Morgunblaðið - 15.09.1995, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1995 19
Fáðu þér miða fyrir kl. á laugardaginn.
Breski Verkamannaflokkurinn hefur
17 prósentustig umfram íhaldsmenn
Major boðar
endurskoðun
á stefnunni
Verið
viðbúin
vinningil
Miðvikudagsblabi Morgunblabsins, 20. september nk., fylgir blabauki
sem heitir Brunavarnir og björgun og er gefinn út í tengslum vib
norrænt brunatækniþing, sem haldib er hér á landi 20.-22. september nk.
í þessum blabauka er fjölþætt starfsemi Slökkvilibs Reykjavíkur kynnt.
Einnig verba í blabaukanum mannleg vibtöl og reynslusögur
slökkviliðsmanna og gagnlegar upplýsingar um fyrstuhjálp, slysavarnir,
fyrirbyggjandi abgerbir og hvernig bregbast eigi vib eldi o.m.fl.
Þeim, sem áhuga hafa á ab auglýsa í þessum blabauka, er bent á
ab tekib er vib auglýsingapöntunum til kl. 16.00 föstudaginn >,
15. september.
Nánari upplýsingar veita Agnes Erlingsdóttir og Petrína
Olafsdóttir, starfsmenn auglýsingadeildar, í síma 569 1100
eba meb símbréfi 569 1110.
pttTigMimMíiMíii
-kjarni málsins!
Stuttur fundur Clintons og Dalai Lama
Kínveijar mót-
mæla harðlega
Washington, Peking. Reuter.
BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna,
átti stuttan fund í gær með Dalai
Lama, útlægum leiðtoga Tíbeta, en
ekki voru leyfðar neinar myndatök-
ur, augljóslega til að styggja ekki
kínversk stjórnvöld um of. Þau báru
samt fram formleg mótmæli gegn
fundinum, sem þau kölluðu afskipti
af kínverskum innanríkismálum.
Að sögn embættismanna í Hvíta
húsinu stóð fundur þeirra Clintons
og Tenzin Gyatso eða hins 14. Dalai
Lama í fimm mínútur og var tekið
svo til orða, að forsetinn hefði „litið
inn“ á fund Dalai Lama og A1 Gore
varaforseta en hann stóð í 40 minút-
ur. Gore hitti svo aftur Dalai Lama
sem trúarleiðtoga en ekki sem leið-
toga tíbetsku útlagastjórnarinnar í
Indlandi.
Mike McCurry, talsmaður Clint-
ons, sagði í yfirlýsingu í gær, að
Bandaríkjastjórn héldi áfram að
hvetja til viðræðna milli kínverskra
stjórnvalda og Dalai Lama en hann
berst fyrir sjálfstæði Tíbets. Kínverj-
ar réðust inn í landið 1950 og lögðu
það undir sig.
Hveh’a til viðræðna
Li Zhaoxing, aðstoðarutanríkisráð-
herra Kína, kallaði Scott Hallford,
starfandi sendiherra Bandaríkjanna
í Peking, á sinn fund í gær og mót-
mælti harðlega fundi Clintons og
A1 Gore með Dalai Lama. Sagði
hann, að Tíbet væri óaðskiljanlegur
hluti Kína og því væri um að ræða
afskipti af kínverskum innanríkis-
málum. Þá sagði talsmaður kín-
verska utanríkisráðuneytisins, að
kínverska stjórnin myndi ekki ræða
við Dalai Lama nema hann félli frá
kröfum um sjálfstæði Tíbets.
prósentustigi frá því í síðasta mán-
uði. í öðrum könnum hefur komið
fram, að forskot Verkamannaflokks-
ins hefur minnkað en er þó yfir 20
prósentustig.
Áherslan á lítil fyrirtæki
Major sagði í viðtali við dagblaðið
Daily Express, sem styður hann
dyggilega, að kjarninn í nýju stefn-
unni væri stuðningur við lítil fyrir-
tæki, sem hann kvað mundu standa
undir helmingi allra starfa í Bret-
landi innan tíðar. Ýmsir frammá-
menn í íhaldsflokknum sögðust
einnig vona, að í hinni nýju stefnu
yrði boðaður róttækur niðurskurður
á framlögum til velferðarmála en
þau eru um þriðjungur ríkisútgjald-
anna.
Andstæðingar Majors gera lítið
úr yfirlýsingum hans og segja, að
hann hafi áður haft uppi stór orð
án þess nokkuð fylgdi á eftir.
„Vandamálið hjá Major er það, að í
hvert sinn sem hann ætlar að fara
hugsa stórt, neyðist hann til að horf-
ast í augu við feril íhaldsflokksins
í 16 ár,“ sagði Paddy Ashdown, leið-
togi frjálslyndra demókrata.
Reuter
Þingað um
fjárlaga-
hallann
BOB Dole, leiðtogi repúblikana
í öldungadeild Bandaríkjaþings,
ávarpar ráðstefnu beggja
deilda þingsins um sjúkratrygg-
ingar, fjárlögin og efnahags-
mál. Dole sagði að ráðstefnunni
væri ætlað að finna leið til að
eyða fjárlagahallanum á sjö
árum með samvinnu repúblik-
ana og demókrata. Newt
Gingrich, forseti fulltrúadeild-
arinnar lengst til hægri í
fremstu röðinni.
London. Reuter.
JOHN Major, forsætisráðherra Bret-
lands, boðaði í gær mestu end-
urskoðun, sem gerð hefur verið á
stefnu bresku stjórnarinnar og
íhaldsflokksins í tvo áratugi. Skýrði
hann frá þessu á ríkisstjórnarfundi
í gær og í blaðaviðtali réðst hann
hart gegn Verkamannaflokknum,
sem hann sagði ekki hafa neina
skýra stefnu í málefnum lands og
þjóðar. Samkvæmt nýrri skoðana-
könnun hefur Verkamannaflokkur-
inn 17 prósentustig umfram íhalds-
flokkinn.
Major hefur boðað ráðherrana til
fundar á sveitasetri sínu, Chequers,
til að ræða hina nýju stefnumótun
og hann vonast til, að hún muni
tryggja íhaldsflokknum sigur í
næstu kosningum í fimmta sinn í
röð. Eiga kosningar að vera í síð-
asta lagi um mitt ár 1997.
Samkvæmt skoðanakönnunum er
við ramman reip að draga fyrir
Major og íhaldsmenn. Könnun, sem
dagblaðið Guardian birti í gær, sýn-
ir, að Verkamannaflokkurinn hefur
17 prósentustig umfram íhalds-
flokkinn og hefur bætt við sig einu
IMUAIIKI
MORGUN
BLAÐSINS
Brunavarnir og björgun