruhússtjóri KÁ.
Hann sagði að grænmetis- og
ávaxtaborðið væri fallegt og
freistandi ásamt því að áhersla
væri lögð á að vera með nýjar
og góðar vörur og að borðið
liti alltaf sem best út. Hann
sagði einnig að ákveðinn áhuga-
samur hópur starfsstúlkna sæi
um grænmetisborðið frá degi
til dags.
betur?
--0
St. 28-35 kr. 1.995,- • St. 36-46 kr. 2.495,
Nýtt kortatímabil
Opið kl. 12-18.30
laugard. kl. 10-16
Sendum í póstkröfu
sími. 581 1290
Innilegar þakkir fyrir mér sýndan hlýhug í til-
efni af 75 ára afmœli mínu 7. september sl.
Sérstakar þakkir fœri ég bœjarstjórn Kópavogs.
Sigfús Halldórsson.
Franskar dragtir
og síðbuxur frá stærð nr. 36
Opib laugardag frá kl. 10-14.
- Veriö velkomin -
neðst við Opið virka daga
kl.9-18,
Dunhaga, laugardaga
sími 562 2230 kl. 10-14.
VeftQ - frábær opnunartilboð
Við opnum nýjo
og breytto verslun
FatnQður á dömurf
föndur, bútasaumsefni,
gardínuefni.
Vefta,
Hólagarði, Lóuhólum 2-6, sími 557 2010.
Fólk er alltaf
aðvinna
íGullnámunni:
78 milljónir
Vikuna 7. til 13. september voru samtals 78.329.933 kr.
greiddar út í happdrættisvélum um allt land.
Þetta voru bæöi veglegir Silfurpottar
og fjöldinn allur af öörum vinningum.
Silfurpottar í vikunni:
Dags. Staður Upphæð kr.
7. sept. Glaumbar........ 247.524
9. sept. Háspenna, Laugavegi. 305.643
10. sept. Sjallinn, ísafirði. 132.594
10. sept. Rauða Ijónið........ 87.360
10. sept. Rauða Ijónið.... 51.491
10. sept. Blásteinn........ 62.230
13. sept. Blásteinn...... 405.391
Staða Gullpottsins 14. september, kl. 10:00
var 6.340.334 krónur.
Silfurpottarnir byrja alltaf i 50.000 kr. og Gullpottarnir I 2.000.000 kr.
og hækka síðan jafnt og þétt þar til þeir detta.